Þjóðviljinn - 19.11.1983, Qupperneq 9
Helgin 19. - 20. nóvember 1983 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 9
tónlist
klassískar plötur
Anne-
Sophie
Mutter
og
Mozart
AMME-SOPHIE / RICCARDO
j
Wolfgang Amadeus Mozart:
1756-1791
Konsertar fyrir fiðlu
og hljómsveit
nr. 2 í D-dúr, KV 211
og nr. í D-dúr, KV 218.
Flytjendur: Fílharmóníu-
hljómsveit Lundúna
Einleikari:
Anne-Sophie Mutter
Stjórnandi: Riccardo Muti
Útgefandi: EMI (HMV) 067-43229T
digital DMM, 1982
Dreifíng: Fálkinn
Unnendur klassískra platna hafa
undanfarin ár fylgst meö frama
þýska fiðluleikarans Anne-Sophie
Mutter og undrast hæfileika þess-
arar ungu stúlku. Hún stendur nú á
tvítugu og virðist hafa náð hálfu'
lengra en aldurinn gefur til kynna.
Opið mánud. - föstud.
9-6
laugard. - sunnud.
1-5
Magnús Þórðarson hdl.
Árni Þorsteinsson sölustj.
Fasteignasalan
Bolholti 6, 5. hæð,
sími 39424 og 38877.
Þekktur gagnrýnandi orðaði það
svo, að erfitt væri að ímynda sér
hvernig hún gæti komist öllu fram-
ar. Það var eftir að hún hafði
hljóðritað Fiðlukonsert Brahms
undir stjórn Herberts von Karajan
(DG 2532 032 digital). Allt frá 7
ára aldri hefur Mutter verið að
bæta skrautfjöðrum í hatt sinn, en
þá vann hún fyrstu verðlaun í sam-
keppni ungra hljóðfæraleikara sem
þýska ríkið stóð fyrir. Fjórum
árum síðar vann hún aftur þessi eft-
irsóttu verðlaun og síðan hefur
frami hennar verið tryggður.
Flestar upptökur Mutter hafa
verið gerðar fyrir hljómplötufyrir-
tækið Deutsche Grammophon, en
síðan 1981 hefur hún einnig leikið
inn á plötur hjá EMI. Ofangreind
plata er einmitt ávöxtur samstarfs
við það fyrirtæki og í stað von Kar-
aj an sem frá 1976 hefur verið henn-
ar „direttore primo“, leikur hún
hér undir stjórn eins fremsta
stjórnanda heims af yngri kynslóð-
inni, ítalanum Riccardo Muti.
Þetta er hrífandi útgáfa á 2. og 4.
fiðlukonsert Mozarts, en áður hef-
ur Mutter leikið 3. og 5. konsertinn
undir stjórn von Karajans ásamt
Berlínar-fílharmóníunni (DG 2531
049, 1978). Öryggi og festa gefur
leik Mutter mjög klassískt yfir-
bragð, en um leið er túlkunin
þrungin tilfinningu. Þótt 4. kons-
ertinn sé að formi til og uppbygg-
ingu þroskaðra verk en sá nr. 2,
tekst Mutter að laða fram óvæntar
hliðar á fyrra verkinu svo vart verð-
ur fundinn munur á dýpt í túlkun
nema síður væri. Miðkaflinn í 2.
konsertnum verður t.d. kristöllun
hlýju og næmis, sannkölluð snilld-
armeðferð.
Þá er stjórn Mutis létt og mjúk
og undirstrikar hann vel leikandi
eðli konsertanna. Gæta ber þess að
Mozart samdi alla fiðlukonserta
sína á einu ári, 1775, þegar hann
var aðeins 19 ára gamall. Þótt í
þeim rnegi finna mikinn þrótt er
hann meir í ætt við lífsgleði yngri
ára en dramatík hinna síðari. Túlk-
un Mutis er í samræmi við það.
Ekki dregur það úr gildi plöt-
unnar að hún skuli vera tekin upp
með digital-tækni og skráð beint
(Direct Metal Mastering), þannig
að hún er laus við allt aukasuð í
bakgrunni og hljómarnir berast
beint úr upptökusalnum til
áheyrandans. Það er einna líkast
því að hafa hljómsveitina og ein-
leikarann inni í stofu hjá sér.
Að ofangreindu má sjá að hér er
á ferð óvenjuvönduð hljómplata í
alla staði. Flutningur er meistara-
legur og tóngæði í alla staði frábær.
hbr
Lesendur athugiö!
Ertu að kaupa eða selja
íbúð?
Ef svo er erum við til í slaginn!
H
ELECTROLUX
ÖRBYLGJUOFN
JÓLAGJÖF
FJÖLSKYLDUNNAR
TIL SJÁLFRAR SÍN
2000KR.UTB
2000 A MAN
IAUK VAXTA OG KOSTN.
HRi
W kn kn
UTBOÐ í|r
Tilboö óskast í bleyjur fyrir Borgarspítalann
og fleiri sjúkrahússtofnanir.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboö veröa opnuð á sama stað miðvikudag
21. des. 1983 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Góð
merki
gott
verð
Opiö mánud.—fimmtud. kl. 12—18, föstud. 12—19, laugard. kl. 12—6.
MARKAÐSHÚSIÐ, SIGTÚNI 3, 2. HÆÐ
Þaö hafa margir gert góð kaup nú þegar á splunku-
nýjum vörum í Markaðshúsinu, Sigtúni. Með þess-
ari auglýsingu erum við að minna á okkur og þær
geysigóöu vörur sem á boðstólum eru:
Karnabær, Belgjageröin (vinnuföt), Sportval (sportfatnaöur),
Bikarinn (sportfatnaöur), Henson (íþróttafatnaöur), Utilíf (sport-
fatnaöur), Æsa (skartgripir), Assa (tízkuföt, barnaföt), S.K.
(sængurfatnaður), Libra (fatnaöur), Gallerí Lækjartorg (hljóm-
plötur), Raftak (rafmagnsvörur), Lagerinn (fatn. á alla fjölskyld-
una), Tindastóll (S.H.-gluggatjaldaefni), G.M.-prjónagarn,
Prjónastofan Katla (ísl. prjónapeysur), K. Helgason (sælgæti),
M. Bergmann (sængurfatnaöur).
Þegar þú ert búin(n) aö verzla, sestu niður í ró og næöi á
kaffiteríunni.