Þjóðviljinn - 22.12.1983, Blaðsíða 1
DJOÐVIUINN
Ingibjörg Haralds-
dóttir skrifar um
Skilaboð til Söndru.
Siá bls. 8
d$sember
fimmtudagur
294. tölublað
48. árgangur
Oflug sprenging varð í Aburðarverksmiðjunni sl. sumar
Tugþúsundir Reykvíkinga gætu orðið eiturgufunni að bráð
■ ■
immmitmnHm
Hér blasir Reykjavíkurborg við Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi (ljósm.: Magnús).
„Stöðug ógnun66
segir slökkviliðsstjóri og fyrrum verkfrœðingur Áburðarverksmiðjunnar
„Starfsemi áburðarverksmiðjunnar er stöðugógnunviðnágrenni
sitt bæði vegna sprengi- og eiturhættu. Skipulagningu þéttbýlis í
minni fjarlægð en þegar er í Kleppsholti tel ég varhugaverða og
æskilegast að landrými í kringum verksmiðjuna yrði tekið til ann-
arra nota (kirkjugarða o.s.frv.).“
Svo segir í greinargerð Rúnars Bjarnasonar slökkviliðsstjóra til
Borgarskipulags Reykjavíkur 4. júní 1980 um hugsanlega byggð á
Grafarvogssvæðinu. Þess má geta að Rúnar þekkir málið vel þar
sem hann var verkfræðingur hjá Áburðarverksmiðjunni áður en
hann varð slökkviliðsstjóri.
„Hér hafa oft orðið smá sprengingar í gegnum árin. Nú síðast í
sumar er leið, varð svo öílug sprenging að jörð skalf. Þess vegna
óar okkur starfsmönnum að minnsta kosti að hafa þennan ammon-
íaktank hér alveg við verksmiðjuna. Ef hann rifnar í sprengingu
fullur af ammoníaki sleppum við trauðla lifandl. Auk þess má
benda á, að ef tankurinn spryngi fullur af ammoníaki og vindátt
væri þannig, að legði yfír Reykjavík og nágrenni, þá væri útilokað
að bjarga tugþúsundum manna sem yrðu fyrir eiturgufunni“,
sagði starfsmaður Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi til fjölda
ára í samtali við Þjóðviljann.
Þessi sami maður sagði að áhöfn
á norsku skipi sem flytur ammoní-
ak hefði ekki átt orð yfir staðsetn-
ingu stóra tanksins í Gufunesi. Þeir
sögðu að hvar sem þeir kæmu að
áburðarverksmiðju eins og þessari
væru ammoníaktankarnir hafðir
langt frá verksmiðjunum, vegna
þeirrar miklu sprengjuhættu sem
er í áburðarverksmiðjum af þeirri
gerð sem er í Gufunesi.
Þá sagði hann, að fyrir mörgum
árum hefði sprungið öryggisloki á
einum af minni tönkunum. Amm-
oníakgufuna lagði yfir járnsmíða-
verkstæðið og skrifstofubygg-
inguna. Menn þustu að sjálfsögðu
útúrhúsunum ogískjól. Einnmað-
ur, sem var seinn fyrir, veiktist
vegna þessa. Þá gat starfsmaðurinn
þess, að oft kæmi fyrir smáleki á
ammoníaki og oft yrðu smáspreng-
ingar í Áburðarverksmiðjunni, en
um þetta væri aldrei getið, enda allt
reynt sem hægt er til að fela þetta.
Hann sagði að hættulegast við allt
þetta væri, að ekki þyrfti mjög
stóra sprengingu í verksmiðjunni
til þess að stóri ammoní-
ak-tankurinn rifnaði. Sú sprenging
þyrfti alls ekki að valda skaða ann-
arsstaðar eníverksmiðjunni. Enef
stór sprenging yrði, vissu allir hvað
gæti gerst og til væru áætlanir um
neyðarhjálp hjá Almannavörnum
ef svo illa færi. Nefndi hann sem
dæmi sprengingu, sem varð í sams-
konar verksmiðju og hér er, í Finn-
landi fyrir allmörgum árum, sem
lagði allt í rúst á fleiri kílómetra
svæði umhverfis verksmiðjuna.
Einnig nefndi hann annað nýrra
dæmi, 2ja ára eða svo, þegar skip
lestað kjarna sprakk í Bandaríkj-
unum og lagði höfnina og hafnar-
svæðið þar í rúst. - S.dór.
Neyðarástand hjá þúsundum húsbyggjenda
Fá ekki lánin fyrir áramótin
Algjört neyðarástand hefur nú
skapast hjá þúsundum húsbyggj-
enda og kaupenda, vegna þess að
húsnæðislán frá Landsbanka ís-
lands, og fólk átti von á núna um
jólin, verða sum hver ekki afgreidd
fyrr en langt er liðið á janúarmán-
uð 1984! Ástæðan er gífurlegur
fjöldi sk. viðbótarlána, sem ríkis-
stjórnin hafði lofað i síðasta lagi til
útborgunar fyrir áramótin. Starfs-
menn veðdeildarinnar anna hrein-
lega ekki afgreiðslu Iána Húsnæðis-
stofnunar á tilsettum tíma.
„Álagið er slíkt á starfsmönnum
Veðdeildar Landsbankans að fólk
sem er tilbúið með alla pappíra
með lánsumsókninni í dag fær lánið
sitt ekki greitt út fyrr en í fyrsta lagi
10.-15. janúar á næsta ári. Venju-
lega hafa liðið 2-3 dagar þar til
greiðsla fer fram“, sagði Jóhannes
Jónsson hjá Veðdeild Landsbanka
íslands í gær.
„Ráðherrarnir gáfu um það yfir-
lýsingar í haust, að viðbótarlánin
yrðu afgreidd í síðasta lagi fyrir
áramót. Þær yfirlýsingar voru gefn-
ar án þess að kanna áður hvort við
einfaldlega hefðum tíma til að af-
greiða allar lánsumsóknirnar",
sagði Katrín Atladóttir, forstöðu-
maður Byggingarsjóðs ríkisins, í
samtali í gær. „Starfsmenn hjá okk-
ur hafa unnið hér alla daga vikunn-
ar fram yfir miðnætti og það er loks
nú að við sjáum fyrir endann á okk-
ar vinnu. 4.700 manns sóttu um
viðbótarlánin og áttu rétt á að fá
þau ekki fyrr en undir miðjan janú-
ar“, sagði Katrín ennfremur.
„Það má marka álagið á okkur
þessa dagana af því að við höfum
þurft að afgreiða um 6000 lánsum-
sóknir í desembermánuði einum,
sem er svipaður fjöldi og við af-
greiðum á heilu ári undir venju-
legum kringumstæðum", sagði
Katrín Atladóttir hjá Húsnæðis-
stofnun.
„Ég skil vel gremju þeirra fjöl-
mörgu húsbyggjenda og kaupenda
sem hafa gert sínar áætlanir og
treyst á útborgun húsnæðislánanna
á tilsettum tíma en fá svo þau svör
að greiðsla fari ekki fram fyrr en í
janúar. Starfsmenn Veðdeildar-
innar hafa verið allir af vilja gerðir
til að hraða afgreiðslum lána sem
mest þeir mega, en þrátt fyrir að
við höfum bætt við fjölda fólks hér
síðustu dagana höfum við hrein-
lega ekki komist yfir að anna
fleirum en raun ber vitni“, sagði
Jóhannes hjá Veðdeild Lands-
bankans að síðustu.
- v.
Ef verksmiðjan
springur:
Neyðar-
áœtlun
Almanna-
varna
Almannavarnir Reykjavík-
ur gera ráð fyrir að alvarleg
sprenging geti orðið í Áburð-
arverksmiðjunni í Gufunesi,
sem ógnað gæti Reykjavík og
nágrenni. Þess vegna er til
fullkomin áætlun um hvernig
beri að brcgðast við í slíku til-
felli, sagði Guðjón Petersen,
forstöðumaður Almanna-
varna ríkisins, í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Guðjón sagði, að fyrst eftir
að verksmiðjan var reist hafi
sprengihættan verið margfalt
meiri en nú og þá raunar verið
mikil, en þótt hættan hafi far-
ið minnkandi sé hún fyrir
hendi enn og þess vegna er
þessi áætlun til.
Þá sagði Guðjón, að nú
væri verið að senda út frétta-
bréf Almannavarna þar sem
skorað er á sveitarfélög og
kaupstaði að láta fara fram
hættumat í byggðarlögunum.
Fyrir Reykjavík kemur hætt-
an af Áburðarverksmiðjunni
inní það dæmi.
- S.dór.
Friðarblys-
förin á morgun
Friðarblysförin gegn kjarnorku-
vá verður farin á morgun frá
Hlemmi kl. 17.30. Gengið verður
niður á Lækjartorg.
10 friðarhreyfingar og hópar á
íslandi standa fyrir þessari blysför.
-óg.