Þjóðviljinn - 16.06.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.06.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. júní 1983 Torfi Steinþórsson, Hala Á vordögum í Suðursveit Varla veröur eftir vori tekiö nema vetur hafi á undan gengið. Mun því rétt vera að láta nýlióins vetrar hér lítilsháttar getið. Ég trúi að hans verði naumast minnst sem öndvegisvetrar í hug- um Suðursveitunga, hvorki til ills eða góðs. Veðráttan var nokkuð róstusöm fram um miðjan vetur. Tíð hvassviðri, snjóalög nokkur og síðar svellalög. Én nálægt þorra- komunni breyttist tíð verulega til hins betra. Snjór og sveil hurfu smátt og smátt þegar á leið, frost aldrei mikið og hægviðrasamt. Mesta snjó vetrarins setti niður síðasta þriðjudag í vetri, þ.e. 19. apríl. Muna menn varla meiri snjókomu hér á einum sólarhring en þá var. Snjókomunni fylgdi norðaustan stinningskaldi, svo að ferlegir skaflar mynduðust, allt að 2ja m djúpir eða meira. Var það í fyrsta skipti þennan dag í þau 10 ár sem heimanakstur hefur verið í Hrollaugsstaðaðarskóla að nem- endur og starfsfólk komust ekki heim að kvöldi. Voriö Eftir þennan sumarmálaby! og fram á daginn í dag, 31. maí, eða í réttar 6 vikur, hefur veður verið með nokkuð óvenjulegum hætti hér í Suðursveit. Það hefur ein- kennst af mjög miklu hægviðri og þurrviðri. Flesta daga annað hvort hægviðri eða lítilsháttar gola, aðeins kaldi má teljast hafa verið í 7 daga, en regnsúld að einhverju leyti í 4 daga. Hitastig hefur oftast verið fremur lágt. Þó hefur hitinn komist í eða yfir 10 stig einhvern tíma dagsins f '18 daga í maí. Ekki hefur orðið vart við næturfrost hér í grennd í þessum mánuði. Líklega er það því að þakka að mjög sjald- an hefur verið heiðskírt loft í mán- uðinum heldur oftast einhver þokudumbungur. Vegna þurrviðris hefur gróðri farið mun hægar fram en ætla mætti miðað við hitastigið, jafnvel þótt það hafi sjálfsagt verið lægra en í meðal árferði. Þó eru einnig þau sandatún hér í sveit, sem tilfinnan- lega hafa kalið í vor eða vetur, t.d. austan til í sveitinni á svonefndum Heinabergsaurum. Má þar sjálf- sagt kenna um miklum svellalögum í vor. I dag er kaldasti dagur mánaðar- ins, regnsúld á láglendi en gránar til fjalla og hiti aðeins 3 stig síðari hluta dagsins. Sauðburður Sauðburður hófst í byrjun maí eða viku af maí og er nú lokið. Má 107 nemar í Kennaraháskóla ís- lands brautskráðust með réttindi kennara í grunnskólunum þegar skólanum var slitið 4. júní síðast- liðinn. Af þessum hópi voru 88 konur og 19 karlar. Hlutfall kvenna er 82,3% á móti 17,7% karla. Hefur hlutfall kvenna í skólanum verið sífellt að hækka allt frá 1970 er karlar voru í meirihluta. Árið 1971 var skólanum breytt úr kennara- Torfi Steinþórsson: „í hermangi og erlendum stóriðjumálum gætu, á næstu misserum eða árum gerst þeir hlutir, sem íslensk þjóð ætti erfiðara með að bæta úr heldur en nokkrum efnahagsvanda“. víst segja að hann hafi gengið mjög vel, enda veðrátta sérlega hagstæð fyrir hann og heilsufar lambanna verið óvenju gott. Flest allt lamb- féð hefur nú um sinn verið í hólfum úti á túnum, þar sem því hefur ver- ið gefin full gjöf. Dálítið er samt farið að sleppa lambfé á úthaga og líkur benda til þess að á næstu far- dögum verði hægt að losa megin hluta þess burt af túnunum. Bænd- ur hafa hér nægilegt fóður en mikið kostar allur sá fóðurbætir, sem gefa þarf lömbum þegar seint vorar. Félagsheimilið Segja má að í maímánuði sé allt mannlíf í sveitinni svo nátengt sauðburðinum að naumast komist þar annað á dagskrá, nema þá að koma áburði á tún. Síðari hluta vetrar unnu nokkrir Suðursveitungar við að innrétta viðbyggingu, sem verið er að koma upp við félagsheimilið á Hrollaugs- stöðum. Viðbygging þessi varð fokheld á síðast hausti. Nú standa vonir til að hægt verði að hefjast aftur handa við bygginguna strax og mestu vorönnum lýkur og hægt verði að taka byggingu þessa í notkun áður en þessu ári lýkur. skóia í kennaraháskóla. í vetur voru 350 nemar f almennu kennar- anámi. 120 nemendur hefja nám við skólann á hverju hausti og sagði Stefán Bergmann konrektor að undanfarin ár hefði hlutfall kvenna verið um 75% og virtist leita uppá- við. Stefán sagði að e.t.v. mætti rekja fjölda kvenna til bágra launakjara grunnskólakennara, en aðrar ástæður kynnu að liggja að baki s.s. aukið framboð á námi. - hól. Láta mun nærri að rými félags- heimilisins hafi þá aukist um allt að 80% eða jafnvel meira. Suðurlína Staurasamstæðurnar í hinni svonefndu Suðurlínu eru nú sem óðast að rísa upp í hlíðunum ofan við bæina og finnst mönnum lítill fegurðarauki að þeim gálgatrjám. En ekki verður á allt kosið, segir hið fornkveðna. Ríkisstjórn Ríkisstjórn þeirra kumpána, Steingríms og Geirs, virðist eiga fáa formælendur hér um slóðir; ef þá bara nokkra? Eftir að úrslit kosninganna í vor lágu fyrir virtist fárra góðra kosta völ. En varla hef- ur nokkur átt von á öðru eins reiðarslagi yfir sig eins og þessari ríkisstjórn. Allir viðurkenna mik- inn aðsteðjandi vanda í.efnahags- lífinu. En einhvern veginn er það nú svo, að fáir gera sér vonir um að boðaðar aðgerðir núverandi ríkis- stjórnar leysi þann vanda heldur auki hann. Við hér, andstæðingar Fram- sóknar og íhalds, segjum nú samt sem svo okkar á milli, að kannski sé réttast að láta kyrrt liggja um sinn og lofa stjórninni í friði að leika sinn leik, í efnahagsmálun- um, því einhvernveginn muni þjóðin skrimta af þær þrengingar. En hún gæti orðið reynslunni ríkari á eftir. Og vonandi fer varla svo illa, að þjóðin geti ekki borið sitt barr efnahagslega þótt síðar verði. Alvarlegra er það, sem framund- an gæti verið í þjóðfrelsismálun- um. Meðal annars spáir þar um engu góðu, að móðursjúk „utan- þingsstjórn“ skuli þar hafa hlotið verkstjórn. í hermangi og er- lendum stóriðjumálum gætu á næstu missirum eða árum gerst þeir hlutir, sem íslensk þjóð ætti erf- iðara með að bæta úr heldur en nokkrum efnahagsvanda. Lestur úr forystugreinum Af tilviljun hlustaði ég í morgun á lestur úr forystugreinum dag- blaðanna, en það hef ég ekki gert síðan lesturinn var fluttur á þann tíma, sem útilokar flesta frá að hlusta. Ég býst við að farið hafi verið upphaflega með lesturinn á þann tíma sólarhringsins að sem flestir hefðu aðstöðu til að njóta hans. En nú virðast lúnóttir „gæj- ar“ markáðshyggjunnar hafa kom- ið réttilega auga áað ekkisé sæm- andi að þeirra blöð. sem eru mest keyptu blöðin á Islandi, missi nokkuð af forskotinu, en það gera þau ef. margir hafa aðstöðu til að hlusta á lestur úr leiðurum allra dagblaðanna. Og spámenn mark- aðshyggjunnar munu hrópa „Sann- lega segi eg yður, markaðshyggjan skal blífa þarna sem annarsstaðar". Já, ég hlustaði á lestur úr forystu- greinunum í morgun, þ.e. 31. maí. Það, sem einkum vakti athygli mína undir þeim lestri var, að þarna komu fram skoðanir í leiðara útbreiddasta blaðs landsins, sem vel gætu bent til þess, að blaðið væri opinbert málgagn Alusisse á íslandi. Sjálfsagt lesa forráðamenn Alusisse slík skrif sér til andlegrar styrkingar í baráttunni við íslend- inga. Gæti þar með verið náð settu marki blaðsins. En útilokað með öllu, að þau hafi átt að vinna ís- lenskum málstað gagn. Hala, 31. maí, Torfi Steinþórsson. Kennaraháskólinn: 107 brautskráðust — 88 konur og 19 karlar Helgi Jósefsson við eitt verka sinna sem hann nefnir „Prjónakonur“. Sýnir í Eyjum Helgi Jósefsson myndlistarmaður opnar myndlistasýningu í Safnahús- inu í Vestmannaeyjum í dag fímmtudag, og stendur sýningin fram á 20. júní. Á sýningu verður Helgi með 44 verk, 24 olíumálverk, 7 pastelmyndir, 2 grafík, 5 vatnslitamyndir og 6 leirmyndir. Helgi stundaði nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur veturinn 1967-’68 og Myndlista- og handíðaskóla íslands 1970-74. Hann hefur áður sýnt á Vopnafirði 1979,1980 og 1982, Stórutjarnaskóla 1980, Eden í Hveragerði 1981, Siglufirði 1982 og Þórshöfn 1982. Frídagur verslunar- manna er orðinn almennur frídagur Ekki ber að telja hann til orlofsdaga Með aðgerðum ríkisstjórnarinn- að reikna frídag verslunarmanna ar frá því í desember í fyrra til mót- inn í dæmið, þannig að í raun á vægis við vísitöluskerðinguna þessi maður að mæta í vinnu 9. ág- fylgdi sú breyting, að nú er frídag- úst en ekki þann 8. eins og sagt var. ur verslunarmanna (fyrsti mánu- Það er ótvíræður skilningur verka- dagur í ágúst) talinn almennur frí- lýðsfélaga, að frídagur verslunar- dagur. Fyrir þann dag ber atvinn- manna skuli ekki telja með orlofi urekendum að greiða dagvinnuk- fremur en aðra almenna frídaga. aup, en hann er ekki unninn. Sé Til glöggvunar skal þess getið, að hann unninn, ber að greiða kaup almennir frídagar eru þessir: nýárs- með helgidagaálagi, þ.e. skv. dagur, skírdagur, föstudagurinn nætur- og hclgidagavinnutaxta. langi, annar í páskum, sumardag- Breytingarnar á orlofsdögunum urinn fyrsti, 1. maí, uppstigningar- voruraktaraðnokkruhéríblaðinu dagur, hvítasunnudagur, annar í sl. föstudagogvarm.a. gefiðdæmi hvítasunnu, 17. júní, frídagur af manni, sem tók sitt sumarfrí í verslunarmanna, jóladagur, annar bútum og tapaði með því tveimur í jólum og gamlaársdagur. dögum af sumarfríinu. Mér láðist ast Flugleiðír bjóða sérstök kjör á Sönghátíðina ’83 Sönghátið ’83 hefst mánudaginn 27. júní með tónleikum Gérard Souzay og Dalton Baldwin. Þriðjudaginn 28. júní verða svo tónleikar Glendu Maurice og Dalton Baldwin. Allir verða tónleikarnir haldnir í Austur- bæjarbíói og hefjast kl. 21.00. I tilefni þessa bjóða Flugleiðir fólki utan af landsbyggðinni, sem vill hlusta á þessa frábæru listamenn, sérstök kjör á flugmiðum, gistingu og miðum á tónleikana. Þeir, sem áhuga hafa, eru beðnir að hafa samband við skrifstofu eða umboðsmann Flugleiða á staðnum. - mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.