Þjóðviljinn - 12.01.1984, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fiihmtudágur 12. janúar 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn í Skálanum (Strandgötu 41)
mánudaginn 16. janúar kl. 20.30.
Fundarefni:
1) Málefni næsta bæjarstjórnarfundar.
2) Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar.
3) Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
- Stjórn bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Vinnuhópar bæjarmálaráðs
1. fundur vinnuhóps um verkalýðs- og atvinnumál verður haldinn (
Skálanum (Strandgötu 41) fimmtudaginn 12. janúar kl. 20.30.
Fundurinn er öllum opinn. Mætið stundvíslega.
- Stjórn bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Borgarmalarað ABR
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins í Reykjavík heldur fundi sína alla
miðvikudaga kl. 17 nema fundir séu afboðaðir.
Formaður.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Árshátíð og þorrablot ABR
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugar-
daginn 28. janúar.
Hátíðin verður haldin að Hverfisgötu 105 og hefst boröhald kl. 20.00.
Veislustjóri: Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi. Skemmtiatriði auglýst
síðar.
Aðgöngumiðarnir eru komnir og eru þeir sem pantað hafa miða hvattir
til að vitja þeirra á skrifstofu ABR við tækifæri.
Alþýðubandalagsfélagar fjölmennið og tryggið ykkur miða á hátíðina í
tíma. Þegar eru komnar fleiri pantanir en tala þeirra sem sóttu hátíðina
1 fyrra. Þá komust færri að en vildu.
Aðgöngumiðar og miðapantanir á skrifstofu ABR. Síminn er 17500. -
Skemmtinefnd ABR.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Árshátíð
ABK heldur árshátíð sína í Þinghóli laugardaginn 4. febrúar nk.
Skemmtiatriði og hressandi veitingar. Miðaverð aðeins 200 krónur.
Allt stuðningsfólk velkomið. Nánar auglýst síðar. - Stjórn ABK.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins verður haldin laugardaginn 21. janúar
nk. í Alþýðuhúsinu og hefst með borðhaldi kl. 20.00.
Að vanda verður glæsileg skemmtidagskrá þar sem gleði, andríki,
söngur og hljóðfærasláttur skipa öndvegi. Ræðumaður kvöldsins
verður Vilborg Harðardóttir varaformaður Alþýðubandalagsins. Félagi
Steingrímur og félagi Stefán munu verða gestir hátíðarinnar ef guð
lofar. Hin gamalkunna hljómsveit Steingríms Stefánssonar leikur fyrir
dunandi dansi mest alla nóttina.
Miðaverð kr. 450.- Börn yngri en 12 ára fá ókeypis aðgang en aldurs-
hópur 12-15 ára greiðir 200 krónur.
Félagar, undirbúningsvinna er nú í fullum gangi. Auðveldið okkur hana
með því að láta skrá ykkur til þátttöku sem allra fyrst; hjá Ragnheiði í
síma 23397, Óttari í síma 21264 eða Guðlaugi í síma 23909. -
Skemmtinefndin.
Alþýðubandalagið Akureyri
Áríðandi fundur
með fulltrúaráði ABA verður haldinn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu
18, Akureyri, laugardaginn 14. jan. kl. 17.30.
Allir AB-félagar sem áhuga hafa eru velkomnir.
Verkalýðsmálaráð ABA er boðað til fundar á sama stað kl. 20.30 á sunnu-
dagskvöld. Svavar Gestsson formaður AB mætir á báða fundina.
- Stjórnin.
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því,
að gjalddagi söluskatts fyrir desember mán-
uð er 15. janúar. Ber þá að skila skattinum til
innheimtumanna ríkissjóðs ásamt
söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
- , . , V ' . ,>••• •
Sauðárkrókur
Norðanfréttir
Nokkur aukning varð á innlagðri
mjólk hjá Mjókursamlagi Kaupfé-
lags Skagfirðinga á s.l. ári. Ná-
kvæmar tölur liggja þó enn ekki
fyrir en ætla má að aukningin nemi
9-10%.
Sala unninna mjólkurvara var
tiltölulega jöfn og góð á árinu og
stöðug aukning á sölu osta. Sam-
dráttur varð hinsvegar á sölu ný-
mjólkur og nemur hann rúmlega
2%. Samlagið er nú með í umboðs-
sölu framleiðsluvöru annarra
mjólkurvinnslustöðva. Hafði sala á
þeim numið 1 milj. kr. íoktóberlok
sl.
Stórgripaslátrun
Slátrun nautgripa og hrossa var
með meira móti hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga í haust. Alls var slátr-
að 814 nautgripum, þar af 330 áður
en sauðfjárslátrun hófst, og nemur
kjötið 105 tonnum. Að langmestu
leyti voru þetta ungneyti og full-
orðnar kýr„
í ágústmánuði var lógað 52
hrossum, flestum fullorðnum.
Eftir að sauðfjárslátrun lauk var
svo lógað 1019 hrossum. Af þeim
voru folöld og tryppi 782. Alls var
því slátrað 1071 hrossi, sem gerðu
120 tonn af kjöti.
Búðafundir
Kaupfélag Skagfirðinga hefur nú
ákveðið að efna til svonefndra
búðafunda. Eru þeir nýlunda í
starfsemi félagsins. Tilgangurinn
með þessum fundum er að gefa við-
skiptamönnum færi á að korria á
framfæri ábendingum sínum og
skoðunum á þjónustu viðkomandi
verslunar skemmstu leið til versl-
unarstjórans og forráðamanns fé-
lagsins.
Ekki er meiningin að á þessu
verði neitt þvingandi fundaform.
Hver og einn getur komið á þeim
tíma dags sem honum hentar, feng-
ið sér kaffisopa og beint athuga-
semdum sínum, ábendingum eða
fyrirspurn munnlega eða skriflega
til þess eða þeirra, sem fyrir
svörum sitja.
Fyrsti fundurinn er fyrirhugaður
í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki
miðvikudaginn 1. febrúar, í útibú-
inu í Varmahlíð fimmtudaginn 2.
febrúar og í útibúinu í Hofsósi
fimmtudaginn 26. febrúar.
Vöruflutninga
„út að austanu
Síðastliðið sumar keypti
Kaupfélag Skagfirðinga öfluga
bifreið með drifi á öllum hjólum.
Er hún ætluð til vöruflutninga til
útibúa félagsins í Hofsósi, Fljótum
og Varmahlíð, auk flutninga til ein-
stakra viðskiptamanna á svæðinu.
Á mánudögum fer bílinn í Hofs-
ós og raunar lengra ef flutningur er
fyrir hendi, á fimmtudögum í Fljót-
in ogáföstudögum í Varmahlíð. Pá
er og hugmyndin að fara annan
hvern þriðjudag til Siglufjarðar.
Siglfirðingar eiga nokkur verslun-
arviðskipti við Sauðárkrók. Það
hefur þó torveldað þau að engir
beinir flutningar hafa verið á milli
þessara staða. í Varmahlíð er hægt
að taka grasköggla á bílinn og flytja
þá svo áfram með mánu-
dagsferðinni.
Þessir flutningar gera það að
verkum að lítil þörf verður fyrir að
geyma fóðurbæti í Hofsósi enda
aðstaða þar óhæg til þess. í stað
þess verða fóðurvörur fluttar með
bílnum til bænda á svæðinu beint
frá fóðurvörudeild félagsins á
Sauðárkróki. Lágmarks magn
heimflutts fóðurs er eitt tonn. Fóð-
urvörupantanir þurfa að berast í
síðasta lagi kl. 10 að morgni ferða-
dags.
Rekstrarráðgjöf
Fyrir nokkru fékk Kaupfélag
Skagfirðinga Hagvang hf. til þess
að gera úttekt á rekstri kjötvinnslu
félagsins. Skyldi með þeim hætti
leitast við að auka á rekstrarhæfni
hennar og bæta nýtingu í þágu bú-
vöruframleiðslunnar. Athugun
Hagvangs beindist bæði að vinnsl-
unni sjálfri og bókhaldi. Að athug-
un lokinni bentu Hagvangsmenn á
eitt og annað, sem leitt gæti til
aukinnar hagkvæmni og bætts
reksturs til hagsbóta bæði fram-
leiðendum og neytendum.
íslensk
ullarvöruverslun
í Noregi
Ung hjón frá Sauðárkróki, Sig-
urður Þorvaldsson og Hallfríður
Friðriksdóttir, hafa opnað íslenska
ullarvöruverslun í bænum Stryn,
sem er á Mæri í Noregi. Ekki ber á
öðru en Norðmönnum líki vel við
flíkurnar úr íslensku ullinni. Til að
byrja með hafa þau hjón einkum
lagt rækt við markaðssvæðið hið
næsta sér, en hafa fullan hug á því
að færa út kvíarnar smátt og smátt.
-mhg
Kattavinir
breima“
5?
Fyrir loppu
skjólstœðinga
sinna
„Það verður breimað á Borg-
inni“ segir í fréttatilkynningu frá
stjórn Kattavinafélagsins um
hljómleika á Hótel Borg í kvöld,
fimmtudag, sem hefjast kl. 21.00.
Þetta er önnur tilraun kattavina í
hljómleikahaldi til styrktar hús-
byggingarsjóði félagsins og von-
andi að hún heppnist (hvað sem
formaður Músavinafélagsins
segir), en fyrri tilraunin fauk út í
buskann í óveðrinu í sl. viku.
Þeir sem skemmta á Borginni í
kvöld eru væntanlega yfirlýstir
kattavinir, þau Róbert Arnfinns-
son leikari, Skúli Halldórsson
tónskáld, sönghópurinn Hálft í
hvoru, Unnur Jensdóttir, Guðni
Guðmundsson, hljómsveitin
Aldrei aftur, Guðmundur Árna-
son er hljóðmaður og kynnir Arn-
þrúður Karlsdóttir. Aðgangs-
eyrir er 190 kr. fyrir fullorðna og
90 kr. fyrir börn yngri en 12 ára.
A
FOLK AFERÐ!
begar fjölskyldan lcrðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
mIumferðar
WRÁÐ