Þjóðviljinn - 08.06.1983, Side 11

Þjóðviljinn - 08.06.1983, Side 11
______________________________________Migvikudagur 8. júní 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 íþróttír Víðir Sigurðsson Loks sigruðu meistararnir íslandsmeistarar Víkings náðu sínum fyrsta sigri í 1. deild Islands- mótsins í knattspyrnu á þessu keppnistímabili er þeir sigruðu ís- firðinga 3-2 fyrir vestan í gær- kvöldi. Leikurinn var dæmigerður malarieikur, þó hörkuspennandi og oft á tíðum vel leikinn. Víkingar tóku forystuna á 20. mínútu, Heimir Karlsson eftir þvögu sem myndaðist uppúr auka- spyrnu. Kristinn Kristjánsson jafn- aði 10 mínútum síðar með góðu skoti utan úr vítateig. S't'aðan 1-1 í hálfleik eftir nokkuð jafnræði. Heimir var aftur á ferðinni á 57. mínútu, skoraði fallegt mark með lúmsku skoti af 30 m færi. Jón Oddsson jafnaði, 2-2, eftir skyndi- sókn skömmu síðar, en það var ís- firðingurinn Ómar Torfason sem skoraði sigurmark Víkinga 10 mín- útum fyrir leikslok eftir laglegan undirbúning. ísfirðingar vildu þó meina að hann hefði lagt fyrir sig knöttinn méð hendi. Guðgeir Leifsson lék með Víkingi og átti góðan leik, byggði upp gott sam- spil. Heimir var einnig frískastur. Jón Oddsson var bestur heima- manna en Bjarni Jóhannsson, Jó- hann Torfason, Ámundi Sig- mundsson og Benedikt Einarsson léku allir ágætlega. _____________________-VS Bogi kom ÍK áfram Bogi Petersen markvörður IK var hetja liðs síns í gærkvöldi er það sigraði Skallagrím eftir fram- lengingu og vítaspyrnukeppni í 2. umferð bikarkeppni KSÍ í Kópa- vogi. Kristján Hauksson skoraði fyrir ÍK í framlengingu en Omar Sigurðsson jafnaði fyrir Borgnes- inga. Bogi varði síðan tvær síðustu vítaspyrnur Borgnesinga í vítakep- pninni og ÍK er þar með komið í 3. umferð. -VS Landskeppni við Skota á sunnudaginn kemur Næstkomandi sunnudag fer fram landskeppni í fimleikum í Laugar- dalshöll milli íslands og Skotlands. Þjóðirnar mættust í fyrsta skipti í Glasgow í desember og þá sigruðu Skotar. íslenska liðið er þannig skipað: Kristín Gísladóttir og Berglind Pétursdóttir, Gerplu, Rannveig Guðmundsdóttir, Hulda Ólafs- dóttir, Þóra S. Óskarsdóttir og Est- er Jóhannsdóttir, Björk, Jónas Tryggvason, Heimir Gunnarsson, Guðjón Gíslason og Davíð Inga- son, Ármanni. Keppnin hefst kl. 14 á sunnudag. Tíu leikir í bik- arnum í kvöld Hörður Jóhannesson fagnar fyrsta marki Skagamanna gegn Val í gærkvöldi. Mynd: —eik • • Oraggt hjá Skagamenn unnu mjög góðan og sannfærandi sigur á Valsmönnum á Laugardalsvellinum í gærkvöldi 3- 0. Réðu þeir gangi leiksins mest all- an tímann, og áttu þeir rauðu litla möguleika gegn þeim. Með sama áframhaldi verður fátt til að stöðva Skagamenn í viðleitni þeirra að sigra í 1. deildinni. Skagamenn mættu ljóngrimmir til leiks og gáfu Valsmönnum ná- kvæmlega engan frið til að byggja upp spil sitt. Auk þess léku þeir mun betur og uppskáru samkvæmt því. Stráx á 10. mín. skora þeir fyrsta mark sitt þegar Hörður Jóhannes- son fær boltann á auðum sjó inni í markateig eftir aukaspyrnu. Var drengurinn ekki í vandræðum með að koma knettinum í netið meðan Valsvörnin virtist sofa værum blundi. 0-1. Ekki voru Skagamenn á því að slappa af þrátt fyrir forystuna, heldur sóttu áfram af kappi þar til þeir skoruðu annað mark sitt á 23. mín. þegar Sigurður Halldórsson skallaði af stuttu færi í markið, eftir að Valsmönnum hafði mistekist að hreinsa frá markinu eftir horn- spyrnu. 0-2. Þeir hefðu eins getað bætt við þriðja markinu í fyrri hálfleik, slík- ir voru yfirburðir þeirra, en fleiri urðu mörkin ekki. Gamla kempan Guðmundur Þorbjörnsson kom inn á í síðari hálfleik, og hvort sem því var að þakka eður ei, voru Valsmenn mun betri í síðari hálfleik en þeim fyrri. Voru þeir mun meira með boltanrt, en sókn þeirra var bitlaus, og fengu þeir aðeins eitt umtalsvert tæki- færi, þegar Ingi Björn skaut yfir úr vítaspyrnu á 81. mín.. Var staðan þá reyndar orðin 0^3, því tveimur mín. fyrr hafði Árni Sveinsson skorað með viðstöðulausu skoti í ÍA! fjærhornið eftir aukaspyrnu frá hinum kantinum. Skagamenn voru mun betri síð- ustu mínúturnar, en létu mörkin þrjú duga. IA-iiðið er mjög sterkt um þess- ar mundir og hvergi veikan hlekk að finna. Ekki er ástæða að nefna einn leikmann öðrum fremur, nema helst efnilegan bakvörð Ólaf Þórðarson. Kraftmikill piltur a la Örn Óskarsson. Ekki er hægt að segja að Vals- menn hafi verið lélegir í þessum leik, þó þeir geti leikið betur. Ljóst er að lið þeirra er með betri liðum deildarinnar, og á eftir að blanda sér í toppbaráttuna. Dýri, Ingi Björn og Guðmundur voru bestu menn liðsins, einkum sá síðast- nefndi. Hefði hann að ósekju mátt kom fyrr inná. Óli Ólsen dæmdi leikinn þokka- lega. -B Enn einn stórsigur- inn úti í Eyium í kvöld fara fram cinir tíu leikir í 2. umferð bikarkeppni KSÍ. Þar er athyglisverðasta viðureign á milli Fram og FH en hún verður háð á Melavellinum. Tveir aðrir leikir eru innan bogarmarkanna, Fylkir og Reynir Sandgerði mætast á Ár- bæjarvelli og Arvakur-Víkverji á Háskólavelli. Aðrir leikir á Suð/ Vesturlandi eru Grindavík- Stjarnan og HV-Víðir. ÍK og Skall- agrímur léku í gærkvöldi. Rúnar Það voru 7 mínútur eftir af leik Keflvíkinga og Þórsara þegar Rún- ar Georgsson tryggði Kefl víkingum sigur í Keflavík í gærkvöldi. í fjörugum leik sigruðu heima- menn með 2 mörkum gegn 1, eftir að hafa haft yfir 1-0 í hálfleik. Norðanmenn hófu leikinn af krafti en það voru Keflvíkingar sem áttu fyrstu hættulegu færin. Á 12. mínútu fengu Keflvíkingar gull- ið tækifæri. Rúnar Georgs komst einn innfyrir og stuttu síðar Óli Þór en þeír hittu boltann illa. Sama skeði hjá Þórsurum, Helgi Bents- son komst í gott færi en hitti ekki. Keflvíkingar náðu forystunni á 28. mínútu þegar dæmd var óbein aukaspyrna rétt fyrir utan vítateig. Gísli Eyjólfsson renndi boltanum aðeins til hliðar á Sigurð Björgvins- son sem skaut hörkuskoti. Boltinn fór í Þórsarann Þórarinn Jóhannes- Á Norðurlandi ber hæst leik KS og KA á Siglufirði en aðrir leikir þar eru HSS-Leiftur, Völsungur- Vorboðinn og Tindastóll-Vaskur. Á Austurlandi mætast Sindri og Valur Reyðarfirði en leik Einherja og Þróttar Neskaupstað hefur ver- ið frestað þar sem grasvöllurinn á Vopnafirði er enn ekki tilbúinn. son breytti um stefnu og þeyttist í blá hornið. Guðjón Guðmundsson byrjaði síðari hálfleikinn með hörkuskoti að ÍBK markinu en Þorsteinn Bjamason varði. Þór sótti mun meira í byrjun síðari hálfleiks og náðu að jafna á 56. mínútu. Bjarni Sveinbjörnsson lék óáreittur upp miðjuna, renndi boltanum inn fyrir Eyjamenn halda áfram stórsigra- göngu sinni á heimavelli í 1. deild á Helga Bentsson sem lék á Þor- stein Bjarnason og skoraði með góðu skoti úr frekar erfiðri aðstöðu. Það var síðan 7 mínútum fyrir leikslok að sigurmarkið kom Einar Áskell renndi boltanum faglega inn á Rúnar Georgs sem komst á auðan sjó og nú gerði hann engin mistök og renndi boltanum fram- hjá Þorsteini Ólafssyni. Hjá Keflvíkingum vom þeir ÓskarFærseth og fijöm Ingólfsson sterkastir og þeir Sigurður Björ- gvinsson og Einar Ákell áttu einnig góðan dag. Bestir norðanmanna voru þeir Bjarni Sveinbjörnsson og Helgi Bentsson og Guðjón Guðmunds- son. Dómari var Grétar Norðfjörð og skilaði hann hlutverki sínu með ágætum. gsm/Ig íslandsmótsins í knattspyrnu. í gærkvöldi tóku þeir á móti nýliðum Þróttar og sigruðu öruggiega 3-0, og ef ekki hefði komið til stórgóð markvarsla Guðmundar Erlings- sonar hefði sigurinn orðið enn stærri. ÍBV byrjaði af krafti, Tómas Pálsson komst innfyrir eftir 15 sek- úndur en skaut framhjá og á 2. mínútu átti Kári Þorleifsson stang- arskot. Fyrsta markið kom svo á 12. mínútu, Sveinn Sveinsson skaut af 20 m færi, Guðmundur varði en missti knöttinn nokkuð kíaufalega í netið, 1-0. Eyjamenn fengu fleiri góð færi í fyrri hálfleik, Kári það besta á 25. mínútu er hann skaut í stöngina öðra sinni. Eftir 8 mínútur í síðari hálfleik kom annað markið. Kári lék á varnarmanninn og skaut í blá- hornið, failegt mark, 2-0! Guðmundur kom síðan í veg fyrir fleiri mörk næstu mínúturnar, varði stórvel frá Hlyn, Ómari og Valþóri. Ómar Jóhannsson skoraði þriðja markið á 71. mínútu, fékk knöttinn eftir þvögu og skoraði með óverj- andi skoti, 3-0. Eftir það var fátt um fæti og öruggur sigur ÍBV í höfn. Kári var bestur Eyjamanna, lék af grimmd og krafti allan tímann. Sveinn og Ómar áttu einnig góðan leik og Aðalsteinn virkaði öruggur í markinu. Guðmundur var bestur Þróttara, Páll Ólafsson og Jóhann Hreiðarsson léku vel og Ásgeir Ehasson og Kristján Jónsson vora einnig frískir. Flautuglaður dómari var Magnús Theódórsson. JR/VS. Staðan: Staðan í 1. deild eftir leikina í gærkvöldi: Vest.eyjar........4 3 0 1 11-3 6 Akranes..........4 3 0 1 6-1 6 Keflavík..........4 2 0 2 7-6 4 KR................3 1 2 0 5-4 4 Valur............4 2 0 2 4-8 4 Breiðablik.......3 111 2-2 3 Víkingur..........4 112 4-6 3 ísaQörður........4 112 5-8 3 Þróttur R........4 112 4-8 3 Þór Ak...........4 0 2 2 3-5 2 KR og Breiðablik teika á Laugar- dalsvclli i kvöld kL 20 var hetja ÍBK

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.