Þjóðviljinn - 08.06.1983, Page 5

Þjóðviljinn - 08.06.1983, Page 5
Miðvikudagur 8. júní 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Byggmgameim ✓ Arnessýslu Mótmæla afnámi samnings- réttar Aðalfundur Félags byggingar- manna Árnessýslu var haldinn 30. maí sl.. Þar var samþykkt að mótmæla harðlega afnámi samningsréttar og þeirri skerðingu verðbóta sem felst í bráðabirgðalögum ríkisstjómar- innar. Þá skorar fundurinn á ríkis- stjórnina að endurskoða afstöðu sína til samningsréttar verkalýðsfé- laga. Búið að draga Fjórir blaðberar Þjóðviljans munu um miðjan júní eiga þess kost að fara til Kaupmannahafnar í skemmtiferð. Dregið hefur verið í blaðberahappdrætti Þjóðviljans og komu upp þessi númer: Nr. 87 - 111 - 898 - 911. Vinningshafar em vinsamlega beðnir að gefa sig fram við Baldur Jónasson afgreiðslustjóra í Síðu- múla 6. Allir þeir sem sjá um að bera Þjóðviljann í hús hafa fengið miða í happdrættinu og þeir flesta sem haldið hafa út öll vetrarveðrin. Vinningshafarnir munu ferðast til Kaupmannahafnar á vegum F^rð- askrifstofunnar Sögu og er stefnt að því að leggja upp um miðjan þennan mánuð. Fararstjóri verður afgreiðslustjóri Þjóðviljans. Jógúrtmálið: Það var að loknum flutningi 9. sinfóníu Beethovens sl. laugardag sem undirbúningsfundur að stofnun áhugasamtaka um byggingu tónlistarhúss i Reykjavík hófst. Ljósm. Atli. Áhugamenn um byggingu tónlistarhúss: 700 hafa skráð síg Að loknum endurflutningi á 9. sinfóníu Beethovens í Háskólabíói á laugardaginn var, hófst undirbún- ingsfundur að stofnun áhugasam- taka um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík. Tónleikarnir og fund- urinn voru vel sóttir og meðal gesta var forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, og fjármálaráðherra Albert Guðmundsson. í fundarlok voru síðustu gleðitónar 9. sinfóní- unnar leiknir og sungnir aftur en flytjendur gáfu alla vinnu sína í þágu húsbyggingarinnar. Það var Hákon Sigurgrímsson, formaður stjórnar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, sem setti fundinn og skipaði hann Erlend Einarsson forstjóra fundarstjóra og Jón Þór- arinsson, tónskáld, fundarritara. Þrír höfðu framsögu á fundinum: Sveinn Einarsson þjóðleikhúss- stjóri ræddi nauðsyn þess að byggja hús yfir tónlistina á íslandi, Ar- mann Örn Ármannsson, viðskipta- fræðingur, rakti stærðartölur og kostnað við slíka byggingu og Ingi R. Helgason forstjóri skýrði drög að samþykktum fyrir samtökin, sem eru opin almenn samtök á- hugafólks um byggingu tónlistar- húss í Reykjavík. 700 manns hafa þegar skráð sig í samtökin. A fundinum var kjörin 12 manna undirbúningsnefnd sem er ætlað að halda stofnfund í haust og kanna lóðarval og kostnaðartölur þannig að allt liggi sem ljósast fyrir þegar stofnfundurinn verður haldinn. I undirbúningsnefndinni eru: Ár- mann Örn Ármannsson, viðskipta- fræðingur, Björgvin Vilmundar- son, bankastjóri, Einar Jóhannes- son, klarinettleikari, Finnur Torfi Stefánsson, framkvæmdastjóri FÍH, Gunnar Egilsson, klarinett- leikari, Hákon Sigurgrímsson, stjómarformaður Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, Ingi R. Helgason, forstjóri, Jón Nordal, tónskáld, Jón Þórarinsson, tónskáld, Karó- lína Eiríksdóttir, tónskáld, Rut Magnúsdóttir, óperusöngkona, og Sigurður Helgason forstjóri. Nefn- din hélt sinn fyrsta fund á sunn- udag. -ÁI Hvert rennur 300 milljóna „gengismunur”? __ i Akvörðun næstu daga segir sjávarútvegsráðherra Samkvæmt upplýsingum sjávar- útvegsráðherra er enn ekki fullljóst hvernig um 300 miljónum króna „gengismun“ til styrktar sjávarút- veginum verður varið. „I mínum huga er þó ljóst“, sagði Halldór Ás- grímsson, „að þessu fé verður fyrst og fremst ráðstafað í þágu flotans, togaraflotans, það er sú grein sem á í mestum erfiðieikum núna“. í bráðabirgðalögum nýju ríkis- stjórnarinnar um ráðstafanir í sjáv- arútvegsmálum er kveðið á um skattlagningu á þann hagnað sem útflytjendur sjávarafurða fá í sinn hlut vegna mismunar á íslensku söluverði afurðanna fyrir og eftir gengisfellingu, og er almennt gert ráð fyrir að þetta verði um 300 milj- ónir króna. í lögunum er sagt að þessu fé verði varið til eflingar sjá- varútveginum, en ekkkert tiltekið hvert þetta fé rennur. „Þessum gengismun hefur síð- ustu árin yfirleitt verið varið til að mæta áhrifum gengisbreytingar á erlend lán hjá sjávarútveginum", sagði sjávarútvegsráðherra við blm. Þjóðviljans í gær, „og ég á von á að eitthvað svipað verði nú uppi á teningnum. Það er verið að ráðgast um þetta mál núna, og úr- slita að vænta næstu daga“. -m E1 Salvador-nefndin ✓ á Islandi: Leitar stuðnings verkalýðs- félaga Takmarkið er 60 þúsund krónur til styrktar þjóðfrelsis öflunum í E1 Salvador E1 Salvador-nefndin á íslandi hefur hafíð fjársöfnun til styrktar þjóðfrelsísöflunum í þessu stríðs- hijáða landi. Hefur nefndin sent ís- lenskum verkalýðsfélögum bréf, þar sem þau eru hvött til að fylgja fordæmi Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, sem veitti 10 þúsund krónum til söfnunarinnar á aðal- fundi sínum í mars sl.. Bankanúm- er söfhunarínnar er 303-25-59957 og inn á þann reikning má leggja í öll- um bönkum og pósthúsum. Björk Gísladóttir, sem er fulltrúi í E1 Salvador-nefndinni, sagði í samtali við Þjóðviljann að undir- tektir verkalýðsfélaga við þessari bón væru enn sem komið er góðar. Fram að þessu hefur opinber stuðningur verkalýðsfélaga við FMLN/FDR verið fremur lítill en þó eru þar tvær miklar undantekn- ingar á, sagði Björk, þar sem eru samþykktir 32. þings BSRB frá í fyrrasumar og aðalfundarsam- þykkt Dagsbrúnar frá í vor. í þess- um samþykktum er vakin athygli á ógnaröldinni í E1 Salvador og skorað á fslensk stjórnvöld að við- urkenna FMLN/FDR sem rétt- mæta fulltrúa E1 Salvador þjóðar- innar. Þá sagði Björk að Iðja, Sókn og Framsókn hefðu veitt fé til sér- staks verkefnis á vegum Ames, Samtaka kvenna í E1 Salvador, sem hyggjast koma á fót saumastofu og skapa þannig atvinnu fyrir flótta- konur frá E1 Salvador í Nicaragua. Björk sagði að lokum að markið sem nefndin hefði sett sér, að safna 60 þúsund krónum, væri ekki hátt miðað við fjölda launþega hér á landi, hvað þá ef borið væri saman við þær 30 miljónir dollara sem Re- agan Bandaríkjaforseti veitir til viðbótar við fyrri stuðning sinn til stjórnarhersins í E1 Salvador. Hvatti hún verkalýðsfélög og ein- staklinga til að bregðast vel við þessum tilmælum E1 Salvador— nefndarinnar og sagðist vonast til að enginn skærist úr leik. Umbúðir of dýru verði keyptar? ,Jógúrtmálið“ svokallaða fékk skjótan endi í síðustu viku, er Framleiðsluráð landbúnaðarins stöðvaði sölu Mjólkursamlags Kaupfélags Þingeyinga á jógúrt til Hagkaupa í Reykjavík. Eins og fólk rekur minni til var þessi jógúrt tals- vert ódýrari en neytendur á höfuð- borgarsvæðinu eiga að veniast og gæðin voru hin sömu. Fram- leiðsluráðið skírskotaði þar til laga, sem Framleiðsluráð hafði sjálft sett í desember 1981 um að mjólkursamlögin skyldu ekki keppa við hvert annað í sölu á jóg- úrt og skyldum afurðum (áður höfðu þessi lög náð til mjólkur, rjóma og skyrs). Forsvarsmenn Mjólkursamsöl- unnar og Haraldur Gíslason, mjólkursamlagsstjóri K.Þ., telja allir verðmuninn stafa af mismun- andi umbúðum. Mjólkursamalan kaupir sín box af Reykjalundi og kostar nú hálfslíters box af jógúrt krónur 32,20. Hálfslíters fema með sama magni kostar krónur 29 hjá Mjóikursamlagi K.Þ. eftir síð- ustu hækkun búvara. Haraldur sagði í samtali við blaðið í gær, að umbúðirnar kostuðu 1,80 krónur, þannig að mismuninn á umbúðun- um greiðum við. Umbúðir Mjólk- ursamlags K.Þ. em pappafernur, sama gerð og mjólkurfernurnar, sem hafa gefist vel. Spurningin er því hvort réttlætanlegt sé, að neytendur greiði hátt verð fyrir umbúðir, sem flestir neytendur vita að eru alls ekki nógu góðar. Forráðamenn Mjólkursamsölunn- ar hafa lýst því yfir, að þeir hugleiði nú umbúðaskipti og muni þá verðið á þeirra jógúrt lækka. Það má geta þess, að Mjólkur- samlag ísfirðinga selur hálfslíters jógúrt á sama verði og Mjólkur- samlag K.Þ. eða á krónur 29. Um- búðir þeirra em frá Ero-pak, norsku fyrirtæki, og em þær svip- aðar og mjólkurfemurnar sem við þekkjum fyrir sunnan. Mjólkur- samlag KEA notar umbúðir frá Sigurplast h.f. í Reykjavík og er jógúrtin á sama verði og hj á Mjólk- ursamsölunni í Reykjavík og um- búðirnar svipaðar. Það ætti því að vera nokkuð augljóst, að pappa- femumar em betri og kostur fyrir neytendur. ast joGuex ílbonönum og appéshwn a&i.i i _____ með kaffibro$ jwawái-MS íyytræ. íyku'. ■} JL banönum og appek * $#***»» íSapt&iri ,, .... :jógúkt' iM^ÓGÖHT ,1jógukt Jógúrtumbúðirnar frá Mjólkursamsölunni kosta sitt, einsog neytendur hafa lesið um í blöðunum undanfarið. Mjólkursamlag K.Þ. og Mjólkur- samlagið á ísaflrði pakka jógúrtinni i pappafernur og spara þannig tals- vert í umbúðakostnaði. Þannig kostar hálfslfters dós frá þeim 29 krónur eftir síðustu hækkun, en við hér sunnanlands greiðum 32,20 fyrir dós með sama magni. Er þetta ekki of dýru verði keypt? (Ljósm. -eik)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.