Þjóðviljinn - 08.06.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 08.06.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. júní 1983. ÚR FRÉTTABRÉFI ASÍ EFNAHAGSRÁÐSTAFANIR Ný ríkisstjórn. Ný ríkisstjórn undir forsæti Steingríms Hermannssonar tók við völdum þann 26. maí sl. Daginn eftir voru sett fimm bráðabirgðalög um efnahagsmál o.fl., sem nánar eru kynnt í þessu fréttabréfi. Fyrsti hluti stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar ber yfir- skriftina „Grundvöllur efnahagsstefnunnar“, og hljóðar þannig í heild sinni: „Festa verði sköpuð með raunhæfri gengisstefnu, sem ásamt aðhaldssamri fjármála- og peningastefnu myndi umgerð ákvarðana í efnahagslífinu. Aðilar vinnumarkaðarins beri ábyrgð á samningum um kaup og kjör í ljósi hinnar opinberu stefnu í gengis og kjaramálum." Þau meginatriði stjórnarstefnunnar sem beinast snúa að verkalýðshreyfingunni eru: 1. Afnám samningsréttar til janúarloka 1984. 2. Bann við greiðslu verðbóta fram til l.júní 1985. 3. Ríkisstjórnin sendir vérkalýðshreyfíng- unni viðvörun um að nýir kjarasamningar skuli vera í samræmi við stefnumið ríkis- stjórnarinnar. Ástand efnahagsmála Stjórnvöld skírskota mjög til bágs ástands í efnahagsmál- um til varnar harkalegum aðgerðum á sviði launamála. í ályktun miðstjórnar ASÍ frá 17. maí sl. kom fram að við verulegan vanda er að etja á sviði efnahags- og atvinnumála. Með þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur nú opinberað, er þessi vandi hins vegar málaður dekkri litum en nokkur rök fá stutt. í þessu sambandi skal á það minnt, að í síðustu skýrslu Þjóðhagsstofnunar frá í apríl kom fram það mat stofnunarinnar, að rúrnun þjóðartekna á mann 1982 og 1983 myndi verða 8-9%. I sömu skýrslu kom fram að heildartekjur heimilanna að frédregnum beinum sköttum myndu á sama tímabili rýrna um 9-10% að öllu óbreyttu. Síðasta spá Þjóðhagsstofnunar gerði ráð fyrir því, að viðskiptahalli yrði um 4% á þessu ári. Var þá þegar-fyrirsjá- anlegur verulegur bati í því efni, en í október 1982 áætlaði stofnunin að viðskiptahallinn myndi nema um 10% af þjóðarframleiðslu á yfirstandandi ári. í aprílskýrslu Þjóðhagsstofnunar er að finna eftirfarandi mat: Rýrnun þjóðartekna á mann árin 1982 og 1983: 8-9% Rýrnun ráðstöfunatekna árin 1982 og 1983: 9-10% Fullyrða má að verðlagsþróunin hafi verið vanmetin í þessari spá og rýrnun ráðstöfunar- tekna að sama skapi. Á aðalfundi VSÍ, sem haldinn var 3. maí sl., sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar m.a.: „Um þessar mundir - þ.e. áður en til framkvæmda koma innlendar hækkanir um næstu mánaðamót - virðist geng- isskráning ekki óhagkvæm fyrir flestar greinar útflutnings og samkeppnisatvinnuvega. Rekstrarvandi þeirra er nú fyrst og fremst fjármagnsskortur vegna síhækkandi verð- lags.“ Hér skal einnig vitnað til maíheftis Hagtalna mánaðarins en þar kom fram að raungengi krónunnar var á 1. fjórðungi ársins 9.7% lægra en í fyrra og 17% lægra en 1981 og reyndar lægra en það hefur verið frá 1971. Síðan segir: „Þessar staðreyndir sýna, að mjög langt hefur verið seilst að undanförnu í notkun gengisins til að mæta viðskiptahalla og erfiðleikum útflutnings og samkeppnisgreina. “ Því ástandi, sem svo er lýst, hefur nú verið mætt með eftirfar- andi aðgerðum. 1. Gengisfellingu, sem leiðir til þess að verð erlends gjaldeyris hækkar um 17-18% í kjölfar mikils gengissigs tímabilið á undan. 2. Niðurtalningu kaupmáttar, sem um áramót verður þreföld á við rýrnun þjóðartekna á mann sl. 2 ár, eða 27-28% á móti 8-9% rýrnun þjóðartekna á mann. Aftur um þrjá áratugl Aðgerða var þörf til þess að vinna gegn verðbólgu. Aðgerða var þörf til þess að treysta atvinnu. Þær aðgerðir, sem ríkis- stjórnin hefur nú gripið til, eiga sér hins vegar engar efnahags- legar forsendur þegar á það er litið, að með þeim verður kaupmáttur kauptaxta keyrður 18-20% niður fyrir það sem hann hefur lakastur orðið undanfarin 12 á'r. Gangi þessar aðgerðir fram óbreyttar, mun verkafólk þurfa að ná fram um 40% hækkun kaupmáttar launa í byrjun næsta árs til þess að ná kaupmáttarstigi ársins 1982 á nýjan leik. Með aðgerðunum næst tímabundinn árangur gegn verðbólgu, en sá ár- angur er allur keyptur með kaupmáttarskerðingu, hrikalegri en verkalýðshreyfingin hefur áður mætt. Aðgerðir á öðrum sviðum efnahagsmála víkja nú sem fyrr. Aðgerðir á sviði atvinn- umála eru um flest óljósar, en sú kaupmáttarrýrnun sem ríkis- stjórnin stefnir nú að, leiðir af sér hættu á hruni á ýmsum sviðum, svo sem í iðnaði, þjónustu, versl- un og á sviði íbúðabygginga. Á- hrif þess á atvinnuástand geta orðið geigvænleg. Næstlægsti taxti m. fullri aldursh. Kaupmáttur Ár stig 1939 54 40 52 41 55 42 66 43 85 44 84 45 84 46 85 47 88 48 84 49 85 1950 75 51 71 52 71 53 76 54 76 55 80 56 81 57 80 58 81 59 84 1960 82 61 82 62 81 63 81 64 83 65 86 66 90 67 91 68 84 69 /■ 80 1970 86 71 92 72 102 73 102 74 103 75 94 76 90 77 99 78 109 79 106 1980 101 81 101 82 100 83 l.fj. 92 «6 2.fj. 85 ii 3.fj. 78 ii 4.fj. 74 í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands íslands frá 10. maí sl. segir m.a. um nauðsynlegar efnahagsaðgerðir: „Verulegar blikur eru nú á lofti í atvinnumálum. Aflasam- dráttur, stöðvun og frestun verklegra framkvæmda á vegum einstakíinga og opinberra aðila teiknar til erfiðleika í atvinn- umálum nú á næstu mánuðum. Qegn þessum erfiðleikum verður að snúast. Verkalýðshreyfingin lítur svo á, að frum- skylda stjórnvalda á sviði efnahagsstjórnar sé að tryggja fulla atvinriu. Ánauð atvinnuleysis er böl, sem bægja verður frá. Miðstjórn Alþýðusambands. íslands leggur þunga áherslu á, að lausn þessa vanda getur í höfuðatriðum farið saman við lausn þess almenna vanda sem við er að glíma í efnahagsstjórn. Verðbólgan verður ekki læknuð með rot- höggi 1. júní eða 1. september. Hún verður ekki læknuð með aðgerðarleysi atvinnuleysis. Gegn vandanum verður að ráðast með virkri atvinnuuppbyggingu sem kjarna nýrrar efnahagsstefnu. Þjóðin verður að vinna sig út úr vandanum en hörfa ekki á vit samdráttar, langvinnrar lífskjaraskerð- ingar og atvinnuleysis. I þessu sambandi bendir miðstjórn Alþýðusambands ís- lands m.a. á eftirfarandi: - Skipulega verði unnið að hagnýtingu orkuauðlinda landsins samhliða uppbyggingu stóriðnaðar og eflingu annarrar atvinnustarfsemi. - Starfsskilyrði íslensks iðnaðar verði bætt og hagræðing aukin. Útflutningsgreinar almenns iðnaðar verði efldar og sett ákveðin stefnumörk um markaðshlutdeild ein- stakra samkeppnisgreina á innlendum markaði. - Samræmt verði skipulag veiða og vinnslu. Lögð verði áhersla á aukin gæði og fullvinnslu sjávarafurða innan- lands, markaðsleit og uppbyggingu nýrra markaða. - Framleiðsla landbúnaðarvara miðist við þarfir innlends markaðar og stefnt verði að aukinni hagkvæmni í fram- leiðslu og vinnslu landbúnaðarvara. - Skipulag opinberrar þjónustu verði bætt þannig að betri þjónusta náist með minni tilkostnaði. - Áhersla verði iögð á hagræðingu í bankastarfsemi, versl- un og annarri þjónustu. - Fjárfestingarlánasjóðir verði sameinaðir og fjármagni beint í þær framleiðslugreinar og til þeirra fyrirtækja sem best nýta það til atvinnuuppbyggingar og hagræðingar. - Skipuleg úttekt fari fram á atvinnumálum með sérstakri hliðsjón af áhrifum nýrrar tækni á mannafla. Markmiðin eru fleiri og röð þeirra skiptir ekki meginmáli. Árangurinn er ekki ákvarðáður af upptalningunni, heldur af raunhæfri framkvæmd. Nýsköpun arðbærrar atvinnustarf- semi er frumnauðsyn, ef ekki á að koma til atvinnuleysis, og hún er jafnframt forsenda þess að árangur náist í baráttu við verðbólgu. Miðstjórn Alþýðusambands íslands beinir þeirri ein- dregnu áskorun til stjórnvalda og stjórnmálaflokka, að nú verði brotið blað í efnahagsstjórn, og að sem víðtækastri samstöðu verði náð um stefnu, sem taki tillit til sjónarmiða verkalýðshreyfingarinnar. Bráðabirgðalögin 1. Helstu efnisatriði bráðabirgðalaganna um launamál eru: - Verðbótaákvæði í kjarasamningum og í svonefndum Ólafslögum eru felld niður á tímabilinu 1. júní 1983 - 31. maí 1985. - Bannað er að greiða verðbætur á laun hverju nafni sem nefnast. - Maflaun skulu hækka um 8% frá og með 1. júní 1983. Þó hækka lágmarkstekjur um 10%. Þann 1. október n.k. hækka laun um 4%. Frekari launahækkanir eru bann- aðar fram til 31. janúar 1984, ef undan eru skildar starfsaldurshækkanir og aðrar persónubundnar launa- breytingar. Frá lagalegu sjónarmiði verða lög þessi að teljast söguleg, þar sem með þeim er í fyrsta skipti frá 1942 gerð tilraun til þess að banna launahækkanir umfram tiltekin mörk. Reyndar er gengið lengra en 1942, en þá var möguleiki á leiðréttingum. Frjáls samningsréttur er beinlínis afnuminn um sinn og í stjómarsáttmála eru verkalýðshreyfingunni lagðar lífsreglur um næstu samninga. 2. Helstu efnisatriði bráðabirgðalaga um „mildandi ráðstaf- anir“ eru: - Sérstakur persónuafsláttur af tekjuskatti verður kr. 1.400 á þessu ári. - Sérstakar barnabætur verða greiddar, kr. 3.000 á árinu fyrir hvert barn sem var innan 7 ára aldurs við sl. ára- mót.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.