Þjóðviljinn - 19.11.1983, Síða 4

Þjóðviljinn - 19.11.1983, Síða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 19. - 20. nóvember 1983 Fegurðin er meðmœlabréf, sem veitir lánstraust, en samt aðeins skamma hríð. Ninon de Lenclos. „Kviknar tregi, kólnar geð“ Herdís Andrésdóttir (1858- 1939) var liðtæk skáldkona á sinni tíð og það var raunar tví- burasystir hennar, Ólína, líka. Hér prentum við nokkrar stökur eftir Herdísi og brot úr ljóðum. Ævintýri heitir þetta málverk Jóhanns. Ein á báti Ég heffengið af því nóg oft með sára lófa, út á lífsins ólgusjó ein á báti að róa. Sjaldan hefur lognblíð lá létt á þreyttum mundum, það hefir gefið oftast á og ýfir gengið stundum. Pegar ég eygði engin lönd og ekkert fann mér skýli, þá hefir drottins hjálparhönd haldið bát á kili. Þú, sem elskar alla menn og allra greiðir veginn, lofaðu mér að lenda senn við landið hinum megin. Meðalhófið Kviknar tregi, kólnar geð, krókótt beygist gata. Mér var eigi mennt sú léð meðalveginn rata. Neyta handa og huga skalt, heims að standast tálið. Pegar hann andar á þig kalt, aftur vandast málið. Margra váru mörkuð skeið manna, er báru snilli. Skall á fár, því skekktist leið skers og báru milli. Stökur Norðri gnauðar vinda verst, vefur hauður böndum. Blettur auður enginn sést, allt er í dauðans höndum. Lífið kól, því lágt og hátt laut og skjólin fyllir. - Par til sól úr suðurátt sæ og hóla fyllir. List Jóhanns Briems á bók og sýningu Út er komin bók um Jóhann Briem listmálara á vegum Lögbergs og Lista- safns ASÍ - hún geymir eftirprentanir 64 málverka og teikninga og textann hefur Halldór Björn Runólfsson list- fræðingur skrifað. Um leið er opnuð hjá Listasafni ASÍ sýning á málverkum Jó- hanns frá fimmtíu ára ferli. Bók og sýning spanna allan feril Jóhanns - frá námsárum til þeirra verka sem Björn Th.Björnsson kallar „svo áræðin í litum og skipun að stundum heldur við tómleika“, þar sýnist stundum komist af með sem allra minnst: „Fjólublátt naut sem varpar risvöxnum skugga sínum á stóran okkurgul- an flöt. Annað ekki. Og þó. Þetta er mögnuð myndsýn sem grípur okkur fang- in“... Halldór Björn Runólfsson segist hafa lagað texta sinn mjög að þeim myndum sem bókin sýnir og því sé m.a. hægt að nota hann sem viðbótarupplýsingar um þær. Textinn er, segir höfundur mest byggður á athugun myndanna, en ekki nema að litlu leyti á viðtölum við Jóhann Briem. En lista- maðurinn hefur verið mér mjög innan handar, því hann er einn þeirra fáu lista- manna sem hefur haldið mjög vel öllum heimildum til haga, á skrá yfir allar myndir sínar, veit hvert þær hafa farið. Þetta hefur komið sér mjög vel. Um list Jóhanns kemst Halldór m.a. svo að orði: „Trú hans á menningarlegt gildi listarinnar ljær verkum hans ásýnd einlægni og alvöru, í anda sígildrar listar fremur en listar okkar tíma. Hann hefur gætt sérstöðu sinnar á sannfærandi hátt með því að reynast trúr persónulegum einkennum. Það hefur leitt hann æðrulausan gegnum tímabil óvissu og erfiðleika, þaðan sem hann hefur komið tvíefldur í listsköpun sinni." Sverrir Kristinsson hjá Lögerbergi sagði að tveim fyrri bókunum í flokknum (um Eirík Smith og Ragnar í Smára og lista- verkagjöf hans) hafi verið tekið mjög vel í fyrra af gagnrýnendum og ætlunin væri að halda áfram með þennan bókaflokk og gefa eina-tvær bækur á ári. Bókagerðarmenn hefðu og unnið verk sfn með prýði og hefði aldrei komið til greina að leita til útlanda með vinnslu á þessum bókum. Tryggvi Þór Aðalsteinsson í stjórn Lista- safnsins sagði, að starfsemi þess greindist í nokkra þætti. Það sýndi eigin myndir í sal sínum - en meginhluti þeirra verka væru úti í sýningu á vinnustöðum og stofnunum. Þá væri efnt til margvíslegra sýninga í salnum. Og einnig væri mikilsvert fyrir safnið að eiga aðild að útgáfu myndlistarbóka - það væri enn ein aðferðin til að koma myndlist á framfæri við almenning. Þorsteinn Jónsson safnstjóri minnti og á það, að með undirbúningsvinnu að lista- verkabókum eignaðist safnið mikinn fjölda af litfilmum sem kæmu sér vel fyrir marga. Það er reyndar enn einn þáttur í starfsemi Listasafns ASÍ að gefa út litskyggnuraðir og eru þrjár komnar út nú þegar... Þess má og geta, að Jóhann Briem hefur mjög komið við sögu myndskreytinga á þjóðsögum, fornum dönsum, ævintýrum og fleiri ritum - ennfremur hefur hann sjálfur myndskreytt ferðabækur sínar þrjár frá Grænlandi og Austurlöndum. _áh Ferðamenn á Lækj- artorgi. Húsið lengst til vinstri er Prestaskólahúsið (nú Karnabær), þá eru tvö sambyggð hús sem Árni Thor- steinsson landfógeti bjó í en hýsa nú Hressingarskáiann. Tvflyfta steinhúsið er hús Eyþórs Felix- sonar kaupmanns (afa Ásgeirs Ás- geirssonar forseta).

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.