Þjóðviljinn - 18.02.1984, Blaðsíða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17. - 18. febrúar 19841
A
Útboð
Tilboð óskast í 4. áfanga viðbyggingar við
félagsheimili Kópavogs sem er fullnaðarfrá-
gangur hússins.
Húsið er nú fokhelt og múrhúðað að utan,
gera skal heildartilboð í verkið.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings Fannborg 2, frá og með þriðju-
deginum 21. febrúar nk. gegn 3000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 6. mars kl. 11 f.h. að viðstöddum bjóð-
endum.
Bæjarverkfræðingur
Vi náttufélag______VÍK
íslands og Kúbu
Vinnuferð til Kúbu
Vináttufélag íslands og Kúbu gengst fyrir
vinnuferð til Kúbu í sumar einsog undanfarin
ár. Farið verður af stað um 20. júní og dvalið
á Kúbu í fjórar vikur.
Umsóknir um þátttöku sendist VÍK, pósthólf
318, 121 Reykjavík, fyrir 1. mars nk.
Nánari upplýsingar hjá Ingibjörgu í síma
20798.
Stjórnin
FLUGMÁLASTJÓRN
Flugmálastjórn óskar að ráða rafeinda-
virkja í stöðu eftirlitsmanns í radíódeild.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Upplýsingar gefa Haukur Hauksson eða
Þórarinn Guðmundsson hjá flugmála-
stjórn, Reykjavíkurflugvelli.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 29.febrúar nk.
Flugmálastjórn
Afburðagreind börn
Opinn fundur aö Hótel Borg nk. sunnudag, 19. febrú-
arkl. 15.00.
Framsögumenn: Dr. Bragi Jósepsson, dr. Andri Is-
aksson, Elín Ólafsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir.
Pallborösumræður: Fyrirspurnum svarað.
SÁUM
(Samtök áhugafólks um
uppeldis- og menntamál)
Kennarafélag Reykjavíkur
Tilboð óskast
í gaffallyftara HYSTER, árgerð 1970
(10.000 Ibs.j og gaffallyftara SAXBY, árgerð
1966, 21/a tonn.
Tækin verða sýnd þriðjudaginn 21. febrúar
kl. 12 - 15 að Grensásvegi 9.
Sala varnarliðseigna
Auglýsið í ÞjóSviljanum
Xttfraöi Nýr flokkur 22
* 1 .
% HJ
Sigurjón Lúðvík Karl Karl Ingvar
Ingvarsson Ingvarsson Sighvatsson Lúðvíksson Björnsson
Niðjar Ingvars
Pátmasonar
Þá kcmur hér þriðji og síðasti
hluti af niðjatali Ingvars Pálma-
sonar (1873-1947) útgerðarmanns
og alþingismanns í Neskaupstað og
konu hans Margrétar Finnsdóttur
(1870-1951). Hér er sagtfrá niðjum
fjögurra yngstu barna hans (nr. 6-9
í röðinni). Börnum innan við tví-
tugt er sleppt.
lf. Anna Ingvarsdóttir (f.1907),
átti Jón L. Baldursson sparisjóðs-
stjóra (1906-1981) í Neskaupstað.
Dóttir þeirra:
2a. Guðrún Jónsdóttir (f. 1941),
gift Árna Þormóðssyni fram-
kvæmdastjóra í Neskaupstað.
lg. Sigurjón Ingvarsson (f.
1909) skipstjóri í Neskaupstað, kv.
Jóhönnu Sigfinnsdóttur. Börn
þeirra:
2a. Sigurborg Sigurjónsdóttir
(f. 1934) gjaldkeri hjá Hafskipum í
Rvík, átti fyrr Sighvat Ágúst Karls-
son matreiðslumann, þau skildu.
Nú gift Ragnari Ingólfssyni fram-
kvæmdastjóra. Synir hennar af
fyrra hjónabandi:
3a. Karl Sighvatsson (f. 1950)
tónlistarmaður, nú búsettur í
Bandaríkjunum, átti áður Rósu
Helgadóttur, þau skilin. Nú kv.
Hjördísi Frímann fóstru.
3b. Sigurjón Sighvatsson
(f. 1952) kvikmyndagerðarmaður í
Bandaríkjunum, kv. Sigríði Jónu
Þórisdóttur í sérnámi fyrir þroska-
hefta.
2b. Margrét Sigurjónsdóttir
(f. 1937) skrifstofum. í Neskaup-
stað, gift Jóni Elíasi Lundberg raf-
virkjameistara og varakonsúl.
Elsta barn sitt átti hún fyrir hjóna-
band. Börn: yfir tvítugt:
3a. Jóhanna Gísladóttir (f.1956)
kennari á Seyðisfirði, gift Rúnari
Laxdal Gunnarssyni stýrimanni.
3b. Anton Lundberg Jónsson
(f. 1958) rafvirki í Rvík, kv. Þór-
eyju Þorkelsdóttur nema.
2c. Jóhann Sigurjónsson
(f. 1942) menntaskólakennari á
Ákureyri, kv. Valgerði Franklín
meinatækni.
2d. Ingvar Sigurjónsson (1946-
1960).
2e. Sigþór Sigurjónsson
(f. 1947) framkvæmdastjóri Skilta-
gerðarinnar í Rvík, kv. Sigrúnu
Valgerði Guðmundsdóttur.
2f. Benedikt Sigurjónsson
(f. 1949) verkstjóri í Neskaupstað,
kv. Jónu Katrínu Aradóttur.
2g. Friðrik Pétur Sigurjónsson
(f. 1955) í Danmörku, kv. Guðrúnu
Tryggvadóttur myndlistarm., þau
skilin.
2h. Hjálmar Sigurjónsson
(f.1956) starfsmaður Skiltagerðar-
innar í Rvík, kv. Arnbjörgu Lindu
Jóhannsdóttur snyrtifr..
2i. Anna Margrét Sigurjóns-
dóttir (f.1958) í Danmörku, gift
Ove Nielsen skólaumsjónarmanni.
lh. Lúðvík Ingvarsson (f. 1912)
sýslumaður á Eskifirði, síðar pró-
fessor í Rvík, kv. Aöalbjörgu
Karlsdóttur. Börn þeirra:
2a. Karl Lúðvíksson (f. 1947)
doktor í skipaverkfræði í Rvík, kv.
Borghildi Brynjarsdóttur.
2b. Margrét Lúðvíksdóttir
(f.1950), gift Ingimundi Friðriks-
syni hagfræðingi, þau nú búsett í
Bandaríkjunum.
2c. Ingvar Lúðvíksson (1951-
1963).
3. hluti
2d. Ari Már Lúðvíksson
(f. 1958) nemi í arkitektúr.
2e. Agúst Lúðvíksson (f. 1959)
nemi í eðlisfræði.
2f. Ingiríður Lúðvíksdóttir
(f. 1963) nemi.
li. Guðlaug Ingvarsdóttir
(f.1915), gift Birni Björnssyni
kaupmanni í Neskaupstað. Börn
þeirra:
2a. Fríður Björnsdóttir
(f.1935), gift Brynjari Júlíussyni
forstjóra í Neskaupstað. Börn yfir
tvítugt:
3a. Björn Brynjarsson (f. 1953)
rafvirki í Neskaupstað/
3b. Júlíus Brynjarsson (f.1954)
vélvirki í Rvík, kv. Jórunni Birgis-
dóttur, þau skilin.
3c. Kristín Brynjarsdóttir
(f.1957), gift Pétri Óskarssyni
húsasmíðameistara í Neskaupstað.
3d. Guðlaug Brynjarsdóttir
(f. 1958) matreiðslumaður í Dan-
mörku.
3e. Guðrún Brynjarsdóttir
(f.1963), gift Skúla Aðalsteinssyni
sjómanni í Ólafsvík.
2b. Björn Björnsson (f. 1936)
rafvirkjameistari á Hafursá á
Völlum, kv. Kolbrúnu Sigur-
björnsdóttur húsmæðrakennara.
Börn yfir tvítugt:
3a. Kristín Björnsdóttir
(f.1958), gift Erik Anderson for-
stjóra í Rvík.
3b. Guðlaug Björnsdóttir
(f.1960), gift Svavari Jósteinssyni
sjómanni.
3c. Málfríður Björnsdóttir
(f. 1961) starfsmaður Pósts og síma
á Egilsstöðum, gift Atla Má
Pálssyni símvirkja, þau skilin.
3d. Hrcfna Björnsdóttir
(f.1962) býr með Finni Þor-
steinssyni bifvélavirkja.
3e. Kolbrún Björnsdóttir
(f.1964) nemi.
2c. Ingvar Björnsson (f.1940)
byggingarverkfræðingur í Rvík,
kv. Hólmfríði Erlu Benediktsdótt-
ur.
2d. Margrét Björnsdóttir
(f. 1942), gift Má Sveinssyni verk-
stjóra í Neskaupstað.
2e. Atli Björnsson (f. 1947) raf-
tæknir í Rvík, kv. Sólveigu Bald-
ursdóttur.
2f. Hákon Björnsson (f. 1948)
viðskiptafræðingur, forstjóri Kísil-
iðjunnar við Mývatn, kv. Sigrúnu
Guðjónsdóttur viðskiptáfr..
2g. Anna Margrét Björnsdóttir
(f.1951) í Neskaupstað, gift Þórði
Þórðarsyni sjómanni.
2h. Jóhanna Björnsdóttir
(f.1952), gift Frímanni Sveinssyni
matreiðslumanni í Neskaupstað.
2i. Guðlaug Björnsdóttir
(f.1959), býr með Hjálmþóri
Bjarnasyni húsasmíðameistara í
Neskaupstað.
-GFr
Jffi) Framfarafélags
111» Breiðholts III
Aðalfundur félagsins verður í Gerðubergi, þriðju-
daginn 28.febrúar, og hefst kl. 20.30.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kynntar tillögur að nýju leiðarkerfi S.V.R. I
Breiðholtshverfum.
3. Fjallað um starfsemina í Gerðubergi.
4. Önnur mál.
Stjórnin
Psoriasis og
exemsjúklingar
Ákveöiö er aö stofna til 2ja hópferöa fyrir
psoriasis og exemsjúklinga til eyjarinnar
Lanzarote 23. apríl og 16. ágúst.
Ágústferóin verður auglýst síöar.
Dvalið verður á heilsustöðinni Panorama.
Fyrirkomulag verður með svipuðum hætti og í fyrri
ferðum.
Þeir, sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum
ferðum, vinsamlega fái vottorð hjá húðsjúkdóma-
lækni um þörf á slíkri ferð og sendi það merkt nafni,
heimilisfangi, nafnnúmeri og síma til
Tryggingayfirlæknls,
Tryggingastofnun ríkisins,
Laugaveg 114, 3. hæð.
Umsóknir verða að berast fyrir 15. mars.
Tryggingastofnun ríkisins.