Þjóðviljinn - 08.07.1983, Side 5
Föstudagur 8. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Svavar Gestsson skrifar um heimsókn bandaríska varaforsetans:
Sorglegt er til þess að
Síðustu dagana hefur þjóðin
fengið að kynnast næsta
óhugnanlegum þætti í
samtímasögunni þar sem
eru samskipti Steingríms
Hermannssonarog Geirs
Hallgrímssonarvið
varaforseta Bandaríkjanna.
Vissulegakom þessi
framkomasumum okkar
ekki á óvart - en ég hef hitt
fjölda fólks sem undraðist
afstöðu þeirra félaga og
framgöngu alla í þessari
opinberu heimsókn. Það
sem kom á óvart voru ekki
almennar móttökur sem
kallaðareru „mannasiðir"
heldur hitt þar sem var
frágangur
flugstöðvarmálsins og
yfirlýsingar Steingríms
Hermannssonar
forsætisráðherra.
Það sem liggur fyrir eftir heim-
sókn bandaríska varaforsetans er
þetta:
1.
Flugstöð verður reist að veru-
legu leyti fyrir bandaríska fjár-
muni. Samt á flugstöin að þjóna
íslenskum samgönguþörfum.
Þannig er stigið inn á braut „aronsk-
unnar“ sem svo hefur verið
nefnd: Að Bandaríkjamenn greiði
fyrir herstöðina og aðstöðu hennar
hér á landi. Bandaríkjamenn eru
að greiða fyrir aðstöðuna með því
að gefa íslendingum flugstöð. Hef-
ur enginn þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins
verið nægilega hreinskilinn til þe^s
að viðurkenna þetta nema Eggert
Haukdal.
2.
Framkvæmdir hefjast nú í Helgu-
vík en fráfarandi ríkisstjórn hafði
ekki tekið ákvörðun um þær fram-
kvæmdir. Hér er um að ræða bygg-
ingu eldsneytisgeyma og hafnar-
gerð. Geymarnir eru reistir á hern-
aðarforsendum en ekki þeim fors-
endum að losa þurfi Keflvíkinga og
Njarðvíkinga við mengun frá olíu-
geymum bandaríska hersins. Þá er
það ætlun forsætisráðherra að
höfnin verði rekin á vegum sam-
gönguráðuneytisins. Þannig eiga
Bandaríkjamenn ekki einasta að
gefa íslendingum flugstöð, þeir
eiga líka að gera hér höfn. Hefði
það þótt ofstæki að spá slíku fyrir
aðeins þremur mánuðum eða svo.
Er þá skammt í að draumsýn Egg-
erts Haukdals rætist en hann gerði
sem kunnugt er ráð fyrir að NATO
borgaði hér hafnir og flugstöð, flug-
velli og vegi. Með hernaðarum-
svifum um allt landið - sem komið
verður að síðar - ér augljóslega
verið að búa íslendinga undir það
að Bandaríkjamenn kosti þjónustu-
mannvirki um land allt. Er enda
vandséð hvar á að draga mörkin
eftir að fiskveiðiþjóðin er farin að
taka við ókeypis höfnum frá út-
lendu herveldi.
3.
Gert er ráð fyrir því að hér verði
reist ný flugskýli fyrir herinn, ekki
þrjú eins og Ólafur Jóhannesson
áformaði, heldur þrisvar sinnum
þrjú. Þegar mótmæli Alþýðu-
bandalagsins vegna flugskýlanna
Bush varaforseti var ánægður með móttökurnar og ríkisstjórnina.
lágu fyrir stöðvuðust framkvæmdir
við þau. Nú mótmælir enginn
innan ríkisstjórnarinnar fram-
kvæmdum í herstöðinni eða á veg-
um hersins annars staðar í landinu.
Þegar Bandaríkjamenn leggja
fram kröfur gagnvart núverandi
ríkisstjórn er ekki staldrað við
heldur kvakað og þakkað og sagt:
„Verði þinn vilji“.
4.
Gert er ráð fyrir því að banda-
ríski herinn komi hér upp nýjum
ratsjárstöðvum. Forsætisráðherra
hefur gefið í skyn að þessar stöðvar
verði ekki í Keflavík heldur einnig
víðsvegar um land - Langanes,
Aðalvík og fleiri staðir munu vera
þar á óskalistanum. Það er því ljóst
að Steingrímur Hermannsson ætlar
að bera ábyrgð á útfærslu hernáms-
ins langt umfram það sem nokkru
sinni hefur verið um að ræða hér á
landi.
5.
Forsætisráðherra hefur lýst því
yfir að hann muni beita sér fyrir því
að auka efnahagssamvinnu land-
anna. Ekki hefur komið fram með
hvaða hætti það verður, en þó hef-
ur hann látið í það skína að til
greina geti komið að lækka tolla af
bandarískum innflutningi hingað
til lands. í sama útvarpsviðtali gaf
forsætisráðherra í skyni að hann
gæti hugsað sér að taka við
bandarísku korni upp í greiðann úr
þeim haugum bandarískrar of-
framleiðslu sem iðulega verður
eldinum að bráð þar í landi, en nú á
að nota til að kaupa íslenska vel-
vild. Enginn fyrirrennara Stein-
Svavar Gestsson: Yfirlýsingar for-
sætisráðherra, sem var eins og um-
ræðuþáttur í einni persónu, hafa
komið á óvart.
gríms Hermannssonar hefur geng-
ið jafnlangt í þessu efni og verður
þessum yfirlýsingum ekki einu
sinni jafnað til Marsjall-
aðgerðanna á sínum tíma. Þar var
um að ræða alþjóðlega aðgerð
bandaríska auðvaldsins, nú er
aðgerðin takmörkuð við íslend-
inga eina.
6.
Komið hefur fram að rætt hafi
verið um það að Bandaríkjamenn
kaupi lambakjöt af íslendingum.
Einkum mun þá gert ráð fyrir því
að hermennirnir í heiðinni verði
látnir maula í sig hnúturnar af of-
framleiðslu sauðfjár á komandi
árum. Þannig hefur Steingrímur
Hermannsson séð að „verndarinn"
gat gegnt hér tvöföldu hlutverki:
Annars vegar að verjast fyrir Rúss-
um, hins vegar að éta offramleiðsl-
una. Ekki liggur fyrir hvernig vara-
forseti Bandaríkjanna tók í þesar
málaleitanir.
7.
Framkoman við utanríkismála-
nefnd er kafli út af fyrir sig: Hún er
kölluð saman af varaformanni
hennar, Kjartani Jóhannssyni, for-
manni Alþýðuflokksins. Það styðst
við hefðir að hann kalli nefndina
saman. Hitt er athyglisvert að í
nefndinni eru nú aðeins tveir þeirra
manna sem skipuðu síðustu nefnd,
hinir eru ýmist ráðherrar eða utan
þings, nema hvort tveggja sé, eins
og Geir Hallgrímsson.
Hinir nýju þingflokkar eru ekki
kallaðir til og eiga þeir þó, að
minnsta kosti samanlagt rétt á sjö-
unda manni í utanríkismálanefnd.
Með þessum fundi utanríkismála-
nefndarinnar sýnir ríkisstjómin al-
þingi og hinum nýju þingflokkum
sérstaklega, fyrirlitningu, sem á
engan sinn líka. Einnig á þesu sviði
er ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar, brauðryðjandi.
Hér hafa nokkur dæmi verið
sýnd sem sanna að núverandi ríkis-
stjórn gengur lengra í þjónslund
sinni við Bandaríkjastjórn en
nokkur önnur stjórn hér á landi
fyrr og síðar. I þetta safn um
brautryðj endastarf ríkisstj órnar-
innar mætti síðan bæta dæmum um
afnám samningsréttar i landinu
með bráðabirgðalögum og á-
kvörðun um skipun nefndar til þess
að tala við útlendinga án þess að
stjórnarandstaðan fái þar að sitja á
áheyrendabekkjum hvað þá heldur
meira. Ennfremur mætti bæta þar
inn í ábendingum um framkomu
ríkisstjórnarinnar gagnvart meiri-
hluta alþingis sem vildi að þing kæmi
saman. Þessari málaleitan var
hafnað, enda þótt þar með sé al-
þingi að engu haft lengur en nokk-
ur dæmi eru til um áður. Forseti
Sameinaðs þings, þriðjungur hand-
hafa forsetavalds, er nú ráðherra
og gefur út sína eigin bráðabirgða-
lög ef þörf krefur. Og það heyrir
enn til nýjunga að málgögn ríkis-
stjórnar, Morgunblaðið og Tím-
inn, eru notuð til sérstakra árása á
forsetaembættið. Þannig hefur nú-
verandi ríkisstjórn brotið nýjar
brautir inn á ný svið. En þar er
myrkur og þangað vill enginn
fylgja henni.
Hins vegar þýðir ekki að spyrja
forsætisráðherra um þessi málefni í
fjölmiðlum. Hann er sjálfur eins og
umræðuþáttur í einni persónu.
Hann skiptir um skoðanir hraðar
en auga fær á fest. Hann hefur á-
kveðna skoðun á málefni í byrjun
setningar en tekur hana aftur í lok
„Þannig fylgir ríkisstjórn
Steingríms
Hermannssonar
utanríkisstefnu Eggerts
Haukdal sem vill að Nato
gefi okkur höfn, vegi og
flugstöð“.
vita
sömu setningar. Hann slær um sig
með mótmælum við kjarnorku-
vopnum framan af málsgrein, en
samþykkir þau í lok sömu máls-
greinar. í aðalsetningunni vill hann
beita lögreglunni á launafólk, en í
aukasetningunni vill hann samráð
við samtök þess. Til þess að finna
allar skoðanir á öllum málum er
yfirleitt nóg að lesa eins og eina
grein eftir forsætisráðherra lands-
ins. Á þennan hátt dæmir hann sig
úr leik alvarlegra umræðna, en
hann er hins vegar afar þægilegur
fyrir íhaldið. Fólk er svo upptekið
við að reyna að henda skoðanir
hans á lofti að í skjóli þeirra getur
íhaldið unnið verri óhæfuverk en ef
Geir Hallgrímsson væri í fyrirsvari
ríkisstjórnarinnar. Dagblaðið Vísir
lýsti því líka yfir þegar ríkisstjórnin
var mynduð að meginhlutverk
Steingríms væri að tala fyrir hana
því Geir væri ekki eins liðugt um
málbeinið.
Það var háttur Islendinga fyrrum
er höfðingjar komu í heimsókn að
taka vel á móti þeim. Það er enn
ríkur þáttur í fari þjóðarinnar og er
það vel. Hitt er fátítt að menn gefi
pólitíska æru sína. Það sýnist nú
hafa gerst og er sorglegt til þess að
vita.
En okkar er að safna liði og
treysta fylkingar þeirra sem enn
eiga í brjósti sér vott af þeirri glóð
sem forðum brann í brjósti þess
fólks sem endurheimti sjálfstæði
lands og þjóðar eftir sjö aldir. Það
er brýnasta verkefni þjóðfrelsis-
baráttunnar um þessar mundir að
skapa víðtæka samstöðu til varnar
sjálfstæði þjóðarinnar, menningu
hennar og sögulegum arfi. Þessi
samstaða má ekki takmarkast við
stjórnmálin ein þó vissulega sé
mikilvægt að stjórnmálaflokkar
standi samanj. Hér verða að stíga
fram verkaiýðsfélög og starfs-
mannasamtök af ýmsu tagi,
menntamenn og listamenn. Hér
þarf að verða til víðtæk samfylking
um íslenskt þjóðfrelsi og þessi sam-
fylking þarf að skapa hér víglínu
sem heldur svo þétt að aldrei fram-
ar komist skriðdrekar hins erlenda
herveldis upp með að spilla ís-
lensku vori framar. Alþýðubanda-
lagið er reiðubúið til þess að beita
sínu afli. Þó forsætisráðherra hóti
þjóðinni lögreglunni nú um leið og
hann lokar löggjafarsamkomunni
ber að safna liði og kveðja til fjöld-
ann, lýðræðið beint og milliliða-
laust.
FLUG - BÍLL
ORLOFSHUS
i ymsum löndum
eins og hver vill
Frjálst, ódýrt og þægilegt
ferðalag eins og hver óskar
eftir.
Sumarbústaðir - Norður-
löndum - Vestur-Evrópu -
Bretlandseyjum.
Afsláttarkort á járnbrautum
- bílar á flugvöllum
Verð ákjósanlegt.
Sjáum um að skipuleggja og
panta fyrir farþega. Fljúgum
með Flugleiðum á næstu
flughöfn. Allt öruggt og
tryggt.
FERÐASKRIFSTOFA
KJARTANS
Gnoöarvogur 44
sími 91-86255