Þjóðviljinn - 16.06.1983, Page 11

Þjóðviljinn - 16.06.1983, Page 11
Fimmtudagur 16. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 BLAÐAUKI Moksturstæki TRIMA á allar dráttar ★ Einn stjórnarmur ★ Allir strokkar tvívirkir }t ★ Fljottenging á og af { ★ Fljóttenging skóflu og gaffals Fjöldi aukahluta: Votheyshnífur Heykvísl Sópari Ýtublað Gaffall s Islenska hestaleigan sf. HES1AR Nokkrar af þeim ferðum sem ákveðnar eru og nokkur sæti eru laus í: 8. júlí: 2 daga ferð Laugarvatn - Geysir - Gullfoss. 8. júlí: 4 daga ferð Laugarvatn - Geysir - Gullfoss - Flúðir - Skálholt. 12. júlí: 2-3 daga ferð Laugarvatn - Geysir - Gullfoss 19. júlí: 2-3 daga ferð Laugarvatn - Geysir - Gullfoss 15. júlí: 5 daga ferð Laugarvatn - Hlöðufell - Geysir - Flúðir - Skálholt. Ath. mjög góð ferð 16. júlí: 3 daga ferð Laugarvatn - Geysir - Skálholt 6. ágúst: 7 daga ferð yfir Kjöl. Laugarvatn - Geysir - Gullfoss - Fremstaver - Hvítárnes - Hveravellir - Galtará - Skagafjörður. Ævintýraferð um hálendið. Rétt er að benda á að hægt væri að bóka sig inn í hluta ferðarinnar. Bíll er með í ferðinni og við útvegum allan útbúnað. Einnig er að sjáifsögðu boðið upp á 1-2 daga ferðir aila daga. Þá skal bent á að boðið er upp á stuttar ferðir 2svar á dag frá Miðdal. Hægt er að taka á móti minni og stærri hópum. PANTANIR í SÍMUM 99-6169 OG 43420. Framkvæmdanefnd Fjórðungsmótsins. Nordlenskir hestamenn:___ Fjórðungsmót á Melgerðismelum Fjórðungsmót norðlenskra hestamanna verður haldið á Mel- gerðismelum í Eyjafirði dagana 30. júní til 3. júlí í sumar. Að því standa hestamannafélögin frá Eyjafirði og austur um til Þistil- fjarðar. Hestamenn úr þessum fé- lögum sýna gæðinga sína á kynbóta- og góðhestasýningum mótsins og öll fótfráustu kapp- reiðahross landsins reyna með sér á hlaupabrautinni. Undirbúningur mótsins hófst í ársbyrjun og hefur framkvæmda- nefnd frá öllum félögunum haldið mánaðarlega fundi en framkvæmd- aráð þess á milli. Megin þunginn hefur þó hvílt á framkvæmdastjór- anum, Ævari Hjartarsyni og for- manni undirbúningsnefndar, Gunnari Egilssyni. Mótssvæðið á Melgerðismelum er sameign hestamannafélaganna við Eyjafjörð: Funa, Léttis og Þrá- ins. Leigja þau landið af hreppn- um. Ungmennafélag sveitarinnar er og aðili að uppbyggingu svæðisins. Framkvæmdir á Melgerðismel- um höfust 1975 og árið eftir var þar haldið fjórðungsmót. Síðan hafa árlega verið þar stærri og smærri mót, m.a. íslandsmót í hestaíþrótt- um. í sumar verður gerður 300 m hringvöllur, byggt nýtt hús fyrir snyrtingar, veitingaskáli stækk- aður og öll aðstaða stórbætt. Upp- græðsla á melunum er á góðum vegi. Þorkell Bjarnason, hrossarækt- arráðunautur, sér um val á kynbót- ahrossum og stendur það nú yfir. Kappreiðahross þurfa að hafa náð ákveðnum lágmarkstíma til þess að hafa þátttökurétt: 150 m skeið á 17 sek., 250 m skeið á 26 sek., stökk- hross þurfa að hafa hlaupið 250 m á 21 sek., 350 m á 28 sek, og 800 m á 65 sek. Brokkarar hafi hlaupið 300 m á 39 sek. Mikil áhersla verður lögð á ung- lingakeppnina. Fer hún fram í eldri og yngri flokkum á aðalvellinum. Unglingar verða þarna engar horn- rekur. Búist er við 300-400 keppnis- hrossum. Mótsstjórnin á von á fjöl- menni, 5-6 þús. manns. Kappkost- að verður að hafa alla þjónustu sem besta, í því hestamannaþorpi, sem þarna mun vænganlega rísa. í stóru þjónustutjaldi verður kjör- búð frá KEA. Og þótt eitthvað kárni um reiðtýgi verður unnt að bæta úr því á staðnum. Seldir verða veggplattar og aðrir minjagripir tengdir mótinu. Allt er þarna unnið í sjálfboða- vinnu. Og þessa 4 daga, sem mótið stendur þurfa norðlenskir hesta- menn að vinna um 500 klst. við sjálft mótið, samkvæmt vaktaskrá, sem þegar hefur verið gengið frá. Allar nánari upplýsingar veita: Gunnar Egilsson, vinnusími 23012, heimasími 25896, Ævarr Hjartar- son, vinnusími 22455, heimasími 21159 og Gísli Sigurgeirsson, vinn- usími 24222, heimasími 21986. - mhg Þarft þú að veita vatni ? Tveggja áratuga reynsla af plaströrum frá Reykjalundi hefur sannað að ekkert vatnslagnaefni hentar betur íslenskum aðstæðum. Plaströr eru létt og sterk og sérstak- lega auðveld í notkun. Plaströr þola jarðrask og jarðsig. Plaströr má leggja án tenginga svo hundruðum metra skiptir. Plaströr eru langódýrasta en jafnframt varanlegasta vatnslagnaefni á markaðnum. Plaströrin frá Reykjalundi fást í stærð- um frá 20 m/m- 315 m/m (’/a" -12"). Grennri rör fást í allt að 200 metra rúllum (20-90m/m) en sverari rör í 10 og 15 metra lengdum (110-315 m/m). Við höfum allar gerðir tengistykkja og veitum þjónustu við samsuðu á rörunum. Þurfir þú að veita vatni skaltu hafa samband við söludeild okkar. REYKJALUNDUR lor'wíMl Címí AAOnA SUOURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SIMI 86500

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.