Þjóðviljinn - 20.09.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrigjudagur 20. september 1983
Sumar þurrabúðirnar í Kálfshamarsvík voru fluttar á
Skagaströnd er fólkið fór og hér er ein þeirra.
Hjónin á Sviðningi: Friðgeir Eiríksson og Fanney
Haildórsdóttir.
Friðgeir grípur enn í nikkuna. Hann lék á böllunum í
samkomuhúsinu í gamla daga og spilaði t.d. alla brúð
kaupsnótt sína.
Gengið um Kálfsham-
arsvík á Skaga með
Friðgeiri Eiríkssyni,
vitaverði og bónda á
Sviðningi, og rifjað upp
annlíf sem var.
Þorpið sem hvarf
Vitinn á Kálfshamarsnesi. í klettunum er fallegt stuðlaberg.
Norðarlega á vestanverðum
Skaga í A-Húnavatnssýslu er
lítil bogadregin vík með fal-
legum stuðlabergsklettum á
báða vegu. Allbreiðursjávar-
grandi er fyrir botni víkurinnar
og tjörn innan viö. Víkin heitir
Kálfshamarsvík og norðan við
hanaerKálfshamarsnes. Þar
gnæfir viti við himin og þar er
líka allmikil bygging sem greini-
lega mámunafífilsinnfegurri.
Á víð og dreif um nesið og vík-
inaeru tóttiraf húsum. Hérvar
kominn vísir að sjávarútvegs-
þorpi á fyrri hluta aldarinnar en
nú er hver mannsrödd þögnuð
á þessum stað. Aðeins gargið í
kríunni, gnauðið í vindinum og
sjávarhljóðið ereftir. Næsti bær
í byggð við Kálfshamarsvík er
Sviðningur og þar búa öldruð
hjón, Friðgeir Eiríksson og
Fanney Halldórsdóttir. Þau
þekkja sögu þessa þorps eins
og fingurna á sér og Friðgeir er
búinn að vera vitavörður í
Kálfshamarsnesvitanum í hálfa
öld og ári betur. Hann erelsti
vitavörðurlandsins. Viðfáum
Friðgeir til að ganga með okkur
um Kálfshamarsvík og sýna
okkur staðinn.
- Mig minnir að fyrsta húsið í
nesinu hafi verið reist árið 1903.
Það var Hátún. Þar ólst upp Ingi-
björg Sigurðardóttir skáldkona í
Sandgerði. Síðan risu upp fleiri
þurrabúðir við víkina og í nesinu og
um 1930var 151 maður heimilisfast-
ur í Kálfshamarsvík. Þá var flest en
úr því fór hríðfækkandi. Árið 1936
og 1937 var fiskleysi og fólkið flutt-
ist í burt lífs eða gengið. Síðasta
fólkið fór veturinn 1947-48.
- Hér hefur verið töluverð út-
gerð?
- Já, tvær bryggjur voru við nes-
ið en fiskibátarnir voru dregnir upp
á mölina. Meðan síldin var hér úti
fyrir var líf og fjör í Kálfshamars-
vík. Síldarskipin lágu oft í vari fyrir
NA-brælu úti fyrir - allt að 100 skip
og eitt sumarið voru þau 150 - það
var nú meiri ljósadýrðin.
- Þurrabúðirnar hétu náttúrulega
allar sínum nöfnum?
- Já, á mölinni getið þið t.d. séð
tóttir af Bárubúð og Malarlandi og
þarna var Jaðar, Garðshorn og
Blómsturvellir. í holtinu austur af
nesinu voru Steinholt, Ægissíða og
Holt og úti á Kálfshamarsnesi getið
þið séð tóttir af Benediktshúsi,
Hvammi, Hátúni, Klöpp, Miðhús-
um, Iðavöllum og Kletti. Mörg af
húsunum voru flutt inn á Skaga-
strönd þegar fólkið fluttist þangað.
- En stóra húsið sem enn stendur
á nesinu?
- Þetta var samkomuhúsið okkar
og skólinn og þaðan á maður marg-
ar góðar minningar. Mér finnst
leitt að sjá hvernig húsið grotnar
niður. Frekar vildi ég að það hefði
brunnið.
- Hvencer var húsið reist?
- Það var byggt árið 1913 og
gekkst Málfundafélagið fyrir því.
Það starfaði á svipuðum grundvelli
og ungmennafélögin.
- Og það hafa sjálfsagt verið
mörg danssporin stigin hér?
- Já, og ég spilaði sjálfur fyrir
dansi. Fólk skemmti sér oft vel þó
að það væri út við ysta haf.
- Þú hefur spilað á harmoniku?
- Já, á einfalda harmoníku. Ég
spila enn, þó aðeins fyrir sjálfan
Á Kálfshamarsnesinu eru
fjölniargar húsatóttir.
Samkomuhúsið og barnaskólinn
í baksýn.
mig. Það er alltaf gaman að grípa í.
Konan og börnin gáfu mér tvöfalda
píanóharmoníku þegar ég varð
fimmtugur.
- Hvenœr var síðasta ballið hér?
- Síðasta ballið var að mig
minnir kvenfélagsball en ég man
ekki nákvæmlega hvenær það var.
— Hvað lékstu nú helst á böllum
hér?
- Ég lék ræl og polka og vínar-
kruss. Skautavalsinn var líka alltaf
vinsæll. Við hjónin vorum gefin
saman hérna á Iðavöllum og ég
spilaði fyrir dansi alla brúð-
kaupsnóttina, var búinn að lofa því
og hef ekki vanið mig á að ganga á
bak orða minna.
- Voru ekki einhverjar verslanir í
Kálfshamarsvík?
- Það voru smáverslanir. Bene-
dikt Benediktsson verslaði hér
fyrst og síðan Andrés Guðjónsson.
- Og þú hefur séð um vitann í
hálfa öld?
Já, fyrst var reistur hér Iítill viti
árið 1903 en þessi er frá 1939. Það
var þó ekki kveikt á honum fyrr en
eftir stríð því að Bretar bönnuðu að
hafa ljós á vitum. Ég tók allan
sandinn í þennan vita og flutti hann
á reiðingshestum úr víkinni.
- Hvað ertu orðinn gamall?
- Ég er 79 ára og ætla að halda
vitavörslunni meðan ég er svona
brattur.
Við förum nú aftur heim að
Sviðningi og Fanney húsfreyja
býður upp á rjúkandi kaffi og
smurt brauð. Margt ber á góma hjá
þessum elskulegu hjónum og að
lokum tekur Friðgeir nikkuna og
spilar fyrir okkur. I augu hans kem-
ur fjarrænt blik og Kálfshamarsvík
verður aftur iðandi af mannlífi.
-GFr