Þjóðviljinn - 22.06.1983, Qupperneq 11
Jón Haukur
öruggur
sigurvegari
Jón Haukur Guðlaugsson, NK,
sigradi nokkuð örugglega í Pierre
Robert golfmótinu sem haldið var á
Nesvellinum um helgina. Jón
Haukur lék á 69 höggum en nœstir
komu Magnús Ingi Stefánsson,
NK, og Sigurður Sigurðsson, GS, á
73.
í kvennaflokki án forgjafar sigr-
aði Sjöfn Guðjónsdóttir, GV, en
Kristín Eide, NK, í kvennaflokki
með forgjöf. Jóhannes Gunnars-
son, NK, sjgraði í opnum flokki án
forgjafar, Jóhann Steinsson, GR, í
opnum flokki með forgjöf, Helgi
Eiríksson, GR, í unglingaflokki
með forgjöf, Björgvin Björgvins-
son, GR, í drengjaflokki með for-
8Íöf og Sigurjón Arnason, GR, í
drengjaflokki án forgjafar.
Hvaða lið
komast í
1. umferð?
/ kvöld fæst i'ir því skorið hvaða
lið úr neðri deildunum komast í I.
pmferö bikarkeppni KSÍ, með
einni undantekningu þar sem úrslit
liggja ekki fyrir á Austurlandi
vegna frestana. Liðin sem mcetast í
kvöld eru þessi:
Víkverji-ÍK
Grindavík-FH
HV-Fylkir
Leiftur- Tindastóll
Völsungur-KS
Að auki mœtast Einherji og
Próttur frá Neskaupstað á Vopna-
firði og sigurvegarinn þar leikur við
Valfrá Reyðarfirði um sœti íI. um-
ferð.
Naumur
sigurhjá
Brössum
Brasilía vann nauman sigur á
Sviss, 2:1, þegar þjóðirnar mœttust
í vináitulandsleik í knattspyrnu í
Sviss um helgina. Egli skoraðifyrst
fyrir Svisslendinga en Socrates og
Carera tryggðu Brasilíumönnum
sigur.
Guðrún
Fema vann
fimmfalt
Guðrún Fema Ágústsdóttir,
sundkonan snjalla úrÆgi, sigraði í
fimm greinum á Reykjavíkurmeist-
aramótinu í sundi sem haldið var
um síðustu helgi í Laugardal.
Ólafur Einarsson, Ægi, sigraði í
fjórum greinum. Ægirsigraði f stig-
akeppni félaga þrettánda árið í röð.
Stórsigur
Arroðans
Árroðinn vann stórsigur á Svarf-
dœlum frá Dulvík, 6:0, í E-riðli 4.
deildar í knattspyrnu i fyrrakvöld.
Par með stendur Eyjafjarðarliðið,
sem lék í 3. deild ífyrra, vel að vlgi,
ersennilega með unna kœru á hend-
ur Leiftri frá Ólafsfirði úr fyrstu
umferð og vinnist hún liafa Arroða-
menn sex stig úr þremuf fyrstu
leikjunum.
Miðvikudagur 22. júní 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐÁ 11
íþróttiT Víðir Sigurðsson
Söguleg Akureyrarferð
hjá Grími Sæmundsen
Tíu Valsmenn héldu út síðari hálfleikinn og náðu stigi
Hún var söguleg Akureyrarferð-
in hjá Grími Sæmundsen, fyrirliða
1. deildarliðs Vals í knattspyrnu, í
gærkvöldi þegar Valsmenn léku við
Þór á aðalleikvanginum á Akur-
eyri. Grímur skoraði gott mark
fyrir Valsmenn í fyrri hálfleik, hef-
ur lítið gert af slíku á ferlinum,
enda vamarmaður, en lét síðan reka
sig útaf á þriðju mínútu síðari hálf-
leiks fyrir óþarfa brot, greip í Þórs-
Þrátt fyrir mikla spennu og gíf-
urlegan hasar í vítateigum beggja
liða, einkum ísfirðinga, undir lok
leiks KR og ÍBÍ á Hallarflötinni í
Laugardal í gær, tókst hvorugu liði
að skora mark. Markalaust jafn-
tefli urðu því úrslitin, en það segir
lítið um gang leiksins, marktæki-
færin voru fyrir hendi en þau voru
einfaldlega ekki nýtt.
KR var sterkari aðilinn allan
tímann og náði oft ágætum sam-
leiksköflum en grimmir fsfirðingar
gáfu þeim eins lítinn frið og þeir
mögulega gátu. Mesta hættan var
við ísafjarðarmarkið um miðbik
fyrri hálfleiks, Hreiðar Sigtryggs-
son markvörður ÍBÍ varði þá
naumlega frá Sæbirni Guðmunds-
syni, bjargað var í horn á síðustu
stundu þegar Willum Þórsson var
arann Sigurbjörn Viðarsson sem
var kominn framhjá honum. Tíu
Valsmönnum tókst þó að verjast og
halda öðru stiginu, staða í leikhléi
var 2-2 og hvorugu liði tókst að
komast á blað í síðari hálfleiknum.
Þórsarar voru ekki lengi að opna
leikinn. Á annarri mínútu björg-
uðu varnarmenn Vals naumlega í
horn frá Halldóri Áskelssyni,
Bjarni Sveinbjörnsson tók horn-
kominn í dauðafæri eftir glæsilegan
undirbúning Óskars Ingimundar-
sonar og Magnús Jónsson renndi
knettinum naumlega framhjá
stöng ísafjarðarmarksins eftir ein-
falda en fallega KR-sókn.
í síðari hálfleik fékk Óskar tvö
bestu færin, skaut framhjá af mark-
teig í fyrra skiptið og lét Hreiðar
krafla boltann í horn í það seinna
^taðan:
Vestm.eyjar 7 3 2 2 13-6 8
Breiðablik 7 3 2 2 6-4 8
KR 7 2 4 1 8-9 8
6 3 1 2 7-3 7
Valur 7 3 1 3 12-14 7
ísafjörður 7 2 3 2 7-9 7
ÞórAk 7 1 4 2 8-9 6
Þróttur R 7 2 2 3 8-12 6
6 13 2 5-7 5
Keflavik 5 2 0 3 7-8 4
spyrnuna og sendi fyrir mark Vals,
Guðjón Guðmundsson skallaði til
Sigurðar Pálssonar sem var einn á
markteig og átti ekki í vandræðum
með að skora, 1-0. Á elleftu mín-
útu munaði engu að annað mark
kæmi, Sigurður Haraldsson mark-
vörður Vals sló þá knöttinn í horn
eftir hörkuskot Óskars Gunnars-
sonar úr aukaspyrnu af 30 m færi.
Sigurður Pálsson, sem lék með
eftir að hafa vaðið inní vítateiginn
aleinn. Hinum megin voru einnig
færi, Stefán Arnarson bjargaði
góðu skoti Jóns Oddssonar í horn.
Isfirðingar björguðu á línu frá
Helga Þorbjörnssyni og Elíasi
Guðmundssyni undir lokin og síð-
asta færið fékk Ámundi Sigmunds-
son fyrir ÍBÍ, slapp í gegn en var of
seinn að skjóta og Stefán gómaði
knöttinn.
Jón G. Bjarnason og Magnús
Jónsson voru yfirburðamenn hjá
KR og Sælpörn og Óskar voru
frískir. Hjá IBÍ var aftasta vörnin
sterkust með Benedikt Einarsson
sem besta mann. Jón Oddsson var
hættulegur að vanda.
Óli Ólsen hafði góð tök á
leiknum en einstakir dómar voru
umdeildir. -VS
þar sem Helgi Bentsson var í
leikbanni, var aftur á ferðinni á 15.
mínútu. Hann var að dútla með
knöttinn um 40 m frá marki Vals,
leit upp og sá að Sigurður mark-
vörður var staddur utarlega í víta-
teignum, gerði sér lítið fyrir og
sendi boltann alla leið í mark Vals,
yfir nafna sinn. Staðan orðin 2-0
fyrir Þór.
Aðeins þremur mínútum síðar
fékk Grímur boltann við vítapunkt
Þórs og afgreiddi hann í netið með
óverjandi skoti. Mínútu fyrir hlé
tókst svo Valsmönnum að jafna,
Ingi Björn Albertsson fékk bolt-
ann frá Hilmari Sighvatssyni og
skoraði af stuttu færi, 2-2.
Gegn tíu Valsmönnum sóttu
Þórsarar mjög í síðari hálfleik en
tókst ekki að skapa sér nein færi.
Valur var hins vegar nálægt þriðja
markinu á 58. mínútu, boltinn
stefndi efst í markhorn Þórsara
eftir gott skot Jóns Grétars Jóns-
sonar en Þorsteini Ólafssyni tókst
að verja á ótrúlegan hátt. Eftir það
gerðist ekkert við mörkin, Þórs-
urum tókst ekki að skipuleggja
sóknaraðgerðir sínar nægilega og
máttu sætta sig við annað stigið.
Óskar var bestur Þórsara í þess-
um leik, barðist vel og átti góðar
skottilraunir. Sigurður marka-
skorari lék vel í fyrri hálfleik en var
síðan tekinn útaf rétt eftir hlé.
Hjá Val var Ingi Björn langbest-
ur, ávallt stórhættulegur vörn Þórs-
ara. Hilmar Sighvatsson var einnig
sterkur og Sigurður markvörður
greip vel inní leikinn.
Friðgeir Hallgrímsson dæmdi og
var ekki nægilega sannfærandi.
K&H/VS
Gífurleg spenna í
lokín en engin mörk
Sleglst um stólinn hjá City
Alan Ball og Alex Ferguson meðal líklegra kandídata
Alan Ball, heimsmeistari með
enska landsliðinu í knattspyrnu
1966, er nú efstur á lista af þeim
sem líklegastir eru taldir til að taka
við stöðu framkvæmdastjóra hjá
Manchester City, sem féll í 2. deild
í vor. Skotarnir kunnu, Alex Fergu-
son frá Aberdeen og Billy McNeill
frá Celtic, eru einnig ofarlega á
blaði ásamt Jackie Charlton, sem
hefur stjórnað Sheffield Wednes-
day síðustu fimm árin. Þá hefur
Tommy Docherty, sem nú dvelst í
Ástralíu, lýst yfir að hann hafi mik-
inn áhuga á starfinu.
Phil Thompson, miðvörður Li-
verpool og enska landsliðsins, fer
líklega til Portsmouth, nýliðanna í
2. deild. Thopmson komst varla í
lið hjá Liverpool sl. vetur. Annar
varnarmaður Liverpool, Alan
Kennedy, er sterklega bendlaður
,við sitt gamla félag, Newcastle.
Newcastle vill þó heldur John Ryan
frá Oldham, einn efnilegasta bak-
vörð í ensku knattspyrnunni, en
Kennedy er númer tvö á óskalist-
anum. Þá eru líkur á að Martin
Thomas, velski landsliðsmark-
vörðurinn frá Bristol Rovers, gangi
til liðs við Newcastle.
Brighton,semféllí2. deildívor,
hefur mikinn hug á að ná í írann
Ashley Grimes sem vill fara frá
Manchester United.
Everton býður þessa dagana í
hinn stórefnilega leikmann Burn-
ley, Trevor Steven, og er reiðubúið
að láta bæði Peter Reid og mark-
.vörðinn Martin Hodge í staðinn.
Mark Smith, aðalstjarna Sheffi-
eld Wednesday, hefur skrifað öll-
um 1. deildarliðunum, 22 að tölu,
bréf og spyr hvort þau hafi áhuga á
sér.
Mike Robinson, írski landsliðs-
miðherjinn frá Brighton, bíður
eftir tilboði frá meistuðum Liverp-
ool sem hafa sýnt honum mikinn
áhuga. Robinson hefur fengið til-
boð frá Sevilla á Spáni og Torino á
Ítalíu en er lítt spenntur fyrir því að
yfirgefa England.
Brian Horton, fyrirliði Luton,
hefur fengið stórgirnilegt tilboð frá
Crystal Palace sem hann getur tæp-
lega hafnað.
Norwich hefur fengið írska
landsliðsbakvörðinn John Devine
frá Arsenal án kaupverðs.
Southampton nælir líklega í
Skotann rauðhærða, Willie Young,
sem hefur verið gefin frjáls sala frá
Nottingham Forest.
Dave Sexton hefur verið ráðinn
aðstoðarmaður Bobby Robson,
landsliðseinvalds Englendinga.
-VS
Bgi .
Lögreglulandsliðið í knattspyrnu sem þessa dagana herjar gegn öðrum Norðurlandapólitíum í Osló.
Löggur leika
á NM í Osló
Landslið lögreglumanna í knatt-
spyrnu er nú statt í Osló þar sem
það tekur þátt í Norðurlandamóti
lögreglumanna. I liðinu eru nokkr-
ir kunnir kappar, úr knattspyrnu
og handknattleik, og má þar nefna
Sigurð Gunnarsson stórskyttu í
handknattleik sem þótti geysiefni-
legur knattspyrnumarkvörður
fyrir nokkrum árum, Gunnlaug
Kristvinsson, fyrrum Víking og nú
þjálfara Gróttu í knattspyrnu,
Hörð Harðarson og Kristin Peters-
en. Stjórnandi er Karl Hermanns-
son, fyrrum landsliðmaður úr
Keflavík.