Þjóðviljinn - 02.07.1983, Blaðsíða 11
Helgin 2. - 3. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 1J
hafa svallað þarna út helgina og
grillað sér feitan uxa, tóku þeir í
ölvonzku sinni að brjóta niður
klausturhúsin eftir veikum mætti.
Þiðrekur þessi og kunpánar hans
fengu nú samt að spýta rauðu áður
en lauk. Sjálfur var hann drepinn í
Skálholti, aðrir austur í Hruna, en
fjórir voru saxaðir til dauðs hér í
Viðey og kasaðir uppi í Göngu-
skarði, þar sem leiðin liggur upp á
Heljarkinn.
Þótt saga klaustursins væri þar
með öll, var saga Viðeyjarauðsins
það ekki. Kóngur komst á bragðið,
enda tvöfaldur í roðinu, bæði
kerfis- og framtaksræningi, og Lár-
its nokkur Múli (sem þó var ekki
langafi Jóns Múla) var settur yfir
allar eigur klaustursins í konungs
nafni.
Upp frá þessu verður Viðey úti-
bú frá Bessastöðum og ómagahæli,
svo enn hélt áfram að bætast hér í
kirkjugarðinn. Þar til skyndilega,
árið 1751, að Skúli kallinn fóviti
fær augastað á eynni, kríar hana út
úr kóngi, lætur flytja ómaga-
skarann upp í Gufunes og byrjar að
byggja þetta steinhús sem hér
stendur, þótt aldrei yrði það sú höll
sem Eigtved hirðarkitekt uppriss-
aði. Grjót var tekið úr klettum, en
sandur fluttur frá Danmörku, rétt
eins og kattasandurinn á okkar fá-
tæku dögum. Og héðan háði Skúli
sína drengilegu baráttu, enda er
það minnisstöpull hans sem hæst
ber á þessari eyju. Og þá komu
Stephensenarnir, Ólafur og Magn-
ús, konferensráð, dómstjóri, dokt-
or og riddari. Og hingað flutti hann
prentsmiðjuna frá Beitistöðum og
hélt sig á allan hátt að menntaðara
manna hætti, sprangaði um hlaðið
á hvítum hnébrókum með gylltan
korða, þrístrendan fjaðurhatt og
forgylltri port d’épée. Handan við
stofuna heitir enn í dag Prent-
smiðjulaut, en önnur laut er þar
einnig tii með nafni og sýnir að
Magnús hefur ætlað að reynast
landslýðnum hollur í því sem hann
skorti mest: Hún heitir Tóbaks-
laut.
Þegar hvað mestur völlur var á
Magnúsi Stephensen hér í Viðey,
um 1816, var búfast heimilisfóík
hans þrjátíu og þrennt talsins, þar
af 11 vinnukonur með stássstofu-
stúlkum, 12 vinnumenn, póstur,
skrifari, auk alls kaupafólks sem að
kom á sumrum.
Þótt hér væri enn rekið stórbú
allar götur fram á þessa öld - og
meira að segja með sérstakri sölu-
búð í Uppsölum við Aðalstræti -
má samt segja að sögulegu hlut-
verki Viðeyjar væri lokið, nema
hvað snertir Milljónafélagsævin-
týrið hér austast á eynni. Eina hús-
ið sem þar stendur enn er barna-
skólinn og kom síðast við sögu þeg-
ar Steinn Steinarr lét ferja sig þang-
að út með próvíant til þess að fílós-
ófera í friði. Byrjaði hann á því að
taka upp sardínudós, en þar sem
maðurinn var fremur óvanur bú-
verkum, skar hann sig óðar illilega
til blöðs og var í skyndingu fluttur á
Klepp til þess að láta binda um sár-
ið. Restin af sardínunum sá síðan
ekki skáld sitt meir.
En þótt svona illa til tækist, var
menningarhlutverki Viðeyjar ekki
með öllu lokið, nema síður væri.
Einn sólheitan sumardag í miðri
kreppunni fer hingað út í Viðey
Kristinn E. Andrésson, ásamt
Þóru sinni og fleira fólki. Hann
labbar sig í kirkjuna - sem aldrei
má læsa, svo ekki farist fleyta á
Viðeyjarsundi - gengur síðan um
kirkjugarðinn og leggst í grasið ná-
lægt gröf Magnúsar konferensráðs.
„Eg veit ekki“, sagði hann þegar
hann fortaldi mér þessa sögu,
„hvort ég hef sofnað eða bara mók-
að. Nema hvað ég hrekk upp við þá
vitrun, að við róttækir menn
verðum að stofna bókmenntafé-
lag!“ Og þannig varð hér í kirkju-
garðinum, í háu grasinu, Mál og
menning til!
Við erum því hér á fornum
slóðum og nýjum, slóðum fornrar
kúgunar og nýrrar upplýsingar, í
þessu græna sumarlandi sem við
Reykvíkingar höfum nú loks
eignazt. Því göngum við hér, eftir
11 aldir, loks á eigin jörð. Megi sú
ganga verða okkur öllum til
ánægju.
Ragnheiður Jónsdóttir á eina mynd I Norðurlöndin stóðu að því í sam-
í grafíkmöppunni, sem unnin var í einingu. íslandsdeild Alþjóðasam-
fjáröflunarskyni fyrir 10. bands myndlistarmanna hefur 5
heimsþing myndlistarmanna, en | möppur til sölu.
Fimm grafíkmöppur
í fjáröflunarskyni
Grafíkmappa, með myndum
eftir einn listamann frá hverju
Norðurlandanna var gefinn út í
Helsinki í maí síðastliðnum. Hún
er unnin í fjáröflunarskyni fyrir
heimsþing myndlistarmanna sem
Norðurlöndin stóðu að í sam-
einingu. Grafíkmappan er í 75 ein-
taka upplagi, og hefur íslandsdeild
IAA tekið að sér að selja 5 þeirra.
Myndirnar eru eftir: Nanna Her-
stad, Danmörku, Svein Johansen,
Noregi, Ragnheiði Jónsdóttur, ís-
landi, Svenrobert Lundquist, Sví-
þjóð, og Esa Riippa, Finnlandi.
Möppurnar fást á Klapparstíg 26
hjá Sigríði Björnsdóttur, sími
17114 eftir kl. 6. - Verð hverrar
möppu er kr. 10.000.-.
Rjómabúið á Baugsstöðum
Rjómabúið á Baugsstöðum:
Opið í júlí og ágúst
Varðveislufélag Baugsstaða-
rjómabúsins hefur beðið blaðið að
láta þess getið að rjómabúið verði
opið almenningi til sýnis á laugar-
dögum og sunnudögum í júlí og ág-
úst í sumar, milli kl. 13 og 18, en
Baugsstaðir eru rétt austan við
Stokkseyri.
Tíu manna hópar eða stærri geta
fengið að skoða búið á öðrum tím-
um ef haft er samband við gæslum-
anninn, Guðjón Sigfússon á Sel-
fossi, sími 1761, - en það þarf að
gerast með nokkrum fyrirvara.
Vatnshjólið og vélarnar munu
snúast í sumar og minna á löngu
liðinn tfma þegar vélavæðingin var
að hefjast í íslenskum landbúnaði.
Varðveislufélag Baugsstaða-
rjómabúsins er að einum þriðja
myndað af Búnaðarsambandi
Suðurlands, að einum þriðja af
Byggðasafni Árnessýslu og svo
búnaðarfélögum hreppanna
þriggja, sem stóðu að rekstri búsins
á sínum tíma: Gaulverjabæjar-
hrepps, Stokkseyrarhrepps og Vill-
ingaholtshrepps. Þessir aðilar
mynda svo 9 manna fulltrúaráð
skipað 3 mönnum frá hverjum sem
svo kýs sér framkvæmdastjórn.
Formaður hennar er Stefán Ja-
sonarson í Vorsabæ en með honum
starfa í stjórninni Páll Lýðsson í
Litlu-Sandvík og Helgi ívarsson á
Hólum í Stokkseyrarhreppi.
Skúli Jónsson á Selfossi, sem
gegnt hefur gæslumannsstarfinu
með miklum ágætum, lætur nú af
því fyrir aldurs sakir en við hefur
tekið Guðjón Sigfússon á Selfossi.
-mhg
Ættarmót í Skagafirði
Afkomendur Hólmfríðar
Guðmundsdóttur og Eiríks Eiríks-
sonar, sem bjuggu á Skatastöðum í
Austurdal í Skagafirði 1856 til
1890, ætla að hittast að
Steinsstaðaskóla í Tungusveit helg-
ina 15.-17. júlí í sumar. Þar. er
mjög góð aðstaða til mannfunda.
Gert er ráð fyrir að fólk komi
sem flest til leiks á föstudagskvöld
og verða gestir þá ávarpaðir, en
síðan skemmta menn sér við sam-
ræður, söng og dans fram eftir
kvöldi.
Á laugardag er þess vænst að
þorri gesta fari fram í Skatastaði.
Mótinu verður síðan slitið á sunnu-
dag, með guðsþjónustu í Reykja-
kirkju.
Þótt sitthvað verði gert til að
létta mönnum lundina er þó ekki
síst ætlast til að hver skemmti öðr-
um.
Enda þótt niðjar Skatastaða-
hjóna séu dreifðir um allt land og
sumir erlendis vekur athygli hve
margir þeirra hafa haldið tryggð
við Skagafjörð og eru búsettir þar.
Þeir, sem hugsa sér að taka þátt í
fagnaði þessum geta snúið sér til sr.
Jóns Bjarmans, sími 91-45036,
Sindra Sigurjónssonar, sími 91-
33470, Skúla B. Steinþórssonar,
sími 91—41173, og Magnúsar H.
Gíslasonar, sími 91-17743.
ÞÚ FINNUR F/ÐRlSGI% (|R
Ferðagræjunum
Ðæjarritari
Starf bæjarritara á Sauðárkróki er laust til
umsóknar. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf 20. ágúst n.k. Allar upplýsingar veitir
bæjarstjóri í síma 95-5133.
Umsóknrfrestur er til 20. júlí n.k.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
Aðalfundur
Framleiðslusamvinnufélag iðnaðarmanna
boðar til framhaldsaðalfundar mánudaginn
11. júlí n.k. kl. 4.30 að Smiðshöfða 6.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Móðurmálskennara
fyrir íslensk börn vantar við Frydenhaug
barnaheimilið í Osló í Noregi frá 15. ágúst
n.k.
Flúsnæði er fyrir hendi á staðnum og nánari
upplýsingar fást hjá forstöðumanni í síma
(02) 234616 í Osló (hægt að hringja kollekt).
Frydenhaug barnehage
Sognsveien 165
Oslo 8 - Norge