Þjóðviljinn - 16.12.1983, Side 6

Þjóðviljinn - 16.12.1983, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. desember 1983 Samtök prentiðnaðarmanna í Bretlandi skiljanlega þraut við það, sam- tökin voru dæmd í hálfrar miljón punda sekt, sem er langhæsta sekt sem getur um í Bretlandi. Að auki voru allar eigur félagsins teknar eignarnámi til bráða- birgða, til að tryggja greiðslur. Hægrisinnuð Forstjóra- samtök að baki Harðneskja og staðfesta prentsmiðjueigandans í Warring- ton kom flestum á óvart. Miklu stærri aðilar höfðu áður átt í svip- uðum deilum við prentara og látið deigan síga, þrátt fyrir hin nýju lög, enda verkalýðssamtök prentiðnaðarins allra félaga best skipulögð og samstæðust í vinnu- deilum. Nú hefur hins vegar komið í ljós að bak við hinn stór- huga prentsmiðjumann frá Warr- ington standa Forstjórasamtökin bresku (Institute of Directors), afskaplega hægri sinnað lið, sem um hríð hefur verið að leita að einhverjum til að láta reyna á hin nýju lög í orrahríð við verkalýð- inn. Warrington fyrirtækið er lítið á mælikvarða breska prent- iðnaðarins og því ekki erfitt fyrir auðkýfinga Forstjórasamtak- anna að bæta eigandanum tjón ef illa færi. Ekki er enn ljóst hvernig fer. Breska Alþýðusambandið hefur heitið stuðningi sínum, en hefur þó heldur dregið lappirnar. Al- þjóðasamtök prentiðnaðar- manna hafa ennfremur lofað að komi til allsherjarverkfalls starfsfélaga sinna í Bretlandi muni þau koma í veg fyrir að breskir prentsmiðjujarlar fái verkefni sín unnin í öðrum löndum. Erfitt er að segja um úr- slit deilunnar, en þó er ljóst að tapi verkalýðshreyfingin eru samtök prentiðnaðarins ekki ein- ungis gengin fyrir ætternisstapa heldur er Ijóst að hin nýju lög munu óspart verða notuð til að beygja breskt verkafólk að vild þeirra sem eiga völd og auð. Berjast fyrir lífi Skærur og á stundum blóðug átök hafa átt sér stað milli þúsunda prentara á verkfallsverði og harðvít- ugs lögregluliðs undan- farnar vikur, og eru nú að snúast upp í átök um ný- legar lagasetningar íhalds- stjórnarinnar sem skerða verulega verkfallsrétt. Komið hefur í Ijós að hin hægrisinnuðu Forstjóra- samtök eru einn helsti hvat- inn á bak við herferðina gegn verkalýðssamtökum prentiðnaðarins, sem ný- lega voru dæmd í hæstu sekt sem um getur í sögu breska réttarkerfisins, fyrir að neita að gegna fyrr- nefndum lögum. Um miðja síðustu viku létu svo dóm- stólar taka eignarnámi allar eigur samtakanna, eftir að þau neituðu að greiða sekt- irnar. Verkfallsréttur skertur Eitt af helstu kosningaloforð- um íhaldsflokksins var að minnka stórlega verkfallsréttinn, og því marki var náð með laga- setningum fyrir síðustu kosning- ar. Hvers kyns samúðaraðgerðir verkafólks sem ekki er beinn aðili að vinnudeilum eru nú ólöglegar, verkfallsverðir mega ekki vera fleiri en sex til að minnka þrýsting á verkfallsbrjótum, og fyrirtæki sem verða fyrir fjárhagstjóni sökum samúðarverkfalla geta nú krafið viðkomandi verkalýðsfé- lag um skaðabætur. Þrátt fyrir lögin hefur enginn atvinnurek- andi fyrr en nú treyst sér til að láta reyna á lögin, sem verkalýðs- hreyfingin hefur lýst vantrausti á, og leiðtogar hennar margir látið uppi að þeir séu reiðubúnir til að gista dýflissur Hennar Hátignar fremur en virða þau. Blóðug átök Upptök núverandi deilu voru tiltölulega léttvæg. Minniháttar prentsmiðjueigandi í Warrington braut samkomulag við samtök prentiðnaðarmanna um að með- limir þeirra ættu forgang að at- vinnu. Boðað var til verkfalls og þegar prentsmiðjueigandinn lét sér ekki segjast komu þúsundir prentara hvaðanæva að úr Bret- Íandi til verkfallsvörslu og nánast lokuðu fyrirtækinu þrátt fyrir blóðug átök við geysifjölmennt lögreglulið. Eftir fjölmenna verkfallsvörslu um skeið leitaði eigandi prentsmiðjunnar á náðir hinna nýju laga, og til að byrja með voru samtök prentiðnaðar- manna sektuð um 50 þúsund pund og skipað að draga meðlimi sína af verkfallsverði. Þessu neituðu samtökin eins kurteis- lega og unnt var, og boðuðu þess í stað til samúðarverkfalla í Fleet Street þar sem blómi hinna bresku dagblaða er til húsa, en sínu þau höfðu haft uppi ekki mjög diplómatískt andóf gegnum prenturum í þessu máli. Að þessu loknu voru samtökin dæmd í aðra sekt, 150 þúsund pund, og í skjóli hinnanýju laga létu nú forkólfar Fleet Street til skarar skríða og kröfðust þriggja miljón punda skaðabóta fyrir framleiðslutap meðan á samúð- arverkfallinu stóð. Ekki hefur enn komið bilbugur á prentara, þeir svöruðu Fleet Street með því að boða til nýs verkfalls og neituðu enn að borga sektina. Þolinmæði dómstólanna Helgi Ólafsson skrifar um skákeinvígin Jafntefli í 10. skák Riblis og Smyslovs: Ribli í sömu stöðu og Kortsnoj Ungverska stórmeistaranum Zoltan Ribli tókst ekki að færa sér í nyt ávinning þann sem venjulega hfýst af því að stjórna hvítu mönnunum þegar 10. ein- vígisskák þeirra félaga var tefld í London í gær. Smyslov var aldrei í neinni hættu og eftir að- eins 30 leiki varð Ribli að sætt- ast á jafntefli enda bauð staðan ekki upp á neinar vinningstil- raunir. Ribli bíður nú sama erfiða verk- efni og Viktor Kortsnoj, hann þarf að vinna báðar skákirnar sem eftir eru til að eiga möguleika á áfram- haldandi þátttöku í áskorenda- keppninni. Staða hans er harla vonlítil þegar litið er til þess að Smyslov hefur hingað til haft yfir- burði á flestum sviðum skáklistar- innar. Skákin í gærkveldi var sennilega ein sú tilþrifaminnsta í einvíginu. Ribli komst ekki upp með neinn moðreyk og þurfti að grípa til stór- felldra uppskipta til að vega á móti þrýstingi Smyslovs eftir hinni hálf- opnu a-línu. Hann forðaðist að lenda í verri stöðú en vinnings- möguleika fann hann að sama skapi enga. 10. einvígisskák: Hvítt: Zoltan Ribli Svart: Vasily Smyslov Grunfelds-vörn 1. Rf3! (Ribli fetar í fótpor Napóleons sem ávallt lék öðrum riddara sinna fram í fyrsta leik. Þetta er tuttugasta ein- vígisskákin sem tefld er í London og jafnframt sú fyrsta sem hefst ekki á drottningarpeðsbyrjun.) 1. .. Rf6 2. g3 d5 3. Bg2 g6 4 . e4 c6 5. b3 Bg7 6. Bb2 0-0 7. 0-0 Bg4 8. d4 Re4 9. Re5 Be6 10. f3 Rd6 11. cxd5 cxd5 12. Rc3 Rd7 (Enn einu sinni hefur Smyslov sloppið út úr byrjuninni með prýðis- tafl. Ribli neyðist nú til að veikja peðastöðu sína, sem ekki kann góðri lukku að stýra þegar teflt er gegn Smyslov). 13. f4 (Eftir 1. Rxd7 Dxd7 stendur svartur síst lakar að vígi.) 13. .. Rf6 14. Dd2 Rfe4 15. Rxe4 Rxe4 16. Db4 Dd6! 17. Da4 (Ekki 17. Dxb7 Hfb8 18. Dc6 Bxe5 og svartur vinnur mann.) 17. ..Hfc8 18. Hac1 Db6 20. Hfe1 Db5 19. e3 a6 21. Dxb5 axb5 abcdefgh (Tvípeðið er fremur styrkleiki í þessari stöðu, því það gefur svört- um möguleika á að sækja eftir a- línunni. Smyslov hefur teflt byrjun- ina óaðfinnanlega.) 22. Hxc8+ (Ribli stefnir beint á uppskipti og þar með algera einföldun stöðu- nnar. Á þessari taflmennsku hans má ráða að hann hafi ekki gert sér ýkja miklar vonir fyrir skákina.) 22... Hxc8 23. Hc1 Hxc1 + 24. Bxc1 Bf5 25. Ba3 f6 26. Rd3 e6 27. Bf1 Rc3 28. Rc1 Bb1 29. Kf2 Rxa2 30. Bxb5 Rxc1 - og keppendur sömdu um jafn- tefli. Staðan eftir 10 skákir. Vasily Smyslov 6 - Zoltan Ri- bli 4. 11. skák einvígisins verður tefld á laugardaginn og þá hefur Smysl- ov hvítt. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Jólaglögg • 'T •Wísv- / .. W .mm f 'w Íb* ** % ■m *e*'- VrJ h ^ f f m íi öyH Graham Sigurgeir Haraldur p.s.: Hver verður leynigesturinn í jói- asveinaham? Æskulýðsfylkingin býður alla velkomna á sína árlegu jóla- glögg í flokksmiðstöoinni að Hverfisgötu 105 laugardaginn 17. des. kl. 20.30. Margt verður til skemmtunar, m.a. mun Graham Smith leika lög af nýútkominni plötu sinni KALINKA. Honum til aðstoðar verður Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari. Haraldur Jóns- son mun fara með gamanmál. Margt annað verður til gam- ans gert og að sjálfsögðu verður boðið upp á jólaglögg og piparkökur gegn vægu gjaldi. Mætum stundvíslega og fjölmennum! SkemmtinefndÆFAB

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.