Þjóðviljinn - 22.06.1983, Síða 3
MÍðvikudagur 22. júni 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3=_.
Vigdís á Vestf j örðum
Vestfjarðaför forseta íslands
hófst í gær er sýslumaður A-Barða-
strandarsýslu, Stefán Skarphéðins-
son, og kona hans Ingibjörg Ingi-
marsdóttir tóku á móti Vigdísi og
fylgdarliði hennar á sýslumörkum í
botni Gilsfjarðar. í förunevti sýslu-
manns voru sýslunefndarmenn:
Hafsteinn Guðmundsson úr Flatey,
Grímur Arnórsson á Tindum, Ein-
ar Hafliðason úr Fremri-Gufudal
og Sveinn Guðmundsson, Mið-
húsum.
í Bjarkarlundi var snæddur há-
degisverður í boði sýslunefndar og
hreppsnefndarmanna úr
Reykhóla-, Gufudals- og Geir-
hólahreppi. Um kl. 14 var ekið í átt
W* i LwWI tfíé-
í Barmahlíð gróðursetti forsetinn þrjár trjáplöntur, og naut til þess verks aðstoðar yngispilta sem fylgdu
henni á ferðinni í gær. Myndir - EJt-
ÞalTvar margt forvitnilegt að skoða í Þörungavinnslunni í Reykhólasveit,
að Reykhólum en í Barmahlíð
gróðursetti forseti að venju þrjár
trjáplöntur. Næst var komið að
Börmum þar sem gamall torfbær
hefur verið endurbyggður og á
Reykhólum var Þörungavinnslan
skoðuð undir leiðsögn Kristjáns
Þórs Kristjánssonar, forstjóra. Síð-
an var haldið í skólann, þar sem
fjöldi barna með íslenskan fána tók
á móti forseta sínum og lítil stúlka
færði henni blóm. Þegar komið var
í skólann gægðist sólin fram úr
skýjum en veður var með eindæm-
um milt allan daginn þótt eilítið
rigndi framan af.
Austur-Barðstrendingar fjöl-
menntu í skólann á Reykhólum og
heilsuðu Vigdísi og drukku með
henni kaffi. Myndarleg dagskrá var
flutt undir stjórn Gríms Arnórs-
sonar á Tindum og leyndi hlýhugur
Barðstrendinga í garð Vigdísar sér
ekki.
Austur-Barðstrendingar færðu
forseta að gjöf bókina „Umluktur
ölduföldum" eftir Játvarð Jökul
Júlíusson frá Miðjanesi í Reyk-
hólasveit.
Sýslunefndarmenn kvöddu Vig-
dísi á bryggjunni á Stað og fylgdu
tveir eyjamenn henni til Flateyjar,
sem var næsti viðkomustaður, þeir
Jón Daníelsson frá Hvallátrum og
Hafsteinn Guðmundsson, úr
Flatey. Allir eyjamenn voru saman
komnir á bryggjunni í Flatey og
fylgdu forseta að samkomuhúsinu
gamla, þar sem boðið var upp á
sérstakan drykk: „Sofandi breið-
firskar hafmeyjur". Drykkurinn er
e.k. tengiliður milli Flateyjar og
heimsmenningarinnar, upprunn-
inn í Kína, og í hverju glasi logandi
kerti, teistufjöður og rækjur. Eyja-
menn gáfu Vigdísi sæng fyllta
fyrsta flokks æðardúni, tíndum og
unnum í Breiðafjarðareyjum.
í Veitingahúsinu Vogi í Flatey
var síðan sest að „Eyjaborði" og
snædd egg, grafin Vorsala-lúða og
reyktar lundabringur. Gengið var
um eyna og loks lagt af stað í átt að
Brjánslæk þegar kvölda tók. Dag-
skráin var þá orðin nokkuð langt á
eftir áætlun en Vestur-Barðstrend-
ingar héldu Vigdísi kvöldsamsæti í
Flókalundi, en þangað er rúmlega
klukkutíma akstur frá Brjánslæk.
í dag heldur forseti til Látra og er
ætlunin að fara út á bjargið ef vel
viðrar og síðan bjóða Rauðsend-
ingar í hádegisverð í Fagra-
hvammi.
-EÞ
Fá ekki að nota scrakreinar SVR.
Leigubílar í RVK:
Fá ekki að
nota sér-
akreinar
Borgarráð hafnaði í gær erindi
leigubílstöðvanna sem óskað hafa
eftir því að fá afnot af þeim örfáu
sérakreinum SVR sem í borginni
eru.
Var erindinu hafnað einróma en
áður höfðu stjórn Strætisvagna
Reykjavíkur og bílstjórar SVR lýst
yfir andstöðu við hugmyndina.
-ÁI
Borgarstjórn í
sumarfrí:
Næsti fundur
15. september
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
nú tekið sér sumarfrí og er það í
lengra lagi þetta árið.
Síðasti fundur fyrir sumarleyfi
var sl. fimmtudag, 16. júníjog næsti
fundur verður ekki fyrr en 15. sept-
ember nk.. Á meðan gegnir borg-
arráð störfum borgarstjórnar, en
það starfar allt árið. Svo gera einn-
ig flestar nefndir borgarinnar, þó
sumar fækki fundum yfir sumar-
mánuðina. Þriggja mánaða sumar-
leyfi borgarstjórnar var samþykkt
samhljóða sl. fimmtudag. -ÁI
Leiðrétting
John E. Löfblad frá Alþjóða-
sambandi byggingarmanna, sem
viðtal var við í Þjóðvilja gærdags-
ins, var ranglega titlaður formaður
sambandsins. Hið rétta er að Löf-
blad er aðalritari.
Sumarferð
Alþýðu-
bandalags-
ins 1983
Jónsmessuhátíð íViðey 25. júní
Menningarleiösögn annast Björn Th. Björnsson
Iistfræöingur. Mun hann skýra frá sögu staöarins og
umhverfi hans. HjörleifurStefánsson arkitekt lýsir
Viöeyjarstofu og Viðeyjarkirkju.
Guöjón Friðriksson blaöamaður segir frá Stöðinni
í austurenda eyjarinnar og athafnalifi þar á fyrri
hluta aldarinnar.
Fararstjóri er Guðrún Hallgrimsdóttir matvæla-
fræöingur. Matast verður viö langeld, stórt útigrill
sem komið verður fyrir I nágrenni Viöeyjarstofu.
Útveguð veröa kol og olía en fólk hafi sjálft meö sér
nesti, bæöi eitthvað til aö grilla og eins brauð, kaffi,
gos eöa mjólk.
Nafnlausa tríóið, sem skipaö er þeim Kristínu Ól-
afsdóttur, Kolbeini Bjarnasyni og Guðmundi
Hallvarðssyni, skemmtir.
Gunnar Guttormsson stjórnar fjöldasöng og Elías
Davíðsson annast harmoníkuleik. Farið verður (
leiki og reiptog og dansinn stiginn.
Hafsteinn Sveinsson ferjar fólkið yfir Viðeyjar-
sundog leggur uppfráSundahöfn kl. 10og 10.30 á
laugardagsmorgun. Fólki gefst færi á aö komast til
baka milli kl. 17 og 18 eða 20 og 21. Miðar kosta
150 kr. en ókeypis er fyrir 12 ára og yngri. Miðarnir
eru til sölu á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 kl. 8 -
16 dag hvern. Siminn er 17500. Tryggið ykkur miða
sem fyrst.
Björn Th. Björnsson
Guðjón
Elfas Gunnar Guðrún Kristin Guðmundur
Tjaldbúðir
Geithálsi v/Suðurlandsveg,
simi 44392.
TRÍÓ-tjald
er trygging fyrir góðum fjölskylduferðum um
mörg ókomin ár.
TRÍO-tjalddúkurinn
er umfram allt vatnsheldur, litsterkur og þéttur.
TRÍÓ-tjaldstengurnar
eru úr léttu stáli og þola sitt af hverju. Það sýnir
átta ára reynsla á Islandi.
5 stærðir TRÍÓ-hústjalda. Verð frá kr. 10.500.-
5 manna tjald með himni kr. 5.700.-
Tjaldstólar frá kr. 205.-
Tjaldbekkir kr. 640.-
Svalastólar úr áli og stáli kr. 280.-
SENDUM UM LAND ALLT