Þjóðviljinn - 18.02.1984, Síða 18

Þjóðviljinn - 18.02.1984, Síða 18
Tvœr góðar reggíplötur irnmammmnmammummmammmmmmammmmm Black Uhuru Frakkarnir Hljómsveitin Frakkarnir var dugleg við hljómleikahald s.l. ár og tekur nú upp þráðinn á nýbyrjuðu ári - þeirra fyrstu hljómleikar 1984 verða á Hót- el Borg í kvöld, laugardag, þar sem þeir munu m.a. flytja efni af sinni ágætu hljómplötu sem kom út fyrir jólin ’83 og nefnist 18 SIÐA - ÞJOÐVILJINN dægurmál (sígiid?) Hávœr „Krossfesting“ Crucifix var næst á dagskrá. Þeir gáfu sér góðan tíma til að koma græjunum í samt lag. Þegar þeir fóru af stað þá var það líka start sem munaði um. Krafturinn rosalegur, hávaðinn ærandi. Þeir keyrðu í gegnum prógrammið með miklum krafti og kunnu áheyrendur, þótt fáir væru, svo sannarlega að meta leik hljóm- sveitarinnar og tilburði söngvar- ans, en hann var eins og skopp- arakringla um sviðið. Kynning- arnar á lögunum, þegar þær þá voru eitthvað, fjölluðu mest um utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þær afleiðingar sem þeir fé- lagar töldu að hún hefði haft. Crucifix lék í rúman klukkutíma og tók svo eitt aukalag eftir upp- klapp í lokin. Mér fannst gaman að Crucifix en ekki treysti ég mér til að fara á aðra slíka tónleika, hlusta á aðra slíka hljómsveit, næstu vikurnar. Eitt sem vakti undrun mína var, að hljómsveitin, sem flytur svo mjög ákveðinn pólitískan boðskap, skyldi ekki reyna að gera honum betri skil á tón- leikunum. Mér fannst eitthvað vanta. Ekki greindi maður text- ana og því hefðu kynningarnar mátt vera lengri og ítarlegri. í heild voru þetta ágætis tón- leikar, góð skemmtun á laugar- dagskveldi. Synd hvað fáir létu sjá sig, ég trúi ekki að áhugi á lifandi tónlist sé ekki meiri en þetta. JVS Ekki hefur mikið verið fjall- að um reggí tónlist hér á síð- unni og því tími til kominn að gera einhverja bragarbót þar á. Ekki berst hingað mikið magn af reggí plötum og því varð ég dálítið hissa þegar ég sá að plata Michaels Smiths, Mi C-Yaan beLieVe iT, var komin til landsins. Michael þesi Smith var eitt af svo kölluðu „dub“-skáldum þeirra Jamiaca búa. Mikils met- inn og hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum. Á Jamaica ríkir hálf- gerð ógnaröld, ýmsir öfgahópar vaða þar uppi og hika ekki við að myrða þá sem þeim eru lítt að skapi. Michael Smith var eitt slíkt fórnarlamb. Hann var grýttur til bana um hábjartan dag á götu í Kingston, höfuðborg Jamaica, af fjórum meðlimum eins hægri öfgahópsins þar í landi. Morðið á Smith kom sem reiðarslag yfir marga skoðana- bræður hans og aðdáendur. Skömmu fyrir morðið hafði hann hljóðritað plötuna Mi C-YaaN beLieVe iT með aðstoð Lintons Kvesis Johnson og Dennis Bow- ell. Þeir tveir síðarnefndu eru okkur íslendingum af góðu kunn- ir en þeir héldu ógleymanlega tónleika í Sigtúni nú fyrir jólin. Á Mi C-YaaN beLieVe iT flytur Michael Smith nokkur af kvæðum sínum, þar á meðal „Roots“ og „Mi C-YaaN beLeVe iT“ en þessi tvö lög komu út fyrir nokkrum árum hjá útgáfufyrir- tæki Lintons Kvesis Johnson. Undirleik á plötunni annast „dub“-band Dennis Bowell og eins og við munum eftir eru þeir þrælgóðir og gefa ekkert eftir á þessari plötu. Ekki spillir að sum kvæða Smiths eru mjög góð. Að vísu er nokkrum erfiðleikum bundið að skilja ljóð hans því að þau eru skrifuð á einhverslags slangi eða mállýsku sem erfitt er á köflum að botna í: Give me little dub music right Here so tonite Give me little dub music right Here so tonite I have dis haunting feeling So mek wi jus batin An ketch a reasoning Nuh bodder talk about Anything too tough Skip de usual stuff að hlýða á plötu Michels Smith, það verður enginn svikinn. Þessi plata er ein af perlum reggísins. Hin platan sem ég ætla að minnast á er Anthem með Black Uhuru. Þetta er fimmta eða sjötta plata hljómsveitarinnar og sver sig nokkuð í ætt við þær sem áður eru komnar. Líkt og vel flestar reggí-hljómsveitir sem við þekkjum er hún starfandi á Eng- landi. En segja má að þar sé að finna útibú frá Jamaica hvað varðar reggítónlist. Black Uhuru, sem þýðir Svart frelsi, er skipuð þeim Dickie Simpson, Michel Rose og Puma Jones. Puma Jones er kvenmaður eins og nafnið gefur til kynna og er það nokkuð óvanalegt að kvenmaður fari með eitt af aðal- hlutverkum í reggíhljómsveit. Þeirra hlutskipti hefur til þessa verið að syngja bakraddir. Á Anthem má greina nokkuð meiri rokkáhrif en á fyrri plötum hljómsveitarinnar, en ég hygg að það sé fyrst og fremst einkenni fyrir enskar reggíhljómsveitir, samanborið við þær frá Jamaica, að rokk áhrifin eru öllu meiri hjá þeim ensku. En hafa verður hug- fast að reggí stefnan hefur innan sinna raða fjöldann allan af mjög svo ólíkum listamönnum. An- them er fyrirtaks plata og fyrir þá sem hafa gaman af reggí tónlist veldur hún engum vonbrigðum. Ég hef alla tíð verið frekar hrifinn af Black Uhuru og þessi plata veldur mér engum vonbrigðum. Líkt og á fyrri plötum hljóm- sveitarinnar njóta þau aðstoðar Slys Dunbar og Robbies Shake- speare, en þeir eru eflaust kunn- ari hér undir nafninu Taxi. Auk þeirra tveggja koma fleiri góðir kappar við sögu sem ég kann lítil sem engin skil á. Anthem er áheyrileg plata og ég hygg að hún sé tilvalið fyrsta skref fyrir þá sem vilja kynna sér reggí-tónlist. JVS í F.s. Dat yuh out a luck A look fi work An mek wi seat up Wi nah mourners Wi naw guh watch wi self Guh down de road Like withering flowers An jus Mi C-Yaan beLieVe iT er fyrsta og eina plata Michels Smith og sorglegt að hann skyldi ekki geta sent frá sér fleiri því að þessi er æðislega góð og hefur allt það besta sem reggí hefur upp á að bjóða. Dauðinn hefur gert marga ódauðlega í tónlistarheiminum en vafasamt er að slík verði raun- in með Michael Smith. Alla vega ekki í Vestur-Evrópu og Banda- ríkjunum, til þess hafa vinsældir hans verið of litlar. En á Jamaica á nafn hans örugglega eftir að lifa lengi á vörum fólksins. Ég hvet alla sem unna góðri reggí tónlist Fámennt var en góðmennt Á föstudag og laugardag voru haldnir tónleikar í Fé- lagsstofnun stúdenta sem virðast hafa farið framhjá vel flestum. Ekki komu nema rúmlega 200 manns á þessa tónleika og á laugardeginum þegar ég fór voru ekki nema um 60 manns. Það er hálfgerð synd að ekki skyldu fleiri mæta því þetta voru ágætis- tónleikar. Ekkert aldurstak- mark var á tónleikana en lítið bar á yngsta aldurshópnum og hefði ég kosið að fleiri hefðu látið sjá sig á aldrinum 14-16 ára. Ég reyndi að fá viðtal við Crucifix en það gekk ekki. Þeir fjórmenningar sögðu að það væri prinsip hjá sér að leyfa ekki blaðamönnum flokkspólitískra blaða að taka viðtal við sig. En viðtal mun birtast við þá innan tíðar í blaðinu Við krefjumst framtíðar. Ég var hálfsvekktur með þessi málalok því að þeir hefðu getað sagt okkur eitt og annað um þá hlið tónlistarlífs vestan hafs sem við fáum svo sjaldan að sjá og heyra. Góð „Vonbrigði“ Tónleikarnir á laugardaginn byrjuðu klukkan rúmlega tíu og 1984. A fimmtudagskvöldið kemur (23. febrúar) verða Frakkar í Safarí. Með Frökkunum kemur fram dansflokkurinn Fantasy - hug- myndaflug það. Meðfylgjandi mynd er af gít- arleikaranum góða og gaman- reynda Björgvini Gíslasyni, en hann gerðist fastur meðlimur Frakkanna seint á gamla árinu... semsagt formlegur Frakki. A riðu Vonbrigði á vaðið. Þeir kappar léku eingöngu ný lög og voru hreint út sa'gt stórkostlegir. Nýju lögin voru þrælmögnuð og krafturinn góður. Það fer ekkert á milli mála að Vonbrigði eru ein af okkar albestu hljómsveitum. Ef tónlist þeirra og hljóðfæra- leikur er borinn saman við það sem við sáum og heyrðum í kvik- myndinni Rokk í Reykjavík eru framfarirnar stórkostlegar. Von- andi senda þeir frá sér breiðskífu í sumar því að þeir eru rosalega góðir. Askur Yggdrasils lék á eftir Vonbrigðum. Hljóm- sveitina skipa þau Gulli og Sig- tryggur (áður í Þey og Kukli), Björk (Tappa tíkarrassi og Kukli), Arni og Tóti (Vonbrigð- um) og Didda sem ég kann engin skil á. Þetta var hálfmislukkuð uppákoma. Allavega bjóst ég við einhverju miklu meira af þessu liði, því að það er þrælgott og getur gert betur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.