Þjóðviljinn - 12.01.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.01.1984, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 12. janúar 1984 ÞJÓÐVILJÍNN — SÍÐA 3 Kröfugerð BSRB við ríkisvaldið Vilja sama kaupmátt og á síðasta ársfjórðungi 15 þúsund króna dagvinnulaun í kröfugerð BSRB, sem lögð verður fram á samningafundi með fulltrúum ríkisins kl. 17.00 í dag, er gert ráð fyrir 15 þúsund króna lág- markslaunum og að kaupmáttur frá 1. febrúar verði ekki minni en hann var í upphafi síðasta ársfjórð- ungs 1983. Samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans er kröfugerðin efnislega svo- hljóðandi: 1) Þegar í stað verði bættur hlutur þeirra sem við lökust kjör búa og við það miðað að enginn hafi dagvinnulaun undir 15 þúsund krónum á mánuði. Hluti kjarabóta að þessu marki mætti felast í breytingum án beinnar hækkunar launastigans, t.d. með hröðun upp- færslu sérstaklega milli lægstu launaflokka BSRB, hækkun barn- abóta og tekjutryggingar lífeyris- þega, neikvæðum tekjuskatti og hækkun skattleysismarka við álagningu tekjuskatts og útsvars. 2) Frá 1. janúar 1984 verði kaupmáttur ekki minni en í upp- hafi síðasta ársfjórðungs 1983. Þann kaupmátt skal síðan tryggja með grunnkaupshækkunum á þriggja mánaða fresti. 3) í tengslum við kjarasamninga samtaka launafólks við ríkið, sveitarfélög og aðra atvinnurek- endur, beiti ríkisstjórnin sér fyrir því að lögum um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt á þann veg að vextir og verðbótajráttur vaxta vegna verðtryggðra íbúða- lána, komi til frádráttar tekjum við álagningu útsvars á árinu 1984. Þá eru í kröfugerðinni ákvæði um að samningurinn falli úr gildi.ef stjórnvöld geri breytingar á ákvæð- unum og að hann gildi frá 1. janúar 1984. Samninganefndafundur með að- ilum verður haldinn kl. 17.00 í dag. -«g TUlagan felld í viðræðunefhd Húsaleigustyrkir og BSRB Forystumenn Bandalags jafnaðarmanna með afmælistertuna á fundinum í gær. Starfsmenn álversins: Yerkfall 27. janúar 10 félög starfsmanna álversins í Straumsvík hafa samþykkt heimild til trúnaðarráða um boðun verk- falls 27. janúar n.k. 2 félög, Rafiðn- aðarsambandið og Verslunar- mannafélagið halda fundi um verk- fallsboðunina í dag. Félög starfsmanna í álverinu hafa ætíð haft samflot í samninga- gerð við fsal, og hafa samninga- umleitanir nú staðið yfir án nokk- urs árangurs frá því í september. Samkvæmt heimildum Þjóðviljans krefjast starfsmenn þess m.a. að endurheimta kaupmáttinn frá 1982. Ef verslunarmenn og rafiðn- aðarmenn samþykkja heimild til boðunar verkfalls í dag, og það kemur til framkvæmda 27. janúar, mun það taka til uni 500 manna. -ÁI Hefði verið í fyrsta sinn sem verkalýðs- samtök bœru fram slíka kröfu hérlendis Fjórar nýjar myndavélar voru keyptar í upptökusal Sjónvarpsins á síðasta ári. Sjónvarpið: Mikið um truflanir Tíu manna viðræðunefnd BSRB felldi tillögu forystumanna samtak- anna um að taka inn í kröfugerð- ina, að ríkisstjórnin beitti sér fyrir sérstöku framlagi úr ríkissjóði til leigjenda íbúðarhúsnæðis með hliðsjón af reglunum um það efni í nágrannalöndum okkar. Samkvæmt upplýsingum Þjóð- viljans mun tillagan hafa verið flutt af Kristjáni Thorlacius formanni BSRB og Haraldi Steinþórssyni framkvæmdastjóra samtakanna. Þjóðviljanum barst í gær frétta- tilkynning frá Leigjendasamtökun- um þar sem virðist gert ráð fyrir því að tillagan yrði borin uppi af hinum fjölmennu launamannasamtökum. Þar segir að stjórn Leigjendasamt- akanna fagni tillögunni. „Þetta er í fyrsta skipti sem verkalýðssamtök hér á landi hafa sett þessa kröfu fram, þótt húsaleigustyrkir séu al- gengir í nágrannalöndunum og hafi verið lengi. Leigjendur eru að stærstum hluta það fólk sem verst hefur orð- ið úti vegna lögboðinna kjara- skerðinga valdhafa.“ En eins og áður sagði er þessi krafa ekki í núverandi kröfugerð BSRB, eftir að tillagan var felld á fundi viðræðunefndar í fyrradag. -óg Myndtruflanir hafa verið áber- andi í sjónvarpinu undanfarið. Menn hafa tckið eftir að myndir hafa átt það til að dökkna snögg- lega, einnig hafa verið rákir í út- sendingu, fyrir utan stöðvanir á út- sendingu einhverra hluta vcgna. Þjóðviljinn hafði samband við Eyjólf Valdimarsson, yfirverk- fræðing hjá Sjónvarpinu og sagði hann að þarna væri ekki um að kenna að tækjakostur þeirra væri úreltur. Dekkingin sem stundum er á myndum er til komin vegna vanstillingar í mixer, sem ekki er gamall. Eyjólfur sagði að ástandið í tækj- abúnaði sjónvarpsins væri nokkuð gott þótt ekki væri hægt að segja að þeir væru á grænni grein. Atak var gert í endurnýjun tækja á síðasta ári. Þá fékk Sjónvarpið 12 milljónir til þeirra mála og fór eitthvað fram úr þeirri upphæð. í ár er ætluð sama upphæð í tæki en þar af fara 3 milljónir í greiðslur vegna fyrra árs. Eftir eru því aðeins 9 milljónir. Fjórar myndavélar voru keyptar í stúdíóið á síðasta ári. Hver vél kostaði þrjár milljónir svo meira var ekki hægt að gera fyrir fjár- veitingu ársins. „Við þurfum að borga tolla af öllum tækjum. Það þýðir að við verðum að margfalda verð hlut- anna með 2,4 og hleypur verð þess- ara dýru tækja upp úr öllu valdi fyrir vikið.“ -jp Bandalag jafnaðarmanna 1 árs í gœr: uin forsætisráðherra Þjóðaratkvæði Fá tilefni til átaka á þingi í vetur „Við núverandi aðstæður hafa kjósendur ekki raunveruleg áhrif á hvernig landinu er stjórnað. Þess vegna leggjum við höfuðáherslu á breytingu í stjórnkerfinu. Með því að hafa þjóðaratkvæði að baki for- sætisráðherra er möguleiki á trygg- ingu fyrir því að helmingur kjós- enda standi að baki starfandi ríkis- stjórn,“ sagði Guðmundur Einars- son þingmaður Bandalags jafnað- armanna í gær. Bandalag jafnaðarmanna á eins árs afmæli um þessar mundir. Af því tilefni hélt það blaðamanna- fund í gær. Þar kom fram að ekki eru fyrir hendi beinar upplýsingar um fjölda flokksmanna en frétta- bréfi, sem hefur komið út mánaðarlega, er dreift til um 470 manns. Upplýsingum til flokksmanna hefur verið dreift með fréttabréf- inu og einnig hafa vikulega verið haldnir opnir þingflokksfundir. Þeir hafa verið vel sóttir og hafa allt upp í 35 manns verið þar saman komnir. Fyrirhuguð er blaðaútgáfa en ekki endanlega ákveðið í hvaða formi hún verður. Þingmenn Bandalagsins sögðu fá tilefni hafa orðið til átaka á þingi í vetur. En þegar færi gafst voru þingstörf lífleg og finnst þeim þing- menn utan stjórnar hafi veitt ríkis- stjórninni jákvætt aðhald. „Það hefur sýnt sig að í okkar stjórnar- fyrirkomulagi er aðhald og eftirlit verðugt hlutverk flokka utan stjórnar," sögðu talsmenn Banda- lagsins. Einnig telja þeir að fjöldi flokka á þingi þurfi ekki að há starfinu þar, heldur endurspegli það einungis að skoðanir lands- manna eru skiptar. -jP

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.