Þjóðviljinn - 28.05.1983, Síða 3
Helgin 28. - 29. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
LUKKULEIKUR. HAPPDRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS.
SPILAR ÞÚ MEÐ? jEl VTÐÞÖRFNUMST ÞÍN- ÞÚOKKAR
Ahugamenn um tónlistarmál:
rar*
Spilar þú með? Gleymdu þá ekki gíróseðlinum.
Sparaksturs-
keppni á
morgun
Á morgun, sunnudag gengst
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykj avík-
ur í samvinnu við FÍB, Bflgreinas-
ambandið og OLÍS, fyrir sparakst-
urskeppni og hefst hún við bensín-
stöð OLÍS, við Suðurlandsbraut.
Fyrst verða eknir 30 km innan-
bæjar og verður lagt af stað kl.
10:00 árdegis. Ekið verður um
Breiðholtshverfi, Kópavog. Foss-
vogsdal, Hlíðahverfi og vestur á
Granda. Á bakaleiðinni verður ek-
ið um miðbæinn, inn Hverfisgötu,
Laugaveg og Suðurlandsbraut að
þeim stað þar sem frá var ekið.
Kl. 14.00 hefst svo keppnin um
utanbæjarakstur og verður farið
frá sama stað. Bílar frá sjö fyrir-
tækjum taka þátt í keppninni, en
þau eru:
Bílaborg með Mazda, Brimborg
með Daihatsu, Hekla með VW
Golf diesel, Ingvar Helgason með
Subaru 700, Sveinn Egilsson með
Suzuki, Töggur með Saab, Veltir
með Volvo.
Bílunum er skipt í flokka eftir
rúmtaki vélarinnar og þarf ástand
bflanna að vera nákvæmlega eins
og upp er gefið í upplýsingahand-
bók hvers bfls.
Vinna að því
að reisa hús
tónlistarinnar
Undirbúningsfundur 4. júní n.k.;
Að undanförnu hafa nokkrir
tónlistarunnendur rætt þörfina og
möguleikana á því að reisa tón-
listarhús í Reykjavík og verður
boðað til almenns fundar áhuga-
manna þar um laugardaginn 4. júní
n.k. í Háskólabíói, að loknum
endurflutningi Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands á 9. sinfóníu Beetho-
vens. Ingi R. Helgason, forstjóri
Brunabótafélagsins er einn þeirra
sem að þeim fundi standa og hann
sagði í samtali við Þjóðviljann að
lagt yrði fyrir fundarmenn hvort
kjósa eigi undirbúningsnefnd og
stofna síðan samtök um byggingu
tónlistarhúss næsta haust.
„Það er tilfinnanlegur skortur á
góðum tónleikasölum í Reykja-
vík“, sagði Ingi, ekki síst ef miðað
er við þá grósku, starf og þann
áhuga sem er á lifandi tónlist í
borginni. Hjómburðurinn í Há-
skólabíói, þar sem stærri tónverk
eru venjulega flutt, er viðunandi,
en sjálft húsnæðið þarfnast mikilla
lagfæringa til að geta talist boðlegt,
bæði fyrir hljóðfæraleikara og
áheyrendur. Á listahátíðum verður
svo að flytja hljómleikahald í í-
þróttahöllina setft engan veginn er
hönnuð fyrir tónlistarflutning.
Þetta eru ástæðurnar fyrir því að
nokkur hópur tónlistarunnenda
hefur nú að undanförnu verið að
ræða það í alvöru að koma hér upp
rétt hönnuðum hljómleikasal sem
hæfir því tónlistarlífi sem hér
blómstrar.“
- Stefnið þið á tónlistarhöll?
„Við erum ekki með neinar
mótaðar hugmyndir um stærð,
staðsetningu eða það hvort t.d. óp-
eruflutningur yrði einnig með í
dæminu, aðeins hitt að koma upp
einum stórum og öðrum litlum
tónlistarsal í borginni. Það fer síð-
an eftir undirtektum og áhuga
hvernig framhaldið þróast", sagði
Ingi R. Helgason að lokum. Að
Hér vantar tónleikasali sem hæfa
hinu gróskumikla tónlistarlífi í
borginni, sagði Ingi R. Helgason.
fundinum annan laugardag standa
auk hans Jón Þórarinsson, Hákon
Sigurgrímsson, Gunnar Egilsson,
Ármann Örn Ármannsson, Rut
Magnússon, Ragnar Arnalds og
Ásgeir Einarsson.
-gfr.
STORGLÆSEÆGIR
MAZDABÍLAR
Lukkuleikurinn snýst um það hverjir hreppi
5 Mazdabíla, þ.á.m. þrjá Mazda 626, þessa írœgu,og
120 ELECTROLUX ÖREYLGJUOFNA
Allir þessir vinningar éru skattírjálsir.
Sumartími
Athygli viðskiptavina Brunabótafélags ís-
lands er vakin á því að á tímabilinu frá 1. júní
til 1. september n.k. verður aðalskrifstofa fé-
lagsins að Laugavegi 103, Reykjavík opin
. T
frá kl. 8.00-16.00
mánudag til föstudags
BRUNABOTAFELAG
ÍSLANDS
- GAGNKVÆMT
TRYGGINGAFÉLAG -
Laugavegi 103, 105 Reykjavík, sími 91-
26055