Þjóðviljinn - 16.06.1983, Side 3
Fimmtudagur 16. júni 1983 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3
Geysisgos í sumar
5 þúsund krónur
fyrir hvert gos
í sumar gefst ferðahópum eða
ferðaskrifstofum kostur á að
„kaupa" sér Geysisgos, en verða
að bera af því kostnað fyrir sápu.
undirbúning og umsjón með gos-
inu. Nemur sú fjárhæð 5 þúsund
krónum og greiðist til Ferðaskrif-
stofu ríkisins sem tekur við gos-
pöntunum og ákveður hvort hægt
sé að verða við þeim.
Það er Geysisnefnd, sem hefur
umsjón með Geysi íflaukadal og
hefur hún ákveðið þessa skipan
mála. Ekki verður leyft að setja
sápu í hverinn oftar en á 4ra daga
fresti.
Fyrir nokkru var lokið við að,
setja upp girðingu umhverfis
Geysi bæði af öryggisástæðum og
til að hlífa Geysishólnum við á-
troðningi. Athygli er vakin á því
að fara verður mjög varlega um
Geysissvæðið. Það er Þórir Sig-
urðsson, garðyrkjubóndi í
Haukadal sem hefur umsjón með
Geysissvæðinu fyrir Geysisnefnd
og Ferðaskrifstofu ríkisins.
Ferðalangar í Kýrskarði með Hornvík í baksýn. Hælavíkurbjarg fjær.
Ljósm.: GFr.
Sumarferð Alþýðubandalagsins
á Vestfjörðum
Eldfjörug lög og smellnir textar verða á boðstólnum í Laugardalshöll að kvöldi 17. júní. Hér eru það
Sigríður Hagalín, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Steindór Hjörleifsson sem taka lagið á æfingu.
Skrúðganga frá Borgarleikhúsinu að kvöldi 17 . júní
LR býður í Höllina
Leikfélag Reykjavíkur hefur í
samráði við borgina ákveðið að
bjóða borgarbúum til kvöld-
skemmtunar í Laugardalshöll að
kvöldi 17. júní undir hcitinu „Við
byggjum leikhús“. Gamanið í Höll-
inni hefst kl. 21, en áður verður
farin skrúðganga frá Borgar-
leikhúsinu og eru leikhúsgestir í
Iðnó fyrr og nú hvattir til þess að
fjölmenna. Safnast verður saman
við Borgarleikhúsið kl. 20 og lagt af
stað kl. 20.15. Lúðrasveit verka-
lýðsins spilar í göngunni.
Yfir 20 leikarar og starfsmenn
LR koma fram á skémmtuninni, en,
höfundar efnis eru Jón Hjartarson,"
Karl Ágúst Úlfsson og Kjartan
Ragnarsson, sem einnig annast
leikstjórn, en tónlistarstjórn er í
höndum Sigurðar Rúnars Jóns-
sonar. Undirleik annast Jóhann G.
Jóhannsson og Tóntas Einarsson.
Megnið af lögunum er eftir finnska
leikhústónskáfdið Kaj Chydenius,
en einnig verða fluttar söngva-
syrpur úr leikritum eftir ýmsa höf-
unda. Auk Iðnó leikaranna mun
fjöldi annarra leikara og leikhús-
'fólks aðstoða við skemmtunina.
Heiöursgestir kvöldsins verða
forseti íslands og borgarstjórinn,
sem jafnframt flytur ávarp. Stefnt
er að því að Borgarleikhús verði
tekið í notkun eftir 3 ár, á 200 ára
afntæli Reykjavíkurborgar.
Aðgangurinn að skemmtun LR í
Laugardalshöll er ókeypis, en
meiningin er að með mikilli þátt-
töku og frjálsum framlögunt leggi
borgarbúar áherslu á vilja sinn til
þess að byggja sér og LR leikhús.
- ekh
Farið verður8.júlí
á Hornstrandir
Hin árlega sumarferð Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum verð-
ur að þessu sinni farin norður í
Hornvík.
Lagt verður af stað með Djúp-
bátrium Fagranesinu frá ísafirði
föstudaginn 8. júlí kl. 2 eftir há-
degi, og komið til baka á sunnu-
dagskvöld. Farið verður á Horn-
bjarg og í gönguferðir um ná-
grennið undir leiðsögn kunnugra
manna. Dvalið verur í tjöldum
þessar 2 nætur.
- Kvöldvaka og kynning á Horn-
ströndum -
Verð fyrir fullorðna kr. 980,-
Öllum heimil þátttaka.
Nánar auglýst síðar.
Kjördæmisráð Alþýðubandalags-
ins á Vestfjörðum
Tij aðildarfélaga
í Ölfusborgum
Gróðursetning verður í Ölfusborgum laugar-
daginn 18. júní.
Rútuferðir verða frá Lindargötu 9 kl. 13.
Nánari upplýsingar í síma 25633.
Stjórnin
jg| Lausar stöður
heilsugæslulækna á
Akureyri og Seltjarnarnesi
Laus er til umsóknar ein staða heilsugæslu-
læknis á Akureyri og ein á Seltjarnarnesi.
Stöðurnar veitast frá og með 1. september
1983.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um
læknismenntun og læknisstörf sendist
ráðuneytinu á þar til gerðum eyðublöðum,
sem fást í ráðuneytinu og hjá landlækni fyrir
14. júlí n.k. Allar nánari upplýsingar veittar í
ráðuneytinu.
Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið
Fulltrúi
sumars.sólar
og heilbrigði