Þjóðviljinn - 08.06.1983, Side 16

Þjóðviljinn - 08.06.1983, Side 16
WÐVIUINN Miðvikudagur 8. júní 1983. Aöalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Víkingasveitir innan lögreglunnar: „ísland er í þjóðbraut” og því er sveitin nauðsynleg, segir Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn „Staðreyndin er sú að á undan- förnum árum hafa komið fyrir ým- is atvik þar sem lögreglumenn hafa lagt sig í það sem ég vii kalla óþarfa áhættu og „Víkingasveitinni“ er ætiað að bæta þar úr. Þessir 12 menn sem valdir hafa verið í sveitina hafa fengið alhliða þjálfun sem m.a. tekur til meðferðar skot- vopna“, sagði Bjarki Eiíasson yfir- lögregluþjónn þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær. Hin nýstofnaða „Víkingasveit“ innan íslensku lögreglunnar hefur að von- um vakið nokkra athygli manna. Bjarki sagði að sveitin sækti fyrir- myndir sínar erlendis til, en umsjón með þjáifun hennar hefur haft á höndum Arnór Sigurjónsson sem hlotið hefur menntun I norskum herskóla. Bjarki sagði í samtali við Þjv. að engin ástæða væri til tortryggni í garð þessarar sveitar. Hún væri ekki stofnuð í því augnamiði til að berja niður mótmælagöngur, held- ur til að sinna ýmsum verkefnum auk þess sem nefnt var hér í inn- ganginum. Sagði Bjarki að með til- liti til þess að ísland væri í þjóð- braut væri sjálfsgat að gera vissar ráðstafanir. Sveitin myndi vera til taks við komu erlendra þjóð- höfðingja auk þess sem hún veitti sendiráðum þjónustu sína. „En megin markmiðið með stofnun hennar“, sagði Bjarki, „er að veita hinum almenna borgara meira ör- yggí“- Andleg og líkamleg þjálfun í „Víkingasveitinni" eru allt ung- ir og frískir menn, eins og Bjarki komst að orði. Þeir eru á aldrinum 20-30 ára og hafa m.a. getið sér gott orð f ýmsum greinum boltaí- þrótta. Þannig eru í sveitinni nok- krir menn sem leikið hafa með handknattleiksliði Víkinga. „Þjálfun sú sem sveitarmeðlimir hafa hlotið er bæði líkamlegs og andlegs eðlis. Við byrjuðum æfing- ar í miðjum maí og lukum við þær í upphafi júní. Þeim sem tóku þátt í æfingunum var á meðan kippt út úr hefðbundnum lögreglustörfum. Ég geri ráð fyrir að alfarið muni sveitin fást við erlenda aðila. Ég minni á að hingað hafa komið flugvélar í ræningjahöndum“, sagði Arnór Sigurjónsson varayfirlögreglu- þjónn, sem séð hefur um þjálfun „Víkingasveitarinnar", 1 samtali við Þjóðviljann. Arnór sagði að meðlimir sveitarinnar hefðu notað við æfingar sértilgerða galla, en að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um eðli æfinganna. , -hol. WtewtE&ís Tímarit með Ijósmyndum af kynfærum kvenna eru vinsæl söluvara hér- lendis. Kvennaframboðið hefur nú vakið athygli sómakærra yfirvalda þar á. Hvað er klám? Berir karlar, ekkl konur? Kvennaframboðið í Reykjavík hefur skrifað ríkissaksóknara og upplýst hann um að ljósmyndir af kynfærum hafi verið gefnar út og þær seldar í því sem næst öllum verslunum sem á annað borð versla með prentað mál hérlendis. Með bréfinu vill Kvcnnaframboðið vekja athygli*á þeim mismunandi viðbrögðum, sem siíkar myndir kalla ram, eftir því hvort kynið á í hlut. Kveikjan að þessu bréfi er upp- taka tímaritsins Spegilsins sem byggist á því að blaðið innihaldi „klám“. Bendir Kvennaframboðið á að klámið hafi reynst vera ljós- myndir af kynfærum karla. Með bréfinu sendir Kvennaframboðið ríkissaksóknara sýnishorn af því prentefni sem hér er á boðstólum og hefur að geyma ljósmyndir af kynfærum, - að vísu aðeins kynfæ- rum kvenna! Leiðir Kvennaframb- oðið að því líkum að yfirvöld hafi ekki vitað um tilvist slíkra mynda, enda hafi ekki komið til svo snög- gra viðbragða sem upptöku tíma- rita fyrr. I bréfinu er ekki tekin afstaða til þess hvað sé klám en bent á að það sé túlkunaratriði og sé háð afstöðu yfirvalda til kynfær- isins hverju sinni, til eiganda þess og þeirra kringumstæðna sem myndin er tekin undir. -ÁI Meðan 9 eru um hverja lóð í Artúnsholti eru tvær lóðir á mann í Grafarvogslandi, þar sem framkvæmdir eru að hefjast. Ljósm. Atli. Tvær lóðir á mann í Grafarvogslandi Óbyggð svæði eins og Grafar- vogur og Suður-Selás eiga ekki eins miklum vinsældum að fagna hjá lóðarumsækjendum í Reykjavík einsog lóðir í Ártúnsholti og Breiðholti, þó þær séu minni. Þetta kemur berlega í ljós ef skoðaðar eru þær 600 umsóknir einstaklinga sem bárust fyrir helgi um tæplega 1000 lóðir í þessum hverfum. 42 sóttu um 24 einbýlishúsalóðir í Seljahverfi og 10 umsóknir bárust um 10 raðhúsalóðir í sama hverfi. 83 sóttu um 9 einbýlishúsalóðir í Ártúnsholti. Hins vegar sóttu aðeins 30 um 77 einbýlishúslóðir í Selási og 11 um 57 raðhúsalóðir þar. í GrafarvOgi eru lóðirnar tal- svert stærri en í þeim hverfum sem áður eru nefnd. 182 sóttu um 228 einbýlishúsalóðir þar og 18 um 53 raðhúsalóðir. Þar voru einnig auglýsar 520 einbýlishúsalóðir sem ekki verða byggingarhæfar fyrr en 1984 og 1985 en aðeins 205 um- sóknir bárust' um þær. Er þetta mun minni eftirspurn en ætlað var og ljóst að grípa þarf til einhverra ráðstafana til að láta enda ná saman hjá borginni þess vegna. Hjörleifur Kvaran, skrifstofu- stjóri borgarverkfræðings, sagði í gær að gatnagerðargjöld af einbýl- ishúsalóðum væru áætluð um 300 þúsund krónur, en endanleg upp- hæð yrði ljós þegar ný byggingar- vísitala verður reiknuð 1. júlí nk.. Fyrir lóðir sem afhentar verða í ár, þarf að greiða öll gatnagerðargjöld á þessu ári, helming fyrir lóðir sem verða byggingarhæfar 1984 og þriðjung fyrir lóðir sem verða af- hentar 1985. Samkvæmt þessu vora áætluð gatnagerðargjöld 1983 ríflega 130 miljónir króna fyrir Grafarvogslóðirnar en verða ekki nema um 80 miljónir miðað við þær umsóknir sem borist hafa. Hjörleifur sagði að menn væru ekki farnir að reikna þetta dæmi. í tölunum hér að framan væri aðeins um að ræða fyrsta val manna, en flestir umsækjenda nefndu aðra staði til vara t.d. Grafarvog ef ekki fæst lóð í Ártúnsholti o.s.frv.. Þá sagði Hjörleifur að 14 byggingar- meistarar og byggingarsamvinnu- félög hefðu sótt um samtals 300 lóðir, þ.á.m. nokkrar einbýlishús- alóðir. Þá væru horfur á að fleiri lóðir yrðu til ráðstöfunar í Nýjum miðbæ en reiknað var með við gerð fjárhagsáætlunar og samið hefði verið um frestun gatnagerðarfram- kvæmda í landi Gunnars Jenssonar í Selási. Að lokum sagðist Hjörleifur ekki búast við miklum afföllum meðal umsækjenda, en auðvitað gætu menn dottið út ef ekki yrði hægt að verða við óskum þeirra um tiltekið hverfi eða tiltekna lóð. Út- hlutun fer væntanlega fram í júlí- byrjun. -ÁI F orsætisráðherra: Tala á fimmtudag „Það verður blaðamannafundur ályktun ASI, nema það að í verð- lækkar meðalkaupmáttur launa á fimmtudag eftir ríkisstjórnarf- bólguþjóðfélagi væru tölur vand- um rúman fjórðung frá árinu 1982 und þarsem ég mun ræða um áhrif meðfarnar, kaupmáttarskerðing- til síðasta fjórðungs ársins 1983. Ef aðgerðanna nú“, sagði Steingrím- una mætti reikna út á ýmsan hátt, talan 100 er valin sem fulltrúi fyrir ur Hermannsson forsætisráðherra „til dæmis með því að finna fyrst út i meðalkaupmátt á árinu 1982 er tal- í gær, þegar Þjv. bar undir hann kaupmátt rétt eftir að vísitalan bæt- an fyrir meðalkaupmátt á fyrsta ályktun formannaráðstefnu ASI ist við og svo aftur rétt eftir að kjar- fjórðungi ársins 1983 92 og þessi um bráðabirgðalög ríkisstjórnar- askerðing verður“, sem ekki væri tala meðalkaupmáttar á síðasta •nnar. eðlilegt. fjórðungi ársins 1983 (meðaltal Samkvæmt upplýsingum úr ný- mánaðanna október, nóvember og Steingrímur sagðist af þeijn sök- útkomnu Fréttabréfi ASÍ, sem desember) verður 76. um ekki vilja segja mikið strax um vitnað var til í Þjóðviljanum í gær, _ m.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.