Þjóðviljinn - 08.07.1983, Side 7
Fösttídágur 8> júlí .1983 . .ÞJÓÐVIIlJINN -*- SÍt>X‘7 <*
Sönghátíð ’83:
Frábærir hljómleikar
ísland er land vertíöa í sjósókn,
sem og áöörum sviðum.
Stundum er ekki bein aö hafa
úr sjó, en svo eru uppgrip og
verða menn þá aö hafa sig alla
viö ef gangan á ekki aö renna
þeim úr greipum. Svo er einnig
um menninguna. Hún ertekin
inn í stórskömmtum og kallast
hátíöir. Þekktareru listahátíðir
annaö hvert ár og blessaöar
kvikmyndahátíðirnar í febrúar.
Þar verður fólk að halda vel á
spöðunum en lítt um pyngjuna,
til aö vinna gegn brælunni og
aflaleysinu sem hrjáir
kvikmyndahúsin í þessu landi.
Áhugafólk um tónlist er vel sett
ef miðað er við þá sem unna góðum
kvikmyndum. Hér er enginn hörg-
ull á hljómleikum af hvers konar
tagi, enda sjá innlendir kraftar um
að halda úti þróttmiklu tónlistarlífi
allt árið um kring. Þó eru vertíðir í
tónlistinni og fór ein hrotan hjá í
síðustu viku. Þá var sönghátíð,
skipulögð af Tónlistarskólanum í
Reykjavík og Tónlistarfélaginu.
Hlupu auk þess ýmsir aðiljar undir
bagga með þessu fyrirtæki, enda
heppnaðist jjað með eindæmum
vel.
Tónleikar og
námskeið
Þessi sönghátíð hlaut auðvitað
heitið Sönghátíð ’83 og var hún til-
einkuð ljóðasöng. Hingað komu
fjórir valinkunnir listamenn á sviði
ljóðasöngs og héldu námskeið fyrir
söngnema og píanóleikara í Haga-
skólanum vestur á Melum. Það
voru söngvararnir Gérard Souzay,
Glenda Maurice, Elly Ameling og
píanóleikarinn Dalton Baldwin.
Slíkir listamenn sópa til sín nem-
endum úr öllum áttum, enda voru
hingað komnir nokkrir frá fjar-
lægum löndum. Sýnir það mögu-
leikana sem bjóðast hér til alþjóð-
legs námskeiðahalds af þessum
toga, þegar vel er á málum haldið.
Væri slíkt ekki dónaleg lyftistöng
fyrir tónlistarkennslu og listalíf
hérna.
Þetta námskeið mun hafa verið
hið gagnlegasta eftir því sem heyrst
hefur, enda mátti kenna á hljóm-
leikunum þremur sem haldnir voru
í Austurbæjarbíói, að hér voru
meistarar í túlkun á ferð. Reyndar
voru hljómleikarnir nokkurs konar
kennslustund í áheyrn, einkum
vegna þess hve þessir listamenn
voru ólíkir.
Gérard Souzay
Það er óþarft að kynna franska
ljóðasöngvarann Gérard Souzay
fyrir lesendum. Hann hefur komið
hingað oftar en einu sinni. Þá er
hann einn þekktasti ljóðasöngvari
heims, frægur fyrir breitt svið túlk-
unar. Hann virtist vera jafn vel
heima í öllu sem hann söng, hvort
heldur var á ítölsku, þýsku,
frönsku, rússnesku, ensku eða
portúgölsku.
Souzay ræður yfir undurfagurri
barítón-röddu sem hann beitir af
fádæma smekkvísi. Vega þar salt
tækni og tilfinning, í þeim mæli sem
aðeins þekkist hjá gáfuðustu og
næmustu flytjendum ljóða og lags.
Sönnuðust hér kjörorð hans, að
söngvarinn skuli vera sú skuggsjá
sem endurspegli þá tónlist sem
hann flytur.
Efnisskrá hans var valin af kost-
gæfni og kunnáttu. Hún hófst á ít-
ölskum söngvum frá síðendurreisn
og barokk, fremur tileinkun til
feðra óperunnar en ljóðasöngsins.
„Ó, mínir hverfulu dagar“, eftir
föður hinnar flórentínsku óperu,
Jacopo Peri, var fyrsta lagið sem
Souzay söng. Síðasta ítalska lagið
var svo „Sólin yfir Ganges", eftir
Scarlatti eldri, höfund hinnar nap-
ólítönsku óperu.
Smám saman fikraði söngvarinn
sig til hinnar klassísku efnisskrár,
Schuberts og Strauss, en „Til-
einkun" hins síðarnefnda túlkaði
Souzay eftirminnanlega. En seinni
hluti tónleikanna var enn glæsi-
legri, hófst á fjórum lögum eftir
Gabriel Fauré, sungnum af stakri
innlifun. Ekki var síðra að hlýða á
þrjá söngva Tsjaikovskys við ljóð
eftir þá Tolstoy og Lermontov.
Efnisskránni lauk svo með jafn-
mörgum lögum eftir franska tón-
skáldið Henri Duparc, en Frakkar
telja þann ólánsama snilling eitt sitt
fremsta ljóðatónskáld. Lag hans
við hið fræga ljóð Baudelaires,
„Boðið til ferðar", er ef til vill skýr-
asta dæmið um náttúrulegan sam-
runa ljóðs og lags. Og flutningur
Souzays var jafnsterkt dæmi um
það hvernig slíkur samruni verður
best túlkaður.
Dalton Baldwin, þessi „hægláti
Ameríkumaður“, lék svo fimlega á
hljóðfærið að stundum lá við að
stæli senunni. Það voru einkum
sönglög Tsjaikovskys sem leiddu í
ljós snilld þessa mikla undir-
leikara, en einnig meðferð hans á
Duparc. Mun ég fjalla síðar í
greininni um framlag hans í heild.
Glenda Maurice
Bandaríska söngkonan Glenda
Maurice hefur á undanförnum
árum verið að leggja undir sig
heimaland sitt. Þótt ótrúlegt megi
virðast, þá hélt hún sína fyrstu ein-
söngshljómleika fyrir aðeins
tveimur árum. Hún er gædd breiðri
og djúpri röddu sem er einstaklega
vel fallin til að túlka þróttmikinn
ljóðasöng. Þess vegna tókst henni
best upp í flutningi sínum á
Brahms, Mahler og Rachmani-
noff, betur en í viðkvæmari söngv-
um Duparc og Poulenc.
Hið gullfallega lag Brahms, „Ég
blunda æ léttar“, söng Maurice
með miklum glæsibrag, jafnvel
harmrænni tilfinningu. Þá kom hún
Mahler til skila á óviðjafnanlegan
hátt, hvort heldur var hinum þjóð-
lega blæ „Töfrahornsins“, eða dul-
úðugum og tregafullum hljómum
Rúckert-ljóðsins. Ætla ég að þessi
fjögur sönglög eftir Mahler hafi
verið hápunktur þessara hljóm-
leika.
Að loknu hléi söng Maurice
ljóðabálk um „Vinnu málarans",
eftir franska tónskáldið Poulenc.
Þótt gaman væri að heyra þetta
sungið í heild sinni, er þetta heldur
þreytandi langhundur: Prógram-
matísk tónlist við ljóð sem ekki
verða talin í hópi þeirra bestu eftir
Éluard.
Miklu sterkari voru söngvar
Rachmaninoffs, fullir af síðróm-
antískum söknuði. Hér kom aftur í
ljós fullur styrkur söngkonunnar,
enda var þetta góður endir á erfiðri
en merkilegri efnisskrá.
Elly Ameling
Eftirvæntingin var mikil meðal
áheyrenda, þegar Ameling steig
fram á sviðið. Þessi hollenska söng-
kona stendur nú á hátindi frægðar-
innar, jafnvíg á ljóðasöng hinna
ýmsu tíma og landa, sem og
kantötu- og passíusöng barokks-
ins. Repertoríum hennar þekkir
fá landamæri.
Söngkonan hefur til að bera
þann þokka og innileik sem gerir
allt eðlilegt og tært þegar hún túlk-
ar það. Efnisskrá hennar sýndi
ljóslega hið makalausa túlkunar-
svið, frá enska barokktónskáldinu
John Weldon, til Reynaldo Hahn
og Schönbergs. Strax í „Kvöldúð"
Mozarts átti Ameling hug og
hjörtu áheyrenda. Schubert söng
hún betur en ég hef áður heyrt og
endaði á „Sælu“, einhverri feg-
urstu perlu ljóðasöngsins.
A eftir fylgdu Wolf, Brahms,
Schumann og Strauss, með slíkum
glæsibrag að líkast var að aldrei
hefði maður heyrt það fyrr hvað
þessi sönglög eru fögur.
Eftir hlé tók við franskur ljóða-
söngur og var það slíkt úrval, að ég
hika ekki við að segja að þar hafi
verið „creme de la creme“ kvölds-
ins. Debussy, Fauré, Poulenc,
Chousson og Duparc hljómuðu
undurblítt frá nótnaborði Baldwins
og söngurinn fyllti hvern krók og
kima, náttúrulegur og af ofur-
mannlegu áreynsluleysi. Bæði söng-
lög Faurés, gjöróíík og „Trega-
söngur" Duparcs hittu beint í hjart-
astað.
Eftir fylgdi spænskur söngur, lög
eftir Rodrigo og Guastavino. Am-
eling lauk svo efnisskrá sinni með
dæmigerðri aldamótatónlist,
kaffihalla- og kabarettsöngvum
eftir Satie, Hahn og Schönberg.
Yfir þeim hvfldi léttleiki óperett-
unnar, enda var söngkonan í essinu
sínu og lék á als oddi. Hvílík
stemmning!
Dalton Baldwin
Allir nutu söngvararnir þess
besta sem gerist í undirleik og svo
gerðu áhorfendur einnig. Baldwin
er í flokki þeirra píanóleikara sem
lengst hafa náð á sviði undirleiks.
Það er erfitt og óeigingjarnt starf
að dansa slíkan línudas milli þarfa
Ameling
Souzay
söngvarans og tryggðar við nótn-
askrift tónskáldsins. Til þess þarf
bæði óvenjumikið næmi og þekk-
ingu á flytjanda og verki.
Baldwin virðist öllum þessum
hnútum kunnugur. Aldrei yfirspil-
aði hann flytjandann né hlekktist
honum á í flóknustu trillum. Allt
var það gert af æðruleysi og kunn-
áttu. Þó gat maður ekki varist því
að veita frábærum undirleik hans
meiri athygli en söngnum og þar
með stal hann oft senunni. En sá
veikleiki verður að skrifast á kostn-
að neytandans og getur vart talist
listamanninum til minnkunar.
Þannig átti Baldwin ekki hvað
sístan þátt í þessari velheppnuðu
sönghátíð, enda mæddi konsert-
haldið mest á honum. Vonandi er
að við fáum að sjá og heyra meira
frá fingrum þessa manns, ef slíkri
hátíð verður fram haldið á kom-
andi árum.
Það er greinilegt að áhugafólk
um tónlist kann að meta svona fra-
mtak, enda voru listamennirnir
hylltir ákaft og þeim ekki sleppt
fyrr en að loknum nokkrum auka-
lögum. Er mér ekki örgrannt um
að íslendingum falli ljóðasöngur
betur í geð en flest önnur tegund
klassískrar tónlistar. Merki ég það
af því hátíðarskapi sem ríkti þá
daga sem þessir hljómleikar voru
haldnir, fyrir og eftir hvern kons-
ert. Um leið og ég þakka aðstand-
endum fyrir frábæra hátíð, vona ég
að hún verði ekki sú síðasta.
HBR
AUGLYSING
um frest á greiðslum
verðtryggðra
i ■ ■ a \ ■ /
lifeynssjoðslana
1. Auglýsing þessi gildix um lántakendur lifeyrissjóða innan Sambands almennra
lífeyrissjóða, SAL. Auglýsingin er birt með fyrirvara um samþykki einstakra
lifeyrissjóðsstjóma.
2. Fresturinn nær til greiðslu afborgana og verðbóta þeirra, er falla í gjalddaga á 12
mánuðum frá 1. september 1983 til 31. ágúst 1984.
3. Fresturinnfelurþað í sér, að sú fjárhæð, semkemur til greiðslu átímabilinu, verður 75%
þess, sem annars hefði orðið.
4. Sú upphæð, sem fresturinn nær til, greiðist á fyrsta ári eftir áð áður umsömdumlánstíma
lýkur.
5. Umþau 25%, semfrestað verður, gilda sömulánskjör og um upphaflegtlán. Þar á meðal
em þau bundin lánskjaravísitölu og samningsvöxtum.
6. Frestur fæst ekki á greiðslur af lánum, sem tekin verða eftir 1. september 1983.
7. Gjald fyrir breytingu láns verður reiknað samkvæmt gjaldskrá fyrir innlánsstofnanir.
8. Þeir lántakendur, sem óska eftir fresti, skulu afhenda skriflega beiðni á þar til gerðu
eyðublaði, sem liggur frammi hjá lífeyrissjóðunum.
9. Umsóknarfrestur er til 19. ágúst n.k.
Lsj.ASBogBSFI
Lsj. byggingamanna
Lsj. Dagsbninar og Framsóknar
Lsj. Félags garðyrkjumanna
Lsj. framreiðslumanna
Lsj. Landssambands vörubifreiðastjóra
Lsj. málm- og skipasmiða
Lsj. matreiðslumanna
Lsj. Nótar, félags netagerðarfólks
Lsj. rafiðnaðarmanna
Lsj. Sóknar
Lsj. verksmiðjufólks
Lsj. Vesturlands
Lsj. Bolungarvíkur
Reykjavík, 8. júli 1983
Lsj. Vestfirðinga
Lsj. verkamanna, Hvammstanga
Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði
Lsj. Iðju á Akureyri
Lsj. Sameining, Akureyri
Lsj. trésmiða á Akureyri
Lsj. Björg, Húsavík
Lsj. Austurlands
Lsj. Vestmanneyinga
Lsj. Rangæinga
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
Lsj. verkafólks í Grindavík
Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar
SAMBAND ALMENNRA LIFEYRISSJOÐA
Samræmd lífeyrisheild