Þjóðviljinn - 08.06.1983, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 08.06.1983, Qupperneq 3
Migvikudagur 8. jání 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 S t j órnarf lokkarnir: Gerðu leynilegt samkomulag Félagsmálaráðherra telur birtingu koma til greina „Fyrst þetta er komið fram á þennan hátt fínnst mér fyllilega til athugunar að birta þetta“, sagði Alexander Stefánsson félagsmála- ráðherra þegar Þjóðviljinn spurði hann i gær um óbirt samkomulag ríkisstjórnarinnar utan stjórnars- áttmálans. Hann vildi ekki frekar en aðrir viðmæiendur Þjóðviljans úr stjórnarherbúðunum skýra frá fíeiri atriðum samkomulagsins en Friðrik Sophusson upplýsti ma. í DV í gær, þarsem Friðrik krefst þess að Tómas Árnason hætti störf- um sem ,,komissar“ Framkvæmda- stofnunar í krafti „bindandi sam- komulags“ stjórnarflokkanna um að leggja „kommissarakerfið“ í Framkvæmdastofnun niður og um að þingmenn láti af forstöðu lána- stofnana. „Hér er ekki um neitt bindandi samkomulag að ræða“, sagði Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra í samtali við Þjv., „það er of mikið að kalla það samkomu- lag. Þetta er minnislisti um ýmis atriði sem ákveðið var að ríkis- stjómin hefði til sérstakrar athug- unar á kjörtímabilinu, atriði sem ekki gafst tími til að ræða nægilega vel við stjórnarmyndunina, ýmsir ágætir punktar, og ýmislegt sem vakti efasemdir hjá öðrum hvorum aðilanum. Ég vil ekki segja frá neinum einstökum atriðum, þetta er vinnuplagg sem ekki var ætlað til birtingar.“ „Ég sé ekkert athugavert við að birta þennan lista, það var ekkert rætt sérstaklega um það á þing- flokksfundi hjá okkur hvort hann skyldi birtur eða hafður sem ein- hverskonar leyniskjal", sagði þing- flokksformaður Sjálfstæðismanna, Ólafur G. Einarsson, við Þjv. í gær. „Þetta er ýmislegt sem sam- starfsaðilamir ætluðu að vinna að, já og framkvæma, ýmislegt sem ekki fór inní málefnasamninginn fyrst og fremst vegna þess að menn reyndu að hafa hann eins stuttan og hægt var. Hvort þessi minnislisti er bindandi? Já, við hljótum að líta svo á,“ sagði Ólafur. Um það hvort Tómas skyldi víkja úr kommissarastöðu sinni vís- aði Steingrímur forsætisráðherra til ákvæða stjórnarsáttmála um endurskoðun laga um Fram- kvæmdastofnun, en sagði það pers- ónulega skoðun sína að þingmenn ættu ekki að gegna forstjórastöðu við þá stofnun. „Annaðhvort á Framkvæmdastofnun að vera óháð ríkisstjórn og alþingi, og þá engir þingmenn í stöðum, eða hún á að vera verkfæri ríkisstjórnar á hverj- um tíma, af fullri hreinskilni, eins- og hún var á árunum 1971-74,“ (vinstristjórnarárunum síðari), „sem var betra en síðar hefur orðið raunin“. -m Alexander: Til athugunar að birta. Steingrimur: Of mikið að kalla þetta samkomulag. Ólafur: Bindandi? Já, við hljótum að líta svo á. Friðrik: Bindandi samkomulag. Frestun íbúðalána Hann kom rétt fyrir gengisfellingu og kostaði því ekki nema 860 þús- und. Ljósm. -Atli. Nýr bíll fyrir borgar- stjórann Keypt hefur verið ný bifreið fyrir borgarstjórann í Reykjavík og í gær var „gamla“ borgarstjórabif- reiðin sem er þriggja ára seld hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur. Nýi borgarstjórabíllinn er Bu- ick, árgerð 1983 og kostar að sögn sölumanns hjá Sambandinu ekki undir miljón í dag. Bíllinn kom hins vegar rétt fyrir gengisfellingu og lagði sig þá á um 860 þúsund. „Gamli" borgarstjórabfllinn var Chevrolet Caprice, árgerð 1980. Trésmiðir F ordæmir bráða- birgðalögin Reglur á morgun „Tillögur Húsnæðismálastjórn- ar eru komnar fram og ég hugðist leggja þær fram á ríkisstjórnarf- undinum í morgun, en honum var frestað, og næsti fundur er á fímmtudag. Þá ættu þessi mál að vera kominn á hreint“, sagði Alex- ander Stefánsson félagsmálaráð- herra við blm. Þjv. í gær um út- færslu bráðabirgðalaga rflris- stjórnarinnar um frestun 25% af íbúðalánum. Ein af fáum ráðstöfunum sem draga á úr leiftursóknaráhrifum kjaraskerðinga ríkisstjórnarinnar er frestan fjórðungs íbúðalána afturfyrir núgildandi greiðslutíma, og á þessi frestun að ná til bæði húsnæðismálastjórnarlána, banka- lána og lána frá öðrum lánastofn- unum. Lán til verkamannabústaða eru hér innifalin. Þessi frestun tekur yfir venjulegar afborganir, vexti og verðryggingar. Félagsmálaráðherra sagði að samstarfsnefnd á vegum lánastofn- ana væri nú að ganga frá tækni- legum atriðum við þetta, og vænti hann þess að þessi frestun yrði gerð lántökum sem fyrirhafnarminnst. Gert er ráð fyrir að sérstök eyðu- blöð liggi frammi á lánastofnunum fyrir lántaka íbúðalána til að fá þessa frestun. Frekari frétta er að vænta eftir ríkisstjórnarfund á fimmtudagsmorgun. í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar er gert ráð fyrir að þeir sem eru að byggja eða kaupa í fyrsta sinn fái lán sem nemur 50% af verði (núverandi) staðalíbúðar. Félagsmálaráðherra sagði að vinna við frágang þessa loforðs væri haf- in, og stefnt að því að leggja fram frumvarp um þetta í byrjun næsta reglulegs þings. Byggt yrði á því frumvarpiýsem fyrrverandi félags- málaráðherra lagði fram í vetur, „og settir inní það gjaldaliðir", einsog Alexander komst að orði, en frumvarp Svavars Gestssonar dagaði upp í þinginu vegna and- stöðu þáverandi stjórnarandstöðu og samstarfsaðila í stjórn við fjár- öflun til þessa með skyldusparnaði hátekjumanna. -m „Fundurinn lýsir fyllstu and- stöðu sinni við nýsamþykktar efna- hagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem hafa það að megin markmiði að skerða kaupmátt Iaunafólks“, segir í samþykkt trúnaðarmanna- ráðs Trésmiðafélags Reykjavíkur, sem Þjóðviljanum barst í gær. Fundurinn fordæmir harðlega lagasetningu um afnám samnings- réttar verkafólks og bendir á að frjáls samningsréttur er einn helg- asti réttur almennings í öllum lýð- frjálsum löndum. Þá segir í lok samþykktar Trésmiðafélags Reykjavíkur að fundurinn hvetji verkafólk til samstöðu um að verja félagsleg og efnahagsleg réttindi sín, sem nú sé vegið að með hörð- ustu aðgerðum sem þekkst hafa í áratugi. -v. Ályktun stjórnar og samninganefndar BSRB gegn kjaraskerðingarlögum ríkisstjórnarinnar Gróflegt brot á lýðræði Sameiginlegur fundur stjórnar og samninganefndar B.S.R.B. mótmælir harðlega afnámi samn- ingsréttar samtaka launafólks framt til 1. febrúar 1984 og skerðingu hans í tvö ár, til 1. júní 1985. Akvæði nýsettra bráða- birgðalaga um þetta jafngildir því að banna starf verkalýðs- hreyfíngarinnar. Slík skerðing á almennum mannréttindum er gróflegt brot á því lýðræði, sem við byggjum þjóðfélag okkar á. Hér er um sjálfan grundvöll lýðræðisins og frjálsrar verkalýðshreyfingar að tefla. Gera verður þá kröfu að Al- þingi taki afstöðu til þessa grund- vallaratriðis lýðræðisins nú þegar í sumar. Ákvörðun Alþingis get- ur skipt sköpum um efnahags- ráðstafanir framtíðarinnar og því nauðsynlegt að landsmenn haldi vöku sinni. Jafnframt ber að rannsaka, hvort skerðing þessi á starfsréttindum almannasamtaka sé ekki brot á stjórnarskránni og alþjóða samþykktum sem ísland er aðili að. Þær efnahagsráðstafanir, sem nú hafa verið gerðar munu um næstu áramót hafa valdið a.m.k. 30% kjaraskerðingu frá þeim kaupmætti sem var á árinu 1982. Þetta samsvarar því, að sú kaupmáttaraukning launa, sem B.S.R.B. hefur náð fram síðan samningsréttur samtakanna fékkst 1962, sé nú afmáð. Til þess að ná sama kaupmætti launataxta og var á árinu 1982 þyrfti því á næsta ári yfir 40% launahækkun. Þær efnahagsráðstafanir, sem nú hafa verið gerðar, eru einhliða byggðar á skerðingu kaupmáttar almennings, en verðlag látið óheft. Vísitölubætur á laun eru afnumdar en vísitölutenging á lánum látin haldast. Landbúnaðarvörur hafa þegar hækkað um 22-33% og innfluttar vörur um 20%. Skriða hækkana opinberrar þjónustu er þegar far- in af stað með hækkun orku- verðs. Eftir þessar ráðstafanir er full ástæða til að óttast, að hér á landi skapist tvíþætt vandamál. Er hér átt við hina stórfelldu lífskjarask- erðingu launafólks og auk þess hættu á samdrætti á öllu atvinnu- lífi landsmanna og þar með atvinnuleysi. í gildandi kjarasamningum B.S.R.B. er heimild til uppsagn- ar kaupliða samninganna, með eins mánaðar fyrirvara, ef vísitöl- ubætur á laun verði skertar. Einnig þetta samningsákvæði er nú afnumið með bráðabirgðalög- unum. Fordæmin fyrir öllum þessum yfirtroðslum er að finna í ríkjum einræðis og herstjórna. Sameiginlegur fundur stjómar og samninganefndar B.S.R.B. vísar til samhljóða og einróma ál- yktana stjórna B.S.R.B. og A.S.Í. 10. maí 1983 um aðrar leiðir til lausnar vandans í efna- hagsmálum en hinnar hefðbund- nu kjaraskerðingar. I þessari sameiginlegu ályktun fjölmenn- ustu heildarsamtaka launafólks var því lýst yfir að verkalýðshrey- fingin liti svo á, að fmmskylda efnahagsstjómar væri að tryggja fulla atvinnu og að verðbólgan yrði ekki læknuð með stórfelldi kjaraskerðingu 1. júní og 1. sept- ember þ.á.. Stjómir B.S.R.B. og A.S.Í. bentu á nokkur meginatriði til lausnar vandanum sem um- ræðugrundvöll. Þá var þeirri ein- dregnu áskorun beint til stjóm- valda og stjórnmálaflokka, að nú yrði brotið blað í efnahagsstjóm og að sem víðtækastri samstöðu yrði náð um stefnu, sem tæki tillit til sjónarmiða verkalýðshreyfing- arinnar. Því miður var ekki tekið tillit til þessara ályktana. Fundurinn samþykkir að segja upp gildandi kjarasamningum. Jafnframt verði félagsmönnum kynntar afleiðingar þeirra harka- legu aðgerða, sem í bráðabirgða- lögunum felast. I haust verði m.a. efnt til víð- tækra fundahalda til að fjalla um kjaraskerðinguna, það bann, sem sett hefur verið á samning- afrelsið í landinu svo og kröfur og stöðu samtakanna. Með þessum fundahöldum verði kannað viðhorf félags- manna, sem samtökin hljóta að hafa að leiðarljósi við ákvarðana- töku á bandalagsráðstefnu í kjölfar hinna almennu funda.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.