Þjóðviljinn - 09.03.1984, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.03.1984, Blaðsíða 11
Föstudagur 9. mars 1984 'ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Helgar- sportið Körfubolti Síðasta umferð úrvals- deildarinnar hefst í kvöld kl.20 með leik IBK og Vals í Keflavík og KR og Hauka í Hagaskóla. Á sunnudagskvöldið kl. 20 leika ÍR og Njarðvík í Seljaskóla. KR mætir Haukum f Hagaskólg kl. 18.15 í kvöld í 1. deild kvenna og UMFK og IS leika í Njarðvík kl. 14 á morgun. Handbolti Næst-síðasta umferðin í 1. deild kvenna byrjar í kvöld með leik FH gg Víkings í Hafnarfirði kl 20. Á morgun, laugardag, verða síðan þrír leikir í Selja- skóla. ÍR-Fylkirkl. 14, Fram-KR kl. 15.15 og Valur-Akranes kl. 16.30 Blak Völsungar og ÍS, efstu lið 1. deildar kvenna, mætast að Ýdölum í kvöld kl. 20. KA mætir síðan ÍS í Glerárskóla á Akur- eyri kl. 15 á morgun. Þá leika Víkingur og Þróttur kl. 16.40 á morgun í Hagaskóla. í 1. deild karla eigast Víkingur og Þróttur við í Hagaskóla kl. 15.20 á morgun og í bikar- keppni karla, undanúrslitum, leika Reynivfk og ÍS á Dalvík á morgun. Sund Sundmót Aspar verður hald- ið í Sundhöll Reykjavíkur í kvöld og hefst kl. 19.45. Keppt verður í 12 greinum. Sundmót Kiwanis verður haldið í Vestmannaeyjum á morgun. Glíma Sveitaglíma islands 1984 verður haldin á morgun, laugar- dag, og hefst kl. 17 í íþróttahúsi Menntaskólans við Sund. Borðtennis íslandsmót unglinga og öld- unga verður haldið f Laugar- dalshöllinni um helgina. Keppni hefst kl. 14 á morgun, laugar- dag, og kl. 13 á sunnudag. Skíði Þetta er Olympíuhelgin 1984 á ísafirði. Bikarmót í alpagrein- um fullorðinna og bikarmót í göngu fullorðinna og unglinga verða haldin þar vestra. Áfall fyrir Njarðvík Engar líkur eru á að Valur Ingi- mundarson, stigahæsti leikmaður úrvalsdeilarinnar í körfuknattleik, geti leikið með Njarðvíkingum í úrslitakeppninni um íslandsmeist- aratitilinn síðar í þessum mánuði. Hann steig illa niður í bikar- leiknum við KR á þriðjudagsk- völdið og haltraði strax af leikvelli og í ljós hefur komið að bein við hné brotnaði. Þetta er hrikalegt áfall fyrir Njarðvíkinga og minnkar meistaravonir þeirra til muna, en þeir hafa sigrað í sjálfri úrvals- deildinni með gífurlegum yfirburð- um. íþróttir Víðir Sigurðsson Meginhluti Ólympíufara valinn í maímánuði: Reynt að halda opnum 2-4 sætum Helgi Helgason. Búið er að draga um hvaða lið skuli mætast í fyrstu umferðum bikarkeppninnar í knattspyrnu í vor. í bikarkeppni karla fara fram þrjár umferðir í undankeppni og sex lið komast í aðalkeppnina. Eftirtalin lið mætast í 1. umferð undankeppninnar: „V>ð aetlum helst að reyna að velja meginhluta keppenda fyrir leikana í Los Angeles í maímánuði, ég vona að við getum þá tilkynnt a.m.k. 8-10 en líkast til verða 12 íslenskir keppendur á leikunum," sagði Gísli Halldórsson, forseti Ol- 2. umferð Suöurland: Leiknir R.-Árv./Vík.ÓI. Stokkse/Fylkir-Afturelding FH/ÍR-Snæfell Self./Haukar-Reynir S./Njarðv. Ísaf./Víkv.-Léttir/Augnabl. Víðir/Hafnir-Árm./Grindavík ÍBV-ÍK Skallagrímur-Stjarnan ympíunefndar íslands, í samtali við Þjóðviljann í gær. Gísli sagði að reynt yrði að halda opnum 2-4 sætum þannig að þeir íþróttamenn sem næðu góðum ár- angri þegar komið væri fram á sumarið ættu möguleika á að kom- ast inní hópinn. Reyndar þyrfti ekki að tilkynna Alþjóða Ólymíp- unefndinni um nöfn þátttakenda fyrr en hálfum mánuði fyrir leikana, eða um miðjan júlí, en það fyndist sér alltof seint. Margt þyrfti að taka með í reikninginn, flugfé- lög vildu fá nafnalista snemma, sauma þyrfti föt á keppendur og fleiri í þeim dúr. „Sérsamböndin vilja að þetta sé dregið sem allra lengst en það eru mörg vandkvæði á því,“ sagði Gísli Halldórsson. Ýmsar spurningar hafa vaknað að undanförnu og margir telja að nauðsynlegt sé að bíða framá sumar með að tilkynna þátttakend- ur t.d. í frjálsum íþróttum. Keppn- istímabil frjálsíþróttamannasé vart hafið í apríl og maí, hvorki hjá þeim sem erlendis dvelja né þeim sem eru hér heima. Menn séu að bæta árangur sinn langt frameftir sumri og því óraunhæft að velja þá sem eiga að keppa í ágústbyrjun eftir frammistöðu þeirra að vorinu, eða jafnvel eftir árangri síðasta árs. Margir af okkar efnilegri frjálsí- þróttamönnum hafa sýnt að þeir eru til alls líklegir í sumar og það yrði óbætanlegt ef einhver þeirra næði glæsiárangri í júlíbyrjun, en við hann yrði sagt: „Því miður, of seint, reyndu aftur eftir fjögur ár.“ -VS Firmakeppni V alsmenn gangast fyrir Hrmakeppni í innanhússknattspyrnu dagana 16.-18. mars. Veglegur verðlaunagripur til eignar er veittur fyrir efsta sætið og verðlaunapeningar fyrir fyrstu þrjú. Þátttaka tilkynnist til Guðmundar Kjartanssonar síma 12027, Guðmund- ar Þorbjörnssonar síma 39120 eða Harðar Hilmarssonar síma 24711 fyrir miðvikudag. Heppnissig- ur hjá UBK Breiðablik vann heppnissigur á Þrótti, 3-1, í 1. deild kvenna í blaki í fyrrakvöld. Þróttarstúlkurnar voru betri aðilinn með Snjólaugu Bjarnadóttur í aðalhlutverki en þær töpuðu fyrstu hrinunni 10-15. Þróttur hafði yfirburði í annarri hrinu og vann 15-2 og komst í 10-1 og 13-8 í þeirri þriðju, bara til að tapa 13-15. Þá fjórðu vann svo Breiðablik 15-17 og þar með var leikurinn úti. -VS Helgi áfram á Húsavík Allt bendir til þess að Helgi Víkings eins og til stóð. Helgi mun Helgason verði áfram á Húsavík og þá áfram starfa við hlið Kristjáns leiki með Völsungi í 2. deildinni í Olgeirssonar sem þjálfari, en þeir knattspyrnu í sumar í stað þess að félagar stjórnuðu Völsungsliðinu í ganga á ný til liðs við 1. deildarlið sameiningu sl. sumar. _VS Bikarkeppnin í knattspyrnu: Víkverjar fara til ísafjarðar! Suðurland: Reynir S.-Njarðvík Ármann-Grindavík Víðir-Hafnir Stokkseyri-Fylkir FH-ÍR Selfoss-Haukar Ísafjörður-Víkverji Léttir-Augnablik Árvakur-Vikingur Ó. Norðurland: Magni-Tindastóll Völsungur-Leiftur Vorboðinn-Vaskur Austurland: Hrafnkell-Austri Huginn-Sindri Þróttur N.-Leiknir F. Valur Rf.-Einherji HI og MI sigruðu Noröurland: Vorboðinn/Vaskur-KS Völs./Leiftur-Magni/Tindast. Austurland: Hrafnk./Austri-Einh./Valur Þróttur/Leiknir-Huginn/Sindri Bikarkeppni kvenna 1. umferð KR-Keflavík Fram-Víðir Valur-Breiðablik FH-Akranes Fyrsta umferðin í bikarkeppni karia verður leikin 23.-24. maí og 2. umferð 5. júní en 1. umferð í bikarkeppni kvenna fer fram 14. júní. -VS Framhaldsskólakeppni í svigi og boðgöngu fór fram við Hveradali í fyrradag. Sveit Háskóla ísiands sigraði í svigi, Menntaskólinn á Ak- ureyri varð í öðru sæti og Mennta- skólinn við Sund í þriðja. Mennta- skólinn á Isafirði sigraði í göng- unni, íþróttaskólinn á Laugarvatni varð í öðru sæti og Menntaskólinn á Akureyri í þriðja. Sigursveit Háskólans skipuðu Kristinn Sigurðsson, Einar Úlfs- son, Helgi Geirharðsson ogTrausti Sigurðsson en sigursveit ísfirðinga skipuðu Guðmundur Kristjánsson, Brynjar Guðbjartsson og Einar Ól- afsson. Skíðafélag Reykjavíkur sá um framkvæmd mótsins. Charlton bjargað Enska knattspyrnufélaginu Charlton, sem leikur í 2. deild, var bjargað frá útrýmingu í gær. Félagið hafði verið lýst gjaldþrota í síðustu viku en á síðustu stundu, hálftíma áður en fresturinn sem því hafði verið gefinn átti að renna út, kom fram fjármagn sem bjargaði félaginu fyrir horn. Hugleiðing um íslenska kvennalandsliðið í handknattleik: Ekki sama hver meíðist? Undirbúningi hagað skringilega Þriðjudaginn 28. feb. síðastliðinn var farin keppnisferð til Banda- ríkjanna. Endurgjalda átti þá heimsókn bandaríska kvenna- landsliðsins sem kom hingað síð- astliðið haust. Til þessarar farar völdust 14 stelpur, einn þjálfari og hvorki meira né minna en 4 FARARSTJÓRAR. Undarlegtað þurfa 4 fararstjóra með stelpun- um, eru þær virkilega svona erf- iðar viðfangs? Sumum hefði nú þótt eðlilegra að taka færri farar- stjóra með og lofa þá öllum stelp- unum 18, sem fyrir þessa ferð æfðu, að fara með. Hvernig ætli kostnaður við þessa fyrrnefndu fararstjóra sé fjármagnaður, úr sjóði landsliðsins eða borgar HSÍ? Landsliðsþjálfari kvenna- landsliðsins hr. Viðar Símonar- son hefur vægast sagt hagað undirbúningi landsliðsins Hrafnhildur Gunnars- dóttir skrifar „skringilega". Þá leiki sem hann hefur séð, t.d. í fyrstudeildar keppninni í vetur, mætti telja á fingrum annarrar handar. Hvern- ig velur slíkur þjálfari landslið? Myndi slíkt hið sama vera látið viðgangast með karlalandsliðið?' Nei, sjálfsagt ekki því eins og flestir vita er annað að sjá leik- menn leika undir pressu í leik en á æfingum. Einnig mætti nefna máli sínu til stuðnings er lands- liðsþjálfari valdi útileikmann ÍR, Kristínu Arnþórsdóttur, til æfinga í landsliðinu sem mark- mann, en allan síðari hluta móts- ins hefur hún leiki úti með ÍR. Svo ef við förum að tala um markmenn þá kemur það öllum á óvart að núverandi handhafi tit- ilsins: Besta handknattleiks- stúlka íslands, Jóhanna Pálsdótt- ir, skuli ekki hafa verið með í för- inni. En í hennar stað valdist ung, óreynd en efnilega stúlka úr Fylki, Halla Geirsdóttir, til farar- innar. Hvernig stendur á því? Var það vegna meiðsla eða ein- hvers annars sem hæstvirtur landsliðsþjálfari ákvað að Jó- hanna skyldi heima sitja? Ef ástæðan er fólgin í meiðslum sem hún átti við að stríða, vissi hún þá hve mikil þau voru? Sú yfirlýsing var gefin að enginn meiddur leik- maður færi með út og í kjölfar hennar var önnur gefin um það að þær stelpur sem myndu spila með í innanhússmótinu í knatt- spyrnu mættu búast við því að, detta úr landsliðinu. Og síðar var það skýrt á þeim forsendum að slysahætta hefði átt mestan þátt í þeirri yfirlýsingu. Þarna er eitthvað óhreint í pokahorninu, vissi landsliðsþjálfari eitthvað al- mennt um meiðsli innan liðsins? Og hvers vegna var þá Erna Lúð- víksdóttir látin fara út með 10 spor á enninu? Og hversu marga leiki spilaði hún? Er ekki sama hver meiðist og af hverju var ekki látið jafnt yfir alla ganga? Það væri ákaflega gaman að fá svör eða skýringar við ofanrituðu ef möguleiki er. Ellegar væri eðli- legast fyrir landsliðsþjálfara og landsliðsnefnd að segja sem skjótast af sér í kjölfar slíkra vinnubragða. Hrafnhildur Gunnarsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.