Þjóðviljinn - 08.06.1983, Side 12

Þjóðviljinn - 08.06.1983, Side 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 8. júní 1983. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Helgi Seljan Alþýðubandalagið á Seyðisfirði - Félagsfundur Alþingismennirnir Hjörleifur Guttormsson og Helgi Seljan koma á félags- fund sem haldinn verður í Barnaskólanum á Seyðisfirði í kvöld, 8. júní kl. 20.30. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Neskaupstaður aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Neskaupstað verður haldinn í Egilsbúð í kvöld þriðjudagskvöld 7. júní og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Hjörleifur Guttormsson ræðir stöðuna við stjórnarskipti. 3. önnur mál. Félagar, fjölmennið. Stjórnin. Alþýðubandalagið Hafnarfirði Gönguferð á Keili Laugardaginn 11. júní nk. efnir ABH til gönguferðar á Keili. Lagt verður af stað frá Strandgötu 41 (Skálanum) kl. 13.00. Ekið verður með rútu að heppilegum upphafsgöngustað. Gangan á fjallið er ekki erfið og er allt í lagi að taka börn með allt niður í 8 ára aldur. Ef einhverjir vilja fara í minni göngu geta þeir gengið við rætur Keilis meðan hinir klöngrast upp. Heim verður haldið kl. 17.30. Göngustjóri er Kristján Bersi Ólafsson skólameistari. Komið vel skóuð og nestuð. Munið eftir sönqbók MFA Stjórn ABH. Hjörleifur Guttormsson Alþýðubanda- lagið Austurlandi________________________ Ráðstefna á Hallormsstað 2. - 3. júlí 1983 Meðal málaflokka sem fyrirhugað er að ræða á ráðstefn- unni eru: Störf og stefna AB. - Skipulagsbreytingar AB. - Jafnréttismál. - Sveitarstjórnarmál. - Umhverfismál - Æskulýðs- og íþróttamál. Dagskrá (drög): 2. júlí: Skógarganga fyrir hádegi - Framsöguerindi eftir hádegi. - Kvöldvaka. 3. júlí: Starfshópar - Umræður. - Ráðstefnuslit kl. 16.00. Gisting á hóteli og í skóla. Takið fjölskylduna með í fagurt umhverfi. Tilkynnið þátttöku sem fyrst til framkvæmdastjórnar: Einars Más Sigurðarsonar, Neskaupstað, sími 7468. Jórunnar Bjarnadóttur, Eskifirði, sími 6298. Kristins Árnasonar, Egilsstöðum, sími 1286. í>au veita nánari upplýsingar. Hittumst á Hallormsstað. Stjórn Kjördæmisráðs. Fyrsta stjórn Málmsuðufélags íslands talið frá vinstri, Pétur Sig- urðsson, Sigurður Erlendsjon, Elías Gunnarsson, Bjarni Thor- oddsen, Kristinn Sigurðsson. Á myndina vantar Jóhann Hopkins °8 Eirík Orm Víglundsson. Málmsuðufélag Islands stofnað Þjóðleikhúsið Grasmaðkur I síðasta sinn Nú líður að lokum lcikársins í Þjóðleikhúsinu og síðustu sýningar vetrarins framundan. Laugardag- inn 11. júní gefst allra síðasta tæki- færið til þess að sjá nýjasta leikrit Birgis Sigurðssonar, Grasmaðk, og skal tekið fram að verkið verður ekki á verkefnaskrá ieikhússins í haust. Grasmaðkur er sem kunnugt er fjórða leikrit Birgis Sigurðssonar, fyrri verkin eru Pétur og Rúna, Sel- urinn hefur mannsaugu og Skáld- Rósa. Grasmaðkur er fjölskyldu- drama og gerist í Reykjavík okkar daga. Sýning þessi hefur hlotið góða dóma og þykir mest um vert að hér er bjartsýnisverk á ferðinni, þó svo lýst sé hjónabandsvíti og heift þess og hatri af miskunnar- leysi. Leikstjóri þessarar sýningar er Brynja Benediktsdóttir, leikmynd og búninga gerir Ragnheiður Jóns- dóttir myndlistarmaður, en lýsingu annast Árni Baldvinsson. Gísli Alfreðsson og Margrét Guðmundsdóttir fara með stærstu hlutverkin og með önnur hlutverk fara Sigurður Sigurjónsson og Hjalti Rögnvaldsson og þær Hall- dóra Geirharðsdóttir og María Dís Cilia skipta með sér hlutverki ung- lingstúlkunnar á heimilinu. Þess má og geta hér að Hjalti Rögn- valdsson mun á næstunni starfa með Leikfélagi Akureyrar og leikur því ekki hér í Reykjavík í bráð. Síðasta sýningin er sem fyrr segir laugardaginn 11. júní og hefst kl. 20.00. Nýtt tímarit Kennarasambands íslands og kennarafélagsins. Ný menntamál Út er komið nýtt tímarit sem ber heitið Ný menntamál. Útgefendur eru Kennarasamband íslands og Hið íslenska kennarafélag en innan vébanda þeirra eru kennarar í grunnskólum og framhaldsskólum. Meginhlutverk tímaritsins er að fjalla um málefni kennarastéttar- ijnnar og greina frá því sem mark- Vert þykir á sviði uppeldis- og skólamála. Ritinu er einnig ætlað iað stuðla að skoðanaskiptum um menntamál - í víðtækri merkingu þess orðs - og koma hugmyndum og sjónarmiðum sem flestra á framfæri. KÍ og HÍK greiða áskrift- argjöld fyrir hönd félagsmanna, sem hafa fengið ritið sent, en það er nú einnig til sölu í bókaversl- unum. í fyrsta tölublaði fer mest fyrir greinaflokki um vinnuskipan kenn- ara og vinnuálag í kennslustarfinu. t Birna Sigurjónsdóttir kennari ritar grein um það efni. Ýmsar aðrar greinar og viðtalsþættir eru í blaðinu auk fastra liða sem ætlunin er að verði í hverju tölublaði. Ritstjóri Nýrra menntamála er Stefán Jökulsson en í ritnefnd sitja Anna Jóelsdóttir, Guðrún Friðgeirsdóttir, Heimir Pálsson, Ingvar Sigurgeirsson og Jón Bald- vin Hannesson. Varamenn eru þau Helga G. Halldórsdóttir og Viðar Rósmundsson.' Stjórn Félags ungra jafnaðar- manna í Reykjavík samþykkti eftir- farandi ályktun á stjórnarfundi hinn 2. júní sl.: Stjórn Félags ungra jafnaðar- manna í Reykjavík lýsir yfir fullum stuðningi við stofnun Friðarhreyf- ingar íslenskra kvenna. Hún vonar að starfsemi hreyfingarinnar svo og friðarhreyfinga um allan heim beri ríkulegan ávöxt sem fyrst, í þágu friðar til handa öllu mannkyni. Jafnfrámt vonar stjórnin að sam- starf þessara hópa, þ.e. Friðarhreyfingar íslenskra kvenna og Félags ungra jafnaðarmanna í Á aðalfundi Sambands garð- yrkjubænda, sem haldinn var í Bændahöllinni fyrir skömmu, kom fram veruleg gagnrýni á Stofnlána- deild landbúnaðarins vegna þeirrar ákvörðunar hennar að lána ekki til nýrra gróðurstöðva í ár. í framhaldi af þeim umræðum var eftirfarandi tillaga samþykkt: Aðalfundurinn,.... „samþy kkir að fela stjórn S.G. að ræða við stjórn Stofnlánadeildar landbún- aðarins um lánveitingar til garðyr- kjunnar með það að markmiði, að tryggja ákveðnari úthlutunarreglur á hverjum tíma í samráði við Sam- band garðyrkjubænda“. Miklar umræður urðu og um tengsl garðyrkjubænda við Stéttar- samband bænda og Framleiðslu- ráð. Þótti fundarmönnum sem garðyrkjubændur væru nokkuð af; skiptir í þessum aðalsamtökum Reykjavík, geti orðið sem nánast og best í baráttunni fyrir friði. Stofnað hefur verið Málmsuðu- félag íslands, en það er félag áhug- amanna og fyrirtækja sem vilja stuðla að þróun málmsuðu á Is- landi. Á fjölmennum stofnfundi sem haldinn var í apríl si. var kosin stjórn og samþykkt lög félagsins. Stofnfélagar geta allir þeir orðið sem ganga í félagið á árinu. Heimilsfang þess er: Málmsuðufé- lag íslands, P.O. Box 10195 130 Reykjavík. bænda og vildu að fulltrúar garð- yrkjubænda sætu aðalfundi Stétt- arsambandsins með fullum réttind- um. Fyrir því var samþykkt eftir- farandi tillaga: „Aðalfundurinn beinir því til stjórnar S.G. að kanna á hvern veg aðild garðyrkjubænda að almennu bændasamtökunum megi verða stéttinni að sem mestu gagni. Enn- fremur hvort ekki megi finna önn- ur form á greiðslum garðyrkju- bænda á sjóðagjöldum, þar sem tekið er tillit til sérstöðu garðyrkju- bænda innan bændastéttarinnar, (sérstaklega Stofnlándeildar- gjöld). Einnig að fylgja því eftir við Framleiðsluráð að allir aðilar sitji við sama borð um greiðslu gjalda til búnaðarsamtakanna". Formaður Sambands garðyrkju- bænda var endurkjörinn Kristján Benediktsson í Víðigerði. -mhg Göngudagur fjölskyldunnar Ungmennafélag íslands og Mjólkurdagsnefnd hafa samvinnu um sérstakan göngudag fjölskyld- unnar hinn 12. júní nú í ár, með hliðstæðu fyrirkomulagi og í fyrra. Á vegum héraðssambandanna verða valdar gönguleiðir og á veg- BEINN í BAKI - BELTIÐ SPENNT UMFERÐAR um ungmennafélaganna verða sér stakir umsjónarmenn, sem sjá un allar framkvæmdir. Þátttakendur í göngunni mum fá mjólkurdrykki til að svala sér i og til styrktar í leiðangrinum Munu mjólkurbúin á hverju svæð sjá um það. Hver þátttakandi í göngunn mun fá númer í barminn. Ut verðu: dregið eitt „lukkunúmer“ fljótlegí að lokinni göngu. Þeim eða þeirr sem það númer ber, verður boðic að dvelja vikutíma á sveitaheimili ásamt félaga eða maka. Heimilic getur viningshafi valið úr bækling „Ferðaþjónustu bænda“. Þar ei skrá yfir öll þau sveitaheimili, sen: taka á móti ferðafólki til dvalar i lengri eða skemmri tíma. Aðalfundur Félags garðyrkjubænda Gagnrýnir stofnlánadeild -mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.