Þjóðviljinn - 19.11.1983, Qupperneq 7
Viðtal við Örlyg Kristfinnsson listmálara frá
Siglufirði sem sýnir nú í Gallerí Langbrók
F ólk og fuglar
eru mitt
yrkisefni
Ungur Siglfirðingur, Örlygur
Kristfinnsson að nafni, sýnir nú
olíumálverk í Gallerí Langbrók í
Bernhöftstorfu. Þaðerekki oft
sem siglfirska myndlist berá
góma í höfuðstaðnum og var
því ekki úrvegi að svífa áörlyg
og spyrja hann dálítið út úr.
- Hefur þú lengi stundað mynd-
list, Örlygur?
- Ég hef verið viðloða myndlist
frá því að ég fór í Myndlistarskól-
ann fyrir 14 árum. Ég er borinn og
barnfæddur Siglfirðingur en fluttist
þangað aftur fyrir 7 árum til að setj-
ast þar að.
- Hvernig þrífst myndlist á
Siglufirði?
- Það eru alltaf einhverjir áhuga-
málarar eða leikmenn á öllum
stöðum og svo er um Siglufjörð.
Það hafa verið nokkuð margar sýn-
ingar þar undanfarin ár, svona 2-3
á ári. Á svokölluðum menningar-
dögum í maí hafa búsettir og burt-
fluttir Siglfirðingar verið fengnir til
að sýna.
- Starfar þú eingöngu að mynd-
list?
- Ég kenni hálfa kennslu og hef
reynt að vinna að myndlistinni með
henni.
- Hefurðu haldið sýningu áður?
- Ég hef haldið þrjár sýningar á
Siglufirði. Sl. vor sýndi ég ásamt
kunningja mínum sem var með
ljósmyndir. Þar á undan var ég
með sýningu þar sem eingöngu
voru gömul hús. Hún var eiginlega
sögulegs eðlis. Ég skoðaði gömlu
húsin á Siglufirði vel og teiknaði
þau síðan og vatnslitaði. Þetta var
sumpart til að vekja athygli á þess-
um ágætu húsum sem sum eru
mjög niðurnídd og alveg að
hverfa.
- Ertu þá fyrst og fremst í real-
isma eða naturalisma?
- Nei, á þessari sýningu er ég
með miklu frjálsari myndgerð. Ég
mála núna beint á léreftið án nokk-
Örlygur: Þetta eru sálrænir
fuglar. Ljósm.: -eik.
urrar umhugsunar og læt það koma
sem vill koma. Myndirnar bera
keim af því og eru sumar dálítið
furðulegar. Það er mjög spennandi
myndgerð að sjá hvað kemur út úr
penslinum með þessum hætti. Að
sumu leyti eru þetta þó naturalisk
verk. Fólk og fuglar eru mitt yrkis-
efni að mestu leyti.
- Eru þetta fuglar og fólk á þín-
um heimaslóðum?
- Nei, fuglarnir koma innan frá,
eins konar sálrænir fuglar sem ekki
eru til. Á fyrstu sýningunni minni
fyrir 6 árum á Siglufirði voru fugl-
ar. Þeir eru mér eitthvað hug-
leiknir.
- Er þetta fyrsta sýningin þín
utan Siglufjarðar?
- Nei, ég hef tekið þátt í þremur
samsýningum á Akureyri og Húsa-
vík. Þar sýndu norðlenskir málarar
og svo tók ég þátt í einni sýningu
meðal gamalla nemenda MA á Ak-
ureyri. Þetta er hins vegar í fyrsta
sinn sem ég kem með myndir suður
yfir heiðar.
- Er ekki salurinn í Gallerí
Langbrók alltof lítill fyrir olíumál-
verk?
- Ég er með fremur smáar olíu-
myndir svo að salurinn hentar mér
ágætlega.
Sýningin stendur til 27. nóvem-
ber og er opin alla virka daga kl. 12
- 18 og laugardaga og sunnudaga
Fjórhjóladrifin Subaru sendibifreið árgerð
1983 á frábæru lækkuðu verði: aðeins kr.
199.000.00. Raunverð kr. 225.587.00.
Subaru high roof
700 van er lipur
og sparneytin
sendibifreið, en
þó enginn aukvisi
þegar til átaka
kemur. Fjórhjóla
drifið og lággír
sjá til þess að Su-
baru 700 er nán-
ast óstöðvandi í
slæmri færð.
Akið ekki út í óvissuna - akið á fjórhjóladrifnum Subaru.
INGVAR HELGASON s 3356o
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI
BÚÐIN
Laugavegi 41 — Sími29488
Skiptiborð og baðkar ( senn.
Tvær geröir um að velja. Frístand-
andi á gólfi eða baðkari.
I Hirsla með ótal möguleikum.
I
I
I
I
I
I
I
Burðarpoki: Þessi poki er ekki
einungis hentugur, heldur eykur
hann hin nánu tengsl milli móður
og barns. Hönnunin verður að
vera þannig að barnið fái réttan
stuðning. Barnalæknar hafa mælt
með gerð okkar sem hægt er að
nota næstum strax eftir fæðing-
una vegna þess hve vel hann
styður við bakið. Sá sem ber
barnið er með báðar hendur laus-
ar. Sterkt bómullarefni ser.i
auðvelt er að þvo. Tvær gerðir.
Ferðafélaginn: heima og heiman.
Undirlegg úr bómull með 4 stór-
um vösum fyrir bleiur og þess
háttar. Plastklædd dýna í miðju
sem auðvelt er að strjúka af,
Lndirloygið má þvo.
Barnastólar með
linum bökum.
hörðum og |
r
LÆKNAHUSIB Síðumúla 29 Sími: 85788
SKURBSTOFUR LÆKNASTOFUR RANNSÓKNASTOFUR Almennar skurðlækningar Barnaskurðlækningar Blóð- og þvagrannsóknir Bæklunarskurðlækningar Svæfingar/deyfingar Þvagfæraskurðlækningar Æðaskurðlækningar
Höfum opnað lækningastofur okkar í „LÆKNAHÚS- INU“, Síðumúla 29 Reykjavík. Viðtalsbeiðnir í síma 85788 á milli kl. 13.00 og 18:00 daglega. Egill A Jacobsen Sérgrein: Skurðlækningar og þvagfæraskurðlækningar
Guðmundur Bjarnason Sérgrein: Skurðlækningar og barnaskurðlækningar
Guðmundur V. Einarsson Sérgrein: Þvagfæraskurðlækningar
Halldor Jóhannsson Sérgrein: Skurðlækningar og æðaskurðlækningar
Hannes Finnbogason Sérgreinar: Skurðlækningar
Ingvar E. Kjartansson Sérgrein: Skurðlækningar og æðaskurðlækningar
Jón Sigurðsson Sérgrein: Svæfingar og deyfingar
Matthías Kjeld Sérgrein: Meinefnafræði
Páll Gíslason Sérgrein: Skurðlækningar
Sighvatur Snæbjörnsson Sérgrein: Svæfingar og deyfingar
Sigurjón Sigurðsson Sérgrein: Bæklunarlækningar
Valdemar Hansen Sérgrein: Svæfingar og deyfingar
Þórarinn Ólafsson Sérgrein: Svæfingar og deyfingar