Þjóðviljinn - 02.07.1983, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 02.07.1983, Qupperneq 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 2. - 3. júlí 1983 Sterk tjáning einkennir Soykwa-leikflokkinn frá Suður-Afríku Hátíð trúða og loddara Til skamms tíma hefur Kaupmannahöfn verið sama marki brennd og Reykjavík í menningarlegu tilliti - nánast allt f ramboð á menningarlegri skemmtan lagðist niður yfir sumarmánuðina. Nú hefur þetta hins vegar gerbreyst og má segja að framboðið sé nú meira og fjölbreyttara á sumrin en veturna. Þetta gera fyrst og fremst þær stóru listahátíðir sem hafa sprottið upp hér að undanförnu - Jasshátíð Kaupmannahaf nar og Alþjóölega leiklistarhátíðin í Kaupmannahöfn, sem einnig ber nafnið Festival of Fools, Hátíð trúðanna. Annars konar leikhús Trúðahátíðin á upptök sín í Arn- sterdam og var rekin þar um margra ára skeið. Árið 1980 var byrjað að starfrækja einskonar anga af hátíðinni í Kaupmanna- höfn, en nú er þetta orðin fullgild hátíð í Höfn og stendur þar yfir í heilan mánuð, að þessu sinni 17. júní til 17. júlí. Trúðahátíðin er vettvangur fyrir allar þær tegundir leiklistar sem allajafna eiga ekki innangengt í hin hefðbundnu stofn- analeikhús - leiklist sem byggir á látbragði, hreyfingu, dansi, trúð- leik, tónlist og hvers konar samspili þessara þátta. í stuttu máli, leiklist sem byggir meira á sjónrænum þáttum en hinu talaða orði. Kaupmannahafnarhátíðin er af- ar umfangsmikil að þessu sinni. Um fjörtíu leikhópar frá fjölmörg- um löndum og álfum bjóða upp á sýningar, en auk þess eru á hverj- um degi margar götusýningar og á hverju kvöldi kabarett þar sem leikhóparnir slá á léttari strengi og frábærir trúðar (einkunr breskir) sýna listir sínar. Þetta er hátíð sem gefur leiklistarunnendum kost á að sjá nýstárlegar sýningar víðsvegar að úr heiminum en býður um leið upp á létta skemmtun og upplyft- ingu. lnnhverfar tilhneigingar Eftir að hafa séð um tug sýninga á þessari hátíð er kannski ekki ó- maksins vert að reyna að átta sig á hvort þær sýna einhverja ákveðna tilhneigingu, gefa til kynna hvert' framverðir leiklistarinnar séu að stefna á níunda áratugnum. Fljótt á litið virðast sýningarnar skiptast í tvo hópa, annars vegar sýningar sem hafa pólitíska eða félagslega skírskotun (og er sá hópurinn minni), hins vegar sýningar sem eru innhverfar, fjalla eiginlega mest um sjálfar sig, rækta leikræna tjáningu hennar sjálfrar vegna. Fyrrnefndu hóparnir korna frá Suður Afríku og Austur Evrópu, hinir frá Vesturlöndum og Japan. Hreinræktuðust var hin inn- hverfa hneigð í sýningu George Co- ates frá Bandaríkjunum, sem var eins konar músikgerningur. Þrír Calck Hook - amerískur nútímadans með súrrealísku ívafi Teatr 77, brúðkaupsharmatölur. Falski brúðguminn (lengst til vinstri) leiðir brúðina, prestinn og gestina út í afskræmdan polonaise.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.