Þjóðviljinn - 08.06.1983, Page 1

Þjóðviljinn - 08.06.1983, Page 1
UÚÐVIUINN „Þær aðgerðir sem rfkisstjórnin hefur nú gripið til eiga sér engar efnahagslegar forsendur“ segir í nýútkomnu frétta- bréfi Alþýðusam- bands Islands. Sjá 6 og 7 júní 1983 miðvikudagur 123. tölublað 48. árgangur Mikill einhugur ríkti á fundi stjórnar og samninganefndar BSRB í gær þar sem bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar voru harðlega fordæmd. Mynd: -eik. Viðbrögð BSRB við bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar V erðhækkunarskrið- an byrjuð Nauðsynjar hækka um 12—30% Verðlagsráð kom saman til fund- ar í fyrradag í fyrsta sinn um mán- aðartíma og heimilaði hækkanir á ýmsum vörum á bilinu 12 til 30 prósent. Þær vörur sem hækkuðu þá í verði eru: vístitölubrauð, fisk- ur, smjörlíki, bensín, svartolía, gasolía og útseld vinna. Bensínhækkunin nemur 19 pró- sentum og hækkar því líterinn úr krónum 16,20 í 19,30. Vísitölu- brauðin hækka um 12-17 prósent og hækkar fransbrauð til dæmis úr krónum 10,60 í 11,95 krónur. Smjörlíkið hækkar um 22 prósent og útsöluverð á fiski hækkar á bil- inu 24 til 25 prósent. Hver lítri af I gasolíu kostar nú krónur 8,40 í stað kr. 7,30 áður og er hækkunin 15 prósent. Svartolían hækkar úr kr. 5.350 tonnið í krónur 6.950. Þá hækkar útseld vinna um hin lög- boðnu 8 prósent sem launafólk fékk í sinn hlut um mánaðamótin. -ast. Kjarasamnmgum sagt upp Á sameiginiegum fundi stjórnar og samningsnefndar BSRB sem haldinn var í gærdag voru einróma samþykkt harðorð mótmæli vegna kjaraskerðingarlaganna sem ríkis- stjórnin hefur sett, auk þess sem samþykkt var að segja upp gildandi kjarasamningum við ríkið. í ályktun fundarins segir m.a. að ákvæði nýsettra bráðabirgðalaga á almennum mannréttindum sé gróf- legt brot á því lýðræði sem við byggjum þjóðfélag okkar á. Hér sé um sjálfan grundvöll lýðræðisins og frjálsrar verkalýðshreyfingar að tefla. Þá segir í ályktuninni að þær efnahagsráðstafanlr sem nú hafa verið gerðar muni hafa valdið a.m.k. 30% kjaraskerðingu um næstu áramót frá þeim kaupmætti sem var á síðasta ári. Þetta sam- svari því að sú kaupmáttaraukning, sem BSRB hefur náð frá því samn- ingsréttur samtakanna fékkst 1962, sé nú afmáð. -Jg- Sjá 3 Helmingi fleiri lóðir en umsækjendur 1 Grafarvogi Tugmfljóna gat UFjórir fjörugir leik ir í fyrstu deildinni í gærkvöldi. íþróttir. Aðeins 205 umsóknir bárust um þær 520 einbýlishúsalóðir í Graf- arvogi sem eiga að verða bygging- arhæfar á árunum 1984 og 1985, en úthiuta átti í vor. Þetta þýðir að í stað 65 miljóna króna sem borgin hugðist taka að láni hjá væntan- legum húsbyggjendum í fyrirfram- greiðslu gatnagerðargjalda, koma aðeins 26 mifjónir í kassann. Tekju- missirinn á þessum eina pósti er því tæpar 40 miljónir króna, en þar við bætist að einbýlishúsalóðir sem verða byggingarhæfar í Grafarvogi og Selási í ár ganga greinilega ekki allar út. „Það er ljóst að borgin verður fyrir yerulegum tekjumissi .miðað við fjárhagsáætlun vegna þessa“, sagði Adda Bára Sigfúsdóttir í gær. „Spumingin er aðeins; hvemig æfla menn að mæta honum? Við bent- um á að þessi leið sem Sjálfstæðis- flokkurinn valdi, að loka fjárhags- áætlun með stórfelldri lántöku hjá Reykvíkingum, væri óraunhæf og það er nú að koma fram. Þessi lántaka snerist um gatna- gerðargjöld og það hlýtur að vera krafa okkar að niðurskurður sem af þessu leiðir komi niður á gatna-1 óframkvæmdum en alls ekki á fé- lagsmálaframkvæmdum, svo sem byggingu Seljahlíða eða dagvistar- stofnana“, sagði Adda Bára. _ai Sjá baksíöu Leynilegt samkomulag stjórnarflokka „Bindandí” eða „til athugunar”? í krafti „bindandi samkomu- Iags“ stjórnarflokkanna krefst varaformaður Sj álfstæðisflokksins þess í DV í gær að Tómas Árnason víki úr stöðu forstjóra Fram- kvæmdastofnunar. Forsætisráðherra og formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins viðurkenna báðir, að til sé „minnis- listi“ utanvið málefnasamning rík- isstjórnarinnar, en enginn stjórn- arliða nema Friðrik hefur enn upp- iýst um einstök efnisatriði þessa samkomulags. Stjórnarliðar virð- ast ekki á eitt sáttir um gildi sam- komulagsins fyrir stjórnarsam- starfið. Alexander Stefánsson félags- málaráðherra úr Framsóknar- flokki telur birtingu „minnis- listans" koma fyllilega til greina, „fyrst þetta er komið fram á þenn- an hátt“. -m 200 ár frá upphafi Skaftárelda: „Dimmt varð í húsum” Árið 1783 þann 8. Junii, sem var hvítasunnuhátíð, í heiðríku og spöku veðri um dagmálabil kom upp fyrir norðan næstu byggðar- fjöll á Síðunni svart sandmistur og mokkur svo stór, að hann á stuttum tíma breiddi sig yfir alla Síðuna og nokkuð af Fljótshverfinu, svo þykkt að dimmt varð í húsum en sporrækt á jörðu. Var það duft, sem niður féll, sem útbrennd steinkolaaska. En af þeirri vætu, sem úr þeim svarta mokk ýrði þann dag í Skaftártungunni, var það duft, sem þar niður féll, svört bleyta, sem blek. Þannig segir séra Jón Steingrímsson í Eldritinu frá upp- hafi Skaftárelda, en í dag eru 200 ár frá því þeir hófust. í tilefni af því verður í dag mikil dagskrá sýning um Skaftárelda opnuð austur á Kirkjubæjarklaustri. Við slógum á þráðinn í gær til séra Sigurjóns Ein- arssonar, formanns sýningarnefnd- ar: „Hér er allt tilbúið og nú bíðum við bara eftir gestunum. Viö vonum að veðrið verði gott, því ekki kom- ast allir í einu inn í Minningarkap- eíluna, þar sem sýningin stendur. Þetta hefur verið mikill undirbún- ingur og margir lagt hönd á plóginn“, sagði Sigurjón. Minningarkapellan, sem reist var í minningu séra Jóns Steingrímssonar, sem hér í upphafi segir frá Skaftáreldunum, hýsir nú sýninguna sem þeir Gylfi Már Guðbergsson landfræðingur og Þorleifur Einarsson jarðfræðingur hafa skipulagt. Einnig hefur Sveinbjörn Raínsson verið til ráðgjafar. Sýningin verður opnuð kl. 14.00 í dag með fjölbreyttri dag- skrá, en það er Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, sem opnar hana. Þá verður opnuð sýning sem nemendur Kirkjubæjarskóla hafa unnið og Ferðaskrifstofa ríkisins býður gestum til kaffidrykkju. -þs Sjá opnu Sjá 3 Jógúrtmálið svo- kallaða hefur vakið ýmsar spurningar um framleiðslu- kostnað hjá mjólkurstöðvuni einkumervið- kemurumbúðum en stöðvarnar nota mjög misdýrar um- búðir undir sömu vörunar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.