Þjóðviljinn - 18.02.1984, Blaðsíða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17. - 18. febrúar 1984
um helgina
Hljómsveitin Hrím: Matthías Kristiansen, Wilma Young og Hilmar J. Hauksson.
Hljómsveitín Hrím
með tvenna tónleika
sunnudagskvöld kl. 21 í Djúpinu
og er aðgangur ókeypis.
Hrím leikur og syngur hressa
þjóðlagatónlist þar á meðal tón-
list frá írlandi, Skotlandi og
Skandinavíu ásamt frumsömdu
efni.
Hljómsveitin Hrím heidur
tvenna tónleika í Reykjavík nú
um helgina.
Fyrri tónleikarnir verða í
menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi kl. 15 -17 á sunnudag, sem
er konudagurinn. í Gerðubergi
er boðið upp á kaffi í vistlegum
húsakynnum og geta gestir notið
veitinga og hlustað á hressilega
þjóðlagatónlist um leið.
Síðari tónleikarnir verða á
Sigurður Karlsson og Steinunn Jóhannesdóttir í hlutverkum Hallgríms
Péturssonar og Tyrkja-Guddu.
Tyrkja-
Gudda
í síðasta
sinn
Tyrkja-Gudda eftir Jakob
Jónsson frá Hrauni verður sýnd í
allra síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu
á sunnudagskvöld, kl. 20.
Leikstjóri er Benedikt Árna-
son, tónlist eftir Leif Þórarinsson
og leikmynd og búningar eru eftir
Sigurjón Jóhannsson. f sýning-
, unni koma fram yfir 30 leikarar
og eru stærstu hlutverkin í hönd-
um Steinunnar Jóhannesdóttur,
Sigurðar Karlssonar og Hákons
Waage.
í leiknum er rakin reynslusaga
Guðrúnar Símonardóttur, allt frá
Tyrkjaráninu í Vestmannaeyjufn
1672, dvöl hennar í Algeirsborg
og heimferðinni um Kaupmanna-
.höfn þar sem hún kynnist Hall-
grími Péturssyni. Leiknum lýkur
með dauða séra Hallgríms í Fer-
stiklu árið 1674.
8 fundir um launamál kvenna
leikkona um skemmtiatriði með Reykjavíkur. Fundirnir eru
aðstoð leikara úr Leikfélagi öllum opnir.
Sýningu Tröllaleikja frestað um viku
Brúðustjóri brotnaði
í dag laugardag kl. 14 efnir
Framkvæmdanefnd um launamál
kvenna til funda á 8 stöðum á
landinu. Á Hótel Borg í Reykja-
-vík, verkalýðshúsinu í Stykkis-
hólmi, Húsmæðraskóianum Ósk
á ísafirði, Hótel KEA á Akur-
eyri, Valaskjálf (ath. kl. 17) áEg-
ilsstöðum, Snótarsalnum í
Vestmannaeyjum, Hótel
Tryggvaskála á Selfossi og í
Glóðinni í Keflavík.
Á fundunum verða flutt stutt
framsöguerindi um stöðuna í
launamálum kvenna. Fjölbreytt
skemmtiatriði verða og á Hótel
Borg sér Guðrún Ásmundsdóttir
Leikbrúðuland hefur að und-
anförnu sýnt Tröllaleik fyrir fullu
húsi í Iðnó. Uppselt var á sýningu
sem ráðgerð var á sunnudaginn,
en hún fellur niður vegna þess að
einn stjórnenda brúðanna, Helga
Steffensen, varð fyrir því óhappi
j að handleggsbrotna. Og það er
ekki gott fyrir þá sem þurfa að
stjórna brúðum heilum höndum.
Þrátt fyrir þetta óhapp láta að-
standendur Leikbrúðulands ekki
deigan síga og stefna ótrauð að
sýningu 26. febrúar, það er að
segja næsta sunnudag.
ýmislegt
Arkitektafólag fslands
gengst unn helgina fyrir sýningu á 29 til-
lögum sem bárust í samkeppni um
stjórnsýsluhús á ísafirði. Sýningin er i
Gerðubergi, Breiðholti og er opin kl. 14 -
18 um helgina, aðgangur er ókeypis.
Námskeið í lelkstjórn
Samtök áhugamanna um kvikmynda-
gerð halda í dag, laugardag, námskeið í
leikstjórn. Námskeiðið fer fram í Álftamýr-
arskóla og hefst kl. 14. Leiðbeinandi
verður Egill Eðvarðsson.
Blkarglíma
I dag, laugardag kl. 14 hefst Bikarglíma
fslands 1984 í íþróttahúsi Melaskóla. 12
keppendur eru I flokki fullorðinna og tveir i
flokki drengja og unglinga. Bikarmeistar-
inn 1983, Jón Unndórsson KR er meðal
keppenda.
Kvikmyndasýning MÍR
Saga um móður nefnist sovéska kvik-
myndin sem sýnd verður í MlR-salnum,
Lindargötu 48 kl. 16 á sunnudag. Myndin
er gerð 1963 og er með ensku tali. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Viltu kynnast málfreyjum?
Málfreyjudeildin Melkorka kynnir starf-
semi málfreyjusamtakanna I menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í dag, laugar-
dag kl. 14. Eru konur hvattar til að kynnast
málfreyjuþjálfuninni.
Skáta-kabarett
Skátasamband Reykjavíkur heldur á
sunnudag Kabarett-dag, þar sem slegið
er saman flóamarkaði, kökubasar, kaffi-
veitingum og kabarett. Gamanið hefst kl.
14 f nýja skátahúsinu, Snorrabraut 60 og
stendur fram til kl. 17.
Fyrirlestur f Norræna
Sissel Seim ritstjóri flytur á sunnudag kl.
20.30 erindi (Norræna húsinu um: „Norr-
ænt útgáfustarf á sviði heilbrigðis- og fé-
lagsmála."
Afburðagrelnd börn!
SÁUM (Samtök áhugafólks um uppeldis-
og menntamál) og Kennarafélag Reykja-
víkur efna til fundar að Hótel Borg á sunn-
udag kl. 15 um „afburðagreind börn“.
Framsögu hafa Bragi Jósepsson, Andri
Isakson, Elín Ólafsdóttir og Ingibjörg Sól-
rún Glsladóttir. Fundurinn er öllum opinn
og að framsögum loknum verða pall-
borðsumræður þar sem fólki gefst kostur
á að beina spurningum til framsögu-
manna.
Oplð hús hjá vélstjórum
Á sunnudag kl. 14 verður opið hús í húsa-
kynnum Vélstjórafélags Islands í Borgar-
túni 18 í tilefni af 75 ára afmæli félagsins
þann 20. febrúar n.k. Á Akureyri og á
Reyðarfirði verður einnig opið hús á
sama tíma og eru allir félagsmenn og vel-
unnarar velkomnir.
leiklist
Þjóðlelkhúslð:
Skvaldur verður sýnt í tvígang á laugar-
dagskvöld, kl. 20 og kl. 23.30 og er síðari
sýningin sú fertugasta á þessum vinsæla
farsa. Uppselt var á sýningar um síðustu
helgi.
Lokaæflng Svövu Jakobsdóttur verður
sýnd kl. 16 á sunnudag á Litla sviðinu, en
sýningum fer nú að fækka. 35. sýning
verksins verður á þriðjudagskvöldið.
Lelkfálag Reykjavfkur:
Guð gaf már eyra hefur þegar náð mikl-
um vinsældum og hafa Sigurður Skúla-
son og Berglind Stefánsdóttir hlotið lof
fyrir leik sinn (aðalhlutverkum. Sýning kl.
20.30 á laugardagskvöld.
Forsetaheimsóknin verður í síðasta
sinn á laugardagskvöid kl. 23.30 í Austur-
bæjarbfói. 15 þúsund áhorfendur hafa
séð leikinn, sem hefur verið sýndur 35
sinnum.
Gfsl er á fjölunum á sunnudagskvöld. I
stærstu hlutverkum eru Glsli Halldórs-
son, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Jó-
hann Sigurðsson, Guðbjörg Thoroddsen
og Hanna María Karlsdóttir.
Freyvangur:
Leikfélag Öngulsstaðahrepps og ung-
mennafélagið Árroðinn sýna nú um helg-
ina leikritið Tobacco Road í Freyvangi.
Sýningarnar verða á laugardags- og
sunnudagskvöld og hefjast kl. 20.30.
Lelkfálag Kópavogs:
Á sunnudagskvöldið frumsýnir LK leikritið
Óvæntur gestur, eftir Agöthu Christie I
þýðingu Helgu Harðardóttur. Þetta er
fnjmflutningur hérlendis. Leikstjóri er Pét-
ur Einarsson, leikmynd er eftir ögmund
Jóhannesson en lýsingu annast Egill
Ámason. önnur sýning verður
fimmtudag 23. febrúar.
Gúmmf-Tarsan verður sýndur á sunnu-
dag kl. 15 og fer sýningum á þessum
vinsæla barnasöngleik nú að fækka.
tónlist
íslenska óperan:
Rakarinn f Sevllla veröur sýndur á
laugardagskvöld og á sunnudagskvöld
kl. 20 bæði kvöldin. Þessi vinsæla ópera
Rossinis gerist í Sevilla á Spáni snemma
á sfðustu öid og segir þar frá ungum
mönnum sem keppa um ástir yngis-
meyjarinnar Rósínu.
William Parker heldur tónleika
I dag, kl. 14.30, heldurbaritonsöngvarinn
William Parker tónleika í Austurbæjarbíói
fyrir Tónlistarfélagiö. Á efnisskrá eru m.a.
sönglög eftir Beethoven, Schubert, Dup-
arc, Ravel og Dominick Argento. Auka-
miðar verða seldir við innganginn.
Söngnámskeið
William Parker, baritonsöngvari heldur
söngnámskeið á vegum Tónlistarskólans
í Reykjavík sunnudag 19. febrúar á
Laugavegi 178. Námskeiðið stendur frá
kl. 15 -18 og eru áheyrendur velkomnir á
meðan húsrúm leyfir. Á mánudag 20. fe-
brúar verður síðan námskeið f sal Tónlist-
arskólans f Skipholti 33 milli kl. 17 og 20.
Áheyrn kostar 150 kr. á dag.
Borgfirðlngar
Gunnar Kvaran sellóleikari og Gfsll
Magnússon píanóleikari halda tvenna
tónleika í Borgarfirði um helgina. Fyrri
tónleikarnir verða í Logalandi í Reykholts-
dal í dag laugardag kl. 15 og þeir síðari f
Borgarneskirkju á sunnudag kl. 15.
Tónlistarkvöld Stúdentaleikhússins.
Á sunnudag kl. 20.30 verður tónlistar-
kvöld á vegum Stúdentaleikhússins f Fél-
agsstofnun stúdenta v/ Hringbraut. Þar
koma fram söngkonurnar Erna Guð-
mundsdóttir, Ingveldur Ólafsdóttir og Jó-
hanna Linnet. Þær syngja íslensk og grfsk
þjóðlög, Brahms og dúetta eftir Mendels-
sohn og Schumann. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir leikur undir á píanó og Pétur
Jónasson gítarleikari flytur einnig nokkur
verk.
Vfsnavinir
Á mánudag verður Vfsnakvöld á Hótel
Borg og hefst kl. 20.30. Boðið verður upp
á vandaða dagskrá auk þess sem fólki
verður gefinn kostur á að flytja eigið efni
eða annarra.
myndlist__________________________
Gallerf Langbrók:
Kynning á verkum Rúnu (Sigrúnar Guðj-
ónsdóttur) er opin kl. 14 -18 um helgina.
Á kynningunni eru steinleirsmyndir og
keramik og eru verkin til sölu.
Kjarvalsstaðlr:
Hönnun til hellsubótar nefnist sýning á
fslenskum húsgögnum fyrir skóla og skrif-
stofur sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöð-
um. Hún er opin kl. 14 - 22.
Listmunahúslð:
Kynning á myndum Þorvaldar Skúla-
sonar er opin um helgina kl. 14 - 18. Á
sýningunni eru 40 myndir frá ýmsum tfm-
um og allar til sölu.
Ármúli 5:
Sýning Stefáns Gunnlaugssonar í
vinnustofu hans, Ármúla 5 hefur verið
framlengd. Húneropin kl. 14-20álaug-
ardag og sunnudag.
Mokka:
Ólafur Sveinsson sýnir í fyrsta sinn á
Mokkakaffi um þessar mundir. Á sýningu
hans eru 30 myndir unnar með vatnslit,
blýanti, rauðkrft og tússi.
Gallerf Grjót:
Jónfna Guðnadóttir sýnir relief og
skúlptúr unnið f steinleir og postulín. Sýn-
ingin er opin kl. 14 -18 um helgina.
Ásmundarsalur:
Ingvar Þorvaldsson sýnir 30 vatnslita-
myndir. Sýningin er opin kl. 14 - 22 um
helgina.
] IAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
SKRIFSTOFUMANN
hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur. Upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri í síma 15937 eða 21769.
BÓKASAFNSFRÆÐING
í hálft starf. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Borg-
arbókasafns í síma 27155.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16 00
mánudaginn 27. febrúar 1984.