Þjóðviljinn - 09.03.1984, Side 15
Föstudagur 9. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA23
RUV 1
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Sigurðar Jónssonar frá kvöld-
inu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Snorri Jónsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Leikur i
laufi“ eftir Kenneth Grahame. Björg Árna-
dóttir les þýöingu sína (28).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.)
10.45 „Mér eru fornu minnin kær" Einar Krist-
jánsson frá Hermundarfelli sér um þáttinn
(RÚVAK).
11.15 Visindamaöur af Jökuldal. Vilhjálmur
Einarsson ræðir við Stefán Aðalsteinsson;
seinni hluti.
11.45 Tónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
14.00 „Klettarnir hjá Brighton" eftir Graham
Greene. Haukur Sigurðsson les þýðingu
sína (18).
14.30 Miðdegistónleikar. Fílharmóniusveitin í
Vín leikur „Prinz Methusalem", forleik eftir
Johann Strauss og „Der OpernbaH'1, forleik
eftir Richard Heuberger; Willi Boskovsky stj.
14.45 Nýtt undir nálinni. Hildur Eiríksdóttir
kynnir nýútkomnar hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Alfred Brendel leikur
á píanó með Fílharmóníusveitinni í Vin „Mal-
édiction" ettir Franz Liszt; Michael Gielen
stj. / Henryk Szeryng og Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leika Fiðlukonsert í d-moll op. 47
eftir Jean Sibelius; Gennady Rozhdestven-
sky stj.
17.10 S/ðdegisvakan
18100 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvðldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn. Stjórnandi: Heiðdís Norð-
fjörð (RÚVAK).
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thorodd-
sen kynnir.
20.40 Kvöldvaka. a) Kaupmannahafnar-
þankar Sigurður Örn Sigurðsson tekur
saman og flytur b) Sótt á brattann. Por-
steinn Matthíasson segir frá eriiðri för Sal-
bjargar Jónsdóttur Ijósmóður við Isafjarðar-
djúp til konu í barnsnauð. Umsjón: Helga
Ágústssdóttir.
21.10 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson
kynnir.
21.40 Fósturlandsins Freyja. Umsjón: Hösk-
uldur Skagfjörð. Lesari með honum: Lóa
Guðjónsdóttir.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Lestur Passiusálma (17).
22.40 Traðir. Umsjón: Gunnlaugur Vngvi Sig-
fússon.
23.20 Kvöldgestir - þáttur Jónasar Jónas-
sonar.
00.55 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá
Rás 2 hefst með veðurfregnum kl. 01.00
og lýkur kl. 03.00.
RUV 2
... ■ t tí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ól-
afsson.
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnendur: Valdís
Gunnarsdóttir og Hróbjartur Jónatansson.
16.00-18.00 Helgin framundan Stjómandi: Jó-
hanna Harðardóttir.
23.15-03.00 Næturvakt á RÁS 2 Stjórnandi:
Ólafur Þórðarson. Rásir 1 og 2 samtengdar
með veðurfréttum kl. 01.00 og heyrist þá í
Rás 2 um allt land.
RUVÓ
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.55 Skonrokk Umsjónarmaður Edda And-
résdóttir.
21.25 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Ingvi Hrafn Jóns-
son og Ögmundur Jónasson.
22.25 26 dagar i lifi Dostojevskis Sovésk
bíómynd frá 1981. Leikstjóri Alexander
Zarkhy. Aðalhlutverk: Anatoly Solonitsyn og
EvgeniaS. Simonova. Rússneski rithölund-
urinn Fjodor Dostojevski (1821-1881)
ræður til sín unga stúlku sem ritara.
Skammvinn samskipti þeirra veita nokkra
innsýn í hugarheim skáldsins og líf.
23.45 Fréttir í dagskrárlok.
Það fór sem vænta mátti þegar
farið var að nagga um verka-
mannakaup hér að flest yrði í
skötulíki. Það voru hástemmdar
umræður um ranglætið sem er í
launamuni. Nú yrði að rétta hlut
láglaunafólksins. Það hefur
heyrst áður. Og svo var staðið
upp og allir sjáanlega hjartanlega
sammála, þeim hafði heppnast
eins og alltaf áður að færa þeim
sem hæsta hafa kaupið líka hæsta
viðbót. Láglaunafólkið sat að
mestu leyti kyrrt niðri.
Ekki er gott að sjá hvort þetta
er gert af vanþekkingu eða van-
hugsun. Þeir sem hér ráða og aðr-
ir er um fjalla finnst að hér sé
farið að strangasta réttlæti. En sé
jetta skoðað opnum augum
reynist þetta argasta ranglæti og
mikill dýrtíðarvaldur. Þessi skað-
frá lesendum
Prósentureikningur á
dýrtíSaruppbót er della
valdur er prósentureikningur á
dýrtíðaruppbót á laun.
Krónutala
í upphafi hefur þessi prósentu-
reikningur verið tekinn upp án
þess að leiða að því hugann hvert
sú aðferð stefndi, eða þá þeirri
ætlun sem lá að baki launabót-
anna.
Grundvöllur vísitölubótanna
var einfaldur og augljós, aðeins
að finna út hvað nauðþurftir
hefðu hækkað frá síðustu ákvörð-
un launa. Þegar sú tala var fundin
sem kaup þyrfti að hækka til að
kaupa sama magn af nauðsynjum
og áður. Hér lá því hinn sanni og
augljósi jöfnuður fyrir. Sú krónu-
tala er þurfti til að halda kaup-
mætti launa átti að koma jafnt á
öll laun hvort sem þau voru há
eða lág. Og engin sjáanleg ástæða
Sjónvarp klukkan 22.25
26 dagar í lífí
Dostojevskis
Rithöfundurinn Fjodor Dostojevski.
Rússneski rithöfundurinn Fjodor Dostojevski (1821-1881)
gerir mjög óhagstæðan samning við útgáfufyrirtæki sem gerir
það að verkum að hann verður að skila handritum fyrir ákveð-
inn tíma. Hann ræður til sín unga stúlku sem ritara í tuttugu og
sex daga. Myndin gefur áhorfendum nokkra innsýn inní hugar-
heim skáldsins, líf hans og samskiptin við ritarann.
til þess að hátekjumaðurinn
þyrfti að éta margfalt meira en
lágtekjumaðurinn, og þyrfti því
að fá hærri vísitöluupphæð.
Prósentureikningur
En prósentureikningurinn
bjargaði þessu við. Hátekjumað-'
urinn fékk mörg þúsund krónur í
dýrtíðaruppbót, þegar láglauna-
maðurinn fékk nokkra tugi eða
hundruð. Þetta er nú réttlætið og
jöfnuðurinn í úthlutun kaupbóta.
Og svo er hrópað um ójöfnuð í
kaupi, og menn sjá ekki eða vilja
ekki sjá þennan orsakavald.
Tvöfaldur ójöfnuður
Svo er margt fleira athugavert
við prósentureikninginn á vísi-
töluuppbótunum. Fær lægri
launaflokkur fulla skerðingar-
uppbót á laun? Ef ekki, þá er
stolið af honum og ölium flokk-
um þar til komið er að þeirri upp-
hæð í launastiganum sem svarar
til aukningar á verði nauðsynja.
Ef þetta hefur verið þannig út-
fært, þá er ójöfnuðurinn tvöfald-
ur. Tekið er af þeim sem höfðu
minna og fært til þeirra sem
höfðu mest. Ef við gerum ráð
fyrir að reiknuð prósentutala á
lægsta launaflokk sé sú rétta
hækkunartala sem á að koma á
kaup, þá liggur í augum uppi að
allar þær upphæðir sem koma
fram yfir þá tölu á efri launa-
flokka eru teknar ófrjálsri hendi í
hærri launagreiðslur og beina
dýrtíðaraukningu sem sífellt
hleður utan á sig.
Það má heita undarlegur sljó-
leiki í þessum prósentuspeking-
um að sjá ekki að þarna er sífellt
verið að búa til verðbætur sem
hafa engan grunn að hvíla á en
kalla á hærri tölur næst. Pró-
sentureikningur er góður á sínum
stað, en við reikning á verðbótum
á laun er hann miður góður.
Dœminu snúið við
Þá er best að snúa dæminu við
og gera því skóna að verðlag hafi
lækkað og nú þurfi færri krónur
til að kaupa þennan ákveðna
skammt nauðsynja en áður. Og
nú sest kjaranefnd á rökstóla, en
nú til að lækka kaup, allt réttlæti
mælir með því að kaup fylgi verð-
lagi. En hvað gera reiknings-
meistararnir þá? Verða þeir
jafnfúsir að nota prósentukvarð-
ann í þessu viðviki? Skella þeir
4-5 falt meiri lækkun á kaup há-
tekjumanna heldur en láglauna-
fólks? Skyldu þeir ekki hika? Og
þá með hvaða rökum? Lækkun á
prósentunni er hér nákvæmlega
jafnmikið réttlæti eða óréttlæti
hér eins og við kauphækkun.
Prósentureikningur á kaupupp-
bót á laun er og verður alltaf stórt
núll hjá þeim sem nota hann við
að reikna út dýrtíðarbætur.
4.3. 1984
Glúmur Hólmgeirsson.
Útvarp kl. 23.30
Kvöldgestir
Jónasar
Það verður um margt spjall-
að í þætti Jónasar Jónassonar,
Kvöldgestir, en hann er á dag-
skrá kl. 23.20 í kvöld.
Gestir hans að þessu sinni
eru þau Hannes Hafstein fyrr-
verandi stýrimaður m.m. en
núverandi framkvæmdastjóri
Slysavarnafélags íslands, og
Sigrún Svavarsdóttir sem mun
vera fyrsti kvenstýrimaður
hérlendis.
Hannes Hafstein og Sigrún E. Svavarsdóttir.
spaugið
Maður nokkur hér í borginni
hringdi í lækni á Landspítalan-
um til að fá fregnir af tengda-
móður sinni, sem lá þar hættu-
lega veik.
Læknirinn var eitthvað ann-
ars hugar þegar hann tók upp
símtólið, þannig að maðurinn
varð að bera spurninguna upp
tvisvar sinnum, án þess að fá
svar.
Maðurinn, sem er bráð-
lyndur, hreytti út úr sér í þriðja
sinn, svo hvein í símanum:
„Hvernig er þetta eiginlega! Ég
var að spyrja hvort það væri
nokkur von með hana tengda-
móður mína!“
„Það fer nú eftir því,“ ansaði
læknirinn loks, „á hvorn veginn
þér vonið.“
bridge
Nokkuð var um það á Bridgehá-
tíð, að „venjuleg" spil gáfu mjög
góða skor. Að „taka“ gameið sitt
gaf vel yfir meðalskori, að talað sé
nú ekki um slemmur, þær gáfu yfir-
leitt rosaskor. Hér er dæmi:
Spil úr 24. umferð:
ÁDGx xx
Áxxx KG10
x ÁKGxx
K109x ÁGx
Félagi í Austur vakti á 1 laufi
(sterkt) og þú hættir ekki fyrr en i 6
gröndum, spiluð I Austur. Útspil
Suðurs var smátt hjarta og þarmeð
var sá vandi leystur. Makker hitti
síðan ekki í laufið, spaðakóngur var
„réttur", þannig að 12 slagir fengust
nokkuð auðveldlega. Það gaf góða
skor til A/V.
Gestur Jónsson var einnig sagn-
hafi í 6 gröndum, en Gestur virðist
ekki kvenhollur, því hann fann hvor-
uga dömuna (eða enga dömu, þvi
tígulfraukan er rétt einnig) og fór því
einn niður. Ekki stuðið með mínum
manni í þessu spili.
Tikkanen
Dömur eru víst heimskari en
konur.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Hann réði fólk til
starfa.
Rétt væri: Hann réð fólk til
starfa.
FÓLKÁFERÐ!
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
ufeUMFERÐAR
Uf
Práð