Þjóðviljinn - 22.06.1983, Síða 7
Miðvikudagur 22. júní 1983 ÞJÖÐVlLjlM- SÍÐA 7
um innilegar samúðarkveðjur og
munum geyma minninguna um fé-
laga Ólaf sem helgan dóm.
„Það kemur alltaf nógur tími".
Mannsævin er að vísu stutt, en tími
hreyfinga og hugsjóna stendur
meðan einhverjir eru til þess að
hugsa. Við skulum því skilja hism-
ið frá kjarnanum og gefa okkur
tóm til þess að hugleiða það lífs-
starf, sem nú er lokið, og rækta þær
hugsjónir sem Ólafur R. Einarsson
helgaði krafta sína.
Einar Karl Haraldsson
Félagi og vinur er látinn.
Ólafur R. Einarsson sagn-
fræðingur lést 11. júní síðast liðinn
að lokinni langri og erfiðri baráttu
við illvígan sjúkdóm. Löngu stríði
er lokið.
Starfsvettvangur Ólafs R.
Einarssonar var stór, en einkum
var hann kennari og fræðari. Þess
nutum við margir félagsmenn
verkalýðssamtakanna. í langan
tíma var Ólafur nátengdur fræðslu-
starfi verkalýðshreyfingarinnar og
ávallt reiðubúinn að leggja því lið.
Ég minnist þess, að fyrir næstum
einum og hálfum áratug, er við í
iðnnemasamtökunum stóðum fyrir
fræðslustarfi, þá var það einmitt
Ólafur, sem ásamt öðrum fræddi
okkur um sögu íslenskrar verka-
lýðshreyfingar. Þar kynntist ég
honum fyrst og síðan lágu leiðir
okkar oft saman.
Eftir að Menningar- og fræðslu-
samband alþýðu tók til starfa árið
1969 var það eitt fyrsta viðfangs-
efni þess að gefa út rit Ólafs „Upp-
haf íslenskrar verkalýðshreyfing-
ar“. Það var engin tilviljun. því
telja má þá bók undirstöðurit unt
upphafsár hreyfingarinnar. Það er
fyrsta heildarrit, sem samið hefur
verið um félagssamtök verkafólks
hér á landi á síðari hluta 19. aldar
og framtil 1901. Þar er m.a. rakin
stofnun fyrstu stéttarfélaganna og
starf brautryðjenda.
Viðfangsefni Óiafs R. Einars-
sonar á sviði sagnfræðinnar voru
hvað mest viðvíkjandi verka-
lýðssögunni. í því efni liggur eftir
Ólaf auk áðurnefnds rits bókin um
9. nóvember 1932, sem hann tók
saman ásamt EinariKarliFIaralds-
syni og kom út 1977. Auk þess
ritaði hann margar greinar um ein-
stök félög, tímabil og atburði.
íslensk verkalýðshreyfing stend-
ur í þakkarskuld við Ólaf R. Ein-
arsson vegna þess dýrmæta starfs,
sem hann vann í hennar þágu.
Verkalýðshreyfingin þarf á
hverjum tíma að þekkja sögu sína
og draga af henni lærdóma. Skiln-
ingur manna á því hefur aukist og
styrkst hin síðari ár. Það er meðal
annars að þakka starfi Ólafs R.
Einarssonar. Fræðsla um sögu
verkalýðshreyfingarinnar er einn
þeirra föstu þátta, sem finna má í
fræðslustarfi MFA. Þá kennslu
annaðist Ólafur lengst af og lagði
grunn að þeirri fræðslu, eins og hún
er í dag, með skipan hennar og
sérstöku námsefni, sem hann skrif-
aði í því sambandi. í nafni
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu vil ég leyfa mér að þakka
það starf.
Ríkisútvarpið og málefni þess
var, sem kunnugt er, eitt af
viðfangsefnunt Ólafs R. Einars-
sonar. Sem Útvarpsráðsmaður um
árabil og formaður Útvarpsráðs
1979 til 1980 má í mörgu sjá þess
merki að Ólafur lagði áherslu á
menningar- og fræðsluhlutverk
Ríkisútvarpsins. Honum var reisn
íslensks útvarps metnaður og mót-
aði hugi annarra í því efni. Einn
þeirra er sá, sem þessar'línur ritar,
en ég átti þess kost undanfarin ár
að njóta leiðsagnar Ólafs varðandi
málefni Útvarpsins sem varamaður
hans í Útvarpsráði.
Á stundum er nokkur styrr um
þau mál, sem þar er fjallað um eins
og ekki er óeðlilegt þegar ólík við-
horf mætast.' í starfi sínu iagði
Ólafur áherslu á að sjónarmið
manna fengju notið sín, enda trúr
þeirri skoðun sinni að Ríkisútvarp-
inu bæri að þjóna landsntönnum
öllum.
Áhrif Ólafs R. Einarssonar á
vettvangi Ríkisútvarpsins og sent
fræðimanns á vettvangi verkalýðs-
hreyfingarinnar munu lengi
standa. Þau áhrif eru góð og þess
njótum við nú, þrátt fyrir það að
Ólafur er nú kvaddur. Hafi hann
heila þökk.
Jóhönnu, foreldrum, börnum og
öðrum aðstandendum votta ég
mína dýpstu samúð á kveðjustund.
Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
Það skipast fljótt veður í lofti og
við Islendingar höfum oft mátt
reyna það.
Vorið var kalt og í júní kom mik-
ið norðanáhlaup með snjókomu á
Norðurlandi og hlíðar Esjunnar
gránuðu. Það er eins með
dauðann, hann kenrur oft svo
skyndilega, stundum einunt um of.
Samt megum við víst alltaf búast
við honum, þó oftast séum við
óviðbúin, jafnvel þegar við teljum
okkur hvað best undirbúin.
Ólafur R. Einarsson lést í Borg-
arspítalanum aðfararnótt laugar-
dagsins 11. júní sl. Hann hafði
veikst skyndilega af þeim sjúkdómi
sem um hríð hafði blundað í hon-
um, og eins og norðanáhlaupið hel-
tók þessi sjúkdómur hann svo gjör-
samlega að innan stundar var hann
allur. Stuttu áður er ég leit þennan
ágæta vin minn í síðasta sinn, hel-
sjúkan, fann ég ennþá og sá í
augum hans speglast gamla kraft-
inn og löngunina til að tjá hugsanir
sínar sem hann átti svo auðvelt
með. En orðin vildu ekki koma og
líkaminn neitaði og á örskots-
stundu var hann skilinn við. Ég
leitaði lengi í ruglingslegum huga
mínum að einhverju sem gæti lýsti
þeirri tilfinningu minni að hann
hefði ætlað að segja eitthvað sent
máli skipti. Þá datt mér í hug kvæði
Steins Steinars, Leyndarmálið,
sem mér fannst vera það svar sem
ég gæti sætt mig við.
Þeim stutta tíma, fyrr en
skip mitt fer
semflytur mig á brott í hinsta sinni,
ég vildi gjarna verja í návist þinni
og velta þungri byrði af hjarta mér.
Við börðumst lengi dags við óvin
einn,
og oftast litlum sigri hrósa máttum,
hann beið við fótmál hvert
í öllum áttum
og andlit hans ei þekkti
máður neinn.
Að sigra þennan óvin eða deyja
var okkur báðum tveim
á herðar lagt.
Og þér, sem eftir verður,
vil ég segja:
Eitt vopn er til, eitt vopn,
þó enginn þekki,
og vegna þess skal leyndarmálið
sagt.
Nei, skip mitt býst á brott;
ég get það ekki.
Ólafur Rafn Einarsson fæddist í
Reykjavík 16. janúar 1943 sonur
hjónanna Sigríðar Þorvarðardótt-
ur og Einars Olgeirssonar fyrrv. al-
þingismanns. Hann var yngra barn
þeirra hjóna, eldri er systir hans
Sólveig.
Ólafur lauk stúdentsprófi frá
MR 1963 og fór þá til náms í Nor-
egi. Lauk hann BA prófi frá Os-
lóarháskóla í sögu og fornleifa-
fræði. Síðar cand. mag. prófi í
sagnfræði frá Háskóla íslands árið
1969. Samfara náminu hér heima,
árin 1966-69, kenndi Ólafur við
Gagnfræðaskóla Kópavogs síðar
Víghólaskóla. Árin 1969-71 kenndi
hann á Hvolsvelli, en hóf síðan
kennslu við Menntaskólann við
Tjörnina 1971 (síðar Sund) og var
kennari þar til dánardægurs. Jafn-
framt var Ólafur stundakennari við
Háskóla íslands þar sem hann
kenndi verkalýðssögu.
Ólafur hafði alla tíð mikinn
áhuga á stjórnmálum, enda honum
í blóð borin. Hann var í fyrstu mið-
stjórn Alþýðubandalagsins, síðar í
framkvæmdastjórn og um tíma for-
maður hennar. Þá var Ólafur tvis-
var í framboði til Alþingiskosninga
árin 1971 og 1974. í fyrra skiptið á
Suðurlandi en síðara skiptið í
Reykjaneskjördæmi. Þá átti
Ólafur sæti í útvarpsráði allt frá ár-
inu 1974 og árin 1979-81 var hann
formaður ráðsins en síðan varafor-
maður. Mörg önnur trúnaðarstörf
innti Ólafur af hendi m.a. hjá
Æskulýðssambandi íslands þar
sem hann var formaður unt tíma.
Einnig átti Ólafur sæti í Aðstoð Is-
lands við þróunarlöndin allt frá
setningu laganna um þá stofnun ár-
ið 1971 og til 1981 eða í 10 ár. Fyrir
utan ofantalið stundaði Ólafur
rnikið fræði- og ritstörf. Hann gaf
út kandidatsritgerð sína í bókar-
formi, en hún fjallaði um íslenska
verkalýðshreyfingu. Einnig liggur
eftir hann fjöldi greina aðallega í
Þjóðviljanum og Rétti, en hann
hafði mikil afskipti af útgáfu hans
alla tíð. Þá samdi Ólafur bókina
Ntundi nóvember ásamt Einari
Karli Haraldssyni.
Leiðir okkar Ólafs lágu fyrst
santan haustið 1967 er ég hóf
kennslu við Gagnfræðaskólann í
Kópavogi. Þá vorum við báðir að
undirbúa okkur undir cand. mag.
próf í sagnfræði og störfuðum báðir
innan vébanda Æskulýðssambands
Islands.
Er Aðstoð íslands við þróunar-
löndin var sett á laggirnar störf-
uðunt við þar saman allan tímann.
Strax í upphafi tókst með okkur
góð vinátta, sem aldrei bar skugga
á, enda voru áhugamál okkar þau
hin sönru og samstarf okkar frá
upphafi með miklum ágætum,
jafnt við gerð útvarpsþátta okkar
um þróunarlöndin sem og samstarf
okkar að þeim verkefnuni senr upp
komu innan Aðstoðar íslands við
þróunarlöndin. Ekki skaðaði það
santband okkar að góð vinátta
tókst og nteð fjölskyldum okkar
sem æ hafa haldist síðan, enda höf-
um við hjónin átt ntargar ánægju-
stundir með þeim Ólafi og Jó-
hönnu gegnum árin. Stundir sem
geymast í minningunni og gera
manni hugarhægra, þegar frarn í
sækir.
Ólafur var hugsjónamaður og
kom það best fram í því hversu ó-
þreytandi hann var að berjast fyrir
réttlátari heimi, jafnt í eigin samfé-
lagi sem samfélagi þjóðanna. Þótt
svo að sjaldan hafi sigrarnir verið
margir né stórir, gafst hann aldrei
upp heldur hélt ótrauður áfram að
kynna málstað hins fátæka heims í
ræðu og riti og hvenær sem tækifæri
gafst. Það fór ekki hjá því að mað-
ur smitaðist af áhuga hans og bar-
áttugleði. Ólafur var samkvæmur
sjálfum sér og ákveðinn, en anaði
þó aldrei að neinu. Hann var hæg-
látur í fasi, þótt stundum gæti
hvesst, ef honum þótti hallað á ein-
hvern sem ekki átti þess kost að
verja sig. Hann var farsæll í starfi
og hinn ágætasti kennari. Nú er
skarð fyrir skildi, þegar Ólafur er
farinn og við sem eftir stöndum,
störum hljóð á autt sætið.
Það er alltaf erfitt að skilja
hvernig á því stendur að ungt fólk í
blóma lífsins skuli hverfa svo
skyndilega af sjónarsviðinu, en við
því er ekkert að gera, við þekkjum
ekki leyndarmálið.
Bestu vinarkveðjur fylgja Ólafi á
vit hins ókunna. Jóhönnu, drengj-
ununi, öldruðum foreldrum,
tengdaforeldrum og öðru skyld-
fólki bið ég blessunar alls þess góða
í þessari veröld og minni á síðara
erindið í kvæði Stephans G. Step-
hanssonar Við verkalok:
En þegar hinzt er allur dagur úti
og upp gerð skil,
og hvað sem kaupið veröld
kann að virða,
sem vann ég til:
í slíkri ró ég kysi mér að kveða
eins klökkan brag,
og rétta heimi að síðstu
sáttarhendi
um sólarlag.
Björn Þorsteinsson.
Kynni okkar Ólafs R. Einars-
sonar voru kannski ekki ýkja löng.
Þau hófust að marki, þegar nýkjör-
ið útvarpsráð kom saman á árinu
1978. Við höfðum þá vitað hvor ai
öðrum næsta lengi, hafandi vaxið
úr grasi í námunda hvor við annan í
Norðurntýrinni.
Það fer ekki hjá því að menn
kynnist allvel, þegar þeir sitja
saman fundi að jíifnaöi tvisvar í
viku allan ársins hring. Ólafur
hafði mikinn áhuga á málefnunt
Ríkisútvarpsins. Hann var í störf-
um sínum þar athugull og tillögu-
góður og lét sig hag og stöðu stofn-
unarinnar miklu varða. Veit ég
fyrir víst aðhann var samur í öðrum
störfum, að kennslu og sagnfræði-
rannsóknum, enda þótt ég þekki
þar minna til.
Sitt af hverju hefur verið og er
sagt um útvarpsráð. Þar eru menn
ekki ævinlega á einu máli, og víst
vorunt við Ólafur ekki ætið sam-
rnála. Sá ágreiningur var þó aldrei
djúpstæður, og við áttum að
nokkru santeiginlegan bakhjall í
skoðunum, enda þótt hin pólitíska
þróun hafi verið á þá lund. að leiðir
lágu ekki eins ntikið santan og báð-
ir hefðu viljað.
Ólafur R. Einarsson hafði til að
bera víðsýni og umburðarlyndi
gagnvart skoðunum annarra, sem
gerði það að verkunt, að með hon-
um var ævinlega gott að starfa. Mér
eru t.d. nrinnisstæðir fundir. þar
sem hann kom fram nteð málalista
uni atriði, sem útvarpsráð hafði
fjallað um, en einhverra hluta
vegna lent í útideyfu og ekki orðiö
úr framkvæmdum. Ólafur var mál-
afylgjumaður, fastur fyrir, en
ávallt sanngjarn.
Við sem með honum störfuðum
vissum, að hann hafði undanfarin
misseri átt við vanheilsu að stríða.
Engan okkar mun þó hafa grunaö
að kallið kæmi svo skjótt. Eftirsjá
er óneitaníega rík í huga, þegar
góðir drengir eru kvaddir. Ólafur
hafði skilaðdjúgu dagsverki, en
hann átti miklu ólokið.
Síðast sáurnst við þegar horn-
steinn var lagöur að nýju útvarps-
húsi við Háaleiti. Sú minning sem
hann skilur eftir í hugum okkar er
með honum störfuðu, er þó öllum
hornsteinum varanlegri, minningin
um góðan dreng.
Ástvinum hans sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Eiður Guðnason.
•
Með fáeinum orðunt langar ntig
til að minnast fyrrum kennara
míns, Ólafs R. Éinarssonar, en
hann lést 11. júní síðastliðinn.
Ólafur var fæddur 16. janúar 1943
og var því aðeins fertugur er hann
andaðist.
Ég kynntist Ólafi fyrst er ég hóf
nám í Menntaskólanum við Tjörn-
ina haustið 1971. Hann kenndi mér
íslandssögu þann vetur og síðar
nam ég hjá honum í tvo vetur til
viðbótar. í stofu 15 í ganila skóla-
húsinu við Tjörnina átti ég ntargar
ánægjulegar og þroskandi stundir
með Ólafi. Strax í upphafi varð
nrér Ijóst að þar var mikilhæfur
maður á ferð. Hann var vel að sér í
sínum fræðum, áhugasamur og vin-
samlegur í garð þeirra ungmenna,
sem til hans sóttu menntun. Hisp-
urslaus framkoma hans og hóg-
værð áunnu honum strax virðingu
nentenda. Til marks unt þetta var
sú ró, sem ætíð ríkti í tímum hjá
Ólafi. Að vera með læti hjá honum
kom hreinlega aldrei til greina;
hann var yfir allt slíkt hafinn. Fyrir
starf sitt hlaut Ólafur hylli og vin-
sældir meðal nemenda. Sögu-
kennsla hans var ekki innantóm
upptalning staðreynda. Gagnrýnið
hugarfar og rökfesta var í hávegunt
haft, en jafnframt víðsýni og um-
burðarlyndi þegar mismunandi
sjónarmið komu fram. Ólafur gætti
þess að kennslan þroskaöi og
auðgaði hugsun nemenda og var-
aðist að innræta ákveðin sjónar-
miö. Vegna alls þessa mun ég alltaf
minnast kennslustundanna hjá
Ólafi sem mikilvægs þáttar á leið
minni til aukins þroska og mennt-
unar. Skarpskyggni Ólafs gerði
honum auðvelt að greina kjarnann
frá hisminu hverju sinni. Þannig
varð umfjöllun hans markviss og
hnitmiðuð og augu nemenda opn-
uðust fyrir því, sent torskilið var
eða óljóst í kennslubókununt.
Þetta varð líka til þess að Ólafur
þurfti ekki að flýta sér um of í
kennslustundunum. Þvert á móti
hafði hann einatt tíma til að kafa
djúpt í einstök atriði eða að ræða
unt heima og geinta. Slíkt þótti mér
ákaflega mikilvægt þegar ég var í
menntaskóla og þykir raunar enn.
Ólafi var mjög annt um að nent-
endur tækju þátt í umfjölluninni
um söguna hverju sinni. Hann
forðaðist að tala stöðugt sjálfur
heldur beindi spurningum út í
bekkinn þegar honum þótti við
eiga. Hann gætti þess líka að fá
einhver svör frá okkur þótt hann
þyrfti stundum að hjálpa okkur af
stað. Þannig krafðist hann þess að
við værum með, en þurfti þó aldrei
að segja það beint. Hann kunni
líka að hrósa mönnum fyrir það
sem þeir gerðu vel, hvort sem það
fólst í góðu svari við spurningu frá
honum eða í ágætri ritgerðarsmíð.
Hann vissi um þá ánægju, sem slík
viðurkenning veitti góðunt nem-
endunr og hvílík hvatning það var
til að gera vel.
Eitt atvik er mér ofarlega í huga
frá samskiptum okkar Ólafs í M.T.
Ég kont þá að nráli við hann á
kennarastofunni til að biðja hann
um meðmæli til að senda með um-
sókn nrinni til háskóla í Bandaríkj-
unum. Þegar Ólafur heyrði hvert
ég hugðist fara svaraði hann: „Það
er sjálfsagt að gefa þér meðmælin,
en heldurðu að ég sé rétti maður-
inn til þess?" Ég hef ætíð litið á
þetta svar sem vott unt það hvernig
hreinskilni hans og glettni gat
blandast saman. Ég mun aldrei vita
hversu hann óttaðist að pólitískar
skoðanir hans ófrægðu nteðmælin í
augum manna vestan hafs, en ég
hef þó aldrei efast um að þessi sam-
skipti mín við Ólaf urðu ntér til
gæfu. Hann var einfaldlega einn
þeirra manna, sem ég treysti best
til þessa verks.
Langt um aldur fram er Ólafur
nú horfinn yfir móðuna miklu eftir
langa og erfiða baráttu við banvæn-
an sjúkdóm. Mikill atgervismaður
er fallinn í valinn. Hann hefur verið
kallaður burt frá ástvinum sínum
og burt úr starfi sínu. Við hefðum
þó betur notið hans lengur því
hann var vandaður maður og góð-
ur. Þungur liarmur er nú kveðinn
að eiginkonu hans, sonum og ætt-
mennum öllum. í hinu langa stríði
reyndist eiginkona Ólafs, Jóhanna
Axelsdóttir, ntanni sínum hin
styrkasta stoð allt til hinstu stund-
ar. Ég og Margrét, eiginkona rnín,
vottum Jóhönnu, sonum þeirra og
öðrum ættingjum dýpstu samúð
okkar.
Björn Guömundsson.
•
Það var unt þetta leyti árs fyrir
u.þ.b. 25 árum, að leiöir okkar
Ólafs R. Einarssonar lágú saman í
fyrsta sinn. Á fegursta tíma ársins, í
einni af fegurstu sveitum þessa
lands, unnunt við saman að
gróðursetningu skógar að Hreða-
vatni í Norðurárdal.
Af einhverjum ástæðum atvik-
aðist það svo að við urðunt þrír sent
að mestu héldunt hópinn í þeim
vinnuflokki sent þar var sumar-
langt.
Það átti skömmu síðar fyrir mér
að liggja að yfirgefa heinta-
byggðina og flytja til Reykjavíkur.
Aftur fóru mál á þann veg að heim-
ili mitt varð í næsta nágrenni við
Ólaf.
Næstu 3 árin var oft farið á ntilli
Flókagötu 12 og Hrefnugötu 2,
enda aðeins eitt hús á milli.
Það mun ekki vera of mikið sagt,
að á þessunt fyrstu árum mínum í
Reykjavík, á viðkvæmum aldri og
á miklum umrótatímum, átti ég því
láni að fagna að eiga félgsskap og
vináttu Ólafs.
Saman störfuðum við í þeim
góða félsgsskap sem Æskulýðsfylk-
ingin í Reykjavík var á þeim árum,
og forðaði mörgum unglingum frá
hálum götum borgarlífsins.
Ólafur var vinur vina sinna,
prúður maður í allri umgengni og
virtur af öllum sent honum kynnt-
ust.
Vegna langdvalar minnar í öðr-
um löndum urðu samskipti okkar
minni hin síðari ar, en enn eimir
eftir af þeim manngildishugsjónum
og lífsviðhorfum sem hann átti
ríkan þátt í að skapa í mínum huga
á unglingsárunum.
Það var gróðursetning sem
Ólafur stundaði alla ævi í sínu um-
hverfi af söntu alúð og í skógrækt-
inni forðum, en nú er lífstré hans
sjálfs fölnað.
Skarð er fyrir skildi, og á slíkum
stundum er oft erfitt um mál, þegar
drengir góðir kveðja í blóma
lífsins.
Framhald á bls. 12