Þjóðviljinn - 16.06.1983, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 16.06.1983, Blaðsíða 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ALÞYÐUBANDALAGIÐ Sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík Viðeyjarferð 25. júní. Laugardaginn 25. júní n.k. verður farið í árlega sumarferð Alþlýðubandal- agsins í Reykjavík. Förinni er heitið í Viðey og verður lagt upp frá Sunda- höfn kl. 10og 10.30 árdegis. Heimferðkl. 17-18 eða 20-21. Miðasala hefst mánudaginn 20. júní á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 kl. 8-16. Miðinn kostar 150 krónur og er ókeypis fyrir 12 ára börn oq ynqri. Tryqqið ykkur miða strax á mánudag. Ferðanefnd AB-Héraðsmanna Almennur félagsfundur mánudaginn 20. júni kl. 20.30 í fundarsal Egils- staðahrepps. Dagskrá: 1) Staða kvenna í félags- og flokksstarfi Alþýðu- bandalagsins 2) Ónnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórnin Skógræktarferð í Heiðmörk Sunnudagurinn 19. júní. Félagar, notum öll þetta tækifæri og komum með fjölskylduna í Heiðmörk til þess að rækta smáskógarreit og blanda geði einn sunnudagseftirmiðdag. 1) Mætum kl. 13.30 við Elliðavatnsbæinn. 2) Trjáplöntur verða á staðnum og leiðsögumaður og verkfæri frá Skóg- ræktarfélagi Reykjavikur. 3) Tökum með okkur kaffi og góðgæti. Nánari upplýsingar í símum 76510 (Ingibjörg) og 78411 (Ingólfur) og 71367 (Arnór). Stjórnir Breiðholts- og Árbæjardeildar ABR P.S: Gleymið ekki að mæta. Alþýðubanda- lagið Austurlandi_________________________ Ráðstefna á Hallormsstað 2.-3. júlí 1983 Meðal málaflokka sem fyrirhugað er að ræða á ráðstefn- unni eru: Störf og stefna AB. - Skipulagsbreytingar AB. - Jafnréttismál. - Sveitarstjórnarmál. - Umhverfismál Æskulýðs- og íþróttamál. Dagskrá (drög): 2. júlí: Skógarganga fyrir hádegi - Framsöguerindi eftir hádegi. - Kvöldvaka. 3. júlí: Starfshópar - Umræður. - Ráðstefnuslit kl. 16.00. Gisting á hóteli og í skóla. Takið fjölskylduna með í fagurt umhverfi. Tilkynnið-þátttöku sem fyrst til framkvæmdastjórnar: Einars Más Sigurðarsonar, Neskaupstað, sími 7468. Jórunnar Bjarnadóttur, Eskifirði, sími 6298. Kristins Árnasonar, Egilsstöðum, sími 1286. Þau veita nánari upplýsingar. Hittumst á Hallormsstað. Stjórn Kjördæmisráðs. Classix Nouveau í Höllinni í kvöld: „Liggjum ekki á liði okkar” „Fólk í Bretlandi hefur tækifæri til að hlusta á svo margar hljóm- sveitir að það kann ekki að meta það. Þess vegna finnst okkur miklu meira virði - meira gefandi - að spila annarsstaðar.“ Svo segir Sal Solo, söngvari og formælandi hljómsveitarinnar Classix Nouve- aux, með sínu fína, menntaða enska tungutaki á blaðamanna- fundi á Hótel Loftleiðum. Sal Solo, söngvari hljómsveitarinn- ar Classix Nouveaux, er Lundúna- búi eins og trommarinn B.P. Hur- ding. Hinir eru frá írlandi (bassa- leikarinn Mick Sweeney), Skot- landi (S. Paul Wilson hljómborðs- leikari) og Finnlandi (gítarleikar- inn Jimi Sumen). „Við höfum reynt að koma til íslands tvisvar-þrisvar áður, en alltaf eitthvað komið í veg fyrir það. Við höfum spilað næstum því í öllum heimsálfum, Indlandi, Isra- el, Bólívíu, USA, austantjalds- löndum, erum nýkomnir frá Pól- landi, langar að spila í Rússlandi, en fólk tekur okkur alveg jafnvel allsstaðar. Þó eru aðstæður mis- jafnar á hverjum stað, en músíkin er númer eitt. Við treystum aldrei á að geta verið með fullkomna lýsingu eða annan leikrænan sviðsbúnað. Enda finnst okkur fyrirfram útreiknuð sviðsframkoma fölsk og leiðinleg. En eitt er á hreinu: plata okkar La Verité (Sannleikurinn) seldist hér á fslandi í rúmlega 2000 eintökum, sem er 1% af þjóðinni! Slíkar við- tökur verða einungis þakkaðar með því að gera sitt besta á hljóm- leikunum í kvöld! Við munum auðvitað spila lög af fyrri plötum okkar, en líka 4-5 af þeirri næstu (þeirri 3.) sem kemur út á þessu ári. Af henni verður bráðlega gefið út eitt lag á lítilli plötu, sem heitir Forever and a day. Annars vitum við ekki hvernig þetta verður, erum ekki búnir að skoða þessa Laugardalshöll. En eins og ég sagði áðan þá er músíkin númer eitt og í því efni ætlum við ekki að liggja á liði okkar og þið fáið að heyra persónulegt rokk!“ - A Sumarfrí 09 samvera r a Laugar- vatni Enn pláss 4.-10. júlí Enn er hægt að fá pláss í sumarfrí og samveru Alþýðubanda- lagsins á Laugarvatni vikuna 4. til 10. júlí næstkomandi, en ekki er ráðlegt að draga pantanir lengur. Uppselt er síðustu tvær vikurnar í júlí. Þeir sem hug hafa á að panta dvöl á Laugarvatni vikuna 4. til 10. júlí eru vinsamlega beðnir að snúa sér til flokksmiðstöðvar Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105, Reykjavík, sími 17500, persónulega eða í síma, og festa sér pláss. Dvalarkostnaður fyrir fullorðna er kr. 2800, kr. 1600 fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára ög kr. 300 fyrir börn að sex ára aldri. Innifalið í verðinu er fullt fæði, gisting í 2-3ja manna herbergjum (með rúmfötum), leiðsögn í ferðum, barnagæsla, miðar í sund og gufubað, og margskonar skemmtan og fræðsla. Laugarvaln og umhverfi þess er kjörið til sumarleyfisdvalar og útivistar. í sumarfríi og samveru Alþýðubandalagsins verður farið í sameiginlegar gönguferðir undir leiðsögn heimamanna, farið í skoðunarferð um uppsveitir Suðurlands, efnt til fræðslu- funda um staðinn og til spilakvölda og skemmtikvölda, þar sem þátttakendur og góðir gestir munu standa fyrir dagskránni. Á Laugarvatni er báta- og hestaleiga, og aðgangur að íþrótta- mannvirkjum. Síðast en ekki síst er það samveran með góðum félögum sem gerir Laugarvatnsdvöl ánægjulega og rómað at- læti hjá Rúnari Jökli Hjartarsyni bryta og starfsfólki hans í Héraðsskólanum. Vilt þú vera með í friðarhóp? Eins og konur minnast eflaust var stofnuð friðar- hreyfing íslenskra kvenna hinn 27. maí sl. Nokkrum dögum síðar híttust fáeinar konur sem voru á stofn- fundinum til að ræða um stofnun friðarhópa. Nú er það ætlun þeirra að hittast aftur hinn 20. júní kl. 17 í Nor- ræna húsinu, til þess að halda umræðum áfram. Þær konur sem hafa áhuga á að stofna friðarhópa eru meira en velkomnar, verkefnin eru næg, ef áhuginn er fyrir hendi. Friðarhópurinn. Framkvæmdastjóri Prjónastofan Katla h.f. Vík í Mýrdal óskar að ráða framkvæmdastjóra. Umsóknarfrestur til 24. júní n.k. Upplýsingar í síma 99-7225 hjá fram- kvæmdastjóra og í síma 99-7201 hjá stjórn- arformanni. Stjórnin Yaxtabreytingai* hjá Iðnlánasjóði Þann 15. júní 1983 kom til framkvæmda vaxtahækkun á útlánum IÐNLÁNASJÓÐS og eru vextir sem hér segir:. Byggingalán 5,0% p.a. Vélalán 4,5% p.a. Auk vaxta eru útlán sjóðsins bundin lánskjaravísitölu. Frá og með sama degi varð samsvarandi hækkun á útistandandi lánum, þar sem ákvæði skuldabréfa heimila slíkt. IÐNLÁNASJÓÐUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.