Þjóðviljinn - 18.11.1983, Side 20
DJÖÐVIUINN
Föstudagur 18. nóvember 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins ísíma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
„Fatnaðurinn er alla vega ódýrari en þar sem ég versla venjulega og mér
sýnast vörurnar almennt vera ódýrari“, sagði Hafdís sem einkum var að
kaupa í matinn í Miklagarði í gær. „Ég hugsa að ég komi aftur út á það“,
sagði hún. - Ljósm. Magnús.
„Eins og fólkið
sé í fríi í dag“
„Það er eins og fólk hafi bara
tekið sér fri í tilefni dagsins“, sagði
Gunnar Kjartansson, verslunar-
stjóri í Miklagarði í gær og var
hann að vonum ánægður með við-
tökur viðskiptavinanna. Hann
sagði að auðvitað kæmu menn
mikið af forvitni, en fyrst og fremst
til að versla, bæði matvöru og sér-
vöru ýmiss konar. „Það hefur verið
mikil og almenn verslun í öllum
vöruflokkum“, sagði hann.
Þegar Mikligaröur var opnaður í
gærmorgun klukkan 10 var þegar
komin biðröð viðskiptavina utan
við húsið.Örtröð var í versluninni
allan daginn og fór vaxandi eftir því
sem á leið. Starfsmenn skiptust á,
enda var opið fram til klukkan 22
og hið sama verður uppi á teningn-
um í dag.
Sjá2
Flokksmið-
stöðin í eigu
Sigfúsarsjóðs
Alþýðubandalagið hefur komið
sér upp flokksmiðstöð að Hverfis-
götu 105 í Reykjavík. Á efstu hæð
hússins á horni Snorrabrautar og
Hverfisgötu hefur Alþýðubanda-
iagið búið um sig í austurálmunni
er snýr að lögreglustöðinni og utan-
ríkisráðuneytinu, en vesturálman
verður leigð út. Hér er um rúmgott
húsnæði að ræða sem gjörbreytir
aðstöðunni til félagsstarfs á vegum
flokksins miðað við það sem var á
Grettisgötu 3, þar sem Alþýðu-
bandalagið var áður til húsa.
„Ég vil nota þetta tækifæri til
þess að flytja þeim flokksfélögum
sem hafa lagt fram fjármuni til
hússins þakkir flokksins“, sagði
Svavar Gestsson í upphafi lands-
fundar Alþýðubandalagsins í gær.
„Framlög þessa fólks hafa gert
okkur kleift að ljúka mikið til við
framkvæmdir. Um leið og ég flyt
ykkur þakkir Alþýðubandalagsins
fyrir framlög ykkar og stuðning vil
ég láta þess getið að Hverfisgata
105, efsta hæðin, er nú að fullu og
öllu eign Sigfúsarsjóðs. Sigfúsar-
sjóður átti yfir sjötíu prósent í
eigninni Grettisgötu 3, en að öðru
leyti var Grettisgatan í eigu nokk-
urra hluthafa. Þeir hafa nú nær allir
gefið Sigfúsarsjóði sinn hlut. Ég
flyt þessum einstaklingum þakkir
flokksins fyrir framlag þeirra."
Svavar gat þess einnig að húsn-
æðið að Hverfisgötu 105 hefði
styrkt flokkinn og starf hans á síð-
ustu mánuðum, eins og best hefði
komið fram í kosningabaráttunni.
Eignastaða flokksins hefði batnað
á árinu, en Alþýðubandalagið á-
kveður meirihluta stjórr.ar Sigfús-
arsjóðs. _ ekh
Leitað leiða til að
geyma iifur í skipum
Áhugi að vakna á að nýta lifur betur en hingað til
Við erum með mann um borð
í skuttogara um þessar mundir
til að gera tilraunir með nýtingu
á slógi. Þar er um að ræða
þrennskonar tilraunir. I fyrsta
lagi slógmeltu blandaða
maurasýru í tanki, í öðru lagi
lifrarmeltu blandaða maura-
sýru og loks að finna leiðir til að
geyma lifur lengur en nú er
hægt með niðurlagningu eða
aðra vinnslu til manneldis I
huga, sagði Sigurjón Arason
hjá Hafrannsóknastofnun í
samtali við Þjóðviíjann í gær.
Þetta eru sannarlega gleðitíðindi
þar sem mikill skortur er á lifur til
niðurlagningar, þar sem henni er
nú allri hent á togurunum, eins og
skýrt var frá í Þjóðviljanum í gær.
Sigurjón sagði að svo virtist sem
áhugi væri að vakna á að finna
leiðir til að geyma lifur um borð í
togurunum. Þær tilraunir sem nú er
verið að gera miða við að í 10 daga
veiðiferð yrði allt slóg sett í tanka
til slógmeltugerðar fyrstu 5 veiði-
dagana. Síðan yrði lifrin hirt sér
síðustu 5 veiðidagana með vinnslu í
landi í huga. Sigurjón tók fram að
þær tilraunir sem nú er verið að
gera eru á algeru byrjunarstigi, en
samt sem áður skref í rétta átt.
- S.dór
Karfaveiðitilraun Hólmadrangs:
Bjartsýnir á framhaldið
Japanir voru ánægðir með rauðari karfann
Sem kunnugt er af fréttum, eru
Japanir tilbúnir til að greiða mjög
gott verð fyrir karfa, ef hægt er að
halda rauða litnum, sem á honum
er þegar hann kemur úr sjó. Munu
þeir vera tilbúnir til að greiða jafn
hátt verð og greitt er fyrir þorsk.
Vegna þess var gerð tilraun um
borð í togaranum Hólmadrang
með að frysta karfa um borð, en til
slíks eru tæki um borð í togaranum.
Jaþanskur sérfræðingur var með í
ferðinni. Að sögn Þorsteins Inga-
sonar, sem annaðist tilraunina fyrir
útgerðina tökst þetta í alla staði vel
með rauðari karfann, en til eru
tvær tegundir af karfa og er mikill
litarmunur á þeim.
Þorsteinn sagði að sér virtist að
vel væri hægt að uppfylla kröfur
Japananna og að hann væri bjart-
sýnn á að af karfaveiðum fyrir þá
yrði. Hann sagði ennfremur að
Japani sá sem annaðist tilraunina
fyrir þá væri nú farinn til síns heima
og þau 9 tonn sem veidd voru og
fryst um borð færu til Japan, þar
sem fiskurinn yrði skoðaður. Varla
væri að vænta svars frá Japan fyrr
en eftir 2-3 mánuði.
Það sem gert er við karfann er
einfaldlega það að gert er að hon-
um og hann hausaður og síðan
frystur.
- S.dór
Ragnheiður Steindórsdóttir í hlutverki Elízu í My Fair Lady á Akureyri, en sú leiksýning hefur sett allar
áætlanir úr skorðum vegna mikillar aðsóknar.
My Fair Lady á Akureyri
Setur allt úr skorðum
Sýningar Leikfélags Akureyrar á
My Fair Lady eru að setja allt á
annan endann hvað varðar fyrir-
hugað vetrarstarf félagsins.
Fimmtán sýningar eru að baki.
Hefur verið uppselt á þær allar,
cinnig á næstu fjórar sýningar og
aðgöngumiðapantanir farnar að
berast á sýningar í desember.
Svo mjög hafa utanbæjarmenn
sóst eftir aðgöngumiðum að Akur-
eyringar hafa orðið hálfgerðar
hornrekur í sínu eigin bæjarfélagi.
Reykvíkingar hafa hópast norður,
Hornfirðingar að búast til ferðar,
svo ekki sé nú talað úr þeim byggð-
arlögum,sem nær liggja.
Aðdráttarafl My Fair Lady hefur
ýmsar afleiðingar. Ráðgert hafzi
verið að Arnar Jónsson færi með
stórt hlutverk í Þjóðleikhúsinu og
áttu æfingar á því leikriti, „Svejk í
annarri heimsstyrjöld", að hefjast í
næsta mánuði. Én guð má vita hve-
nær My Fair Lady sleppir af Arnari
og varð hann að biðjast undan því
að taka þátt í sýningum á Svejk.
Galdra-Loftur átti að vera jóla-
leikritL.A. En jafnvel hann verður
að láta í minni pokann fyrir Lady.
Verða Akureyringar nú að feta í
slóð Castros og fresta jólunum, að
þessu leyti, fram í janúarlok.. mhg