Þjóðviljinn - 09.03.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.03.1984, Blaðsíða 12
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. mars 1984 Opið hús Akureyri Opiö hús veröur haldið í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 sunnudaginn 11. mars nk. kl. 15.00. Veitingar og skemmtiatriði. Mætið vel. - Stjórn Alþýðubandalagsins Akureyri. Alþýðubandalagið í Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Fundur verður haldinn nk. mánudag 12. mars í bæjarmálaráði ABH í Skálanum Strandgötu 41, kl. 20.30. Fundarefni: Ályktunartillögur við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og önnur mál. - FélagarJj^lmennið. - Stjórnin. ABR Taflkvöld Alþýðubandalagið í Reykjavík efnir til taflkvölds þriðjudaginn 13. mars kl. 20.00 í Flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105. Áformað er að tefla 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími verður 15 mínútur á hverja skák fyrir hvorn keppanda. Þátttakendur taki með sér tafl og klukku. Nefndin Alþýðubandalagið á Egilsstöðum: Góðir félagar - Hreppsmálaráð Fundur hjá Hreppsmálaráði Alþýðubandalagsins á Egilsstöðum verða sem hér segir fram á vor: Mánudagur 19. mars. Umræðuefni: Staða mála, Dagheimili og Safna- stofnun. Mánudagur 2. apríl. Umræðuefni: Skipulagsmál. Mánudagur 16. apríl. Umræðuefni: Samstarf hreppa á Héraði og sameiningarmál. Fundirnir verða haldnir að Dynskógum 3 (kjallara), og hefjast kl. 20.30 stundvíslega. Hreppsmálaráð hvetur alla félagsmenn til að mæta og láta Ijós sitt skína. -Stjórnin. Alþýðubandalagið Garðabæ Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn sunnudaginn 11. mars kl. 10.30 að Heiðarlundi 19. Félagar hvattir til að mæta. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Fræðslufundur um Kúbu Fyrirhugað er að halda fræðslufund um Kúbu 15. mars nk. að Hverfis- götu 105 Reykjavík. Nánar auglýst síðar. - Æskulýðsfylking AB. Ragnar Óttarr Verkalýðsmálanefnd ÆFAB: Ottó Opinn fundur Verkalýðsmálanefnd ÆFAB heldur opinn fund mánudag 12. mars kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Dagskrá: 1. Unga fólkið og kjarabaráttan. Framsögum.: Kormákur Högnason. 2. Undirskriftasöfnun ÆFAB kynnt. Framsögum.: Ragnar A. Þórsson. 3. Starf verkalýðsmálanefndar á næstu mánuðum. Framsögum.: Óttarr M. Jóhannsson. Fundarstjóri Ottó Másson. Heitt á könnunni og með því. Fjölmennið. - Verkalýðsmálanefnd ÆFAB. Starfslaun handa listamönnum árið 1984 Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa íslenskum listamönnum árið 1984. Umsóknir skulu hafa borist úthlutunarnefnd starfslauna, menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, fyrir 10. apríl n.k. Umsóknir skulu auðkenndar: Starfslaun listamanna. ( umsókn skulu eftirfarandi atriði tilgreind: 1. Nafn, heimilisfang, fæðingardagur og ár, ásamt nafnnúmeri. 2. Upplýsingar um náms- og starfsferil. 3 Greinargerð um verkefni, sem liggur umsókn til grundvallar. 4. Sótt skal um starfslaun til ákveöins tíma. Verða þau veitt til þriggja manaöa hið skemmsta, en eins árs hiö lengsta, og nema sem næst byrjunar- launum menntaskólakennara. 5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sínar árið 1983. 6 Skilyrði fyrir starfslaunum er að umsækjandi sé ekki í föstu starfi, meðan hann nýtur starfslauna, enda til þess ætlast að hann helgi sig óskiþtur verkefni sínu. 7. Að loknu verkefni skal gerð grein fyrir árangri starfslauna. Tekið skal fram að umsóknir um starfslaun árið 1983 gilda ekki í ár. Reykjavík 7. mars 1984 Úthlutunarnefnd starfslauna Nýlistasafnið: Björgvin Gylfi Snorrason sýnir Björgvin Gylfi Snorrason sýnir um þesar mundir keramikverk, teikningar og ljósmyndir í Nýlista- safninu við Vatnsstíg. Björgvin Gylfi útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskólanum 1974 en stundaði síðan framhalds- nám og kennslu við listaakademí- una í Miinchen 1974-1980 og frá 1980 hefur hann verið aðstoðar- kennari við veggmynda- og högg- myndadeild listaakademíunnar í Kaupmannahöfn. í sýningarskrá gerir Björgvin Gylfi grein fyrir hugmyndum sín- um um listsköpun almennt og for- sendurverkasinna. Þarsegir m.a.: „Athygli mín beinist að endur- tekningunni, einföldun og stöðlun menningarþátta, þar sem ritúöl, at- hafnir og leikir í formi endurtekn- inga verða hluti hins daglega lífs, en þó sérstaklega að fyrirbærinu endurtekning, sem ramma fyrir meðvitaðan eða ómeðvitaðan breytileika." Sýningin er opin virka daga frá kl. 16-20 og kl. 14-22 um helgar. Sýningin stendur frá 9.-18. mars. Staðlaðir einingahlutir í járnbrautarstöð, ein af hugmyndum Björgvins Gylfa Snorrasonar. Fræðslufundur um kransæðasjúkdóm Fræðslufundur fyrir almenning um kransæðasjúkdóm verður hald- inn á vegurh Hjartaverndar í Dom- us Medica laugardaginn 10. mars kl. 13.30. Heilbrigðisráðherra, Matthías Bjarnason, flytur ávarp í upphafi fundarins. Síðan flytja átta fyrirlesarar stutt erindi um ýmis atriði varðandi málefnið. Þessir fyrirlesarar eru: Stefán Júlíusson, Nikulás Sigfússon, dr. Bjarni Þjóð- leifsson, dr. Guðmundur Þorgeirs- Matarsýning Dagana 9.-11. mars munu nem- endur Hótel- og veitingaskóla ís- lands standa fyrir sýningu í skólan- um (Hótel Esju 2. hæð, bakhlið hússins). Á sýningunni verða sýndir kaldir réttir og dúkuð skreytt borð sem nemendur hafa unnið. Einnig verða kaldir réttir frá hinum ýmsu veitingahúsum borgarinnar. Fyrir- tæki í viðkomandi starfsgreinum nemenda munu kynna vörur sínar, s.s. borðbúnað, eldhúsáhöld og margskonar matvörur. Fjölbreytt sýnikennsla í matar- gerð verður á staðnum, einnig í borðskreytingum, serviettubrotum og fleira sem nemendur skólans og aðrir fagmenn sjá um. Með sýningunni eru nemendur að auka á fjölbreytni námsins og vekja athygli á starfsemi skólans. Sýningin verður opin frá kl. 18.00-22.00 föstudag og kl. 10.00- 22.00 laugardag og sunnudag. son, dr. Gunnar Sigurðsson, dr. Sigurður Samúelsson, dr. Jón Ótt- ar Ragnarsson og dr. Þorsteinn Blöndal. Fundarstjóri verður Snorri Páll Snorrason. Þegar erindum er lokið verða hringborðsumræður um kransæð- asjúkdóm með skírskotun til er- inda og fyrirspurna fundarmanna. Umræðunum stýrir dr. Þórður Harðarson. Öllum er heimill að- gangur að fundinum meðan hús- rúm leyfir. Haustþoka Rögnu Her- mannsdóttur Haustþoka heitir fyrsta ljóðabók Rögnu Hermannsdóttur, sem áður hefur gert nokkrar myndbækur. Eitt ljóðið hefst á þessa leið: I heilan kaldan mánuð hefur snjóað hvenær ætlar vetrinum að ijúka. Sorgin hefur níst að hjartarótum langa daga og svefnlausar nætur. í kverinu þessu eru tólf Ijóð, kenndaljóð í opnum stíl um ást, sorg, ypn, gleði og fleira á þeim skala. Styrkir til náms á Ítalíu (tölsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa Islendingum til náms á Italíu á háskólaárinu 1984-85. Styrkirnir eru einkum ætlaðirtil framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða náms við listaháskóla, Styrkfjárhæðin nemur 420.000 lírum á mánuði. Umsóknum ásamt tilskildum fylgiskjölum skal komið til menntamálaráðu- neytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 28. mars n.k. Umsóknareyðu- blöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 7. mars 1984 Faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðmundur V. Sigurðsson Þórólfsgötu 8, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgameskirkju laugardaginn 10. mars kl. 13.30. Erla Guðrún Guðmundsdóttir Bogi Petersen ÞorgeirGuðmundsson Rebekka Benjamínsdóttir Eydís Guðmundsdóttir Þorsteinn Benjamínsson og barnabarn. Katrín Dúadóttir Kirkjuvegi 34, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju á morqun, lauqardaq- inn 10. mars, kl. 14. Fyrir hönd ættingja, Sæmundur Dúason, Jón Sæmundsson. Dóttir mín Þuríður Kvaran lést að morgni 8. mars. Hjördís S. Kvaran Sólvallagötu 3.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.