Þjóðviljinn - 19.11.1983, Síða 18
ættfrædri
Nýr flokkur 10
18 SIÐA
ÞJÓÐVILJINN Helgin 19. - 20. nóvember 1983
Sjaldan fellur
eggið langt frá
hœnunni
Og nú er
það að
klekjast út
Moggalyndi
Petta '
verður
fyrirrnyndar
varphtena
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í
eftirfarandi:
RARIK-83015. Götugreiniskápar og tengibún-
aöur fyrir jaröstrengi.
Opnunardagur: fimmtudagur 15. desember
1983, kl. 14:00
RARIK-83016. Aflstrengir og ber koparvír.
Opnunardagur: þriðjudagur 13. desember
1983, kl. 14:00
RARIK-83017. Lágspennubúnaður í dreifi-
stöövar.
Opnunardagur. mánudagur 12. desember
1983, kl. 14:00
RARIK-83018. Háspennubúnaöur í dreifi-
stöðvar.
Opnunardagur: miðvikudagur 14. desember
1983, kl. 14:00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík,
fyrir opnunartíma og veröa þau opnuð á sama
staö að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og með mánudegi 21. nóvem-
ber 1983 og kosta kr. 100.- hvert eintak.
Reykjavík 18. nóvember 1983
Rafmagnsveitur ríkisins.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Á síöustu öld og fram á þessa
bjó á Sómastöðum í Reyðar-
firði Hans Jakob Beck (1838-
1920) hreppstjóri og frum-
kvöðull í útgerð og verslun.
Faðir hans var danskur kaup-
maður en móðir hans ensk-
íslensk. Hans Jakob var tví-
kvæntur og eignaðist alls 23
börn sem flest komust upp. Var
56 ára aldursmunur á elsta
barni hans og því yngsta. Var
hann orðinn 81 árs er yngsta
barn hans fæddist. Margt
merkra manna er komið af Hans
Jakob og má þar nefna bræð-
urna sr. Jakob Jónsson og
Eystein ráðherra og Unnstein
Beck tollstjóra. Fyrri kona hans
var Steinunn Pálsdóttir frá
Karlsskála en börn þeirra sem
uppkomust voru Páll, Kristinn,
Richard, Helga Amalía, Sig-
ríður Hansína, Eiríkur, Guðný
Jóhanna, Steinunn Elísabet,
Ingibjörg, Þórólfur og Þórunn.
Seinni kona hans var Mekkín
Jónsdóttirog börn þeirra, sem
Hans Jakob
Beck
Steinunn
Sigríður Beck
Kristinn
Beck
Margrét
Einarsdóttir
Örn
Einarsson
Ætt Hans Jakobs Beck
upp komust Jakobína, Jónína,
Elísabet, Ásta, Unnsteinn,
Laufey, María og Árni. Hér og í
næstu blöðum verða raktir af-
komendur Hans Jakobs Beck
en börnum innan við tvítugt þó
sleppt.
la. Páll Beck (1863-1943)
hreppstjóri á Sómastöðum, kv.
Maríu Katrínu Sveinbjarnardótt-
ur. Börn þeirra:
2a. Steinunn María Beck (f.
1902), gift Valdimar Bjarnasyni
verkamanni á Fáskrúðsfirði,
seinna í Rvík. Kjörsonur þeirra:
3a. Páll Beck Valdimarsson (f.
1941) rennismiður í Rvík.
2b. Sigríður J. Beck (f. 1904) á
Seltjarnarnesi, gift Birni Gott-
skálkssyni útgerðarmanni. Sonur
þeirra:
3a. Gottskálk Björnsson (f.
1935) læknir. Fyrri kona hans var
Sesselja Friðriksdóttir
röntgenlæknir, en seinni kona
Berglind Gísladóttir. Dóttir hans
af fyrra hjónabandi:
4a. Sigríður Steinunn Gott-
skálksdóttir (f. 1956) myndlistar-
nemi í San Fransisco.
2c. Sveinbjörn Beck (f. 1904,
látirin) á Reyðarfirði. Óg. og bl.
2d. Hans Jakob Beck (f. 1907)
bóndi á Sómastöðum. Ókv. og bl.
2e. Guðrún Beck (f. 1909) á
Sómastöðum. Óg. og bl.
lb. Kristinn Beck (1866-1945)
bóndi á Kollaleiru í Reyðarfirði,
kv. Þuríði Eyjólfsdóttur. Börn
þeirra:
2a. Steinunn Sigríður Beck (f.
1899) á Reyðarfirði, gift Einari
Guðmundssyni timburmanni á
m.s. Heklu. Börn þeirra:
3a. Kristinn Einarsson (f. 1925)
skólastjóri Grunnskólans á
Reyðarfirði, kv. Ragnheiði I. Ein-
arsdóttur. Börn yfir tvítugt:
4a. Einar Már Kristinsson (f.
1954) verkamaður á Eskifirði, kv.
Júlíönu Haraldsdóttur.
4b. Ragnheiður K. Kristinsdótt-
ir (f. 1956) á Eskifirði, gift Gunn-
laugi E. Ragnarssyni bókhaldara.
4c. Margrét Steinunn Kristins-
dóttir (f. 1957) á ísafirði, gift Vil-
bergi Prebenssyni mjólkurfræði-
nema.
4d. Tómas Örn Kristinsson (f.
1961) háskólanemi, býr með Elísa-
bet Tómásdóttur.
4e. Kristinn Ingi Kristinsson (f.
1962) bakaranemi á Reyðarfirði.
3b. Már Einarsson (1926-1943).
3c. Margrét Einarsdóttir (f.
1929) gift Marínó Sigurbjörnssyni
verslunarstj. á Reyðarfirði. Börn
yfir tvítugt:
1. hluti
4b. Einar Marínósson (f. 1951)
viðskiptafræðingur f Rvík.
4c. Sigurbjörn Marínósson (f.
1956) íþróttakennari á Reyðar-
firði, kv. Sigríði Ólafsdóttur
verslm.
4d. Marínó Már Marínósson (f.
1959) skiptinemi í Bandaríkjunum.
4e. Guðný Soffía Marínósdóttir
(f. 1961) verslm. í Rvík, gift Har-
aldi Kr. Haraldssyni tæknifræð-
ing>-
3d. Örn Einarsson (f. 1932)
prentari í Blaðaprenti í Rvík, kv.
Steinunni Önnu Guðmundsdóttur.
Börn:
4a. Guðmundur Arnarson (f.
1955) trésmiður í Kópavogi, kv.
Maríu. Frímannsdóttur skrif-
stofiirnanni.
4b. Már Arnarson (f. 1959)
verkamaður í Rvík.
4c. Anna María Arnardóttir (f.
1961) nemi í Noregi, býr með Karli
Rafnarssyni matsveini.
2b. Hans Ríkharð Beck (1901-
1971) bóndi á Kollaleiru í Reyðar-
firði, kv. Hallfríði Guðmundsdótt-
ur. Börn þeirra:
3a. Þuríður Beck (f. 1937) versl-
unarmaður í Rvík, gift Jóni Gunn-
ari Júlíussyni bflstjóra. Dætur
þeirra:
4a. Hallfríður Jónsdóttir (f.
1959), gift Sæmundi Hauki Har-
aldssyni verslm.
4b. Kristín Jónsdóttir (f. 1960)
skrifstm., býr með Guðmundi
Berki Kristinssyni nema í bifvéla-
virkjun.
3b. Ingiborg Beck (f. 1938), gift
Metúsalem Kærúlf bflstjóra á
Reyðarfirði. Elsta barn þeirra:
4a. Jón Lárus Kærúlf (f. 1963)
nemi.
3c. Kristinn Beck (f. 1944)
starfsmaður Vegagerðarinnar á
Reyðarfirði. Ókv. og bl.
3d. Guðmundur Már Beck (f.
1950) bóndi á Kollaleiru, kv. Höllu
Kjartansdóttur.
3e. Þorbjörg Beck (f. 1954)
verkakona á Reyðarfirði, gift Þór-
arni Baldurssyni verkamanni.
2c. Sæbjörg Jóhanna Beck (f.
1902) á Reyðarfirði, býr með Stef-
áni Bjarnasyni á Ósi. Bl.
2d. Kristinn Beck (f. 1903) bfl-
stjóri í Valhöll á Reyðarfirði, kv.
Ingeborg Nielsen. Dóttir þeirra:
3a. Kristín Beck (f. 1933) í
Rvík, gift Sigurði Jónssyni tann-
lækni þar. Eldra barn þeirra:
4a. Inga Sigurðardóttir (f.
1956) kennari, gift Þórði Þórðar-
syni starfsmanni Brunabótafélags-
ins.
(Næsta sunnudag verður lokið við
að segja frá afkomendum Kristins
Beck og haldið áfram að öðru leyti
með niðjaskrá Hans Jakobs Beck).
-GFr
blaðið
sem vitnaðerí
Norræna húsið
P.C. Jersild
Dagskrá í Norræna Húsinu
sunnudaginn 20. nóvember ki. 16
Njörður P. Njarðvík kynnir skáldið og les úr
þýðingu sinni á bókinni Eftir flóðið.
Guðrún Backmann les úr þýðingu sinni á
Bjarnaeyjunni.
P. C. Jersild les úr verkum sínum.
Verið velkomin.
4a. Steinunn Marínósdóttir
verslm. (f. 1948), gift Sigurði
Viðari Benjamínssyni rannsóknar-
lögreglumanni í Rvík.
NORRÆNA HÚSIÐ MÁL OG MENNING