Þjóðviljinn - 08.07.1983, Síða 3
Föstudagur 8. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Hagfræðingur
ASÍ um
álit
vinnu-
veitenda
Hagfræðingur Vinnuveitendasambandsins:
Ný gengisfelllng
er óhjákvæmileg!
„Það er rétt að ég lýsti þeirri skoðun á sam-
ráðsfundinum að gengi krónunnar væri ekki
rétt skráð og óhjákvæmilegt væri að lækka það
sem allra fyrst án þess að áhrifín yrðu bætt upp í
kaupi“, sagði dr. Vilhjálmur Egilsson hag-
ífræðingur'
við getum ekkt safnað meiri
skuldum á þjóðarbúið. Ekki er
nein von á aflaaukningu og ekkert
er reynt til þess að draga úr halla á
rikissjóði. Af þessu samanlögðu fæ
ég ekki séð að gengi fái staðist, og
auðvitað er spurningin í mínum
huga um að breytaihiutföllum milli
Halli ríkis-
sjóðs verður
meiri en í
stefndi þegar
ríkisstjórnin
tók við
Hagfræðingur VSÍ sagði í gær að
stjórnin hefði byrjað á því „aö
slaka út peningum", og jafnvel þó
Tiðurskurðaráforn
Kemur ekki á óvart
Byggif á þeirri hagfrœði að launamenn eigi
að taka á sig öll ytri áföll þjóðarbúsins
„Þessi yfirlýsing hag-
fræðings Vinnuveitendasam-
bands íslands um að fella
þurfi gengið án þess að bæta
launamönnum það í kaupi
kemur auðvitað ekkert á
óvart. Hún byggir á þeirri
hagfræði, að launafólk skuli
taka á sig öll ytri áföll sem
þjóðarbúið verður fyrir en
atvinnurekendur hafí allt sitt á
þurru“, sagði Björn Björns-
son hagfræðingur Alþýðu-
sambands íslands í samtali í
gær.
Við spurðum Björn hvort hann
teldi þörf á því að fella gengið á
næstunni; hvort það væri of hátt
skráð:
„Mín skoðun er sú að gengið sé
lægra nú en það hefur verið síð-
ustu 10-15 árin og því sé ekki
nokkur þörf á því að fella það.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar lýsti
svipaðri skoðun á síðasta aðal-
fundi Vinnuveitendasambands-
ins í maímánuði og þar kom fram
að gengisskráningin væri afar
hagstæð útflutningsatvinnuveg-
unum um þessar mundir“.
- v.
Forstjórí Þjóðhagsstofnunar:
yy
Gengið ekki rangt skráð“
„Nei, ég er alls ekki sammála
hagfræðingi Vinnuveitenda-
sambandsins um að gengið sé of
hátt skráð og tel því ekki á-
stæðu til að fella gengið af þeim
sökum á næstunni“, sagði Jón
Sigurðsson forstjóri Þjóðhags-
stofnunar í samtali við blaðið í
gær.
Hagfræðingur Vinnuveitenda-
sambandsins, dr. Vilhjálmur
Egilsson lýsti því yfir á svoköll-
uðum samráðsfundi ríkisstjórnar-
innar og aðila vinnumarkaðarins
að gengið væri ranglega skráð um
þessar mundir og að gengisfelling
væri nauðsynleg en þó með því
skilyrði að hún yrði ekki bætt í
kaupi launamanna. Hann sagði
einnig á fyrrnefndum fundi að nú
benti allt til þess að halli ríkissjóðs
yrði meiri en gert var ráð fyrir er
fráfarandi ríkisstjóm lagði niður
völd. Við spurðum forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar álits á þeirri ful-
yrðingu.
„Ég er nú fyrst og fremst kunn-
ugur tekjuhlið fjárlaganna og ég
fæ ekki séð að neitt bendi til tekju-
brests umfram það sem menn
gerðu ráð fyrir þegar núverandi
ríkisstjóm tók við“.
Video-myndasýning
í Norræna húsinu:
Barátta
kvenna
gegn
kjarnorku-
stefnunni
Video-myndasýning á vegum ný-
stofnaðra samtaka, Friðarhreyf-
ingar íslenskra kvenna, verður í
Norræna húsinu á morgun, laugar-
dag og hefst kl. 14. Sýndar verða
tvær myndir sem fjalla báðar um
ógnir kjarnorkustyrjaldar.
Fyrri myndin er sænsk að gerð og
ber nafnið Berjumst fyrir lífi. Leik-
stjóri myndarinnar er Marianne
Wásterstam. Fjallar myndin um
baráttu breskra kvenna við Green-
ham Common gegn staðsetningu
nýrra kjarnorkueldflauga í Bret-
landi.
Síðari myndin er bandarísk að
gerð og verða í henni raktar niður-
stöður könnunar sem gerð var í
Bandaríkjunum meðal skólabarna
um hugmyndir þeirra um eigin
framtíð.
Eftir sýningu myndanna gefst
tækifæri til umræðna um efni
þeirra. Aðgangur að dagskrá þess-
ari er ókeypis og eru allir vel-
komnir.
Sumarmótið
í Hrísey
Aukaferð á
laugardagskvöld
Undirbúningur sumarmótsins í
Hrísey gengur vel sagði talsmaður
Alþýðubandalagsmanna á Norður-
landi við Þjóðviljann í gær. Fólk
sem hefur áhuga á að vera einungis
á laugardag í eynni á möguleika á
að komast með ferjunni aftur til
lands um kvöldið. Veðurútlit er
gott fyrir sumarmótsmenn í Hrísey
nú um helgina.
Blár litur
á SVR-
bún-
ingana
„Nei, nei. Málið er einfaldlega
það að gamla efnið fékkst ekki og
því afréðum við að láta saurna
búningana upp úr bláu efni, en
ekki grænu svo sem venja er.
Það verður engin breyting á öðru
en lit á þessum búningum og við
erum ekícert að aðskilja okkur frá
stöðumælavörðum enda er þeirra
úniform allt öðruvísi en úniform
strætisvagnastjóra“, sagði Karl
Gunnarsson eftirlitsmaður hjá SVR
þegar hann var spurður um hina ný-
ju búninga strætisvagnastjóra hjá
SVR sem vakið hafa nokkra athygli.
Strætisvagnastjórar fá nýjan bún-
ing á ári hverju, en þegar átti að fara
að sauma þá upp á nýtt var efnið
ekki fyrir hendi og valinn blár litur.
Breytingar verða ekki aðrar á bún-
ingnum.
- hól.
Nú fá strætisvagnabflstjórarnir
bráðum nýja og bláa búninga í stað
þeirra grænu. (Ljósm. -Leifur).
Friðarhópur kvenna á Selfossi:
Vígbúnaðar-
kapphlaupið
Friðarhópur kvenna á Selfossi og
nágrenni, efnir til kynningarfund-
ar um friðarmál í Tryggvaskála nk.
mánudag, 11. júií, kl. 21. Meðal
efnis á fundinum er erindi sem
Margrét Heinreksdóttir frétta-
maður flytur um vígbúnaðarkapp-
hlaupið og stöðuna í viðræðum
stórveldanna. Einnig verður
upplestur úr bókinni Blómin í ánni,
eftir Edith Morris en sú bók kom út
hjá Máli og menningu 1964 og er nú
ófáanleg.
Þegar Friðarhreyfing íslenskra
kvenna var stofnuð í Norræna hús-
inu í lok maí sl. mættu þar ellefu
konur úr Árnessýslu. Er heim kom
fengu þær fleiri konur til liðs við
málstaðinn og hefur verið stofn-
aður friðarhópur á Selfossi af kon-
um þaðan ásamt konum frá
Stokkseyri og Hveragerði og í
Gnúpver j ahreppi stóð Katrín
Árnadóttir í Hlíð, sem komin er á
áttræðisaldur, fyrir kynningarfundi
um friðarmál. Mættu á hann þrját-
íu konur úr hreppnum. Gerir aðrir
betur!
Að sögn Hansínu Stefánsdóttur
á Selfossi, stefnir friðarhópurinn
að því að vekja umræðú um
friðarmálin á sem flestum sviðum
og eru þær þegar byrjaðar að skrifa
um þau í héraðsfréttablöð á Suður-
landi.
Hvatti Hansína sem flestar kon-
ur á Suðurlandi til að fjölmenna á
fundinn í Tryggvaskála á mánudag-
inn og leggja málefninu lið.
E.Þ.