Þjóðviljinn - 21.04.1983, Síða 23

Þjóðviljinn - 21.04.1983, Síða 23
Fimmtudagur 21. aprfl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23 íþróttir Umsjón: Víðir Sigurðsson KA stóð í Víkingum Annnarrardeildarlið KA veitti meisturum Víkings harða keppni í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í handknattleik karla í gærkvöldi. Víkingar sigruðu 28-23, í Laugar- dalshöllinni og eru komnir í undan- úrslitin. Þá sigraði Þór Vestmanna- eyjum Reyni í Sandgerði 27-20. Lars Göran gerði fimm mörk fyrir Þór en Dalíel Einarsson var marka- hæstur hjá Reyni, skoraði 4 mörk. - gsm/VS Fimleika- liðið til Noregs Landsliðið í fímleikum er á för- um til Kristiansand í Norgi þar sem það tekur þátt í Norðurlandameist- aramótinu um helgina, á laugardag og sunnudag. Liðið er þannig skipað: Kristín Gísladóttir, Rannveig Guðmunds- dóttir, Hulda Ólafsdóttir, Guðjón Gíslason og Jónas Tryggvason. Til vara er Dóra Sif Óskarsdóttir. Þjálfarar stúlknanna eru Karólína Valtýsdóttir og Valdemar Cziz- mowsky en piltanna Guðni Sigfús- son og Shen Shengjini. Þróttarar skíða best Þróttur frá Neskaupstað varð sigurvegari í stigakeppni félaga á Skíðamóti Austurlands sem fram fór í tveimur hlutum fyrr í þessum mánuði. Þróttarar hlutu 260,5 stig, Huginn frá Seyðisfirði 215, Höttur, Egilsstöðum 107, Austri, Eskifirði, 38,5, Leiknir, Fáskrúðsfirði 19 og Hrafnkell Freysgoði, Breiðdal fékk tíu stig. Þrettán ára og eldri kepptu í Oddsskarði en 12 ára og yngri á Seyðisfirði. Fylkir náði í sín fyrstu stig á Reykjavíkurmótinu í meistar- aflokki karla í knattspyrnu í gærkvöldi með því að sigra Þrótt 1-0 á Melavellinum. Næsti leikur er Valur-Ármann á laugardaginn kl. 14. D raumaúrslitaleikur í Aþenu þann 25. maí Hamburger mætir Juventus í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða Draumur margra knattspyrnu- unncnda víðs vegar um lönd rættist í gærkvöldi, stjörnum prýdd lið Hamburger SV frá Vestur- Þýskalandi og Juventus frá Italíu mætast í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu sem fram fer í Aþenu 25. maí. Juventus lenti ekki í miklum erfíðleikum gegn Widzew Lodz í Póllandi, 2-2 jafntefli var nóg og vel það, en Hamburger átti í meira strögli við að sigra spænsku mcistarana Real Sociedad 2-1 á heimavelli. í Evr- ópukcppni bikarhafa mætast Aber- deen frá Skotlandi og Real Madrid frá Spáni í Gautaborg 11. maí og Benfíca frá Portúgal mætir belg- íska fclaginu Anderlecht í tveimur úrslitaleikjum í UEFA-bikarnum. Leikur Juventus og Lodz var all sögulegur. ítalirnir, með sex heimsmeistara innanborðs, höfðu unnið fyrri leikinn 2-0 og juku enn forskotið þegar Paolo Rossi skoraði á 33. mínútu. Surlit jafnaði fyrir Lodz á 55. mínútu og í fagn- aðarlátunum kom flaska fljúgandi af áhorfendapöllunum og lenti í höfði annars línuvarðarins. Leik- menn voru þegar kallaðir af leikvelli, lögreglan ruddist upp á pallana og fann sökudólginn og þá var hægt að hefja leikinn að nýju, línuvörðurinn birtist aftur með um- búðir miklar á höfði. Tíu mínútum fyrir leikslok skoraði Surlit aftur, 2-1 (2-3), en þremur mínútum síðar jafnaði Michel Platini úr víta- spyrnu, 2-2, og Juventus hafði þar með sigrað 4-2 samanlagt. Jafnteflið í San Sebastian á Spáni, 1-1, í fyrri leiknum gegn Re- al Sociedad, virtist ætla að duga Hamburger til að komast í gegn og útlitið varð enn bjartara fimmtán mínútum fyrir leikslok þegar Vestur-Þjóðverjarnir tóku forystu með marki Dietmar Jakobs. Aðeins fjórum mínútum síðar jafn- aði Diego, 1-1, og allt stefndi í framlengingu. Þá spratt upp Thomas Von Heesen og skoraði sigurmark Haniburger, 2-1, sjö mínútum fyrir leikslok og farseðill- inn til Aþenu var tryggður. Real-Aberdeen Spænsku bikarmeistararnir, Re- al Madrid, stóðu vel að vígi eftir 2-2 jafntefli gegn Austria í Wien og þeim urðu engin mistök á í heima- leiknum, utan eitt sjálfsmark. San- tillana náði forystunni fyrir Real strax á 10. mínútu en sjálfsmark Juan Jose á 68. mínútu jafnaði metin. Juanito skoraði, 2-1, skömmu síðar og Santillana inn- siglaði sigurinn, 3-1, og 5-3 saman- Rix og Withe valdir í landsliðshópinn Bobby Rohson, landsliðseinvald- ur Englendinga í knattspyrnu, bætti tveimur leikmönnum í lands- liðshóp sinn í gær. Þeir eru Gra- ham Rix frá Arsenal, en fjarvera hans úr hópnum hafði vakið mikla athygli, og miðhcrjinn citilharði hjá Aston Villa, Peter Withe, sem ckki hefur verið í landsliðshópi síð- an í fyrravetur. Englendingar leika við Ungverja á Wembley í Evópu- keppni landsliða á miðvikudaginn kemur. -VS lagt. Real Madrid mætir því Aber- deen frá Skotlandi í úrslitaleiknum en Skotarnir unnu Waterschei eins og kunnugt er. Benfica náði jöfnu Það leit ekki allt of vel út hjá hinu fræga portúgalska félagi, Ben- fica, eftir að rúmensku „háskóla- stúdentarnir" frá Universitata Cra- iova höfðu náð markalausu jafn- tefli í Lissabon. Rúmenarnir náðu síðan forystu, 1-0, á heimavelli sín- um í gærkvöldi eftir 17 mínútur og með þeim lokatölum hefði þarlent lið verið kornið í úrslit í Evrópu- keppni í fyrsta skipti. En, það var austantjaldsmaður sem felldi þá, Júgóslavinn Filipovic jafnaði fyrir Benfica, 1-1, á 57. mfnútu og þar við sat, markatalan var jöfn en Benfica kemst áfram á útimarkinu. Andstæðingarnir verða Ander- lecht frá Belgíu, sem hafði sigrað Bohemians 1-0 í Prag í fyrri leiknum. Belgarnir höfðu því allt í hendi sér og í gærkvöldi gerðu þeir út um vonir Tékkanna með tveimur mörkum í fyrri hálfleik. Erwin Vanderbergh skoraði úr vít- aspyrnu og Daninn Kenneth Brylle bætti öðru marki við. Alex Czerni— atynski skoraði þriðja mark Belg- anna í síðari hálfleik en lands- liðsmaðurinn Jakubec náði að koma Tékkunum á blað,' 3-1. Anderlecht sigraði þar með saman- lagt, 4-1. -VS Japanfararnir, frá vinstri, Hilmar Konráðsson, Gunnar Finnbjörnsson, Tómas Sölvason og Kristján Jónasson. „Allt um- fram 48. sæti er jákvætt64 „Við urðum í 48. sæti af 59 þjóð- um á síðasta heimsmeistaramóti, alt fram yfir það er jákvætt og á það stefnum við,“ sagði Gunnar Jó- hannsson formaður Borðtennis- sambands Islands á blaðamanna- fundi í gær. Karlalandsliðið í borðtennis leggur af stað til Tokyo í Japan á sunnudag og tekur þar þátt í heimsmeistaramótinu sem hefst 28. apríl og stendur til 9. maí. Karlalandsliðið er skipað fjórum leikmönnum og eru þeir eftirtaldir: Gunnar Finnbjörnsson, Erninum, Hilmar Konráðsson, Víkingi, Kristján Jónasson, Víkingi og Tómas Sölvason, KR. Gunnar hef- ur leikið 30 landsleiki, Hilmar 23 en Kristján og Tómas einn hvor. Þátttökuþjóðir á mótinu verða 62, fleiri en nokkru sinni áður, og leikur íslenska liðið í H-riðli 3. deildar ásamt sex þjóðum öðrum. Þær eru: Nýja-Sjáland, Luxem- burg, Marokkó, Líbanon, Saudi- Arabía og Filippseyjar. Reiknað er með að Nýja-Sjáland og Luxem- burg berjist um sigurinn og Saudi- Arabía gæti einnig blandað sér í þá keppni. Öruggt er að ísland leikur þrjá landsleiki til viðbótar í keppn- inni, verði liðið t.d. í fjórða sæti leikur það við liðin sem urðu núm- er fjögur í hinum riðlunum þremur. Þetta er umfangsmikil ferð og kostnaðarsöm en hver keppandi þarf að leggja a.m.k. 30 þúsund krónur í hana. Þá tekur tímann sinn að komast til Japan, ferðin í heild tekur á annan sólarhring með gistingu í London og sjálft flugið þaðan til Tokyo er áætlað um 17 klukkustundir. Það er mikið á sig lagt til að leika fyrir íslands hönd, ekki satt? - VS Norwich nánast öruggt Norwich City tryggði sér að öll- um líkindum áframhaldandi sæti í 1. deild ensku knattspyrnunnar í gærkvöldi með því að sigra Arsenal á heimavelli, 3-1. Norwich er nú með 46 stig og hcfur skotið átta liðum niður fyrir sig á töflunni. í fallsætunum eru Swansea og Birm- ingham með 37 stig og Brighton með 36. í 2. deild eygir Newcastle enn veika von um 1. deildarsæti eftir 4-0 sigur á Rotherham. Newcastle hefur 57 stig, níu stigum á eftir Ful- ham sem er í þriðja sætinu, svo. möguleikarnir eru litlir hjá Kevin Keegan og félögum. Dundee United hleypti mikilli spennu á ný í skosku úrvalsdeildina með góðum sigri á toppliðinu, Celtic, 3-2, í Glasgow. Þegar bæði lið eiga eftir fjóra leiki hefur Celtic 49 stig en Dundee United 48. Aberdeen er í þriðja sæti með 44 stig en hefur leikið tveimur leikjum færra. Rangers komst í úrslit skosku bikarkeppninnar í fyrra- kvöld með því að sigra St.Mirren 1-0 í framlengdum leik. West Ham- leikmaðurinn fyrrverandi, Sandy Clar, skoraði sigurmarkið þegar mínúta var eftir af framlenging- unni. Rangers mætir Aberdeen í úrslitaleik 21. maí. -VS Víkingur 75 ára í dag Knattspyrnufélagið Víkingur heldur uppá 75 ára afmæli sitt í dag en það var stofnað þann 21. apríl 1908. Víkingar hafa skipulagt viða- mikla afmælisdagskrá og cr hún í hclstu atriðum þannig: Guðsþjónusta í Bústaðakirkju kl. 10 en að henni lokinni verður farið í skrúðgöngu niður á nýja fél- agssvæðið í Fossvogi þar sem fram- kvæmdir verða kynntar. Kl. 15 hefst afmælishátíð með fjölbreyttri dagskrá í Tónabæ og kl. 17 skemmtun fyrir þá yngstu í Bústöð- um. Kl. 21 er svo dansleikur í Tón- abæ fyrir unglinga í félaginu og gesti þeirra. Víkingar hafa svo sannarlega mikið til að halda uppá á þessu af- mælisári. Meistaraflokkur karla í handknattleik tryggði sér íslands- meistaratitilinn fjórða árið í röð á dögunum og meistaraflokkur í knattspyrnu hefur orðið íslands- meistari tvö síðustu ár. Víkingar hafa líka mátt bíða lengi eftir þess- um miklu áföngum, lengi vel barðist félagið í bökkum, ekki aðeins fyrir árangri heldur jafnvel fyrir tilveru sinni. Árangur erf- iðsins hefur skilað sér, Víkingur er orðinn stórveldi í íslensku íþrótta- lífi, og við óskum öllum Víkingum alls hins besta á þessum miklu tímamótum. - FE/VS Bandarískar blak- stúlkur á leiðinni Bandarískar blakstúlkur, Mass- achusetts Juniors, koma hingað til lands um næstu helgi og leika hér tvo leiki, á sunnudagskvöld og mánudagskvöld. Þær eru á heim- leið eftir ferðalag um Evrópu og þar sem flogið var mcð Flugleiðum gafst þeim tækifæri á að millilenda hér. Stúlkurnar eru á aldrinum 16-19 ára og vafalaust mjög öflugar. Bandarískt blak er í fremstu röð í heiminum og kvennaliðið banda- ríska varð í þriðja sæti á síðasta heimsmeistaramóti, varð reyndar eina liðið til að bera sigurorð þar af kínversku heimsmeisturunum, svo hér er um hreinan hvalreka að ræða á fjörur blakunnenda. Fyrri leikurinn verður við ís- lenska kvennalandsliðið á sunnu- dagskvöld kl. 19 í íþróttahúsi Hagaskóla og kvöldið eftir, kl. 20, mæta þær íslands- og bikarmeistur- um Þróttar á sama stað. Banda- ríska liðið er úrval úr nokkrum fé- lögum í Massachusettsfylki og það verður fróðlegt að fylgjast með gengi íslensku stúlknanna í leikjun- um tveimur. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.