Þjóðviljinn - 09.03.1984, Side 3
,'^TOWÍ.V . !.>,« I -,■.%! ■ 'vm.'W.-A”, v*‘! * - ‘\ \t
Föstudagur 9. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Fjárlagagöt ríkisstjórnarinnar
Aukin útgjöld
„Endurskoðuð áætlun um út-
gjöld A-hluta ríkissjóðs á árinu
1984 sýnir að heildarútgjöld nemi
20.299 miljónum króna sem er 2
miljörðum og 15 miljónum króna
hærri upphæð en fjárlög ársins
1984 áforma“, sagði Albcrt Guð-
mundsson fjármálaráðherra á al-
þingi í gær þar sem hann gerði
= 2 miljarðar
urðum geti reynst hærri en nemur
fjárveitingu í fjárlögum.
Albert sagði að alls gætu þetta
orðið um 600 miljónir. Ríkisstjórn-
in hefði ekki fallið frá markaðri
stefnu í fjárlögum, en endanlegar
ákvarðanir um nánari framkvæmd
lægju ekki fyrir.
-óg
grcin fyrir stærstu götunum á fjár-
lögunum sem samþykkt voru fyrir
rúmum 2 mánuðum.
I fyrsta lagi eru útgjöld sem ekki
var að fullu gert ráð fyrir við af-
greiðslu fjárlaga. Hér má nefna ál-
mannatryggingar, sýslumenn og
bæjarfógeta, grunnskóla o.fl. til
þessa flokks má telja 500-600 m.
kr.
I öðru lagi eru útgjöld, sem alls
ekki voru þekkt við afgreiðslu fjár-
laga alls 500-600 m. kr. Hér má
nefna lán vegna loðnudeildar
Verðjöfnunarsjóðs frá 1981, sem
fellur á Ríkisábyrgðasjóð, útgjöld
vegna Straumsvíkurhafnar, o.fl.
I þriðja lagi útgjöld ríkissjóðs
sem áformað var við afgreiðslu
fjárlaga að kæmu til lækkunar á ár-
inu 1984, en óvíst er hvort næst.
Hér eru m.a. útgjöld vegna al-
mannatrygginga allsum300m. kr.,
Lánasjóður ísl. námsmanna 100 m.
kr. o.fl. Þá eru horfur á að útflutn-
ingsuppbætur af landbúnaðaraf-
Súgfirðingar sam-
þykkja ASÍ/VSÍ
samkomulagið
Nauð-
ugur
kostur
segir í ályktun
fundarins hjá
verklýðs- og
sjómannafélaginu
Mjög fjölmennur fundur
var haldinn í gær hjá
verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Súganda-
fjarðar. Miklar umræður
urðu á fundinum og stóðu
þær í rúma tvo klukku-
tíma. í lok fundarins var
samþykkt ályktun sem hér
birtist orðrétt:
„Þrátt fyrir verulega annmarka á
nýgerðum kjarasamningum ASÍ
og VSÍ telur fundur í verkalýðs- og
sjómannafélaginu á Súgandafirði
að honum sé nauðugur sá kostur að
samþykkja þá við núverandi að-
stæður. Fundurinn skorar á þá að-
ila sem ábyrgð bera á samnings-
gerð á Vestfjörðum að hefja nú
þegar viðræður um leiðréttingu á
verstu göllum þessara samninga
áður en þeir valda alvarlegum
byggðavandamálum sem greini-
lega geta af þeim hlotist. Fundur-
inn skorar á verkafólk í fiskvinnu
að íhuga alvarlega hvursu mikið vit
sé í að vinna sig á fleygigerð í bónus
í átt til atvinnuleysis sem óhjá-
kvæmilega blasir við í sjávarpláss-
um vítt og breitt um landið. Fund-
urinn skorar á stjórn félagsins og
stjórnir annarra félaga að athuga
rækilega hvort breyttar forsendur í
fiskvinnu vegna aflakvóta séu ekki
næg ástæða til að endurskoða rétt-.
mæti bónusvinnu yfirleitt. Sam-
kvæmt 14. kafla urn ákvæðis- og
bónusvinnu í gildandi samningum
um kaup og kjör landverkafólks á
Vestfjörðum."
UMFERÐARMENNING
Ökum jafnan á hægri rein
á akreinaskiptum vegum.
UOÐVIUINN
Betra blað
Gelr Haarde aðstoðarráðherra Alberts og formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, var flokki sínum til
halds og trausts í baksölum þingsins í gær. (Ljósm. —eik).
Steingrímur
Hermannsson:
Gatið
hans
Alberts
Fjármálaráðherra mun koma
með tillögur til að koma á jafnvægi
hjá ríkissjóði, sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
umræðunum á alþingi í gær. Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra
kvað hins vegar ríkisstjórnina alla
vcra að fást við vandann.
-óg
Atómstöðin
Frumsýning
á Akureyri
í dag
Atómstöðin, sem sýnd hefur
verið við góða aðsókn í Austurbæj-
arbíói frá því á laugardag, verður
frumsýnd í Borgarbíói á Akureyri
kl. 17 í dag. Sýningar hefjast í
Vestmannaeyjum á fimmtudag í
næstu viku. Kvikmyndin er byggð á
samnefndri skáldsögu Halldórs
Laxness og virðist eins og hún veki
fólk til umhugsunar um sögu þjóð-
arinnar. Benda viðtökurnar til þess
að kvikmyndagestir kunni að meta
listaverkin.
Þeir hafa ekki bent á
neina leið ennþá
Fjármálaráðherra hef-
ur sagt að gatið mikla á
fjárlögunum, verði ríkis-
stjórn, Alþingi og þjóðin
öll að stoppa í, öðruvísi
verði málið ekki leyst.
Þjóðviljinn spurði Ragn-
ar Arnalds, fyrrverandi
fjármálaráðherra að því
hvernig hann teldi að
málið ætti að leysa.
„Að sjálfsögðu verður
fjármálaráðherra að
gera tillögur til lausnar
þessum vanda, til ríkis-
stjórnarinnar, hann getur
ekki velt því yfir á neina
aðra. Ríkisstjórnin mun
síðan að sjálfsögðu
koma með þær tillögur til
Alþingis".
Liggur ekkert fyrir hvernig
ríkisstjórnin hyggst leysa málið?
„Ég hef ekki heyrt neitt um það
en mér finnst að stjórnin hefði átt
að gera stjórnarandstöðunni
grein fyrir því þegar hún kallaði
okkur til viðtals útaf málinu. Ég á
von á því að það verði bið á því að
lausn finnist, sem stjórnin öll get-
ur sæst á, kannski þeir láti bara
reka á reiðanum. Annars er vita-
skuld aðeins um tvær leiðir að
ræða, minnkandi útgjöld, eða
auknar tekjur ríkissjóðs. Ef ég
væri fjármálaráðherra, myndi
verða mitt fyrsta verk að hætta
við boðuð skattfríðindi til fyrir-
tækja og hálaunafólks. Auk þess
hafa átt sér stað allskonar skatta-
lækkanir frá því þessi stjórn tók
við, sem eiga lítinn rétt á sér,
koma takmörkuðum hópi til
góða en munar um fyrir ríkissjóð.
Hér er um að ræða tekjutap fyrir
ríkissjóð uppá nær 400 milj. kr.
Það er eins og hver önnur della að
lækka skatta hér og þar, án þess
að útgjöld ríkissjóðs minnki sem
því nemur. Hér hefur hreinn
leikaraskapur verið í gangi á
mörgum sviðum," sagði Ragnar
Arnalds.
-S.dór
Ragnar Arnalds. Fyrsta verkið ætti
að vera að hætta við boðuð skatt-
fríðindi til fyrirtækja og hátekju-
fólks.