Þjóðviljinn - 22.06.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.06.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN, Migvikudagur 22. júní 1983 „Díter að drekka bóndabæ“ heitir sýning Pjeturs Stefánssonar sem nú stendur yfir í Gallerí Austurstræti 8. _________Gallerí Austurstræti 8_______ Eins árs gamalt! Bridge Hvernig litist ykkur á, að ráða yfir „töfra- formúlu" til að finna út skiptingu og sam- legu í spilunum? Yrði ekki eftirleikurinn léttur? Þetta spil korri upp í sumar- spilamennskunni í Domus í A-riðli, 16 para, og þaö voru tveir ungir „galdrakarlar” sem náðu einir topp-samningi: Norður S AG H 9 TAG1093 L AK1064 Suður S D85 H AG732 T D854 L 7 Suðurgefur, alliráhættu: Meö þessi kort sátu Ragnar Hermannsson og Vigfús Sig- urðsson og þreyttu þeir þolraun sína í keppnisbridge. Töfrasprotinn á loft og; Suöur Noröur 1-H(a) 1-S(b) 2-L(c) 2-T(b) 2-H(d) 2-S(b) 3-T(e) 4-L(f) 4-H(g) 4-G(h) 5-L(i) 6-T(j) Frábaer samningur, þökk sé „Magic system” hinu enska, og kunnáttu strák- anna. a) 16-20 punktar (..skiptinga- og Milton punktar). b) Eiðsagnir, spurnasagnir. c) Einhver 5-litur d) 5-litur hjarta. (5 skiptingap!) e) 4-litur í tigli. (2 skiptingapl) f) Gamaldags ásaspurning.g) Hjartaás. h) Kóngaspurning. i) Enginn kóngur. j) Ekkert mál. Spilið lá ekki illa, tromp kóngur réttur, EN þess utan var Norður jú sagnhafi. Látum þá bara húrra út spaða! Slemman er um 80% í Norður. Skák Karpov að tafli - 156 Þegar leið á Sovétmeistaramótið varð Ijóst að baráttan um efsta sætið myndi standa milli Karpovs og Balashov. Petro- sjan var inni í myndinni um tima en stór- meistarajafnteflin urðu of mörg hjá honum eins og svo oft. Eftir 10 umferðir hafði Karpov hlotið 6 vinninga, Balashov með 6V2. Lokaspretturinn var góður. Hann byrj- aði á því að sigra Sakharov, núverandi þjálfara Kasþarovs, þá kom jafntefli við Svesnikov, en síðan mætti Karþov Gulko sem á í miklum útistöðum við sovésk yfir- völd um þessar mundir: Gulko - Karpov Síðasti leikur hvíts var 36. Ha1-a6 ... 36... Hd2! 37. De3 (37. Hxc6 strandar á 37. - Rf3+! og svartur mátar á h2) 37. .. Rxb4 38. Hxe6 Rf3+! - Laglegur hnykkur sem tryggir svörtum skiptamunsvinning. Gulko barðist lengi vel áfram en fékk ekki flúið hið óhjákvæmi- lega. Hann varð að leggja niður vopnin eftir 66. leik Karpovs. Með þessum sigri komst Karpov upp við hliðina á Balashov. Báðir höfðu 8V2 vinning að loknum 13 umferðum Nú um þessar mundir heldur Galleríið uppá eins árs afmæli sitt, nánar tiltekið 5. júní 1982 var fyrsta sýningin þar opnuð. Haldnar hafa verið sýningar jafnt og þétt þetta tímabil og hefur rjóminn af ungum listamönnum sýnt þar, meðal annars í þeim til- gangi að auðga líf þeirrar götu, sem meistari Kjarval dvaldi svo lengi við. Vegna stöðu gallerísins vilja Nýtt íslenskt leikrit, Haming- jan býr ekki hér, hún er á hæðinni fyrir ofan, eftir Sólveigu Trausta- dóttur, hefur um sinn verið sýnt á Austfjörðum við frábærar undir- tektir og um þessar mundir er Leikhópur Álþýðuskólans á Eiðum, sem færir stykkið upp, að leggja af stað í leikför um Norðurland. Ætlunin var að leggja upp í leikförina í lok maí í vor en af því aðstandendur þess vekja athygli á orðum Mondreianis, að í fram- tíðinni verði myndlist óþörf eins og hún er iðkuð nú, vegna breyttra aðstæðna, þ.e.a.s. myndlist verði hluti af tilverunni sem endurspeglaðist meðal ann- ars í arkitektúr og fleiri þáttum þjóðfélagsins sem leiðir til breyt- inga á fegurnarskyni almennings. Og minna á að forsenda feg- urðarskynjunar er háð tíma og gat ekki orðið vegna ófærðar. Það er höfundurinn, Sólveig Traustadóttirsem er leikstjórinn, en þetta er annað verk hennar. Hamingjan býr ekki hér fjallar um leitina að lífshamingjunni, lífsflóttanum, samskipti unglinga og fullorðinna og foreldravand- amálið. Allskoma lOmannsfram í verkinu, leikarar og hljóðfæral- eikarar. Sýningar á Norðurlandi verða rúmi. Nú stendur yfir sýning Pjeturs Stefánssonar og ber hún yfir- skriftina, Díter að drekka bóndabæ. í tilefni af afmælinu gefur Gall- eríið út fyrstu breiðskífu Big Nós Bandsins og er hún tileinkuð komískum vísindum lífsins og skemmtana og ber heitið Tvöfalt siðgæði. Dreifingu annast Grammið. þessar: I Skjólbrekku Mývatns- sveit 23. júní nk. kl. 22.00, í Freyvangi Eyjafirði 24. júní kl. 21.00, Höfðaborg Hofsósi 25. júníkl. 21.00, Hótel Höfn Sigluf- irði 26. júní kl. 21.00. Leikritið hefur verið sýnt um Austfirði að undanförnu eins og áður sagði og við mjög góðar undirtektir áhorfenda. - v. Þessir fengu krossa Forseti íslands hefur sæmt eftirtalda íslendinga heiðurs- merki hinnar íslensku fálkaorðu: Önnu Guðmundsdóttur, New York, riddarakrossi fyrir störf að félagsmálum og í þágu sjúkra. Björn Jónsson, fv. bónda að Bæ í Hofshreppi, Skagafirði, riddar- akrossi fyrir félagsmálastörf. Einar Ólafsson, fv. bónda í Læ- jarhvammi, Reykjavík, riddar- akrossi fyrir félagsmálastörf í þágu landbúnaðarins. Ernu Finnsdóttur, fv. forsætisráðher- rafrú, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Guð- mund K. Magnússon, háskólar- ektor, Reykjavík stórriddarakr- ossi fyrir embættisstörf. Hauk Jörundsson, skrifstofustjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu landbúnaðar. Helga Hannesson, fulltrúa, Reykjavík, riddarakrossi fyrir félagsmála- störf. Hjört Hjálmarsson, fv. skólastjóra Flateyri, riddara- krossi fyrir félagsmálastörf. Hörð Bjarnason, fv. húsameistara ríkisins, Reykjavík, stjörnu stór- riddara fyrir embættisstörf. Ing- ólf Theódórsson, netagerðarm- ann, Vestmannaeyjum, riddar- akrossi fyrir störf í þágu sjávarú- tvegsins. Jóhann G. Möller, fv. bæjarfulltrúa, Siglufirði riddar- akrossi fyrir félagsmálastörf. Jón R. Hjálmarsson, námsstjóra, Selfossi, riddarakrossi fyrir störf að uppeldis- og fræðslumálum. Jón Aðalstein Jónsson, orðabók- arstjóra, Reykjavík, riddarakr- ossi fyrir orðabókar- og fræðist- örf. Ottó A. Michelsen, for- stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir félagsmálastörf og brautryðjendastörf að notkun tölva á Islandi. Steinþór Gests- son, fv. alþingismann, Hæli í Gnúpverjahreppi, riddarakrossi fyrir félagsmálastörf. Þór Vil- hjálmsson, forseta hæstaréttar, Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir embættisstörf. Þórarin Þór- arinsson, ritstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að félags- málum og blaðamennsku. Gætum tungunnar Sagt var: Hann á sér marga áhangendur. Betra væri: Hann á sér marga fýlgismenn. Leikhópur Alþýðuskólans á Eiðum Leikför um Norðurland með nýtt íslenskt leikrit

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.