Þjóðviljinn - 12.01.1984, Side 8

Þjóðviljinn - 12.01.1984, Side 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. janúar 1984 Vinna við tölvuskjái Fósturlát og vansköpun? í Bandaríkjunum og Svíþjóð þykja frumrannsóknir benda til þess að hætta sé á fósturláti hjá konum sem vinna við tölvuskjái. Þannig hefurt.d. komið fram að á skrifstofum bæjarfélags í Svíþjóð sé tíðni fósturláta 80%, sem annars sé um 15%. í tímariti opinberra starfsmanna í Svíþjóð koma þessar upplýsingar fram en tekið er fram að enginn geti með vissu sagt til um þessa hættu, þarsem fullnægjandi rannsóknir hafi ekki verið gerðar. í tímaritinu (SKTF- tidningen) er sagt að á mörg- um vinnustöðum í Bandaríkj- unum hafi verið bent á aukna tíðni fósturláta hjá konum sem vinna við tölvusjái og að vaxandi ótta gæti vegna þessa. í blaðinu eru viðtöl við konur sem hafa misst fóstur og unnið við tölvuskjái. Þá hefur komið fram að yfir standi viðamikil könnun á áhrifum þessarar skjávinnu á fóstur í Bandaríkjunum og nær hún til 5 til 7 þúsund kvenna. I síðasta hefti Vinnunnar er einmitt fjallað um þessi vá- legu tíðindi. Segir þar að frétt- irnar hafi valdið ugg meðal þeirra miljóna kvenna sem vinna við tölvur. -óg Vilhjálmur Rafnsson lœknir Vinnueftirlitinu: Aðeins veikar grunsemdir Ekki ástæða til viðvörunar, en vel fylgst með könnunum ytra - Þær lauslegu athuganir sem gerðar hafa verið í Kanada og Bandaríkjumim gefa ekki tilefni til að álykta með neinni vissu um að vinna við tölvuskjái geti valdið fóst- urláti eða vansköpun fósturs hjá þunguðum konum, sagði Vilhjálm- ur Raíhsson læknir hjá Vinnueftirliti rikisins í viðtali vð Þjóðviljann fyrir stuttu. - Okkur er kunnugt um þessar grunsemdir en þær eru mjög veikar og það þarf ítarlega rannsókn til að vita vissu sína í þessu efhi. Erfiðast er að ná í nógu stórt úrtak sem þarf til að fá vitneskju um raunverulega hættu eða skaðleysi tölvuskjáa fyrir þungaðar konur. Bandaríska könnunin sem farin er af stað nær væntanlega til um 7 þúsund kvenna en í henni eru fleiri áhættuþættir rannsakaðir en vinna við tölvuskjái. - En við teljum hugsanlega hættu ekki vera það mikla að það réttlæti viðvaranir af okkar hálfu til kvenna sem eru með banri og vinna við tölv- uskjái. Það eru aðrir vinnustaðir sem athygli okkar beinist máske fremur að vegna hættu á fósturláti og vanskapaðra fóstra. En hins veg- ar fylgjumst við vel með þeim könn- unum sem eru framkvæmdar og því Sitthvað þykir benda til að vinna við tölvuskjái geti valdið fósturláti þjá þunguðum konum samkvæmt at- hugunum sem gerðar hafa verið í Kanada og Bandaríkjunum. sem er að gerast í þessum málum erlendis. - Vinnueftirlitið er að vinna að útgáfu leiðbeiningabæklings fyrir fólk sem vinnur við tölvuskjái en henni er oft samfara mikið álag á sjónina og ekkert má út af bera við vinnuaðstæður til að fólk fái vöðva- bólgu og aðra slæmsku. Það þarf að gæta vel lýsingar og fjarlægðar o.s.frv., sagði Vilhjálmur Rafnsson læknir. -óg Þeir eru stórhuga hjá Samvinnutryggingum Fossvogsskóli fékk myndsegulbandstæki vegna góðrar þátttöku nemenda í átaki norræns umferðaröryggisárs Norrænu umferðaröryggisári lauk nú um áramótin. Nemend- urfjölmargra grunnskóla unnu að margs konar verkefnum um umferðarmál sem ætlað var að glæða áhuga þeirra og skilning á auknu öryggi gangandi fólks og þeirra sem farartæki nota. Nemendur Fossvogsskóla í Reykjavík voru í þessum hópi. Þar voru unnin fjölmörg áhugaverð verkefni og má sem dæmi nefna að teiknuð var stór yfirlitsmynd af Bústaðavegi og næsta nágrenni er sýndi umferðarljós, biðstöðvar strætisvagna, umferðaskilti, þver- götur, gangbrautir og annað mark- vert á leið vegfarenda. Einnig könnuðu nemendurnir háttu öku- manna á nokkrum stöðum í borg- inni, t.d. notkun bflbelta og stefnu- ljósa. Sem viðurkenningu á því mikla starfi sem nemendur Fossvogs- skóla og foreldra- og kennarafélags hans hafa unnið, bæði með mikilli og árangursríkri fræðslu og í góðri samvinnu við borgaryfirvöld um umferðaröryggismál, ákváðu Sam- vinnutryggingar g.t. að veita skól- anum viðurkenningu í tilefni nor- ræna umferðaröryggisársins. Viðurkenningin, sem veitt var í lok ársins, var myndsegulbands- tæki og litsjónvarpstæki, hvort tveggja af stærstu og fullkomnustu gerð sem völ er á á markaðnum. Tækin munu án efa verða skól- anum til mikils gagns til marghátt- aðrar fræðslu, ekki síst umferðar- fræðslu, því að reynsla af ýtarlegri umfjöllun og fræðslu um umferðar- mál á norrænu umferðaröryggisári í skólanum hefur sannað mikilvægi slíkrarfræðslu. Þegarskólinn hefur einnig eignast eigin upptökutæki, verður unnt að fjalla um raunhæf dæmi, tekin í daglegri umferð. Viðurkenning Samvinnutrygg- inga er glöggt dæmi um áhuga fé- lagsins á því að leggja sitt af mörk- um til að stuðla að auknu öryggi í umferð. f frétt frá Foreldra- og kennara- félagi Fossvogsskóla segir að því sé ljúft að þakka höfðinglega gjöf Samvinnutrygginga til skólans og að það líti svo á að hún sé viður- kenning, fyrst og fremst veitt nem- endum skólans sem með áhuga sín- um hafi glætt skilning sinn og ann- arra á þörfum bætts öryggis í um- ferðinni. Félagið óskar þess að nú sé hafið almennt umferðar- öryggisár án nokkurs endis að loknu Norræna umferðaröryggis- árinu 1983. - v. Bruno Hjaltested, aðstoðarframkvæmdatjóri Samvinnutrygginga g.t., afhendir Kára Amórssyni, skólastjóra Fossvogsskóla gjöflna frá Samvinnutryggingum. Viðstaddir eru fulltrúi Foreldra- og Kennarafélags Fossvogsskóla, ftilltrúi náms- stjóra og 2 deildarstjórar frá Samvinnutryggingum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.