Þjóðviljinn - 08.07.1983, Page 4
4 SÍÐA - ÍJÓÐVIÚINN Föst'ud’aguf 8. 'júlí' 1983
MÚOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýöshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastióri: Guörún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson,
Auglýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Óiafsson,
Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason,
Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlööversson.
íþróttafréttaritari: Víöir Sigurösson.
Utlit og hönnun: Helga Garöarsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason.
Handrita- og prófarkaiestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson,
Ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Utkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síöumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent
Prentun: Blaðaprent h.f.
Sýningar
hafnar í
brúðuleikhúsinu
• Tjaldið hefur verið dregið frá í brúðuleikhúsi Brem-
ents sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. Sýningar hafa
legið niðri síðustu ár af óviðráðanlegum orsökum, en
þrotlausar æfingar hafa samt sem áður staðið yfir í utan-
ríkisráðuneytinu og á síöum Morgunblaðsins. Verkið sem
nú er tekið til sýningar er skúffumatur úr Hvíta húsinu og
Pentagon, en leikbúnaður er nýr og Ieikstjóranum hefur
tekist vel upp með strengjabrúðurnar þó að þær séu hálf-
gerðir spýtukarlar miðað við það sem best gerist í alvöru-
leikhúsum.
• Flugstöðvarþátturinn hefur þegar verið leikinn við
mikinn fögnuð allra aðstandenda. Hann hefur verið í
samningu og æfingu allt frá 1974 að Framsókn reyndi að
bjarga andlitinu, eftir að hafa verið í ríkisstjórn sem vildi
herinn burt, með því að semja um aðskilnað herflugs og
almenns flugs á Keflavíkurflugvelli. Bandaríkjastjórn tók
að sér að kosta ytri umbúnað þessa aðskilnaðar en ætlaði
íslendingum að reisa sína flugstöð sjálfum. Síðan upphóf-
ust vandræði er íslenskir ráðherrar hófu að suða um
bandarískt fé í flugstöðvarbygginguna og stóðu þau árum
saman þar til Bandaríkjastjórn lét loks tilleiðast gegn því
að hún væri reist í hernaðarlegum tilgangi. Og nú sitja
Islendingar uppi með of stóra og of dýra flugstöð, sem
mun bætast í taphít ríkisins og verða flækt í hernaðarnet
Bandaríkjanna. Sérstakt atriði innan þessa leikþáttar er
vanvirða núverandi ríkisstjórnar við Alþingi. Án þess að
teikningar, kostnaðaráætlanir eða heimildir til erlendrar
lántöku á aðhaldstímum liggi fyrir skuldbindur stjórnin
þingið til þess að hefja þessa miklu framkvæmd.
Lýðræðislegur réttur nýrra þingflokka til þess að fjalla um
málið er virtur að vettugi. Hvað skyldi Morgunblaðið
segja um leikreglur lýðræðisins af þessu tilefni?
• Helgurvíkurþátturinn er næstur. Á æfingartímanum
hefur verið látið í veðri vaka að hann fjallaði um mengun-
arvarnir byggðanna á Suðurnesjum. Pegar svo kemur að
frumsýningu tilkynnir aðstoðarleikstjórinn, aðmírállinn á
Keflavíkurflugvelli, að um sé að ræða aukningu á birgða-
rými fyrir eldsneyti til þess að svara auknum umsvifum
hersins. Og einn helsti brúðuleikarinn, sjálfur forsætis-
ráðherrann, segir í sjónvarpi að sjálfsagt sé að láta kanann
byggja íslendingum höfn í Helguvík sem herinn fái svo að
nota í viðlögum. Engum kom þessi stefnubreyting í
þáttargerðinni á óvart, því að Þjóðviljinn hafði rækilega
ljóstrað upp um leikfléttuna fyrir löngu.
• Ratsjárþátturinn er enn á umræðustigi að sögn for-
sætisráðherra. Á Bandaríkjaþingi hefur margoft verið
spurt hvað liði úrbótum á „ratsjárvandanum norður í
rassi“. Svörin hafa verið þau að sviðssetningu hafi verið
frestað vegna þátttöku „komma“ í ríkisstjórn. Þá var
brugðið á það ráð að hafa foræfingar í Sjálfstæðisflokkn-
um og á utanríkisráðstefnu þess flokks komu fram kröfur
um nýjar ratstjárstöðvar norðan og vestan og herflugvöll
á Sauðárkróki. Aðmírállinn á Vellinum tilkynnti fyrir
skömmu að þetta væri nú komið á verkefnaskrá í brúðu-
leikhúsinu og utanríkisráðherra kvaðst taka að sér hlut-
verkið með mikilli ánægju í Varðarferð á dögunum. Enda
þótt ratstjárþátturinn, sem fjölga mun herstöðvum á ís-
landi sé þegar kominn á verkefnaskrána hefur handritið
hvergi verið sýnt, Alþingi, utanríkismálanefnd, eða öðr-
um sem ætlað er að hafa afskipti af verkefnavali í utan-
ríkismálum, er vendilega haldið utanvið sviðið.
• Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú tekið við utanríkis-
málum í ríkisstjórn eftir 30 ára hlé. Hann verður í aðal-
hlutverki í brúðuleikhúsi Brements og margir fleiri
leikþættir munu vera í bígerð. Framsóknarflokkurinn fær
einnig burðarhlutverk þó veigaminni séu, og þegar nýi
textinn vefst honum um tungu, segir bandaríski sendiher-
rann: Þið skulið bara hugsa ykkur að þið séuð að fara með
gamla textann. Og Steingrímur segir í sjónvarpi að það
hafi ekkert breyst, allt sé eins og venjulega.
-ekh
klippt
Brautin rudd
Brautin hefur verið rudd fyrir
auknum hernaðarumsvifum
Bandaríkjamanna á íslandi.
Ráðamenn keppast við að gefa
yfirlýsingar um efnahagsssam-
vinnu til viðbótar við loforð um
aukin umsvif hersins. Hingað til
hefur Alþýðubandalagið staðið í
vegi fyrir þessari ógnvænlegu
þróun að smáþjóð ofurselji sig
stórveldi. Geir Hallgrímsson var
ekkert að skafa utan af þessu
sögulega hlutverki Alþýðu-
bandalagsins í ræðu sinni í
Varðarferðinni á dögunum. Þar
segir Geir m.a.:
„Tímamót“
„Þótt sjálfstæðismenn hafi ekki
farið með forræði utanríkismála
síðustu 30 árin fyrr en nú, þá hafa
sjálfstæðismenn mótað utanríkis-
stefnu íslands í höfuðdráttum frá
byrjun seinni heimsstyrjaldar-
innar og síðan allan lýðveldistím-
ann með örfáum undantekning-
um sem reynst hafa víti til varn-
aðar. Dæmi um slíkt víti til varn-
aðar voru því miður einnig til
staðar síðustu 5 vinstristjórnar
árin. Ýmsar framkvæmdir í ör-
yggismálum þjóðarinnar hafa
verið bundnar neitunarvaldi Al-
þýðubandalagsins. Það eru því
tímamót þegar slíku neitunarv-
aldi er ekki lengur til að dreifa.“
Margt framundan
Margir hafa óttast að ísland
verði flækt enn frekar inní víg-
búnaðarnet Bandaríkjanna og
þar með í vígbúnaðaræði stór-
veldanna. Greinilegt er af um-
mælum Geirs Hallgrímssonar að
sá óttí er rökstuddur:
„Ljóst er að nú verður hafin
bygging flugstöðvar og skilið
verður á milli athafnasvæðis
varnarliðsins og almennrar flug-
umferðar og borgaralegrar starf-
semi.
Það er ennfremur í þágu ís-
lendinga að þannig sé almennt
búið að varnarliðinu og starfsemi
þess að það geti gegnt hlutverki
sínu í þágu Islendinga. Bygging
eldsneytisgeyma í Helguvík, flug-
skýla og radarstöðva eru allt slík-
ar framkvæmdir“.
„Þjóðlegt metn-
aðarmál“
Formaður Sjálfstæðisflokksins
er hér búinn að lýsa þeirri skoðun
sinni að aðskilja beri starfsemi
„varnarliðsins" og borgaralega
starfsemi íslendinga. Sem sagt að
einangra beri starfsemi banda-
ríska hersins hér á landi.
Það er eins og fyrri daginn að
samkvæmnin í málflutningi er
ekki meiri heldur en í athöfnun-
um: „Þurfum við einnig að taka
sjálfir virkari þátt í öryggisgæslu
landsins og starfi varnarliðsins,
en við höfum gert hingað til, bæði
með aukinni löggæslu, landhelg-
isgæslu og með öðrum hætti“.
Og þetta finnst formanni
flokksins ekki nóg til að sannfæra
Varðarfélaga um hina hlið rök-
semdanna fyrir „aðskilnaðinum"
í flugstöðvarmálinu, svo hann
bætir um betur: „Það ætti engu að
síður vera okkur þjóðlegt metn-
aðarmál að taka meiri þátt í
öryggis- og varnarmálum en við
höfum gert til þessa“.
Pukur - eða pokur-
inn sjálfur?
Geir Hallgrímsson sagði í
Varðarræðu sinni að nauðsynlegt
væri að ríkisstjórninni tækist að
koma upplýsingum á framfæri
um það sem hún væri að gera. Og
það er auðvitað eins og Geir og
Mogginn veit grundvallaratriði í
nútímalýðræðisþjóðfélagi að
stjórnvöld miðli upplýsingum um
hvað eina. Sjálfsagt er það í þeim
anda upplýsingar að formaðurinn
og utanríkisráðherrann lenda í
hár saman: formaðurinn heimtar
upplýsingar sem utanríkisráðher-
rann getur ekki gefið. Þannig
hafa teikningar og fjárhagsáætl-
anir flugstöðvarbyggingarinnar
ekki verið birtar við undiritun
samkomulagsins né á fundi utan-
ríkismálanefndar alþingis, hvað
þá í fjölmiðlum. Þannig getur
formaðurinn talað um óskýr-
greindar „radarstöðvar", og
utanríkisráðherrann hefur ekki
upplýst formanninn frekar held-
ur en alþjóð um það hvaða radar-
stöðvar þetta eru. Hvaða tilgangi
eiga þær að þjóna?
Þeir sem eru mikið með „frelsi
einstaklingsins" í munninum sem
og minni afskipti ríkisvaldsins,
eru hins vegar sífellt sífrandi um
að efla þurfi löggæsluna. Hvers
vegna? Er almenningur á íslandi
á kafi í afbrotum - og hvaða
tengsl eru á milli ameríska hers-
ins á íslandi og þarfarinnar á
aukinni löggæslu?
Það eru engin líkindi til að hið
upplýsta Morgunblað eða utan-
ríkisráðherra þess svari svona
spurningum í bráð. Yfirlýsingum
formanns Sjálfstæðisflokksins og
utanríkisráðherra fylgja svo
yfirlýsingar hæstvirts forsætiráð-
herra skeleggar að vanda. Ríkis-
stjórnin? Hún fylgir sömu stefnu
og síðasta ríkisstjórn. Radar-
stöðvar? Það á ekki að byggja
neina radarstöð og ég hef ekkert
talað við Bush um það mál - að
vísu höfum við talað um radar-
stöðvar. Flugstöð? Það er brýnna
að byggja upp flugsamgöngur úti
á landsbyggðinni heldur en flug-
stöð á Keflavíkurflugvelli, - en
við höfum nú samt ákveðið að
byggja flugstöð.
Það er ekki nema von að svona
menn gleðjist að hjartarótum
þegar þeir veiða lax. - Ekki var
nú lakara að ég veiddi líka lax,
sagði forsætisráðherrann. Og er
nú orðið álitamál hvaða stórlax
veiddi hvern. En verði þeim að
því.
ocj skorið
Þúsund eða
miljón
Þegar málefni E1 Salvador bar
á góma á blaðamannafundi með
Bush varaforseta í gær, kvaðst
Bush hafa átt skilið fjölmennari
mótmælaaðgerðir heldur en raun
varð á í fyrradag. Það er vissulega
rétt hjá þessum fyrrverandi yfir-
manni CIA. En hitt má og hafa í
huga, að eitt þúsund manns eins
og þarna voru, samsvara einni
miljón í Bandaríkjunum. Ætli
varaforsetinn hefði ekki talið sig
fullsæmdan af þeim fjölda?
„Frjáls heimur“
Reisn hinna íslensku ráða-
manna er við brugðið. f teitinu
sem Steingrímur hélt fyrrverandi
yfirmanni CÍA á dögunum, sagði
forsætisráðherra: „Hinn frjálsi
heimur væntir forystu Bandaríkj-
anna“.
Forsætisráðherrann hefur
væntanlega átt við Mið- og
Suðurameríkuríki þegar hann
mælti þessi spaklegu orð. Skyldi
alþýða manna í löndum eins og
Nicaragua og E1 Salvador taka
undir með íslenska forsætisráð-
herranum, sem á von á fóðurbæti
frá Bandaríkjunum
Kommúnistar
Rétt er að vekja sérstaka at-
hygli á því, að Morgunblaðið
fjallar nú ekki öðruvísi um Al-
þýðubandalagsfólk, heldur en
kalla það kommúnista í öllum
greinum og dálkum. Spurning
hvort að á Mogganum sé um al-
menn áhrif hægri bylgjunnar í
heiminum að ræða, hvort þetta
eiga að vera þjónkun við Reagan-
stjórnina eða bara venjuleg
heimska? _ ó„