Þjóðviljinn - 16.06.1983, Qupperneq 9
BLAÐAUKI
„OKKÚR
SKILA
ÍÁTTINA
Þann 18. des. í vetur eru 34 ár
liðin síðan Landssamband
hestamanna var stofnað.
Stofnun þessi átti sér
alllangan aðdraganda. En ef
rekja á hann þá má spyrja
eins og Matthías gerði þegar
hann leityfir Skagafjörð:
„Hvar skal byrja, hvar skal
standa?“ Hann valdi
Tindastól sem sjónarhól.
Ég kýs að byrja 15. júlí 1940 en
þá ritaði Jón Pálsson, dýralæknir á
Selfossi, formaður Hestamanna-
félagsins Sleipnis, stjórn Fáks í
Reykjavík bréf, þar sem hann
mæltist til þess, að Fákur gengist
fyrir samkomu hestamanna á Þing-
völlum sumarið 1941. Féllust Fáks-
menn á það og laugardaginn 28.
júní 1941 kom stór hópur ríðandi
manna saman á Pingvöllum. Voru
þeir af svæðinu frá Selfossi,
Reykjavík og Vesturlandi allt
norður í Dali. Þarna var samþykkt
að hittast aftur á Þingvöllum að 9
árum liðnum. Gunnar Bjarnason,
þáverandi hrossaræktarráðunaut-
ur, flutti tillögu þess efnis, að jafn-
hliða yrði þá efnt til sýningar á kyn-
bótahrossum og varð það fyrsta
landsmótið.
L.H. lítur
dagsins Ijós
Á fundi Fáks 5. maí 1944 var
kosin þriggja manna nefnd til að
undirbúa stofnun landssambands
hestamannafélaga: Gunnar Bjarn-
ason, hrossaræktarráðunautur,
Bjarni Eggertsson frá Laugardæl-
um og Einar E. Sæmundsen,
skógarvörður. Á fundi, sem þessi
nefnd boðaði til 3. ágúst 1949, þar
sem mættir voru fulltrúar frá 9
hestamannafélögum, var endan-
lega ákveðið að stofna sambandið
og kosin ný undirbúningsnefnd:
Gunnar Bjarnason, Hjalti Gests-
son, ráðunautur á Selfossi, Björn
Gunnlaugsson, fyrrverandi for-
maður Fáks og Bogi Eggertsson frá
Laugardælum.
Endanlegur stofnfundur var svo
haldinn í Reykjavík 18. des. 1949
og voru stofnfélögin 12 en nokkru
síðar bættust tvö við. Markmið
Landssambandsins var skilgreint
þannig: „... að vinna að bættri
meðferð hesta, sérræktun
reiðhestsins og framgangi
reiðhestaíþrótta". Fyrstu stjórnina
skipuðu þeir H.J. Hólmjárn
Reykjavík formaður, Ari Guð-
mundsson, Borgarnesi ritari,
Pálmi Jónsson, Reykjavík gjald-
keri og meðstjórnendur þeir
Hermann Þórarinsson, Blönduósi
og Steinþór Gestsson Hæli. - Og
nú, 34 árum síðar, er blaðamaður
staddur á skrifstofu L.H. í Reykja-
vík og spyr Sigurð Ragnarsson, fra-
mkvæmdastjóra þess hvernig hon-
um finnist að L.H.hafi tekist að
ingamanna. Þar að auki eru svo fé-
lög, sem mynduð hafa verið í
skólum.
í hestamannafélögunum eru
7300 manns en miklu fleiri þó, sem
stunda hestamennsku, svo sem
eins og börn og unglingar. Er á-
reiðanlega óhætt að segja að það
séu ekki undir 10 þús. manns, sem
stundar hestamennsku reglulega
og fer þeim sífjölgandi.
Félögin halda eitt aðalþing á ári,
Ársþing L.H., þar sem saman
koma stjórn Sambandsins og
kjörnir fulltrúar frá hestamanna-
félögunum. Á þingunum eru rædd
hagsmuna- og áhugamál hesta-
manna og gerðar ályktanir og sam-
þykktir um þau. Framan af voru
mhgræðirvið
Sigurð
Ragnarsson,
framkvæmda-
stjóra
Lands-
sambands
hestamanna.
vinna að þeim markmiðum, sem
forkólfar þess settu því í öndverðu.
Horfir rétt
- Upphafsmennirnir að stofnun
L.H. voru hvorttveggja í senn
miklir hestamenn og miklir hest-
aunnendur. Þeir voru kröfuharðir
en þeir vissu líka að til mikils mátti
ætlast af íslenska hestinum ef hon-
um voru sköpuð þau skilyrði og
veittur sá aðbúnaður sem þurfti til
þess að hann fengi sýnt hvað í hon-
um býr. Það var markmið L.H. og
ég held að okkur hafi skilað veru-
lega í áttina að því marki, segir Sig-
urður. Um þetta leyti var bíla- og
vélaöldin fyrir alvöru að ganga í
garð. Hesturinn átti í harðri sam-
keppni við þessi sálarlausu tæki.
Forkólfar L.H. munu hafa ætlast til
að Sambandið yrði einskonar
brjóstvörn fyrir reiðhestinn, sem
gerði honum ekki aðeins kleift að
halda sfnum hlut heldur brjótast á
ný til þess vegs, sem hann er borinn
til.
En ég held, að starf L.H. hafi
ekki einungis miðað að því að bæta
reiðhestinn og auka notkun hans
og kynningu á honum heldur einn-
ig til þess að efla samstöðu og fé-
lagsþroska hestamanna.
45 félög - 7300 manns
- Og ef við víkjum þá ofurlítið
að Landssambandinu og störfum
þess?
- Já, þess má þá fyrst geta að í
L.H. eru 45 hestamannafélög,
dreifð um allt land. Tengd L.H.,
þótt ekki séu þeir beinir aðilar, eru
svo Dómarafélagið og Félag tamn-
þau mál tiltölulega fá sem fyrir
þingin komu en þeim hefur farið
sífjölgandi. Þingið kýs svo ýmsar
nefndir til þess að vinna að einstök-
um málaflokkum.
Hestamannamótin
Veiga- og þýðingarmikill þáttur í
starfi L.H. er mótahaldið. Lands-
mót eru haldin fjórða hvert ár en
fjórðungsmót þess á milli. Þá eru
og einstök hestamannafélög stund-
um með stórmót. Annars lít ég svo
á að mótin séu að verða of mörg.
Það þyrfti að fækka þeim og sam-
ræma. Það er blátt áfram orðið erf-
itt að koma þeim öllum fyrir svo að
ekki verði árekstrar. Þau eru
kostnaðarsöm svo aðsókn þarf að
vera góð ef þau eiga að bera sig
fjárhagslega. Þarna þarf að koma
til meira skipulag. En á mótunum
kemur fram árangurinn af ræktun
og reiðkennslu og þar gefst okkur
eini möguleiki til þess að meta
heildarárangurinn af starfinu. Og
mótin sýna alveg ótvírætt að stór-
felldur árangur hefur náðst í hross-
aræktinni.
í undirbúningi er að næsta lands-
mót verði á Hellu 1986 en um það
þarf að taka ákvörðun nú fyrir lok
mánaðarins. - Og úr því að við
erum að tala um mótin þá má
skjóta því hér að, að nú er röðin
komin að Þýskalandi með Evrópu-
mót. Við munum taka þátt í því og
er nú verið að undirbúa keppnis-
sveit og val á hestum. Við höfum
tekið þátt í öllum Evrópumótunum
og með góðum árangri. En sam-
keppnin fer síharðnandi og menn
vilja ógjarna senda sína bestu hesta
því keppnishestarnir koma ekki til
baka. Þátttaka í þessum mótum er
mikil landkynning fyrir okkur ís-
lendinga og í sjálfu sér býsna al-
hliða. Eg er ekki frá því að íslenski
hesturinn sé búinn að greiða tölu-
vert fyrir sölu á íslenskum afurðum
áður en hann er seldur sjálfur. Það
er eins og þeir, sem kynnast honum
erlendis, verði hálfgerðir íslend-
ingar í háttum og hugsun. Að því er
stefnt að halda Evrópumót hér á
landi 1985 og verður þá að útvega
öllum þátttakendum keppnishesta
hér innanlands. Trúlega verður
dregið um hestana fyrir mótið og
verður þá hver keppandi með sinn
hest mótið út.
Nú er verið að undirbúa
fjórðungsmót, sem haldið verður á
Melgerðismelum í sumar. Búið er
að vinna þar mikið undirbúnings-
starf og vonandi verður það fjölsótt
bæði af hestum og mönnum.
Eyfirðingar voru bjartsýnir og við
skulum ekki láta þá verða fyrir
vonbrigðum.
- Eru hestamannafélögin nokk-
uð með kynbótastarfsemi á sínum
vegum?
- Nei, svo mun ekki vera núorð-
ið. Sú starfsemi er í höndum hross-
aræktarsambandanna. En þetta
helst raunar með nokkrum hætti í;
hendur og við höfum góða sam-
vinnu við Búnaðarfélag íslands og
hrossaræktarráðunaut þess.
Margháttuð verkefni
- Vð höfum nú nokkuð rætt um
mótin en hvað um önnur verkefni?
- Verkefnin eru býsna mörg en
eitt af okkar brýnustu verkefnum
er að græða upp með áburðargjöf,
áningarstaði á hálendinu. Njótum
við til þess aðstoðar Land-
græðslunnar.
Unnið er að gerð reiðvega, eftir
því, sem fjármunir hrökkva til. Á
vegaáætlun hverju sinni er ákveðin
fjárhæð ætluð til reiðvega. Stjórn
L.H. úthlutar því fé til hestamann-
afélaganna eftir umsóknum og
mati á þörfum og aðstæðum. Og nú
hafa náðst samningar við Vega-
gerðina um lagningu reiðvega
meðfram þeim vegum sem lagðir
eru bundnu slitlagi á ári hverju. Er
það mikill ávinningur og á Vega-
gerðinþakkir skildar fyrir. Þetta
skerðir ekkert reiðvegaféð en er
einskonar viðbót við það.
í samráði við Þingvallanefnd er
nú unnið að því að koma upp án-
ingarstað fyrir hestamenn í Skógar-
hólum á Þingvöllum. Koma þarf
þar upp snyrtiaðstöðu, bæta
gróðurlendið o.fl. Þarna gæti
skapast aðstaða fyrir minni háttar
mót, fjölskyldubúðir o.fl. Hafa
þyrfti þar einnig eftirlitsmann, sem
starfaði í samvinnu við
þjóðgarðsvörð.
Enn vil ég nefna það verkefni, að
koma á fót reiðskóla. Það mál er
enn á undirbúningsstigi en Bún-'
aðarþing hefur nú tekið það upp og
má ætla að því verði fylgt þar eftir.
Viðræður eru hafnar um gerð
reiðhallar og athugun á því hvað
kosta muni að koma henni upp.
Reiðhöll mundi gerbreyta hér allri
aðstöðu til kennslu og námskeiða-
halds. Til tals hefur komið að efna
til sýninga á hestum innanhúss, og
Laugardalshöllin þá höfð í huga en
á því munu þó vera einhverjir
tæknilegir örðugleikar, sem stefnt
er að lausn á. En með reiðhöllinni
væri aðstaðan fengin.
- Svo eruð þið með útgáfustarf-
semi?
- Já, og er þá fyrst að nefna
tímarit L.H., Hestinn okkar, sem
kemur út fjórum sinnum á ári. Svo
gefum við einnig út kynningar- og
auglýsingablað, sem nefnist Hest-
ar. Er það gefið út í tvennum til-
gangi: að kynna störf hestamanna
og afla fjár til starfsemi samtak-
anna. Af Hestum kemur út eitt tbl.
á ári og er blaðið í ár nýkomið út.
Það er gefið út í 15 þús. eintökum
Sjá næstu síðu