Þjóðviljinn - 22.06.1983, Side 1
DJÚÐVILJINN
Perú,-land
fátæktar og
þjóðfélagsátaka.
Einar Hjörleifsson
heldur áfram
ferðafrásögn sinni.
Sjá8
júní 1983
miðvikudagur
135. tölublað
48. árgangur \
Seðlabankastjóri áfram formaður
Landsvirkjunar
Fullkomlega
óeðlilegt
segir Sigurjón Pétursson, sem greiddi atkvæði gegn
því í borgarráði í gær
I stað beinna og breiðra akreina munu krókóttir stíg ar, gróður og torg koma á Þórsgötunni þcgar viðgerðum
á lögnum er iokið. Ljósm. -Leifur.
„Ég tel það fullkomlega óeðlilegt
að skipa aðalbankastjóra Seðla-
bankans formann stjórnar Lands-
virkjunar og því greiddi ég atkvæði
gegn því í borgarráði“, sagði Sigur-
jón Pétursson í gær. Á borgarráðs-
fundi í gær var afgreidd tillaga
borgarstjóra þess efnis að leitað
yrði samkomulags við aðra eignar-
aðila í Landsvirkjun um að Jó-
hannes Nordal verði formaður
stjórnar sem tekur við samkvæmt
nýjum lögum um Landsvirkjun 1.
júlí n.k. Tillaga borgarstjóra var
samþykkt mcð 4 atkvæðum gegn
atkvæði Sigurjóns.
Sigurjón benti á í bókun sem
hann geröi á fundinum að hér væri
um að ræða tvö áhrifamestu fyrir-
tæki og stofnanir í landinu og það
væri fullkomlega óeðlilegt að þau
tvinnuðust saman með þessum
hætti. Samkvæmt nýju lögunum
skipa eignaraðilarnir fulltrúa í
stjórn Landsvirkjunar, ríkið 4
menn, Reykjavíkurborg 3 og Ak-
ureyri 1 en samkomulag verður að
vera um 9. manninn sem er for-
maður stjórnarinnar, ella sker
Hæstiréttur úr.
Landsvirkjun og
Seðlabanki áberandi í
stóriðjunefndum
Samtvinnun sú sem Sigurjón
kallaði svo, er einnig mjög áber-
andi í þeim nefndarskipunum
Sverris Hermannssonar, iðnaðar-
ráðherra, sem nýlega voru kunn-
gjörðar. í stóriðjunefnd og samn-
inganefnd við Alusuisse eru full-
trúar beggja þessara fyrirtækja
Seðlabankans og Landsvirkjunar
áberandi. Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóri leiðir samninganefnd-
ina og aðstoðarbankastjóri Seðla-
bankans Sigurgeir Jónsson á sæti í
stóriðjunefndinni. Formaður stór-
iðjunefndarinnar er aftur Birgir fs-
leifur Gunnarsson, stjórnarmaður
Reykvíkinga í Landsvirkjun, og
stjórnarmaður Akureyringa Valur
Arnþórsson á einnig sæti í stór-
iðjunefndinni.
Ýmsir telja hæpið að orkufram-
leiðandinn og orkusalinn, þ.e.
Landsvirkjun skuli eiga svo sterk
ítök í stóriðjunefndinni og samn-
inganefndinni við Alusuisse og
höfðu menn jafnvel talið for-
mennsku Jóhannesar Nordal í
samninganefndinni tákn um að
hann yrði ekki tilnefndurformaður
í stjórn Landsvirkjunar. Benti einn
viðmælandi Þjóðviljans á lög um
bankastarfsemi þessari skoðun til
áréttingar. Taldi hann óverjandi að
bankastjóri væri jafnframt forystu-
maður í fyrirtæki sem skuldar
bankanum gífurlegar fjárhæðir, en
Landsvirkjun er stærsti skuldari
landsins og nærri lætur að skuldir
hennar nemi um 40% af erlendum
skuldum landsmanna.
Tillaga borgarstjóra í gær tekur
þó af allan vafa um þetta atriði:
Það er ætlunin að hafa sama mann-
inn í forystu fyrir samninga-
mönnum við Alusuisse, í forystu
fyrir Landsvirkjun sem selur ork-
una og í forystu fyrir ábyrgðar-
stofnun Landsvirkjunar, Seðla-
bankanum.
Ritstjórnarskrifstofur Þjóðviljans:
Lokað kl. 13—15.30
Borgarráð samþykkti einróma í gær að Þórs-
götu verði breytt í vistgötu en ákveðin ósk hafði
komið þar um frá íbúum við götuna, sem nú er öll í
sárum vegna viðgerða á lögnum.
Skipulagsnefnd, umferðarnefnd og umhverfis-
málaráð hafa fjallað um þetta erindi íbúanna og
mæltu eindregið með því að götunni verði breytt
þannig að um hana fari aðeins hæg umferð íbúa og
þeirra sem erindi eiga, og upp verði komið litlum
torgum, gróðri og leiktækjum í stað beinna og
breiðra akreina. Borgarverkfræðingur mælti hins
vegar gegn þessari breytingu í bókun í umferöar-
nefnd og taldi hana ekki tímabæra fyrir en úttekt
hefði verið gerð á umferðarmálum hverfisins alls.
Undir þá bókun tók Óskar Ólason,yfirlögreglu-
þjónn.
Sem fyrr segir hefur götunni verið umturnað
vegna viðgerða á lögnum og upplýsti Guttormur
Þormar, yfirverkfræðingur umferðardeildar, í gær
að þrátt fyrir að gatan hefði verið lokuð í heilan
mánuð hafi engin kvörtun borist.
-ÁI
Frumrannsókn fiskmatskærunnar á Vestfjörðum lokið
Send ríkissaksóknara
„Mér þótti kæruefnið mjög óljóst
og okkar rannsókn fólst í því að fá
fram hjá kærendum hvað þeir
væru að kæra í raun og veru svo við
gætum áttað okkur á því að hverju
rannsóknin ætti að beinast ef slík
rannsókn ætti að fara fram sem
sakamálarannsókn“, sagði Pétur
Hafstein bæjarfógeti á ísafirði í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Fyrr í mánuðinum kærðu 4 skip-
stjórar á Súgandafirði til lögreglu-
embættisins á ísafirði það sem þeir
telja vera mjög mismunandi gæða-
mat einkum á steinbít milli ein-
stakra staða á Vestfjörðum.
Bæjarfógetinn á ísafirði sagði að
auk frekari skýringa kærenda á
kærumálinu hefði honum þótt rétt
að taka skýrslu af matsmönnum
sem tilnefndir eru í kæru skipstjór-
anna og yfirmatsmanni á Vest-
fjörðum. Verið væri að ganga frá
þessum skýrslum og að öllum lík-
indum yrði ríkissaksóknara sent
málið til frekari ákvörðunar í dag.
Aðspurður hvort eitthvað lægi
ljósara fyrir um málið eftir þessa
fyrstu rannsókn sagðist fógetí ekkí
geta sagt að svo væri. „Kærendur
halda því fram að það sé fram-
kvæmt mismunandi mat í hinum
einstöku frystihúsum á svipuðum
afla sem kemur af sömu miðum.
Þetta hefur aðeins verið frumrann-
sókn til að átta sig á því um hvað
málið snýst og hvernig á þá að taka
það til fullnaðarrannsóknar, ef það
þykir ástæða til“, sagði Pétur Haf-
stein.
-•g-
vegna útfarar Olafs R. Einarssonar
Ritstjórnarskrifstofur Þjóðviljans verða lokaðar í
dag, miðvikudag, kl. 13 -15.30 vegna útfarar Ólafs
R. Einarssonar, sagnfræðings.
„Hlíðin mín fríða“ sungu Aust-
ur-Barðstrendingar þegar þeir
fögnuðu forseta sínum á Reykhól-
um í gær, en Vigdís gróðursetti
þrjár trjáplöntur í Barmahlíð, sem
sungið var um, eina fyrir drengina,
aðra fyrir stúlkurnar og þá þriðju
fyrir ókomna kynslóð. Ljósm. -
EÞ.