Þjóðviljinn - 22.12.1983, Side 3
Fimmtudagur 22. desember 1983 ' ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Síðasta málið sem þing afgreiddi
Skipulegar aðgerðir
gegn fíkniefnum
Tillaga um skipulegar aðgerðir
gegn ólöglegum innflutningi og
dreifingu ávana- og ftkniefna var
síðasta mál sem alþingi afgreiddi
fyrir jólahlé. í þingsályktuninni er
skorað á dómsmálaráðherra að
koma nú þegar á samstarfshópi
löggæslu og tollgæslumanna er
samræmi og skipuleggi auknar að-
gerðir gegn innflutningi og dreif-
ingu eiturlyfja og athugi jafnframt
nýjar aðferðir við rannsókn fíkni-
efnamáia.
Þingmenn alira flokka fluttu
þessa tillögu sem samþykkt var
samhljóða, en fyrsti flutningsmað-
ur var Jóhanna Sigurðardóttir.
Hún fékk einnig samþykkta ásamt
Eiði Guðnasyni breytingartillögu
við afgreiðslu fjárlaga þess efnis að
öllum upptækum hagnaði af sölu
ávana- og fíkniefna yrði varið til
fyrirbyggjandi aðgerða gegn frek-
ari dreifingu og sölu slíkra efna
hérlendis.
í áðurnefndum samstarfshópi
munu eiga sæti fulltrúrar lögreglu-
og tollgæsluyfirvalda sem nú starfa
að ávana- og fíkniefnamálum og er
lagt til að hópurinn skili niðurstöð-
um og tillögum til úrbóta eigi síðar
en 1. mars á næsta ári.
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að samkvæmt könnun
sem framkvæmd var í skólum
landsins á árinu neyta um 20%
þeirra sem eru á aldrinum 15-30 ára
kannabisefna. í ár hafa verið gerð
upptæk 20 kg af kannabisefnum og
um 600 gr af amfetamíni en
heilbrigðis- og tryggingarráðuneyt-
ið áætlar að ársneysla hér innan-
lands á kannabisefnum sé um 3
tonn og er þá gengið út frá þeirri
könnun í skólum landsins sem áður
var nefnd. -lg.
Svntlii
í Ábo
Norræna húsið valdi þrjá ís-
lenska listamenn til þess að taka
þátt í sýningum undir heitinu
„teiknari mánaðarins“ á Listasafn-
inu í Ábo. Gylfi Gíslason sýndi þar í
október, Valgerður í nóvember og
Edda Jónsdóttir sýnir nú í desemb-
„Teiknari mánaðarins" var fyrst
aðeins byggð á finnskum lista-
mönnum, en safnstjórn Lista-
safnsins í Ábo ákvað að leita einnig
til listamanna annarsstaðar á Norð-
urlöndum og hófu íslendingar þá
sýningarröð. Áttaþúsund og fimm-
hundruð til tíuþúsund manns koma
í Listasafnið í Ábo á mánuði og
Valgerður Bergsdóttir, Gylfi Gísla-
son og Edda Jónsdóttir.
hefur „teiknari mánaðarins" verið
meðal vinsælustu sýninga safnsins.
Sýningum íslendinganna hefur
verið mjög vel tekið. -ekh
„Þetta var besta jólagjöfin,“ sagði Ragnar Fjalar Lárusson prestur í Hallgrímskirkju þegar silfurmunirnir
komu í leitirnar. Hér kemur hann fyrir silfurkrossinum á altarinu. Jónas frá Hriflu gaf Hallgrímskirkju
þennan kross til minningar um konu sína. Karl Sigurbjörnsson horfir á. Ljósm.: - eik.
Þrír menn sitja inni vegna innbrotsins í Hallgríms-
kirkju. Þýfið allt komið í leitirnar:
, ,Besta jólagjöfin4 4
sagði Ragnar Fjalar Lárusson
þegar RLR skilaði silfurmununum
Rannsóknarlögregla ríkisins
handtók seint á þriðjudaginn þrjá
menn sem grunaðir eru um aðild að
innbrotinu í Hallgrímskirkju að-
fararnótt laugardagsins síðasta, en
þá hurfu úr kirkjunni allir silfur-
munir hennar, þ.á m. forláta silfur-
kross sem Jónas frá Hrifiu gaf
kirkjunni tii minningar um konu
sína, 97 silfurbikarar sem notaðir
eru við altarisgöngur, oblátuaskja
og sitthvað fleira. Auk silfurntuna
höfðu þjófarnir á brott með sér
messuvín og hluta ef embættisbún-
aði sóknarpresta Hallgrímskirkju
þeirra Ragnars Fjalars Lárussonar
og Karls Sigurbjörnssonar.
15 þúsund kreditkort í gangi hér á landi:
15% viðskipta með kreditkortum
Nú munu vera eitthvað í kring-
um 15 þúsund greiðslukort í gangi
hér á landi og hefur aðsóknin í kort-
in aukist dag frá degi. Hlutur Kred-
itkorta sf. er meiri á þessum mark-
aði því korthafar fyrirtækisins eru
að sögn Gunnars Bæringssonar um
níu þúsund talsins. Talið var líklegt
að eftir lokun í gær yrðu korthafar
Visa Island um 6 þúsund talsins.
Þjóðviljinn leitaði í gær til nokk-
úrra verslana og þar kom fram að
notkun kreditkortanna er orðin al-
menn í flestum tegundum verslana.
í Miklagarði sagði Jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri að síðustu daga
og vikur hefðu viðskiptin verið
greidd að 12-15% með kreditkort-
um. í gær hófst nýtt úttektartímabil
hjá Euro-card kortþegum með ein-
daga 5. febrúar. Var jafnvel búist
við því að kaupæði gripi um sig
meðal almennings. Því var þó ekki
að heilsa og kemur það heim og
saman við ummæli Gunnars Bær-
ingssonar forstöðumanns Kredit-
korta sf. að kortþegar færu varlega
í viðskipti með kortin þó þess fynd-
ust einnig dæmi um það gagnstæða.
Fjölmörgum
neitað um kort
„Undanfarna daga hefur verið allt
vitlaust að gera hjá okkur og hafa
af þeim sökum borist kvartanir
vegna þess hversu erfitt er að ná í
okkur símleiðis. Við höfum verið
með eins sólarhrings afgreiðslu-
frest á kortum,“ sagði Gunnar
Bæringsson. Afgreiðslufrestur á
kortum Visa Island mun vera
nokkru lengri. Gunnar sagði að
ekki allir fengju kort sem um þau
bæðu, „viðskiptaferill hvers um-
sækjanda er rannsakaður," sagði
hann.
-hól.
Fulltrúar Rannsóknarlögreglu
ríkisins afhentu þeim Ragnari og
Karli silfurmunina í gær. Sagði
Ragnar Fjalar m.a. við það tæki-
færi að betri jólagjöf hefði hann
vart getað hugsað sér.
„Það er ljóst að eftir þennan at-
burð munum við endurskoða eftir-
litsmál Hallgrímskirkju," sagði
Karl Sigurbjörnsson prestur í sam-
tali við Þjóðviljann í gær. „Það má
ekki aftur gerast að munir, sem í
raun eru ómetanlegir til fjár, séu
hafðir á brott með jafn auðveldum
hætti og hér hefur gerst. Við vorum
að sjálfsögðu mjög slegnir yfir
þessu og ég hygg að svo hafi verið
með þorra almennings í landinu.
Margt af því sem stolið var hafði
verið fært kirkjunni að gjöf, elstu
silfurmunirnir voru 30 ára garnlir.
Þeir yngstu er hingað komnir á síð-
asta ári. Við erum ákaflega glaðir
yfir því að allt er komið í leitirnar
og viljum þakka þeim lögreglu-
mönnum sem að rannsókninni
unnu góð stöf,“ sagði Karl að lok-
um.
Vegna stöðu rannsóknarinnar á
þessu máli vildu fulltrúar RLR
ekkert upp gefa hvar þýfið fannst,
en bent var á það í kjölfar yfir-
heyrslna sl. þriðjudag. Þó er vitað
að það fannst í húsi í Reykjavík.
-hól.
Guniial
Gunnl
:ÓttW 'i
Stdndór
1 FRlÐR»PAt.L]ÓNSSO«
'***»’ tóksathan- — ,;
suður
sssssr*
"rl ' Út og s
ir úwarps^-^t,
páUJónsson ú nii eftir y
rtilegar *eI^r Guðmandsson
m Bernúarður G gdóuiIi
S°n’m?TálmaSóttm Guðm
on, Elm Einarsson,
son, GVöm^r Helg^son, Gunn
Lóttir, GunnJólfsdóttir, Oddny
t, Margret Jons 0mar
r, Ólafur n Sunneva Jc
ídór Sterndorssor , K)aI
vandið
^VAUÐ,—
ÞAÐ
GERUM VIÐ
bókaútgáfan
bobgabtún'I
S'. 18860 - 22^