Þjóðviljinn - 22.12.1983, Page 9
Fimmtudagur 22. desember 1983 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 9
Ragnar Arnalds um þinghaldið fram að jólum.
Afkastalítið þing
„Þetta hefur verið afkastalítið þing og fátt afgreitt
utan þessi venjulegu afgreiðslumál eins og fjármál og
brýnustu lagfæringar á skattamálum svo hægt sé að
gefa út leiðbeiningar með skattframtölum, en að öðru
leyti á alveg eftir að ganga frá skattalögum“, sagði
Ragnar Arnalds formaður þingflokks Alþýðubanda-
lagsins aðspurður um einkenni þess þings sem hélt sinn
síðasta þingfund á árinu í gær.
- Stjórnarandstaðan veitti að- legu atriðum varðandi skattalögin í
stoð við að koma þessum nauðsyn- gegn en varðandi allar stefnumót-
Meirihluti fjárveitinganefndar
Vill leggja
Iðnfræðslu-
ráð niður
andi aðgerðir þá eru mál algerlega
óútkljáð. Varðandi afgreiðslu fjár-
laga þá vekur gífurlegur greiðslu-
halli mesta athygli. Hér er opinber-
lega staðfest það sem við stjórnar-
andstöðuþingmenn sögðum strax í
haust þegar fjárlagafrumvarpið var
lagt fram.
Það hefur lítið borið á afgreiðslu
framfaramála hér á þinginu?
- Það er rétt. Framfaramál og
félagsréttindi launafólks hafa ekki
verið hér til afgreiðslu og fá önnur
stefnumál en þau sem birtast í
lækkuðum álögum á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði og skattfríðindi
fyrir eignarmenn. Fjáraustur í flug-
stöð á Keflavíkurflugvelli er at-
hyglisverður á þessum síðustu og
verstu tímum, því sú upphæð sem
þangað er útdeilt myndi duga til
allra flugvalla og flugöryggismála
hérlendis næstu 12 árin eða til að
leggja 700 km. af bundnu slitlagi.
Annars er það þessi gífurlega
kjaraskerðing sem launafólk hefur
orðið fyrir sem skyggir á allt annað
á þessu hausti. Það er alvarlegasta
áhyggjuefnið sem við stöndum
frammi fyrir og þar er enga ljós-
glætu að sjá, fremur en hitt að halli
undan fæti, nema launafólk rísi
upp og snúist til varnar.
Hefur stjórnarandstaðan náð
einhverju á þessu þingi?
- Hún hefur að sjálfsögðu borið
Ragnar Arnalds: Kjaraskerðing
launafólks skyggir á allt annað.
fram fjölmörg mál og með ýmsum
hætti haft áhrif á gang mála. Það
hefði ekki verið fallið frá samnings-
banni verkalýðshreyfingarinnar
nema fyrir tilstilii baráttu stjórnar-
andstöðunnar hér á þingi og eins
hefðu umræður um kosningalög
ekki komist hér til umræðu fyrir
jólahlé nema fyrir okkar baráttu.
Það er athyglisvert í því sambandi
hversu Framsóknarflokkurinn hef-
ur reynt allt til að koma í veg fyrir
að það frumvarp komi hér til um-
ræðu, en hér er um að ræða sam-
komulagsmál flokkanna frá síðasta
þingi. Afstaða Framsóknarflokks-
ins vekur ýmsar grunsemdir um
ólgu innan flokksins og sennilega
er einhver klofningur sem þar býr
að baki, en það er mikið
hagsmunamál að fá þetta frumvarp
í gegnum þetta þing og við munum
leggja mikla áherslu á að svo verði,
sagði Ragnar Arnalds.
-«g-
9 manna nefnd kjörin á Alþingi
lEndurskoðun
á þíngsköpum
Alþingi kaus í gær 9 manna
nefnd þingmanna til að endurskoða
gildandi lög um þingsköp Alþingis.
Er búist við að nefndin hraði störf-
um sínum eftir föngum og skili áliti
fljótlega á næsta ári.
í nefnd þessari eiga sæti allir
forsetar þingsins auk eins fulltrúa
1 frá hverjum þingflokkanna. Eftir-
taldir voru kjörnír í nefndina.í gær.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
forseti sameinaðs þings, Ingvar
Gíslason forseti neðri deildar, Sa-
lome Þorkelsdóttir forseti efri
deildar, Helgi Seljan, Eiður
Guðnason, Stefán Benediktsson,
Ólafur Jóhannesson, Kristín Hall-
dórsdóttir og Friðjón Þórðarson.
-lg-
Starfsmenn höfðu ekki hugmynd
um þennan jólaglaðning stjórnvalda
Lárus Jónsson formaður fjár-
veitinganefndar boðaði til 2. um-
ræðu fjárlaga að leggja bæri Iðn-
fræðsluráð niður frá miðju næsta
ári. Gerði fjárveitinganefnd í sam-
ræmi við það tiilögu um að lækka
launaútgjöld frá því sem stóð í
Qárlagafrumvarpi úr 4.2 miljónum
kr. í 2.8 miljónir og önnur rekstrar-
gjöld Iðnfræðsluráðs enn meir.
Fram kom í ræðu Lárusar Jóns-
sonar að breyttar aðstæður gerðu
Iðnfræðsluráð að mestu óþarft og
ráðstafa mætti annað þeim verk-
efnum sem enn þyrfti að sinna.
fest hjá Magna Laugáv.15
Engar fjárveitingar voru þó ætiað-
ar til annarra aðila vegna verkefna
í þágu iðnfræðslunnar.
Þessar hugmyndir meirihluta
fjárveitinganefndar komu heldur
flatt upp á starfsmenn Iðnfræðslu- ,
ráðs 8 talsins. Þeir höfðu ekki heyrt j
orð um að áformað væri að breyta
til á næsta ári, hvað þá að setja ætti
þá á götuna. Þeir heyrðu því þessar
fréttir á skotspónum sama dag og
tillögur um þetta komu á borð
þingmanna.
Hjörleifur Guttormsson gagn-
rýndi þessi vinnubrögð í ræðu um
fjárlögin sl. þriðjudag og bað
menntamálaráðherra um skýring-
ar. Jafnframt tók Hjörleifur fram
að ekkert væri á móti því að endur-
skoða verksvið Iðnfræðsluráðs, en
svona verklag væri hin mesta
óhæfa, ekki síst gagnvart starfs-
mönnum og iðnnemum sem Iðn-
fræðsluráð á að þjóna.
Menntamálaráðherra svaraði
engu fyrirspurnum Hjörleifs, en
við atkvæðagreiðslu daginn eftir
um fjárlagafrumvarpið óskaði Lár-
us Jónsson, formaður fjárveitinga-
nefndar eftir því að frestað yrði til
lokaumræðu um fjárlögin að gera
upp fjárveitingar til Iðnfræðslu-
ráðs. Það er því ljóst að hér hafa
verið maðkar í mysunni og kippt
hefur verið í spottann eftir fram-
komna gagnrýni á þessi vinnu-
brögð.
Lesendur athugið!
Ertu að kaupa eða selja
íbúð?
Opið mánud. - föstud.
9-6
laugard. - sunnud.
1-5
Eignaskipti eru öryggi
Vantar allar stærðir eigna á skrá
Magnús Þórðarson hdl.
Árni Þorsteinsson sölustj.
Fasteignasalan Bolholti 6, 5. h.
sími 39424 og 38877.
llækur frá Leiftri 1983
Um heima og geíma
eftir dr. Þór Jakobsson.
40 þættir um starf og
árangur visindamauua
og tilraunir Þeirra til
þess að leysa lífsgát-
uua. Á aðgengilegan
kátt er greint frá inn-
lendum og erlendum
fréttum frá rannsókn-
um i margvíslegum
fræðigreinum. Heill-
audi uppgötvauir eru
gerðar á hverju ári. -
Bókin er skreytt 75
aiyndum eftir Bjarna
Jónsson, listmálara.
212 bls. Verð: 469,00.
Augliti til auglits
Bókin fjallar fyrst og
fremst um það þegar
konur hittast. £rum
við Vesturlandabúar að
spilla tiltrú þróuuar-
landanna. Hve djúpt
ristir sú samúð, sem
við hrósum okkur af?
Höfundur litur vanda-
málin frá nýjum sjón-
arhóli og af næmleika
konusálar.
Höf.: Elin Bruusgaard.
Sigriður Thorlacius
þýddi. 231 bls.
Verð: kr. 469,00.
CAROLYN KEENE
NANCY
Orð og dæmi
25 ræður og greinar
eftir dr.Finnboga Guð-
mundsson, landsbóka-
vörð. Greinamar fjalla
um fora efni, um fáein
siðari tima skáld, um
bækur, bókasöfn og
bókamenn, um ættdr og
ættfræði — og ýmsan
annan fróðleik, sem
fólk hefur ánægju af.
301 bls.
Verð: kr. 599,00.
FRANKOGJÓI
VARÚLFUR
UM NOTT
F6ABKUNW CXXOW
Nancy-bækurnar
eru eins og hinar fyrri
bækur um þessa ein-
stöku leynilögreglu-
stúlku, skemmtilegar
og spennandi frá upp-
hafi til enda. Þcssar
bækur eru nr. 33 og 34
i sama flokki og hcita:
NANCY og lcyndarmál
knipplinganna.
NANCY og griska
leynitáknið.
Verð: kr. 266,00.
Frank ogJói
nr. 30 og 31 i bókaflokknum
um HARDY-brœður. Æsi-
spennandi að vanda og við-
burðarikar um spæjara-
störf þessara vösku stráka.
Sögurnar heita:
Varúlfur um nótt
Lykili galdramannsins
Verð: kr. 266,00.
BÆKURNAR FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM