Þjóðviljinn - 22.06.1983, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 22. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Myndin er tekin á slysstað, skammt frá bænum Búlandshöfða í Eyrarsveit, en þar fór bifreið út af veginum
hinn 17. júní sl. með þeim afleiðingum að fimm ungmenni slösuðust. Vegurinn er ekki glæsilegur eins og sjá
má. Bifreiðin liggur gjörónýt utan vegar.
Fimm ungmenni flutt á sjúkrahús eftir bílveltu
Hver er sekur?
uð sem kærkomin at'sökun fyrir því
að taka úr umferð róttæka
verkalýðs- og bændaleiðtoga,
grunaða um hermdarverkastarf-
semi og veikja þar með baráttuafl
þessara þjóðfélagsstétta.
Annar áfanginn er í fullum gangi
og hillir undir lok hans að mati for-
ingja Sendero. Hreyfingin hefur
sýnt bardagahæfni sína á áþreifan-
legan hátt gagnvart löggæslu og
hervaldi. Og þótt „frelsuðu svæð-
in“ séu ekki enn komin í gagnið í
hefðbundinni merkingu þessa hug-
taks, eru samtökin í reynd nær alls-
ráðandi í stórum hluta Ayacucho
héraðsins. - Skæruliðarnir, sem
yfirleitt eru kornungt fólk, fara
ferða sinna að vild, enda njóta þeir
þegjandi stuðnings þorpsbúa og
sveitafólks. f raun fer Sendero með
raunverulega löggæslu á stórum
svæðum héraðsins.
Haldið á
Maríu mey
Meðlimirnir gera sér far um að
virða hefðbundið líf og siðvenjur
íbúanna. Sú saga er sögð af skærul-
iðum, að hópur þeirra kom til eins
þorpsins, daginn fyrir trúarlega há-
tíð, vann hörðum höndum að því
að hreinsa og fága kirkju staðarbúa
og daginn eftir gengu svo þessir
harðsvíruðu byltingarseggir um
plássið undir styttu af heilagri jóm-
frú, Maríu mey.
íbúarnir fá sern sé að fara sínu
fram. Skæruliðarnir láta sér nægja
að taka-höndum „svikara“ og aðra
„fjandmenn fólksins". Oft er kom-
ið á fót byltingardómstóli á þorps-
torginu og sakborningar að því
loknu hýddir eða teknir af lífi í aug-
sýn þorspbúa. - Lögreglumenn og
aðrir beinir fulltrúar kerfisins eru
að sjálfsögðu vinsæl skotmörk. En
skæruliðar hafa einnig tekið af lífi
smákaupmenn fyrir að græða á fá-
tækum smábændum, syni lögreglu-
manna vegna faðernis þeirra og
fólk, sem vinnur fyrir lögregluna.
T.d. var fyrir skömrnu tekin af lífi
eldabuska öryggislögreglunnar
vegna starfa í þágu kúgaranna.
Svoleiðis verknaðir, ef rétt er
skýrt frá í fréttum, varpa óneitan-
lega skugga á málstað skæruliða og
eru víðast hvar fordæmdir, einnig
af vinstrihreyfingunni. Samt er oft
erfitt að meta málavöxtu, einkum
þar sem samtökin hafa þá stefnu að
skýra ekki einstakar aðgerðir sín-
ar, en láta sér nægja almennar
yfirlýsingar annað veifið. Sendero
gerðu samt undantekningu á þessu
eftir árás á nautgriparæktarstöð
háskólans í ágústmánuði sl. þar
sem drepnar voru 25 kýr og jafn-
mörgum kynbótanautum rænt,
jafnframt því sem stöðin var
sprengd í loft upp. - Hin almenna
fordæming á þessum verknaði kall-
aði fram yfirlýsingar frá Sendero
um að stöðin hefði ekki kornið inn-
fæddum íbúum til góða heldur
hefði árangur starfsins verið fluttur
út til annarra landshluta.
Þessi röksemdfærsla undirstrik-
ar staðbundið eðli Senderos. En
hvernig er þá ástandið í Ayacucho-
héraði, hver er sá þjóðfélagslegi
veruleiki, sem samtökin endur-
spegla?
Nokkrar tölur
frá Ayacucho
í öllu héraðinu búa ekki nema
um 400 þúsund manns, þaraf 60% í
5. grein
sveitum. Aðeins 5% ræktanlegs
lands er ræktaður, 30% er beiti-
land og 65% í órækt. 36.5% skóla-
skyldra barna ganga í skóla og
ólæsiprósentan er tæplega 70. Flest
þorp á svæðinu eru bæði án raf-
magns og rennandi vatns. Ibúarnir
fá ekki nema rúmlega helming af
nauðsynlegum kalóríum. Tölurnar
eru teknar úr opinberum heimild-
um og draga upp mynd af svæði,
sem býr við þvíiíka örbirgð að langt
mætti leita til að finna svipað
ástand, jafnvel á þriðja heims mæl-
ikvarða. - Ayacucho-héraðið hef-
ur ætíð verið fyrir utan venjulegt
þjóðfélagslíf á landsmælikvarða.
Sem dæmi má nefna, að stærstu
stjórnmálaflokkarnir eru hér varla
til eða starfa neðanjarðar. Vinstri
hreyfingin í Perú, sem nú starfar í
breiðri samfylkingu (Izquierda
Unida) á hér heldur engin ítök.
Sjálfsagt er hér að finna skýringuna
á algerri höfnun Senderos á flestu
því, sem kemur utanað, og sterkri
stöðu samtakanna heima fyrir.
Þáttur háskólans
En hvers vegna sprettur upp
skæruliðahreyfing einmitt á þess-
um tíma? Rektor San Cristóbals-
háskólans í Ayacucho vill skýra
þetta með tilkomu háskólans fyrir
20 árum. Lítið, lokað og fátækt
samfélag verður óhjákvæmilega
fyrir áhrifum af stofnum, sem m.a.
fæst við að skilgreina þjóðfélagið á
gagnrýninn hátt. Þróunarkenning
Darwins rekst á hefðbundnar trú-
arskoðanir íbúanna, kyn- og líffær-
afræðsla brýtur niður kynlífsmóra-
linn, þjóðfélagskerfið er skoðað
niður í kjölinn í félagsfræði- og
hagfræðitímum. Þessutan brýtur
hegðun aðfluttra kennara og starfs-
manna í bága við hefðbundið lífs-
mynstur íbúanna. Smám saman
skapar því tilvist háskólans aukna
meðvitund um samfélagið og vekur
kröfur og óskir um betra líf, sem
kerfið megnar ekki að uppfylla.
Comandante Edith
Að lokum er hér sagan af Edith
Lagos, 19 ára gamalli stúlku, sem
lét lífið fyrir málstað skæruliða í
september sl. Ásamt öðrum liðs-
mönnum Senderos hafði hún tekið
þátt í vopnaðri árás á lögreglustöð
og að sögn yfirvalda verið skotin til
bana. Samstundis dundu yfir ásak-
anir um að Edith hefði verið pynt-
uð til bana á hryllilegasta hátt.
Eftir mikla pressu almenningsálits-
ins var líkið grafið upp og fundust á
því merki um misþyrmingar. Ekki
var frekar aðhafst í málinu. Edith
var jörðuð á ný, í þetta sinn í
heimaborg sinni Ayacucho, þar
sem 15 þús. manns eða um helm-
ingur íbúanna, fylgdu henni til
grafar.
Nú í ársbyrjun skall ný alda árása
og skemmdarverka yfir Ayacucho-
hérað. Belaúnde forseti sendi strax
fjölmennar hersveitir á staðinn,
sem hafðar eru í viðbragðsstöðu til
stuðnings öryggissveitunum. Lýst
hefur verið yfir neyðarástandi í 8
héruðum alls, enda er ætlunin að
ganga á milli bols og höfuðs á skær-
uliðum í eitt skipti fyrir öll. En
hvernig er hægt að komast fyrir
ræturnar á fyrirbæri, sem sprettur
beint úr hinum þjóðfélagslega ver-
uleika, nema með miskunnarlausri
valdbeitingu? Og hversu lengi fær
stjórn, sem beitir slíkum aðferð-
um, varðveitt lýðræðisbraginn?
Það óhapp varð skammt frá
bænunr Búlandshöfða f Eyrarsveit
þann 17. júní kl. 24.30, að bifreið á
leið frá GrundarFirði til Ólafsvíkur
lcnti í drulluslarki á veginum og
mun ökumaður þá hafa misst
stjórn á bílnum sem valt eina veltu á
veginum og kastaðist síðan útaf.
Fimm ungmenni voru í bílnum og
voru öll flutt á sjúkrahúsið í Stykk-
ishólmi. Sem betur fer reyndust
meiðsli ekki alvarleg og fengu þrjú
að fara heim strax og gert hafði
verið að sárum þeirra. Tvær stúlk-
ur urðu hinsvegar að vera eftir á
sjúkrahúsinu. Bifreiðin er gjör-
ónýt.
Fréttir af þessu tagi eru því mið-
ur alltof algengar í fjölmiðium. Nú
er mikil herferð í gangi til fækkunar
umferðarslysum og er sú herferð
kölluð „Norrænt umferðaröryggis-
ár“. Er þar varið ómældum upp-
hæðum í það að auglýsa hvernig
ökumenn og gangandi vegfarendur
eigi að haga sér. I kringum þetta er
sjálfsagt mikið bákn og fjöldi vand-
amálasérfræðinga sem vinna að því
að finna einhverja lausn á vanda-
málum sent aðrir vandamálafræð-
ingar hafa búið til.
A reikningum er
hún 263 þúsund
Borgarráð hefur nú til athugun-
ar tillögu um að endurskoða sam-
komulag við Seltjarnarnes-
kaupstað um hlutdeild Seltirninga í
rekstri SVR. Það var Kristján
Bencdiktsson, borgarfulltrúi
Tramsóknarflokksins sem flutti til-
löguna á síðasta borgarstjórnar-
fundi í framhaldi af athugasemdum
endurskoðunardeildar við sam-
komulagið.
I skýrslu endurskoðunardeildar
vegna reikninga ársins 1982 kemur
fram að í árslok námu skuldir Sel-
tjarnarneskaupstaðar 263 þúsund-
um króna. Samkvæmt samkomu-
laginu um SVR greiðir Seltjarnar-
neskaupstaður 3.18% af rekstrar-
halla SVR, en gjaldið reiknast ekki
fyrr en árinu eftir og greiðist nokk-
uð seint. Ekki er tekið neitt tillit til
þátttöku í endurnýjun vagnaflot-
Þetta slys er fjórða slysið á til-
tölulega skömmu tíma sem rekja
má beint íil Vegagerðar ríkisins. Þá
er bara átt við þessa sveit og ef
dærnin eru svipuð í öðrum sveitum
ætti yfirvöldum umferðarmála að
vera Ijóst hvar helst er að vænta
árangurs til fækkunar umferðar-
slysa.
Ég tek því undir með Bergþóru
Árnadóttur þegar hún syngur „Ég
ákæri ráðherra samgöngumála".
Ef þær myndir sem teknar eru á
slysstað prentast vel sést glögglega
hvernig ástand vegarins er þar sem
slysið átti sér stað. Myndirnar af
veginum eru teknar úr þeirri átt
sem bíllinn kom úr. Ástæður þess
að vegurinn lítur svona út eru þær,
að að undanförnu hafa starfsmenn
Vegagerðar ríkisins unnið við hefl-
un vega og hefur kantheflun verið
ríkur þáttur í sumarviðhaldi vega
hér um slóðir, en hún er fólgin í því
að ryðja stórgrýti, lausamöl, mold-
arbörðum og aur uppá veginn, allt
eftir því hvaða efni er næst veg-
inum.
Augljóslega eru starfsmenn
Vegagerðar ríkisins á Snæfellsnesi
ans eða í öðrum framkvæmdum og
engir vextir eða verðbætur reiknast
á þá upphæð sem Seltirningar
greiða.
Sem fyrr segir er skuld Seltirn-
að reyna að gera sitt besta. Því er
ekki rétt að áfellast þá. Hinsvegar
er athugandi fyrir yfirmenn þeirra í
Borgarnesi aö kynna sér ntjög vel
hvernig ástandið er með því að
heimsækja sveitirnar og eiga við-
ræður við sveitarstjórnarmenn og
leggjast síðan á eitt með þeim að
krefjast úrbóta. Það þarf nokkuð
seiga karla til að standa undir jafn
mikilli gagnrýni og yfirmenn vega-
mála í þessum landshluta verða að
standa undir. Því hlýtur þeim að
vera það kappsmál að þessum
hlutum verði komið í lag. Lang-
tíma áætlun í vegamálum ber hins-
vegar rneð sér að Snæfellsnes er
ekki á kortinu hjá Vegagerð
ríkisins.
Að lokutn aðeins þetta: Ég full-
yrði að það slys sem varð tilefni
þessa greinarkorns, skrifast að öllu
leyti á kostnað Vegagerðar ríkis-
ins. Þaðskulu vandamálafræðingar
Vegagerðarinnar hafa hugfast að
þeir sluppu með skrekkinn, þeir
verða kannske ekki eins heppnir
næst.
Grundarllrði 18. júní 1983.
Ingi Hans Jónsson.
inga nú 263 þúsund krónur en ef
miðað væri við lánskjaravísitölu
ætti skuldin að nerna 2 miljónum og
45 þúsund krónum!
-ÁI
Hersveit sérhæfð { að berjast gegn skæruliðum.
Strætó tapar grimmt á Seltirningum:
Verðtryggð næml
skuldin 2 miljónum
Strætó tapar grimmt á Seltirningum: