Þjóðviljinn - 19.11.1983, Page 13
Helgin HL - 20. nóvember 1983 ÞjÓÐVlLjlNN - SÍÖÁ 13
Stofnsamningur
Skeljungs/Shell á íslandi
Ár 1955, föstudaginn þann 9. desember kl. 5 síðdegis, voru eftirtaldir
menn saman komnir ífundarsal í húsbyggingu H/F „Hamars"
T ryggvagötu 2 Reykjavík, í því skyni að stofna hlutafélag til verzlunar
með benzín og hverskonarolíurog annan skyldan varningo.fi.:
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson, forstjori, Lágaf elli, Mosfellssveit
Geir Hallgrímsson, hdl., Dyngjuv. 6, Reykjavík
Björgúlfur Ólafsson, læknir, Arnesi, Seltjarnarnesi
Kjartan Thors, frkvstj. Smárag. 13, Reykjavík
Hallgrímur A. Tulinius, frkstj., Blönduhlið 27, Rvík
Ólafur Jónsson frkvstj. Tjarnargötu 3, Sandgerði
F.h. Sveins Jónssonar frkvstj. Tjarnarg. 3, Sandgerði, Ól.Jónss.
Sverrir Júliusson útgerðarm. Sogamyrarbl. 32, Rvík
Birgir Kjaran hagfr. Asvallag. 4, Rvik
F.h. Þorbjörns Jóhannessonar kaupm. Flókag. 59, Rvík, B.Kjaran
Einar Sigurðsson forstjóri, Bárugötu 2, Rvík
Magnús Andrésson forstj. Reynimel 35, Rvik
Björn Ólafsson stórkaupm. Hringbraut 10, Rvík
Guido Bernhöft stórkaupm. Garðastræti 44, Rvík
F.h. Ólafs Hauks Ólafssonar stórk.m. Reynimel 35, Guido Bernhöft
Ragnar Jónsson verslunarstj., Vik
Björn Hallgrímsson framkv.stj. Fjólug. 19 A, Rvík
F.h. Magnúsar Gamalíelssonar útgm. Ólafsfirðl, Davið Ólafsson
Böðvar Kvaran fulltrúi, Soleyjarg. 9, Rvík
F.h. Haraldar Böðvarssonar útgerðarm. Akranesi, Böðvar Kvaran
F.h. Sturlaugs H. Böðvarssonar útgerðarm. Akranesi, Böðvar Kvaran
F.h. Karls Karlssonar kaupm., Norðf irði, Böðvar Kvaran
Gunnar E. Kvaran stórkaupm. Smárag. 6, Rvik
Jónas Jónsson frkvstj. Grenimel 13, Rvík
Einar Guðflnnsson útgerðarm., Bolungarvík
Axel Kristjánsson frkv.stj. Ásveg 5, Hafnarfirðl
Ólafur Þórðarson frkv.stj. Ægissfðu 54, Rvík
Hermann Vilhjálmsson frkvstj. Austurveg 11, Seyðisf irði
F.h. Haralds Faaberg skipamiðlara, Laufásv. 66, Rvfk, Ó.A. Gfslason
ÓskarA. Gíslason skipamiðlari, Skaftahlíð 13, Rvik
F.h. Ásgrims Hartmannssonar bæjarstjóra, Ólafsf irði,
GunnarHalidórsson
Rögnvaldur Jónsson forstjóri, ísafirði
Lárus Á. Ársælsson útgerðarm., Vestmannaeyjum
Ingimar Brynjólfsson stórkaupm., Baugsv., Reykjavík
Tómas M. Guðjónsson úgerðarm., Vestmannaeyjum
F.h. Ágústs Matthíassonar forstj., Vestm.eyjum, T.M. Guðjónsson
F.h. Þorsteins Sigurðssonar útgerðarm. Ve. T.M. Guðjónsson
F.h. Gísla Þorsteinssonar útgerðarm. Ve. T.M. Guðjónsson
Halldór H. Jónsson arkitekt Ægissfðu 88, Rvik
Ágúst Hafberg frkvstj. Blönduhlíð 2, Rvík
Ingótfur Fr. Hallgrímsson frkvstj. Eskifirðl
Árni Snævarr verkfr. Laufás vegi 46, Rvík
Thor Ó. Thors viðsklptafr. Hólavaltag. 13, Rvik
Frlðþjófur Jóhannesson frkvstj., Vatnseyrl
Thor R. Thors frkvstj., Mikiubraut 18, Rvik
Richard Thors forstjórl, Sóleyjargötu 25, Rvík
Jósafat J. Lfndal skrifstj. Kópavogsbraut 30, Kópavogi
Ólafur Björnsson fulltrúi Laufásvegí 58, Rvik
F.h. Sigurðar Steindórssonar ftr. Sólv.g. 66, Ól. Björnsson
F.h. Einars Stelndórssonarfrkvstj., Hnífsdal, Haligr. Fr. Hallgrfmsson
F.h. Matthiasar Guðmundssonar frkvstj. Þlngeyrl, Hallgr. Fr. Hallgríms-
son
Stofnsamningur
Olíufélagsins /Esso á íslandi
Undirritaöir, sem ákveöiö hafa, samkvæmt ákvæðum laga nr. 77,
frá 27. júní, 1921 að stofna hlutafélag í eftirgreindum tilgangi, gera
meö sér svofelldan
Stofnsamning
1. Félagið heitir Olíufélagið h/f. Heimlli þess og varnarþing er í Reykja-
itík.
2. Tilgangur félagsins er að flytja inn og verzla með brennsluolíur,
smurningsolíur og aðrar þvilíkar vörur.
3. Hlutafé er ákveðið 975.000 kr. - níu hundruð sjötíu og fimm þúsund
krónur -. Hver hlutur er að upphæð 5.000 kr. - fimm þúsund krónur.
Leggja stofnendur og aðrir væntanlegir hluthafar mættir á stofn-
fundi hlutaféð fram á eftirfarandi hátt:
Samband Isl. Samvinnufélaga, Reykjavík
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri
Kaupfélag Isfirðinga, Isafirði
Olíusamlag Keflavikur og nágr., Keflavík
Samvinnufélag útgerðarmanna, Norðfirði
Olíusamlag Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum
Ástþór Matthíasson, Vestmannaeyjum
Elías Þorsteinsson, Keflavik
Karvel Ögmundsson
Kjartan Guðmundsson, Vestmannaeyjum
Skúli Thorarensen, Reykjavík
Halldór Jónsson, Reykjavík
Jakob Frímannsson, Akureyri
Egill Thorarensen, Selfossi
Vilhjálmur Þór, Reykjavík
Kr. 240.000,00
- 195.000,00
- 50.000,00
- 90.000,00
- 45.000,00
- 90.000,00
5.000,00
- 5.000,00
- 1 5.000,00
5.000,00
- 100.000,00
5.000,00
5.000,00
5.000,00
5.000,00
Samtals Kr. 850.000,00
Hlutafjársöfnun er enn ekki lokið:
Heimilt skal stjórn félagsins að auka hlutaféð um allt að kr.
1.000.000,00 - elnni miljón króna - sem skiptist (fimm þúsund króna
hluti, enda hafi hluthafar forgangsrétt tll að skrifa síg fyrir nýjum
hlutum í hlutfalll við hlutafjáreign þeirra.
Til aukningar hlutafjár þarf annars samþykki félagsfundar. " '
4. Kostnaður við stofnun félagsins greiðist af því sjálfu.
5. Engin sérréttindl fyigja neinum hlutum i félaginu, en fyrir nýjum
hlutum hafa hluthafar rétt til að skrifa sig i hlutfalli við hlutafjáreign
sína.
lagsins. Þetta samstarf náðist, en af
þeim aðilum sem þar áttu hlut að
máli má meðal annars nefna olíu-
samlög, sem útgerðarmenn í Kefla-
vík og Vestmannaeyjum höfðu
stofnað. Þetta samstarf hefur hald-
ist síðan, og hefur það gefið góða
raun til eflingar félaginu. Sam-
bandið, samstarfsfyrirtæki þess og
kaupfélögin eru aðalhluthafar í fé-
laginu og hafa frá byrjun átt meiri-
hluta í því, en olíusamlög og út-
gerðarfélög eiga þó umtalsverða
hluti. Þar á meðal er Olíusamlag
Keflavíkur, sem á myndarlegan
hlut eða um 9% hlutafjár, en í hópi
annarra eigenda eru t.d. Bæjarút-
gerð Reykjavíkur, Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar, Hvalur hf. o.fl.“
Vilhjálmur Þór var í tvöföldu
hlutverki á stofnfundi Esso á ís-
landi. Stærsta hlutinn átti SÍS en
nokkrir einstaklingar voru einnig á
meðal stofnenda. Einn þeirra var
Vilhjálmur Þór. KEA á Akureyri
átti næst stærsta hlutinn. Kaupfé-
lagsstjóri þess, Jakob Frímannsson
er einnig skrifaður persónulega
fyrir hlut í fyrirtækinu. Aðrir ein-
staklingar voru útgerðarmennirn-
ir: Astþór Matthíasson og Kjartan
Guðmundsson úr Vestmannaeyj-
um, Karvel ögmundsson úr Njarð-
víkum og Egill Thorarensen Sel-
fossi auk Halldórs Jónssonar skrif-
aðir fyrir hlutum.
Auk SÍS og KEA áttu hluti:
Kaupfélag ísfirðinga, Olíu samlag
Keflavíkur og nágrennis,
Samvinnufélag útgerðarmanna
Norðfirði og Olíusamlag
Vestmannaeyjum. Og eru þá
stofnendur Esso á íslandi upp tald-
ir.
Karvel Ögmundsson útgerðar-
maður er enn í stjórn Olíufélags-
ins. Þar er einnig Kristján Loftsson
(Hval), Haraldur Gíslason útgerð-
armaður í Vestmannaeyjum og
Ólafur Björnsson útgerðarmaður í
Keflavík.
Auk þessara eru arftakar Sam-
bandsmanna nú í stjórn: Valur
Arnþórsson KEA og stjórnarfor-
maður SÍS, Oddur Sigurbergsson
Selfossi, Ólafur Sverrisson Borgar-
nesi og Hjörtur Hjartar Reykja-
vík.
Sömu aðilar reka Olíustöðina í
Hafnarfirði og Olíustöðina í Hval-
firði. Þar eru þeir Oddur, Valur,
Hjörtur og Karvel í stjórnum auk
Gríms E. Thorarensen í Kópavogi.
Olíufélagið Esso keypti olíustöð
bandaríska flotans í Hvalfirði 1947
og hefur meginviðskipti sín við am-
ríska herinn á Miðnesheiði, en það
er önnur sorgarsaga.
Áður en kemur
að pennastrikinu
Það þarf í sjálfu sér ekki að vera
óeðlilegt að útgerðarfyrirtæki og
fiskvinnslufyrirtæki eigi olíufélög,
- en ef það er svo eins og sterkar
líkur benda til, þá hljóta ýmsar
spurningar að vakna. Hvers vegna
er olíuverð til fiskiskipa mun hærra
hér á landi en annars staðar? Og
hvers vegna beina ekki útgerðar-
menn spjótum sínum í átt til olíu-
félaganna?
í ljósi þess að 85% fiskiskipaflot-
ans er í eigu fiskvinnslufyrirtækja. í
ljósi þess að fiskvinnslufyrirtækin
sem bera sig betur en útgerðin,
eiga einnig útflutningsfyrirtækin á
sjávarafurðum, sem einnig bera sig
vel - og í ljósi þess að þau sölufyrir-
tæki eiga fullvinnslufyrirtæki og
dreifingarfyrirtæki erlendis sem
bera sigeinnig vel, þáfermaður að
spyrja um millifærslur á fjármagni?
Þegar svo bætist við að veigamikill
þáttur í kostnaði fiskiskipa, olían
frá olíufélögunum virðist vera jafn
samtengdur forystu umboðanna og
áðurnefndar upplýsingar gefa til
kynna, þá spyr maður hvort „vandi
útgerðarinnar" sé máske ekki bara
„blöff“ eins og pennastrikið hjá
fjármálaráðherranum?
Og framkvæmdastjóri LÍÚ ætti
ef til vill heldur að beina hneykslun
sinni á dýrri olíu til félaga sinna í
samtökunum. Og áður en útgerð-
armenn fá næst ausið úr ríkissjóði,
mætti eftirlitsvaldið á alþingi
gjarnan athuga hvort milliliðagróði
olíufélaganna auk skylds reksturs
gæti ekki komið í stað pennastriks.
-óg
Fótmál
Fótmál heitir nýútkomin bók
Birgis Svan Símonarsonar. Þetta er
fímmta ljóðabók Birgis, og hefur
að geyma 37 ljóð með mynd-
skreytingum eftir Sigrid Valtingo-
jer
I ljóðunum bregður höfundur
gjarnan fyrir sig áhrifaríku mynd-
máli úr hversdagslegu umhverfi ís-
lensks sjávarpláss og gefur því nýja
og óvænta merkingu. Yrkisefnin
eru sótt í náttúru landsins, mannlíf
og lífsbaráttu í íslensku sjávar-
plássi, líf dýranna og fleira, og víða
eru ljóðin borin uppi af heitri til-
finningu. Gott dæmi er kvæðið Á
Þingvöllum:
hljóðbœrt vatnið
í bláhring sofandi fjalla
nóttin ber rauða skikkju
strýkur boga yfir
bassastreng fossins
úr drekkingarhyl
rísa konur
með glóð í augum
af kaldadal
kemur vindurinn
og blœs í kaunin
einsog böðull
Myndir Sigrid Valtingojer eru
vel gerðar og falla vel að efninu.
Bókin er gefin út á kostnað höf-
undar og fæst í Bókaverslun Máls
og menningar, hjá Eymundsson og
í Bóksölu stúdenta.
ólg.
Engin bylting í
myndgerðinni
Þorbjörg Höskuldsdóttir sem opnar sýningu
„Það er engin bylting í myndgerð-
inni hjá mér“, sagði Þorbjörg
Höskuldsdóttir myndlistarmaður,
sem í dag, laugardag, opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Listmuna-
húsinu, Lækjargötu 2.
Þorbjörg sýnir í kringum 30 titla,
málverk og teikningar. Myndirnar
eru nokkuð smærri í sniðum en oft-
ast hafa sést á sýningum hennar og
sagði hún það tilviljun. Allar eiu
myndirnar unnar á þessu ári, þetta
eru náttúrustemmningar að hennar
sögn.
Þorbjörg er fædd í Reykjavík
1939. Hún stundaði nám í Mynd-
listarskóla Reykjavíkur og síðar
við Konunglegu Akademíuna í
Kaupmannahöfn. Hún hefur hald-
ið þrjár einkasýningar: í Gallerí
SÚM 1972 og á Kjarvalsstöðum
1977 og 1981. Hún er aðili að
„Vetrarmynd“ og hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga.
Sýningin í Listmunahúsinu, sem
er sölusýning, er opin virka daga
frá kl. 10-18, laugardaga til sunnu-
dags frá 14 til 18 en á mánudögum
er lokað. Sýningin stendur fram til
4. desember.
-ÁI