Þjóðviljinn - 19.11.1983, Side 27

Þjóðviljinn - 19.11.1983, Side 27
Helgin 19. - 20. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 27 Það er auðvitað hægt að brosa, jafnvel blikka blítt, þótt ekki séu allir sammála um hver skuli verða varaformaður Alþýðubandalagsins. Hér eru fulltrúar úr „kvennaarminum“ og lýðsarminum“ ánægðir að sjá. (Ljósm. - eik - ) ,verka- Umræðulotur og framboðsspenna á landsfundinum: Fjölþætt sjónarmíð eit úrslítm óviss Landsfundi Alþýðu- -bandalagsins var fram hald- ið á Loftleiðahótelinu í gær- morgun með almennum stjórnmálaumræðum. Þær umræður áttu samkvæmt dagskrá að standa til kl. 14.30 en stóðu framundir kvöldmat. Ýmsir höfðu orð á því að margir færu í ræðu- stól af litlu tilefni, en aðrir sögðu nauðsynlegt að fá að heyra álit sem flesti a lands- fundarfulltrúa á stöðu lands- mála á fundi sem þossum. Eitt af stærstu málu.n þessa landsfundar eru þær laga- og skip- ulagsbreytingar sem þai verða lagðar fram. Ljóst var, bæði á ræðumönnum í almennu umræð- unum og einnig í tali manna á „göngunum" að ekki eru allir sam- mála þeim hugmyndum, sem þær fela í sér. Ragnar Arnalds alþingismaður sagði í sinni ræðu að flokkurinn færi útá ystu nöf varðandi laga og skipulagsbreytingarnar. Hann sagði að sér litist ekki á að flokkur- inn þynntist út í smáhópa. Svo voru aftur á móti aðrir sem töldu þessar breytingar til mikilla bóta og enn aðrir sem töldu margt athyglisvert í tillögunum en annað vafasamt. Það má því búast við fjörugum um- ræðum þegar tillagan verður lögð fyrir fundinn. Einn ræðumanna í gær, Sverrir Hjaltason úr V- Húnavatnssýslu benti á í sinni ræðu að 40% reglan gæti orðið vafasöm fyrir sum Alþýðubandalagsfélögin. Nefndi hann sem dæmi að í síriú félagi væru 10% af félögum af öðru kyninu en 90% af hinu. Þar gæti orðið erfitt að 40% reglunnar. uppfylla skilyrði Sýnum að við höfum meiri kjark en íhaldið Jóhannes Gunnarsson mælti fyrir tillögu sem mótmælir einokun á eggjasölu og sölu svínakjöts. Sagði Jóhannes að hann skoraði á landsfundarfulltrúa að sýna meiri kjark en landsfundarfulltrúar íhaldsins gerðuá sínum landsfundi, þegar þeir vísuðu þessu sama máli frá. Ég skora á landsfundarfulltrúa Alþýðubandalagsins að samþykkja þessa tillögu. Jóhannes færði skýr rök fyrir því að einokun á sölu þess- ara matvæla myndi leiða til mun hærra vöruverðs en ella. Augljóst var að næsti ræðumað- ur, Steingrímur J. Sigfússon, al- þingismaður var ekki alveg á sama máli og Jóhannes í eggjamálinu, því hann sagði að samkeppnin ætti ekki að ráða öllum hlutum. Að öðru leyti fór ræða hans í að tala fyrir sérstakri ályktun um umhverf- isvernd og auðlindir. Menn hafa haft orð á því að Al- þýðubandalagið væri að fjarlægjast verkalýðshreyfinguna. Björn Arn- órsson kom aðeins inná þetta mál í sinni ræðu og benti á að megin þorri fólks í BSRB, fóstrur, félagar í verslunarmannafélögunum og jafnvel hluti af félögum í BHM væri fólk með laun á bilinu 12-14 þúsund krónur á mánuði. Hvar á þá að draga mörkin hvað sé lág- launafólk og hvað ekki? Hver á að draga mörkin hve vítt hugtakið verkalýður nær? Pá er að geta þess að um miðjan dag í gær hófst fundur hjá félögum úr aðildarfélögum ASÍ, sem gjarnan er kallaður verkalýðsarm- ur Alþýðubandalagsins, þar sem þeir ætluðu að ræða hvort þeir byðu fram sem sérstakur hópur eða með öðrum hætti til þeirra emb- ætta er kjósa á menn til á lands- fundinum. Var á þeim að heyra að þeir væru ekki ánægðir með sinn hlut. Þeir virtust ekki ánægðir með að „kvenna-armurinri' sem svo er kallaður biði einn fram til varafor- mannsembættisins. Framboðsspenna All mikið var líka um skyndi- fundi og hvíslingar hjá konunum á fundinum. Upp kom sú hugmynd í gær að setja 4 nöfn á blað, tvær konur og tvo karla, til varafor- mannsframboðs og fela síðan kjör- nefnd að velja eitt þessara nafna. Ekkert formlegt kom þó fram í gær um þetta mál. Það fór samt ekki fram hjá neinum sem fylgdist með lands- fundarstörfum í gær að all mikil spenna var á fundinum vegna fram- boðsmálanna. Var vart um annað rætt þar sem tveir eða fleiri komu samún á göngunum, í matartíman- um eða kaffihléi. Sumir höfðu orð á því að þeir söknuðu meiri snerpu á fundinum. Bentu þá aðrir á að kannski væri bara um að ræða lognið á undan storminum. Hvort svo er eða ekki mun dagurinn í dag og á morgun skera úr um. - S.dór Gott hjá íslensku liðunum í gær Stórsigur FH FH hafði bæði tögl og hagldir í fyrri leik sínum við Israelsmenn í annarri umferð Evrópukeppni í handbolta. 35 sinnum lá boltinn i marki ísraelsmanna í Laugar- dalshöllinni í gærkvöldi, en þeir skoruðu 19 á móti, - 16 marka munur, og ættu FH-ingar ekki að þurfa að kvíða síðari leiknum sem háður verður á sunnudags- kvöld í Hafnarfirði og hefst um áttaleytið. Flest mörk FH í gær skoraði Kristján Arason (10), Pálmi Jónsson og Atli Hilmarsson skoruðu 7 mörk hvor. Á undan FH-leiknum keppti íslenska kvennalandsliðið við hið bandaríska og sigruðu íslending- ar; 18:15. Guðríður Guðjóns- dóttir skoraði 8 mörk í leiknum. ísland vann einnig fyrsta leikinn, og á morgun gæti kvennalands- liðið innsiglað bandarísku heimsóknina endanlega, en þá keppa liðin á Selfossi og hefst leikurinn kl. 15. - VS/m Margt var talað og mikið hlustað á landsfundinum í gær.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.