Þjóðviljinn - 18.02.1984, Qupperneq 28

Þjóðviljinn - 18.02.1984, Qupperneq 28
DJÚÐVIUINN Helgin 17. - 18. febrúar 1984 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn bjaðsins í þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiöjan Prent hefur slma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Eiga þessar byggingar að verða síðustu verkamannabústaðirnir? Myndin tekin í gær af verkamannabústöðunum á Artúnsholti. — Mynd: eik. Ríkisstjórnin fyrirskipar stöðvun nýframkvæmda við verkamannabústaði HNEFAHÖGG í andlit hinna verst settu segir Guðmundur J. Guð-, mundsson formaður VMSI Það væri hnefahögg í andiit þeirra sem verst standa, ein- stæðra mæðra og barnmargra fjölskyldna, ef draga á úr bygg- ingu verkamannabústaða með þessum hætti, sagði Guðmund- ur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandsins í gær er við bárum undir hann þá frétt að félagsmálaráðherra hefði látið þau boð út ganga ó- formlega, að dregið skyldi úr framkvæmdum verkamanna- bústaða um 25% á árinu og að ekki yrði farið út í nýjar bygg- ingar. - Hverjir eru það sem njóta góðs af vericamannabústaðakerfinu? Það eru einstæðar mæður og barnmargar fjölskyldur með lág laun. Ef á að taka þetta af þessu fólki og gefa það svo til baka í öðru formi, til dæmis í mæðralaunum og bamabótum þá er verið að fram- kvæma millifærslu á milli hinna fá- tæku í þjóðfélaginu. Við sömdum um þetta í samn- ingum á sínum tíma og gáfum eftir prósentuhækkanir á kaupi í stað- inn. Þau loforð sem þá voru gefin hafa þráfaldlega verið svikin, en ég fæ ekki séð hvað réttlætir þessa að- för að verst settu hópunum í þjóðfélaginu, einmitt nú. Það má sjálfsagt betrumbæta kerfi verka- mannabústaðanna, en ekki þá grundvallarforsendu, að með því sé verið að aðstoða það fólk sem verst er sett til þess að koma sér þaki yfir höfuðið. Síðustu þrjú árin hefur verið byrjað á 2-300 íbúðum í verka- mannabústöðum á ári, eða frá því að nýju húsnæðislögin tóku gildi í tíð Svavars Gestssonar með stór- auknu framlagi hins opinbera til Byggingarsjóðs verkamanna. Sam- kvæmt ákvörðun Alexanders Stef- ánssonar verður ekki byrjað á neinum nýjum íbúðum í ár. Nú eru í byggingu eða hefur ver- ið samið um að hefja framkvæmdir á 5-600 íbúðum í verkamannabú- staðakerfinu. 25% niðurskurður þýðir að lokið verður við 125 til 150 færri íbúðir en þegar var umsamið. Þetta þýðir að 350-450 íbúðir hverfa út úr verkamannabústaða- kerfinu miðað við það sem ætlað var, og uppbyggingin sem hafin var með mark\issum hætti er nú stöðv- uð. Loforðin við verkalýðs- hreyfinguna um 1/3 í félagslegum íbúðum svikin enn á ný undir íhaldsstjórn. ólg. Kvikmyndahátíð í Reykjavík Minnsta aðsókn frá upphafi! Fjölsóttasta kvikmyndahátíðin 1980 Samkvæmt upplýsingum Þjóð- viljans sóttu 14.600 manns Kvik- myndahátíð Listahátíðar, sem nýlokið er í Reykjavík. Við þá tölu má bæta 350 boðsgestum á frumsýningu Hrafnsins í Háskól- abíói, en færð spillti þar aðsókn. Þetta er minnsta aðsókn á kvik- myndahátíð frá upphafi, og eru ástæður taldar slæm færð og margar myndir sem ekki vöktu áhuga kvikmyndaáhugamanna. Framkvæmdastjóri Listahátíð- ar Guðbrandur Gíslason hefur'í viðtölum sagt að um 16 þúsund manns hafi sótt kvikmyndahátíð að þessu sinnr og sé það önnur fjölsóttasta hátíð frá upphafi. 18 þúsund manns hafi sótt síðustu kvikmyndahátíð í fyrra. Kvikmyndahátíó Listahátfðar: Sú önnur best sótta tiM SEXTÁ.N jjúsund manns súttu kvikmyndahátíú IJsiahátíftar scm lauk á hriújudag, og verilur hún pví önnur best sótta kvikmjndahátiðin frá upphafí, aú sögn (iuðbrands Gislasonar, framkvæmdastjóra I.istahátíðar. Þýöir þetta aö hátíóin verður hallaiaus. Uni 18 þúsund manna sótlu síð- ustu, kvikmyndahátið Listahátíð- ar, sem haidin var fyrir tveimur áruin. Guðbrandur sattði að ýmis- lcgt hefði reynst óhagsta'U að jiessu sinní. Fairð hefði veríð með eindæmurn eríið meðan á hátíð- inni hefðí staðið, einkum í upphafi hcnnar. f annan stað licfðu sam- ræmdu jirófin verið haldin á sama tíma og hátiðin, en sá ahiurshópur sa-kti að jafnaði mjög mikið kvíkmvndahús. Þessí og fleiri at- riði hefðu valdiö minni aðsðkn en á síðustu hátíð. Villandi fréttir um aðsókn ó kvikmyndahátíð í Reykjavík hafa birst i fjölmiðlum. Þessi úrklippa er úr Morgunblaðinu í gær. Samkvæmt tölum um umfang Listahátíðar Reykjavíkur sem löggiltir endurskoðendur Endur- skoðunar hf. unnu upp úr reikningsskilum hátíðarinnar árin 1970 til 1982 hefur aðsókn á Kvikmyndahátíð verið önnur en framkvæmdastjórinn gefur upp. Þar kemur fram að fjölsóttasta kvikmyndahátíð til þessa var árið 1980, en þá greiddu 22.500 að- gangseyri að hátíðinni. Næst- fjölmennasta hátíðin var sú fýrsta, árið 1978, með, 20.479 borgandi gesti. Þá kemur kvik- myndahátíð 1981 með 20.147 borgandi gesti. Aðsóknin fyrir tveimur árum var 19.707. - ekh.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.