Þjóðviljinn - 17.04.1984, Qupperneq 5
Þriðjudagur 17. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Eilíf veisla á Reyðarfirði:
Nýtt íslenskt leikrit frumsýnt
Meirihluti hlutverka í höndum kvenna
Nýlega var frumflutt nýtt ís-
lenskt leikrit á Reyðarfirði eftir
Margréti Traustadóttur sem
þar býr. Leikritið, sem heitir
Eilíf veisla, fjallar um hjóna-
bandssögu nýgiftra hjóna
sem slíta samvistum eftir
skamma sambúð. Verkið hef-
ur þegar verið sýnt víða á
Austurlandi við góðar undir-
tektir, og fyrirhugað er að
sýna það á fleiri stöðum
eystra. Margrét leikstýrir verk-
inu sjálf.
„Þetta er baktería sem ég hef
gengið með frá æsku“, sagði Mar-
grét í stuttu spjalli við Þjóðvilj-
ann. „Ég hef lengi glímt við að
skrifa og satt að segja á ég efni í
kassatali heima við, hvort sem
það nýtist mér nú nokkurn tíma“.
Margrét kvaðst hafa verið þrjú
ár að skrifa leikritið, sem lýsir
sambúð hjóna frá giftingu og þar
til samband þeirra flosnar upp
eftir þrjú ár. „Þetta er nú ekki
nein lífsreynslusaga mín“ sagði
Margrét, „þó auðvitað fléttist
inní hlutir sem ég hef reynt í eigin
lífi eða séð gerast hjá öðru fólki.
Leikritið lýsir ekki einungis við-
brögðum hjónanna, heldur kann-
ski ekki síður hvernig fólk um-
hverfis þau bregst við, við-
brögðum tengdafólks og kunn-
ingja“.
Margrét kvað ekki hafa verið
tiltakanlega erfitt að leikstýra
verkinu sjálf, samstarfið við
leikendur hefði gengið vel,
leikstjórnin hefði verið sér mjög
lærdómsrík og „mun ábyggilega
verða mér til hjálpar í framtíðar-
verkum". Hún taldi jafnframt að
þegar fólk hefði einu sinni fengið
bakteríuna, þá væri ekki undan-
komu auðið og hún væri þegar
komin með nýtt efni á heilann.
í Eilífri veislu eru fimmtán
hlutverk sem eru í höndum tíu
leikara. Það er athyglisvert að af
leikurunum tíu eru sjö konur, en
kvenhlutverk eru að öðru jöfnu
gjaman mun færri en karlhlut-
verk og þetta er því nokkurt ný-
mæli. Þess má að lokum geta að
systir Margrétar, Sólveig, hefur
samið tvö leikrit, sem hafa verið
sýnd eystra. „Ætli þetta sé ekki í
blóðinu", sagði Margrét að lok-
um.
-ÖS
Búseti
í Árnes-
sýslu
Húsnæðissamvinnufélag var
stofnað á Selfossi 19. mars sl. og
eru nú komnir í féiagið rúmlega
50 manns. Félgssvæði þessa hús-
næðissamvinnufélgs er Árnes-
sýsla öll.
í stjórn Búseta í Árnessýslu
eiga sæti: Bragi Ólafsson, for-
maður, Davíð Kristjánsson,
Eiríkur Guðmundsson, Sjöfn
Halldórsdóttir og Sólveig Guð-
mundsdóttir. Endurskoðendur
félagsins eru Margrét Einarsdótt-
ir og Sigurgeir Friðþjófsson.
Búseti í Árnessýslu hefur opn-
að skrifstofu að Eyrarvegi 3, Sel-
fossi, og síminn þar er 2248.
Skrifstsofan er opin alla virka
daga frá 17-19 en auk þess er opið
til kl. 22 á fimmtudögum og á
laugardögum er opið frá 14-17.
Þar er tekið á móti skráningu
nýrra félaga og veittar upplýsing-
ar um húsnæðissamvinnufélög.
Nú hafa verið stofnuð 3 hús-
næðissamvinnufélög í landinu, í
Reykjavík, á Akureyri og í
Árnessýslu. Búsetafólk íhugar nú
stofnun landssambands, en slíkt
samband fengi inngöngu í sam-
band húsnæðissamvinnufélaga á
Norðurlöndum. Verulegur styrk-
ur yrði í inngöngunni fyrir Búseta
hér á landi, því henni gæti fylgt
ýmis konar aðstoð, m.a. fjár-
hagsleg.
ast
Annað uppboð
ríkisvíxla
„Við erum eftir atvikum ánægðir
með þetta útboð. Þetta eru að vísu
ekki þeir vextir sem við erum að
sækjast eftir, en það er eðiilegt að
menn sýni varfærni núna og trúlega
myndi takast betur til ef sjór væri
lygnari á efnahagssviðinu“, sagði
Höskuldur Jónsson ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu í gær.
í öðru útboði ríkisvíxla á
miðvikudag tók ríkið tilboðum í
víxla að nafnvirði 28,5 miljónir
króna, en 30 miljónir voru boðnar
út. Kaupverð víxlanna var 26,9
miljónir, sem jafngildir 25,97%
meðalársvöxtum. í fyrsta útboð-
inu, þegar selt var að nafnvirði 19
miljónir króna, voru vextirnir sem
ríkið þarf að borga lægri eða
25,72% en menn hafa talað um
þessi útboð sem „baromet“ á tiltrú
manna á efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar.
Höskuldur sagði að ævintýra-
ljóminn sem einkennt hefði fyrsta
útboðið virtist nú farinn af. Þá var
algengt að menn reiknuðu með 30-
50% vöxtum, en þorri tilboða nú
hljóðaði upp á 22-30%. Næsta upp-
boð á ríkisvíxlum er áætlað í maí-
byrjun.
Lmlitiis
sbírteini
Alþvðu
bankans
Þú færö 6% hærri vexti af innlánsskírteinum Alþýöubankans
en af almennum sparisjóðsreikningum.
Þú leggur einfaldlega inn ákveðna upphæð (lágmark kr. 3.000)
og sex mánuðum síðar tekurðu hana út ásamt vöxtum,
sem á ári nema nú 21 %.
Með því að leggja inn upphæðina ásamt vöxtum í aðra sex mánuði
nærðu 22,1% ávöxtun á ári af innlánsskírteininu.
Eftir fyrstu sex mánuðina reiknast annars almennir sparisjóðsvextir
af innlánsskírteininu þar til þú tekur út.
Innlánsskírteini Alþýðubankans eru skattfrjáls
eins og almennar sparisjóðsbækur.
Þau eru afgreidd frá og með 16. apríl í Alþýðubankanum,
Laugavegi 31, og útibúum Suðurlandsbraut 30 og á Akureyri.
Við gerum vel vid okkar fólk
Alþýðubankinn hf.
ái
auglýsingaþjOnustan'